Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
19-
Morgunblaðið/Einar Falur
Tíu ára bekkur FáskrúðsQarðarskóla með líkanið af skólanum
og skólalóðinni eins og þau vildu hafa hana. Allur bekkurinn
lagði saman krafta sína, og tók verkeftiið níu daga. Á myndina
vantar eina bekkjarsysturina, sem var veik og komst ekki til
Reykjavíkur.
Byggingarlist og umhverfi:
Tíu ára bekkur
á Fáskrúðsfirði
fékk 1. verðlaun
TÍU ára bekkur í FáskrúðsQarðarskóla fékk fyrstu verðlaun
fyrir verkefhi um byggingarlist og umhverfi, sem skólaþróunar-
deild menntamálaráðuneytisins stóð fyrir að tilstuðlan Arki-
tektafélags íslands. Verkeftiið var unnið í tileftii af 50 ára af-
mæli Arkitektafélagsins, og var megintilgangur þess að fá nem-
endur til þess að skynja, skilja, gagnrýna og bæta eigið um-
hverfi. Flest gerðu börnin tillögur um endurbætur á skólalóðun-
um og skýrðu þær með teiknnngum og líkönum.
Tíu ára krakkar úr sjö skólum
voru saman komnir á Kjarvalsstöð-
um á sumardaginn fyrsta til þess
að taka við viðurkenningum fyrir
úrlausnir á verkefninu. Þrír skólar
hlutu verðlaun fyrir athyglisverðar
tillögur. Tíu ára bekkur í Selás-
skóla í Reykjavík fékk önnur verð-
laun en þriðju verðlaun fékk Hóla-
brekkuskóli. í umsögn dómnefndar
segir að öll verkefnin sjö hafi verið
mjög athyglisverð, hvert á sinn
hátt, og erfitt að gera upp á milli
þeirra. Öll bömin, sem tóku þátt í
verkefninu, fengu viðurkenningar-
skjal frá Arkitektafélaginu, en
fyrstu verðlaun voru seljutré, sem
krakkarnir á Fáskrúðsfirði ætla að
gróðursetja á skólalóðinni hjá sér.
Það munaði minnstu að Fá-
skrúðsfírðingarnir kæmust ekki í
bæinn til þess að veita verðlaunun-
um viðtöku, því að ekki var hægt
að fljúga til Reykjavíkur fyrr en
um hádegisbil á fimmtudag. Hópn-
um var svo ekið beint af flugvellin-
um og á Kjarvalsstaði.
Krökkunum kom saman um að
það hefði verið mjög gaman að
vinna að þessu verkefni. „Eg vona
að það verði tekið eitthvað mark á
því, sem við viljum láta gera við
skólalóðina," sagði Kristmundur
Sverrir Gestsson frá Fáskrúðsfirði.
„Það verða vonandi gerðir fleiri
rusladallar og það verður þá hægt
að henda ruslinu í þá, en ekki út
um alla lóð.“ Eva María Sigurðar-
dóttir sagðist mikið hafa lært, og
hún héldi að krakkarnir 'skildu
kannski betur hvað mennirnir, sem
skipuleggðu götur og lóðir, hefðu,
við að glíma. Flestum í hópnum
fannst vel koma til greina að verða
arkitektar - „það getur komið fyrir
eins og hvað annað,“ sagði einn.
Kjarvalsstaðir
15 félagar Listmál-
arafélag’sins sýna
FIMMTÁN félagar í Listmálarafélaginu sýna verk sín á Kjarvalsstöð-
um og er Einar Baldvinsson listmálari heiðursgestur sýningarinnar.
Sýnendur eru: Ágúst F. Petersen, Benedikt Gunnarsson, Björn Birn-
ir, Bragi Ásgeirsson, Elías B. Halldórsson, Einar Hákonarson, Einar
Þorláksson, Einar Baldvinsson, Hafsteinn Austmann, Hrólfúr Sig-
urðsson, Jóhannes Geir, Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran, Pétur
Már Sigurðsson og Sigurður Sigurðsson.
Listmálarafélagið var stofnað verður opin fram til mánaðamóta og
1982 og hefur síðan haldið regluleg- líklegast verður 1. maí síðasti sýning-
ar sýningar. Félagar eru liðlega 20 ardagúrinn.
talsins. Sýningin á Kjai-valsstöðum
Kaupfélag Héraðsbúa:
Jörundur Ragnarsson var
ráðinn kaupfélagsstj óri
E^ilsstöðum.
Á áttatíu ára starfsafmæli
Kaupfélags Héraðsbúa lætur Þor-
steinn Sveinsson af starfí eftir
rúmlega tveggja áratuga farsælt
starf. Jörundur Ragnarsson kaup-
félagsstjóri á Vopnafirði hefur
verið ráðinn í hans stað. 6 umsækj-
endur voru um stöðu kaupfélags-
stjórans, þeir voru: Einar Bald-
vinsson framkvæmdastjóri, Reyð-
arfirðí, Hrafhkell Tryggvason við-
skiptafræðingur, Reykjavík, Jör-
undur Ragnarsson kaupfélags-
sljóri, Vopnafirði, Krislján Hauks-
son tæknifræðingur, Hafharfirði,
og Sveinn Guðmundsson sveitar-
stjóri á Vopnafirði. Einn umsækj-
andi óskaði nafnleyndar.
Stjórn kaupfélagsins ákvað að
ganga til samninga við Jörund Ragn-
arsson en Kaupfélag Héraðsbúa er
eitt af stærstu kaupfélögum'Tands-
ins, það rekur umfangsmikinn versl-
unarrekstur á Egilsstöðum, Borgar-
firði, Seyðisfirði og Reyðarfirði og
nýlega yfirtók það verslunarrekstur
Pöntunarfélags Eskiíjarðar, eftir að
það varð gjaldþrota á síðasta ári.
Einnig rekur Kaupfélag Héraðs-
búa útgerð og fiskverkun á Reyðar-
firði og frystihús í Borgarfirði. Fyrir-
tækið hefur rekið 3 sláturhús, á
Egilsstöðum, Reyðarfirði og Foss-
völlum, ásamt mjólkurbúi á Egils-
stöðum. Einnig er á þess vegum rek-
in brauðgerð á Egilsstöðum ásamt
veitingasölu og gistihúsi á Reyðar-
firði.
- Björn
Vestmannaeyjar:
Sprengja á bryggjunni
Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar fór til Vestmanna-
eyja í vikunni og eyddi þar sprengju, sem i fyrstu var talin virk
djúpsprengja. Sprengjuna hafði bátur komið með úr róðri og
skilið eftir á bryggjunni.
Lögreglan í Vestmannaeyjum lét
Landhelgisgæsluna vita af sprengj-
unni aðfaranótt miðvikudagsins.
Þá höfðu hafnarverðir gengið fram
á hana á bryggjunni. Fyrst var
talið að um virka djúpsprengju
væri að ræða, en slíkar sprengjur
þola lítið högg. í ljós kom að um
var að ræða hleðslutunnu, það er
sprengjuhleðslu, úr bresku segul-
tundurdufli frá tíma síðari heims-
stytjaldarinnar. Hleðslan var
sprengd og var svo kraftmikil að
hún tætti í sundur klettanibbu.