Morgunblaðið - 22.04.1989, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
High Heat við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn. Morgunbiaðið/Þorkeii
Fljótandi vörumark-
aður í Reykjavíkurhöfii
NORSKA SKIPIÐ High Heat, sem selur skipum á hafí úti ýmsar
vörur og er því nokkurs konar fljótandi vörumarkaður, hafði við-
dvöl í Reykjavíkurhöfh.
: „Við seljum aðallega matvöru og
kaupendurnir eru einkum norsk
skip á Norður-Atlantshafi," sagði
Bergheim, skipstjóri á High Heat,
í samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að sjö menn væru' í áhöfn
High Heat og skipið væri allt að
tvo mánuði í hverri söluferð.
Kristinn Ólafsson, tollgæslu-
stjóri, sagði að skip eins og High
Heat seldu olíu, matvæli og hátolla-
vörur eins og áfengi og tóbak. Skip-
stjórar á þessum skipum ættu að
setja áfengi og tóbak .undir lás þeg-
ar þau kæmu inn í 12 mflna tolla-
landhelgi íslands. Hins vegar benti
ekkert til þess að High Heat hefði
selt íslenskum skipum vörur.
„Gamli miðbærinn“ með verslunarnýjung:
Viðskiptavinir leita
að rauðum miðum
Miðbæjarsamtökin eru nú að
hleypa af stokkunum nýjung í
verslun. Að sögn Guðlaugs Berg-
mann, kaupmanns í Karnabæ,
byggist nýjungin á því að kaup-
menn í miðbænum setja rauða
miða á vörur sem boðnar verða
á sérstöku tilboðsverði. „Þetta
verða ekki bara minni háttar
hlutir, heldur dýrar vörur í bland
og hið fjölskrúðugasta úrval,“
sagði Guðlaugur.
Guðlaugur sagði enn fremur, að
kaupmenn í þessum hluta borgar-
innar myndu reyna að samræma
rauðu merkingarnar eins fljótt og
kostur væri. „Markaðurinn í Kola-
portinu hefur gengið svo vel, að
okkur fannst sjálfsagt og rétt að
fylgja honum eftir með einhverju
og þessi hugmynd var ofan á,“
bætti Guðlaugur við, en hann sagði
að síðasta laugardag hefðu um
20.000 manns komið í markaðinn
og þar hefði ríkt sannkölluð
“karnivalstemming."
GENGISSKRÁNING Nr. 76 21. apríl 1989 Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.16 Kaup Sala 9«ngi
Dollari 52,33000 52.47000 53,13000
Sterlp. 89,89500 90,13600 90.40100
Kan. dollari 44,20000 44,31800 44,54200
Dönsk kr. 7,27560 7,29510 7,23600
Norsk kr. 7,78140 7,80220 7,77210
Sænsk kr. 8,30500 8,32730 8.27440
Fi. mark 12,64320 12,67700 12.50410
Fr. franki 8,30500 8,38050 8,34260
Belg. franki 1,35390 1,35760 1,34690
Sv. franki 32,10430 32,19020 32,34310
Holl. gyllini 25,12540 25,19270 25,01470
V-þ. mark 28,34850 28,42440 28,20890
ít. líra 0,03855 0,03865 0,03848
Austurr. sch. 4,02580 4,03660 4,00970
Port. escudo 0,34230 0.34320 0,34280
Sp. peseti 0,45600 0,45720 0,45290
Jap. yen 0,39913 0,40020 0,40000
írskt pund 75,55100 75.75400 75.44700
SDR (Sérst.) 68,47640 68,65960 68,82300
ECU, evr.m. 58,88960 59,04710 58,75380
Tollgengi fyrir apríl er sölugengi 28. mars.
