Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 Sumarkomunni fagnað Sumarkomunni var fagnað víða um land á sumardaginn fyrsta, og í Reykjavík fóru hátíðarhöld aðallega fram í tengslum við félagsmiðstöðvarnar Qórar í borginni. Sáu þær um skipulagningu hátíðarhaldanna í samvinnu við íþróttafélög, skáta og kvenfélög á hveijum stað, og stóðu hátíð- arhöldin víðast hvar fram eftir kvöldi. Að sögn lögreglunnar tók nokkur Qöldi fólks þátt í hátíðar- höldunum sem fóru friðsamlega fram. Garðabær: Ný sundlaug vígð NÝ sundlaug var vígð í Garðabæ á sumardaginn fyrsta, en hún er hluti af íþróttamiðstöðinni við Ásgarð, sem gert er ráð fyrir að vígja í heild næsta haust. Framkvæmdir við sundlaugina hófust í maí 1988, en hún er hluti af íþróttamiðstöðinni í Garðabæ, sem auk sundlaugarinnar mun saman- standa af tveimur íþróttahúsum, tveimur grasvöllum og malarvelli. Nýja sundlaugin er 25 metrar að lengd og 15,5 metrar að breidd, en einnig er 6 metra löng bamalaug. Áætlað er að nýtt íþróttahús verði afhent í júní næstkomandi, eða um 13 mánuðum eftir að framkvæmdir við það hófust. Eftir afhendingu þess verður unnið við uppsetningu áhorf- endabekkja og annars búnaðar í hús- ið, og er fyrirhugað að íþróttamið- stöðin í heild verði vígð í haust. Búningsklefar fyrir sundlaugar- gesti verða fyrst um sinn í kjallara nýrrar tengibyggingar á milli íþrótta- húsanna, en einnig verða búningskle- far í gamla íþróttahúsinu notaðir fyrir sundlaugargesti. Morgunblaðið/Sverrir Frá vígslu nýju sundlaugarinnar í Garðabæ. Séra Bragi Friðriksson sóknarprestur í Garðakirkju flytur blessunarorð. Hugmyndasamkeppni um breytingar á Fossvogskirkju: Kirkjan verði hlý- legri og rúmi fleiri FYRSTA sumardag voru tilkynntar niðurstöður úr hugmynda- samkeppni um endurbætur á Fossvogskirkju. Fyrstu verðlaun, 250.000 krónur, hlaut tillaga myndhöggvarans Helga Gíslasonar og arkitektanna Arna Kjartanssonar og Sigbjörns Kjartanssonar, en þeim til ráðgjafar var sr. Baldur Kristjánsson. Morgunblaðið/Einar Falur Höfúndar tillögunnar sem hlaut fyrstu verðlaun, við mynd af fyrir- hugaðri altaristöflu. Frá vinstri: Helgi Gíslason myndhöggvari, Sig- björn Kjartansson og Arni Kjartansson arkitektar. Á aðalfundi Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis síðasta vor var rætt um að Fossvogskirkja uppfyllti ekki nægilega vel þær kröfur um hlýleika, sem gerðar væru til útfararkirkju, en einnig hefur komið fyrir að kirkjan rúmar illa alla kirkjugesti. Stjóm kirkju- garðanna samþykkti því eftir aðal- fundinn að efna til hugmyndasam- keppni um breytingar á kirkjunni, og var skipuð dómnefnd í júní í fyrra til að annanst framkvæmd og skipulag keppninnar. í henni sátu Olafur Sigurðsson arkitekt, formaður, Helgi Elíasson útibús- stjóri, sr. Ólafur Skúlason dómpró- fastur, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt og Sverrir Norðfjörð arki- tekt. Til þess að auðvelda þátttak- endum í samkeppninni að átta sig á aðstæðum var gert myndband af kirkjunni að innan og töluð inn á það ýtarleg lýsing á kirkjunni, en það mun vera í fyrsta sinn, sem sá háttur er hafður á við slíka sam- keppni hér á landi. Alls bárust 13 tillögur f keppn- ina. Dómnefnd ákvað að kaupa þijár þeirra, tillögu Lilju Grétars- dóttur og Bjama Kjartanssonar, til- lögu Ólafs Tr. Magnússonar og Péturs H. Ármannssonar, og tillögu Kjartans Jónssonar og Trausta Valssonar. Þijár tillögur fengu verðlaun, 3. verðlaun hlaut tillaga Helga Hafliðasonar arkitekts, en 2. verðlaun hlaut tillaga Hjörleifs Stefánssonar, Sigrúnar Eldjárn, Grétars Markússonar og Stefáns Amar Stefánssonar. Verðlaunatillöguna unnu þre- menningarnir, arkitektar og mynd- höggvari, allir í sameiningu. í henni