Morgunblaðið - 22.04.1989, Side 21

Morgunblaðið - 22.04.1989, Side 21
igl MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22, APRÍL 1989 Indland: Tngir fórust í lestarslýsi Nýju Delhi. Reuter. AÐ minnsta kosti 67 manns létu á miðvikudag lífið þegar hraðlest á leið til Nýju Delhi á Indlandi fór út af sporinu. Ekki er vitað hvað slysinu olli en talið er hugs- anlegt, að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Tólf af 20 lestarvögnum Karna- taka-hraðlestarinnar fóru mjög illa í slysinu og líkin voru þannig útleik- in, að erfitt var að bera kennsl á sum þeirra. 120 manns voru fluttir á sjúkrahús þar sem 43 létust af sárum sínum og 20 manns voru í gær enn í lífshættu. Þetta er mesta lestarslys á Indlandi í tæpt ár en í júlí í fyrra fórust rúmlega 100 manns þegar lest fór út af teinunum á brú og steyptist ofan í vatn. Gífurlegar rekneta- girðingar ógna líf- ríkinu í N-Kyrrahafi Fiskur, fiigl og tugþúsundir sjávarspendýra drepast í allt að 50 km löngum trossunum New York Times Bandariskir embættis- og vísindamenn hafa sakað þrjár Asíuþjóð- ir, Japani, Taiwanbúa og Suður-Kóreumenn um gífúrlega rányrkju og beint tilræði við lífríki Norður-Kyrrahafsins. í orði kveðnu er hér um að ræða smokkfiskveiðar en þær eru stundaðar með reknet- um eða reknetagirðingum, sem eru 30 feta djúpar og allt að 50 km langar. Drepa netin allt, sem í þau fer: Smokkfisk, annan fisk, fúgla og tugþúsundir höfrunga og sela. Bandaríkjamenn halda því fram, að við þessar veiðar sé smokkfiskur- inn algert aukaatriði því að auk hans veiði skipin, sem eru um 700 talsins, gífurlega mikið af laxi og regnbogasilungi, sem hrygnir í norður-amerískum ám. Lögum samkvæmt mega aðeins banda- rískir og kanadískir fiskimenn veiða þennan fisk. Vísindamenn segjast einnig ótt- ast, að þessar villimannlegu veiðar muni ganga mjög nærri ýmsum tegundum fisks, sjávarspendýra og fugla og valda stórtjóni á líf- og fæðukeðjunni á þessum slóðum. Netin eru látin renna út um skut- rennuna þegar skyggja tekur á kvöldin og síðan er byijað að draga þau fyrir birtingu næsta morgun. Talsmenn veiðiþjóðanna reyna að gera sem minnst úr öðrum afla en smokkfisknum en bandarísir eftir- litsmenn og dr. Linda L. Jones, einn af yfirmönnum bandarísku haf- rannsóknastofnunarinnar í Seattle, segja, að tugþúsundir höfrunga og annarra sjávarspendýra drepist í Reuter Netgirðingarnar eru 30 feta djúpar og allt að 50 km langar. Drepa þær allt, sem í þeim lendir, fisk, fúgl og sjávarspendýr. Fyrir kemur, að netin týnist en drápið heldur áfram eftir sem áður. netunum. Samstarfsmaður hennar, Alan R. Bunn, segir ekki ólíklegt, að 35-50.000 loðselir drepist í þeim árlega. Á síðasta ári brá svo við, að lax- veiðarnar í Alaska hröpuðu niður úr öllu valdi. Eru menn vissir um, að reknetaveiðarnar, einkum Taiw- anbúa, eigi sök á því. Var búist við, að aflinn yrði um 40 milljón laxar en þegar til kom nam hann aðeins 12 milljónum. Segja sjáv- arlíffræðingar, að engin eðlileg skýring sé á aflahruninu nema rek- netaveiðarnar. Það sýndi sig líka í fyrrahaust í gífurlegu framboði af smálaxi á mörkuðunum í Singapore og Thailandi. E1 Salvador: Dómsmála- ráðherra myrtur San Salvador. Reuter. Fulltrúar ríkisstjórnar og hersins í E1 Salvador hittust á fímmtudag til viðræðna um hertar aðgerðir gegn skæru- liðum sem beijast gegn ríkis- stjórn landsins. Viðræðurnar fylgja í kjölfar fráfalls Garc- ia Alvarados, dómsmálaráð- herra E1 Salvadors, sem var myrtur á miðvikudag. Eng- inn hefúr lýst ábyrgð á hend- ur sér en sfjórnvöld saka skæruliðahreyfingu vinstri- sinna, FMLN, um tilræðið. Alvarados hafði aðeins verið fjóra mánuði í embætti. Fyrir skömmu sagði hann að of mik- ið tillit væri tekið til mannrétt- inda í baráttunni við hryðju- verkamenn FMLN, dauðasveit- ir hægrimanna og öfgamenn innan hersins. Vinstrisinnaðir skæruliðar hafa í auknum mæli heijað á höfuðborg landsins, San Salvador, með sprengjutilræð- um, hermdarverkum og morð- tilræðum. i ii » 11«! itir, fallegfot Skemmtileg I dag, laugardag: KAUPSTAÐUR kl. 13:00 MIKLIGARÐUR kl. 14:30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.