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 21. apríi.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 50,50 48,00 48,87 21,923 1.071.459
Þorskur(ósl) 51,50 43,00 47,67 14,833 707.233
Ýsa 73,00 63,00 68,71 0,350 24.050
Karfi 29,50 15,00 26,74 6,996 187.093
Ufsi 20,00 15,00 16,61 0,900 14.500
Keila 8,00 8,00 8,00 1,500 12.000
Samtals 45,04 47,909 2.158.230
Selt var aðallega úr Breka VE og Snæfugli SU. Næstkomandi
mánudag verða meðal annars seld 40 tonn af þorski úr Sindra
VE og óákveðið magn úr Stakkavík ÁR og fleirum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 50,00 30,00 46,75 8,387 392.051
Ýsa(ósl.) 69,00 35,00 62,74 1,519 95.307
Karfi 29,00 29,00 29,00 2,194 63.633
Ufsi 27,00 15,00 26,81 15,182 407.102
Steinbítur(ósL) 17,00 9,00 13,54 0,224 3.034
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,155 3,875
Samtals 29,75 27,810 973.848
Selt var úr Freyju RE, neta- og færabátum. í dag verða meðal
annars seld 15 tonn af steinbít og 0,150 tonn af stórlúðu.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 49,50 38,00 41,42 17,043 705.853
Ýsa 71,00 35,00 57,42 9,859 566.124
Karfi 30,00 28,00 29,43 12,240 360.274
Ufsi 28,50 7,00 27,91 11,996 334.840
Steinbítur 18,00 15,00 15,85 0,412 6.531
Lúða 210,00 180,00 203,57 0,855 174.050
Samtals 41,00 53,278 2.184.430
Selt var aðallega úr Unu í Garði GK, Sandvíkingi KE og Guð-
rúnu Björgu ÞH. í dag verður selt óákveðiö magn af blönduðum
afla úr Eldeyjar-Boða GK og fleiri bátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 17. til 21. apríl.
Þorskur 83,90 129,550 10.869.438
Ýsa 97,62 11,480 1.120.669
Ufsi 35,94 15,300 549.955
Karfi 39,41 5,920 233.282
Koli 80,13 1,200 96.152
Samtals 79,38 165,215 13.115.089
Selt var úr Sigurey BA í Grimsby 19. apríl.
GÁMASÖLUR í í Bretlandi 17. til 21. , apríl.
Þorskur 83,11 370,885 30.824.390
Ýsa 98,87 274,771 27.165.296
Ufsi 37,80 13,675 516.919
Karfi 58,12 7,755 450.699
Koli 72,52 196,530 14.251.969
Grálúða 78,58 18,665 1.466.627
Blandað 72,58 135,032 9.800.432
Samtals 83,04 1.017,3 84.476.421
Jarð-
fræðifyr-
irlestur í
Odda
Fyrirlestur verður haldinn
mánudagskvöldið 24. apríl á veg-
um Hins íslenska náttúrufræði-
félags. Þar mun Áslaug Geirs-
dóttir jarðfræðingur greina frá
rannsóknum á uppruna setlaga
í Borgarfírði og Hvalfirði.
I fyrirlestrinum rekur Áslaug
hvemig greina má, með því að
beita mörgum ólíkum aðferðum,
þær aðstæður sem ríkjandi voru
þegar setlögin mynduðust. Niður-
stöðurnar benda til að þau hafi
orðið til í ólíku umhverfi og greindi
Áslaug fjórar gerðir.
Fyrirlesturinn verður í stofu 101
í Odda og hefst kl. 20.30. Allir eru
velkomnir. (Úr frcttatilkynningu)
Oratórían Elía
Kirkjulistahátíð er frainundan
hjá Listvinafélagi Hallgríms-
kirkju. Hún mun standa frá
5.—15. maí nk. Þar verður m.a.
flutt óratórían Elia eftir Mend-
elssohn. Flytjendur verða Mót-
ettukór Hallgrímskirkju og Sin-
fóníuhljómsveit Islands ásamt
Qórum erlendum einsöngvurum.
Verkið verður kynnt á sunnudag
í tengslum við guðsþjónustu í
Hallgrímskirkju. Mótettukórinn
verður einnig með léttar veitingar
til sölu fyrir Frakklandsferð sína.
Námskeið í
sjálfsmótun
Námskeið í sjálfsmótun hefst
næstkomandi mánudag, 24.
apríl. Leiðbeinandi er Erling H.
Ellingsen sem meðal annars hef-
ur lagt stund á Zen-búddíska
hugleiðslu í Japan og mannúðar-
heimspeki í Bretlandi.
Á námskeiðinu verða kenndar
aðferðir til að auðvelda þátttakend-
um að slaka á og losa um streitu,
auka einbeitingu og vald yfir hug-
anum, auka sjálfstraust og bæta
sjálfsímynd, skapa árangur og vel-
gengni, öðlast jákvæðari lífsaf-
stöðu, ná betra tilfinningajafnvægi
og bæta samskipti við aðra.