Þverskurðarteikning af Foss- vogskirkju eins og verðlaunatil- lagan gerir ráð fyrir að hún muni líta út. er gert ráð fyrir að opnað verði úr sal kirkjunnar út undir hliðarþökin, og verði hleypt birtu inn um milli- veggi úr ógagnsæju gleri. Svalir fram í kirkjuna verði stækkaðar, meðal annars til að stytta rými kirkjunnar og gera það hlýlegra. Þá er lögð sér stök áherzla á altar- istöfluna og altarið. Altarið er sett í kórinn miðjan, og formi kóropsins breytt í gotneskan oddboga til þess að undirstrika form altaristöflunn- ar, sem er 4 m há þríhyrnd stein- tafla, sem táknar heilaga þrenningu og upprisuna, að því er segir í grein- argerð höfundanna. Höfundar gera einnig tillögu um að fylgja breytingum á innviðum kirkjunnar eftir með því að breyta aðkomunni að henni, stækka úti- tröppurnar og leggja fram af þeim steinhellur sem teygi sig út í kirkju- garðinn. Kristsmyndinni, sem nú stendur í garðinum fyrir framan kirkjuna yrði þá skipað í öndvegi á þessu torgi, „svo hún „taki á móti“ þegar gengið ere úr kirkju,“ eins og segir í greinargerðinni. Sýning stendur nú yfir á öllum verðlaunatillögunum í matsal kirkjugarðanna í skrifstofubygg- ingu þeirra í Fossvogi. Hún verður opin til 30. apríl, kl. 17-20 á virkum dögum en um helgar kl. 14-18. Að sögn Ásbjöms Bjömssonar, for- stjóra kirkjugarðanna, mun stjóm þeirra koma saman fljótlega, at- huga viðbrögð við sýningunni og ákveða að hvaða marki verði farið eftir fyrstu verðlaunatillögunni og öðmm tillögum, sem viðurkenningu hlutu. Símabanki sparisjóðanna: Símsvari veitir upplýs- ingar um bankaviðskipti SEX sparisjóðir kynntu í gær nýja þjónustu sem nefnist síma- banki sparisjóðanna. Frá og með næsta mánudegi geta viðskipta- vinir sparisjóðanna hringt í ákveðin símanúmer sem eru mismun- andi eftir svæðum og fengið upplýsingar um viðskipti sín, auk ýmissa annarra upplýsinga. Þeir sparisjóðir sem standa að síma- bankanum eru Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóð- ur vélstjóra, Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður HafnarQarðar, Sparisjóðurinn í Keflavík og Sparisjóður Mýrasýslu. Jón Ragnar Höskuldsson, niður á þeim sem bíða við borðið. frámkvæmdastjóri Tölvumið- Þá kemur þetta til með að spara stöðvar sparisjóðanna sagði á blaðamannafundi þar sem hin nýja þjónusta var kynnt að síma- banki sparisjóðanna væri tölvuv- æddur símasvari. í hann væri hægt að hringja og forvitnast um innlánsviðskipti hjá sparisjóðun- um og fá ýmsar aðrar upplýsingar t.d. um gengismál. „Þessi þjón- usta sparar viðskiptavinum okkar tíma,“ sagði Jón Ragnar. „Starfs- fólk sparisjóðanna eyðir einnig miklum tíma í að fínna slíkar upplýsingar til og oft kemur það fé og lækka rekstrarkostnað." Númerið hjá símabankanum er 629000 fyrir svæðisnúmerið 91. Ef hringt er þarf að gefa upp kennitölu og aðgangslykil en það er sérstakt númer sem valið er í samráði við starfsmann spari- sjóðsins. Að þessu loknu er hægt að fá nákvæmar upplýsingar um stöðu reiknings, síðustu hreyfing- ar reiknings, millifæra, panta aukayfírlit, senda skilaboð, fá upplýsingar um inn- og útláns- vexti, gengi o.fl. Sá sem notar Morgunblaðið/Júlíus Jón Ragpiar Höskuldsson, framkvæmdastjóri Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna, sýnir notkun símaþjónustu sparisjóðanna sem kemst í gagnið á mánudag. símabankann slær allar upplýs- ingar inn á sjálft símtækið eftir leiðbeiningum sem hann heyrir jafnóðum. Þeir sem vilja fræðast almennt um það hvernig símabanki spari- sjóðanna vinnur geta hringt og slegið inn 0123456789 sem kenni- tölu. Síðan er unnt að velja hvaða fjórar tölur sem er og kynnast þeim möguleikum sem símabank- inn býður upp á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.