Námskeiðið verður haldið að
Laugavegi 163.
(Úr fréttatilkvnningu)
Kynningar-
dagur Stýri-
mannaskólans
Nemendafélag Stýrimanna-
skólans í Reykjavík heldur sér-
stakan kynningardag i dag,
laugardag.
Skólinn verður opinn gestum frá
kl. 13.30 til 17.00. Kennarar og
nemendur kynna notkun tækja
skólans og veita upplýsingar um
námið. Sýnd verða myndbönd um
sjómennsku og slysavamir. Hamp-
iðjan sýnir þar í fyrsta sinn nýjar
neðansjávarmyndir. Slysavarnafé-
lag íslands kynnir notkun björgun-
artækja og bátar verða til sýnis.
í matsal skólans annast Kvenfé-
lagið Hrönn veitingar.
Borgfirðinga-
vöku lýkur um
helgina
Borgarnesi.
HIN árlega Borgfírðingavaka
hófst með opnun myndlistar- og
höggmyndasýningar í Sam-
komuhúsinu í Borgarnesi.
Það eru listamennirnir Einar
Ingimundarson í Borgarnesi og
Páll Guðmundsson frá Húsafelli
sem sýna þar verk sín. Einar sýnir
ný og nýleg olíumálverk og Páll
sýnir höggmyndir úr Húsafells-
gijóti. Höggmyndimar eru flestar
af Borgfirðingum, lífs og liðnum,
en innan um em m.a. þjóðskáldin,
hulduverur og fomkappar. Þykir
sérstaklega vel hafa tekist til við
uppsetningu þessarar samsýning-
ar.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 16 til 22 til 23. apríl. Við opnun-
ina söng karlakórinn Söngbræður
úr Borgarfirði nokkur lög undir
stjóm Sigurðar Guðmundssonar
frá Kirkjubóli í Hvítársíðu.
- TKÞ
Fyrirlestur um
vísindasögnna í
heimi firæðanna
ÞORSTEINN Vilhjálmsson, dós-
ent í eðlisfræði við Háskóla Is-
lands, heldur fyrirlestur á veg-
um Félags áhugamanna um
heimspeki sunnudaginn 23. apríl
kl. 14.30.
Fyrirlesturinn nefnir hann
„Vísindasagan í heimi fræðanna".
Fundurinn verður haldinn í stofu
101 í Lögbergi og er hann öllum
opinn sem áhuga hafa.
Gítarleikur á
burtfarartón-
leikum
HINRIK Daníel
Bjarnason held-
ur burtfarar-
tónleika frá
Tónskóla Sigur-
sveins D. Krist-
inssonar I dag,
laugardag. Tón-
leikarnir verða
í sal Tónskólans
við Hraunberg 2
og hefjast kl.
17.00.
Hinrik Daníel Bjarnason hóf
nám við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonaríjanúar 1982. Síðast-
liðið vor lauk hann kennaraprófi í
gítarleik frá skólanum. í nóvember
sl. flutti hann, í tengslum við burt-
fararprófið, gítarkonsert eftir F.M.
Torroba í Bústaðakirkju. Hann
lauk stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti í desember
1988. Hinrik hefur m.a. sótt nám-
skeið hjá José Luis Gonzáles og
Siegfried Kobilza. Samhliða námi
hefur Hinrik starfað sem kennari
og gítarleikari. Aðalkennari hans
er Símon ívarsson.
Á tónleikunum verða flutt verk
eftir F. Sor, John Speight, J.S.
Bach, I. Albéniz og Robert De
Visée.
Enn flær hjá
FEF
Félag einstæðra foreldra heldur
áfram sínum vinsæla flóamark-
aði í Skeljanesi 6 í dag, laugar-
dag. Vamingur hefúr verið end-
umýjaður síðan síðast var mark-
aður. Eins og fyrr er allt milli
himins og jarðar á boðstólum,
fatnaður á alla, konur og kalla
og börn, skrautmunir og skór,
bækur og bútar og er þá fátt
eitt talið. Minnt er á að markað-
urinn hefst kl. 2 e.h. og verðið
er hagstætt að venju.
Sjóferðir um
helgina
Náttúmverndarfélag Suð-
vesturlands heldur áfram sjó-
ferðum í dag og á morgun með
farþegabátnum Hafrúnu.
Farið verður báða dagana kl. 10
í tveggja tíma siglingu um sundin
og umhverfis eyjarnar á Kollafirði.
Aðaláhersla verður lögð á að kynna
lífríkið í sjónum.
KI. 13.30 báða dagana verður
tveggja tíma útsýnissigling út fyrir
Gróttu og inn á SkeijafjÖrð, Arnar-
nesvog, Kópavog og Fossvog. Kl.
16.00 og 17.00 báða dagana verður
farin klukkutíma sigling út fyrir
Viðey og Engey. Skoðaðar verða
krabbagildrur í öllum ferðunum.
Farið verður í allar ferðirnar frá
Grófarbryggju neðan við Hafnar-
húsið. Börn verða að vera í fylgd
með fullorðnum.
Brids
í Gerðubergi
í Menningarmiðstöðinni í
Gerðubergi em að hefjast fram-
haldsnámskeið í brids.. Náms-
flokkar Reykjavíkur og Gerðu-
berg standa sameiginlega að
þessum námskeiðum.
Kennari á námskeiðinu verður
Jakob Kristinsson, ritari Bridsfé-
lags Reykjavíkur. Það hefst þriðju-
daginn 25. apríl kl. 19.30, kennt
verður á þriðjudögum og fimmtu-
dögum í alls 10 skipti. Kennslu-
gjald er kr. 3.500.
Innritun er í Gerðubergi á skrif-
stofutíma.
Samkór Selfoss
og Arnesinga-
kórinn með tón-
leika
^ Selfossi.
ÁRLEGIR tónleikar Samkórs
Selfoss og Amesingakórsins í
Reykjavík verða haldnir í Sel-
fosskirkju í dag, laugardaginn
22 apríl kl. 17.00.
Samkór Selfoss syngur undir
stjóm Jóns Kristins Cortes og Ár-
nesingakórinn undir stjórn Sigurð-
ar Bragasonar, píanóleikari er Ul-
rika Olafsson, óbóleikari Ólafur
Flosason og einsöngvarar Árnes-
ingakórsins eru Árni Sighvatsson
og Laufey Geirsdóttir.
— Sig. Jóns.
Boðssýning á
Regnmanninn
SÉRSTÖK boðssýning fyrir
þroskahefta og hreyfihamlaða
verður í dag, laugardaginn 22.
apríl, á kvikmyndina Regnmanninn
í Bíóborginni kl. 13.30.
(Fréttatilkynning)
Fyrsta
bókauppboðið
Guðmundur Axelsson í Klaustur-
hólum stendur fyrir bókauppboði í
Inghól á Selfossi laugardaginn 22.
apríl kl. 14, en þar verða boðnar
upp 200 bækur. Þetta er í fyrsta
skipti sem Klausturhólar standa
fyrir slíku uppboði á Suðurlandi,
en uppboð Klausturhóla hafa hing-
að til aðeins verið í Reykjavík og
á Akureyri. Ymsar sér sunnlenskar
bækur verða á uppboðinu og má
þar nefna Fenntar slóðir, 15 þætti
um sunnlenska þjóðhætti eftir
Bergstein Kristjánsson.
Yorhátíð
barnastarfsins
BARNASAMKOMA verður í
Fríkirlgunni í Hafnarfirði
sunnudaginn 23. apríl og hefst
hún kl. 11.00.
Magnús Erlingsson frá æsku-
lýðsstarfi kirkjunnar mun leiða
samverustundina og Sigríður
Hannesdóttir, leikkona frá
Brúðubílnum, kemur í heimsókn,
en í för með henni verður leynigest-
ur.
Tónleikar í
Ytri-Njarðvík
TÓNLEIKAR verða haldnir í
Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnu-
daginn 23. apríl nk. Það er te-
nórinn Helgi Maronsson úr
Njarðvík sem flytur þar gamlar
ítalskar aríur, ljóð eftir Beetho-
ven og Hugo Wolf og ópemaríur
eftir Donizetti, Bellini, Puccini,
Flotow og Verdi.
Helgi hélt burtfarartónleika vo-
rið 1987 frá Tónlistarskóla
Njarðvíkur þar sem Ragnheiður
Guðmundsdóttir er kennari söng-
deildarinnar . Undirleikari Helga á
þessum tónleikum er Krystyna
Cortes.