Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 30
30
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Fjórir aöalþœttir
Aðalþættir stjömuspekinnar
eru fjórir: Stjömumerki, plá-
netur, hús og afstöður. Plá-
netumar eru táknrænar fyrir
orkusvið mannlífsins, Sólin
fyrir lífsorku, Tunglið fyrir
tilfmningaorku, Merkúr fyrir
hugarorku, Venus fyrir ást-
arorku og Mars fyrir fram-
kvæmdaorku. Merkin segja
til um það hvemig orkan er.
Iifsorkan er hröð í Hrúts-
merkinu, en hæg í Nauts-
merkinu o.s.frv.
Húsin
Húsin byggja á skiptingu
himinhvolfsins í kringum
jörðina í tólf geira sem kall-
aðir em hús. Fyrir neðan
sjóndeildarhringeru sex geir-
ar, hús eitt til sex og fyrir
ofan einnig sex geirar eða
hús sjö til tólf.
Það persónu-
legasta
Húsin eru það persónuieg-
asta í kortinu af þeirri ástæðu
að plánetur færast ört á milli
þeirra. Hver pláneta er í öll-
'um tólf húsunum á hveijum
sólarhring. Maður sem er
fæddur kl. 6 um morgun að
vorlagi hefur Sól kannski i
12. húsi, en maður sem er
fæddur tveimur tímum síðar
kl. 8 hefur Sól í 11. húsi.
Vettvangur
orkunnar
Segja má að húsin segi til
um það á hvaða vettvangi
mannlífsins við nýtum orku
plánetanna best. Sól í 11.
húsi táknar að lífskrafturinn
verður sterkastur ef viðkom-
andi beitir sér í félagslegu
samstarfi eða þjóðfélagsiegri
umræðu. Lífskraftur manns
sem hefur Sól í 5. húsi verð-
ur sterkastur ef hann vinnur
með böm eða þar sem skap-
andi sjálfstjáningar er þörf.
Maður með Sól í 6. húsi eyk-
ur aftur á móti orku sína
m.a. með því að vinna að
heilbrigðis- og heilsumálum.
Við finnum orku plánetanna
og getum styrkt þær í þeim
athöfnum sem hús þeirra
standa fyrir.
Persónuleiki og
þjóðfélag
Húsin íjallai einnig um helstu
þætti mannlegs persónuleika.
Pláneta og merki i 1. húsi
segja til um framkomu, per-
sónulegan stíl og það hvemig
við bytjum á nýju verki. Plán-
eta og/eða merki ( 2. húsi
segir til um viðhorf okkar til
líkama og eigna og gefa til
kynna þá hæfileika sem við
notum til að afla okkur tekna
o.s.frv. Plánetur í 1.—6. húsi
segja til um persónulega
þætti, um innri mótun ein-
staklingsins. Plánetur í
7,—12. húsi segja til um fé-
lagslega og þjóðfélagslega
þætti, um tengsl einstakl-
ingsins við stærra umhverfi.
Aldursskeiö
Húsin hafa einnig með ald-
ursskeið mannsins að gera.
1. húsið tengist fæðingu. 2.
húsið er það skeið þegar við
uppgötvum líkamann. 3. hús-
ið er tímabil mál- og hreyfi-
leikni. { 4. húsi mótum við
innri mann og skynjum okkur
sem hluta af fjölskyldu. 5.
húsið er það aldursskeið þeg-
ar við uppgötvum ástina og
í 6. húsi lýkur persónulegri
mótun, 7. húsið er það tíma-
bil þegar við lærum að vinna
með öðrum og 10. hús er það
skeið þegar við festum okkur
t sessi I þjóðfélaginu. Plánet-
ur og merki í hverju húsi
segja til um það hvaða kröft-
um við mætum á hveiju tíma-
bili. (Næsta grein mun fjalla
um hlutverk hinna einstöku
húsa.)
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
BRENDA STARR
UAF70. VANN HJÁ AáAN-
ÞÍbTVÓ'\ F,ZbP- V/O HITTUM&T
^ ----f |
I'EBlD L£NGl
SAMAN ?
SHSku S/NNUM 'A
KOSU/NGA -
PERBALÖ/SVM
EiNHVaBS STABAl? Á KOSNJNGA -
FEePALAG/ GEBBl É<3 /Uáe G/3E/N
■ pyme pv(, að ég vann ry/e/e
U PANGAN F-&AAtBJÓBAMRA-
ÉG HEFSéB HVAÐ
/AANFEED OEE/fi KONU
S/NN/ iÖLLU/M KONUM SEM
HANNþEKKlgi. BS VAHB AB
UÓSKA
FERD8NAND
SMÁFÓLK
Why Poqs Are
Superior To Cats
Who says
we’re not?
Af hverju hundar eru köttum
fremri.
Hver segir að þeir séu það ekki?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Larry Cohen og Marty Berg-
en, liðsmenn sigursveitarinnar í
Vanderbilt keppninni, fengu
tækifæri til að beita tveimur
hátæknivopnum í eftirfarandi
spili úr fyrstu umferðum keppn-
innar.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 10985
♦ -
♦ KG10764
♦ Á42
Austur
|||| ¥DG1092
♦ D85
*G87
Suður
♦ ÁDG76
VÁK763
♦ -
*D63
Vestur Norður Austur Suður
_ — — 1 spaði
Pass 3 hjörtú Dobl 5 tíglar
Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: spaðatvistur.
Stökk norðurs í 3 hjörtu sýndi
slemmuáhuga í spaða með ein-
spil eða eyðu til hliðar. Sagn-
venja, sem nokkuð er að ryðja
sér til rúms. Hin, sem á eftir
kom, er hins vegar minna þekkt.
Hoppið upp í 5 tígla spurði kerf-
isbundið um lykilspil til hliðar
við tígulinn. Með lykilspilum er
átt við ása, trompkóng og
drottningu. Svörin eru í þrepum
og norður sagðist eiga eitt með
5 spöðum. Bergen var því sæmi-
lega bjartsýnn þegar hann lyfti-
í sex.
En útspilið var þægilegt.
Hann drap kóng austurs með
ás, trompaði hjarta og lét svo
tígulkónginn rúlla yfir til vest-
urs. Spilið stendur nú alltaf með
því að verka tígulinn, en ekki
spillti fyrir þegar vestur reyndi
laufkónginn í örvæntingu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á heimsbikarmótinu í Barcel-
ona, sem var acTljúka, átti Nigel
Short góða möguleika á sigri þar
til hann var of ákafur með svörtu
gegn Jóhanni Hjartarsyni: Enski
leikurinn, 1. c4 — e5, 2. g3 — d6,
3. Bg2 - Rc6, 4. Rc3 - g6, 5.
Hbl - a5, 6. a3 - Bg7, 7. d3 -
f5, 8. e3 — Rf6, 9. b4 — axb4,
10. axb4 - 0-0, 11. b5 — Re7,
12. Db3 - Kh8, 13. Rge2 - g5,
14. 0-0 — f4?!, 15. exf4 — gxf4,
16. gxf4 - Rg6, 17. fxe5 - Rg4,
18. Re4 - Bxe5, 19. h3 - Rh2,
20. Bg5! — De8 og nú kom sterk-
ur leikur sem Short hafði greini-
lega yfirsézt:
21. d4! — Rxfl, 22. dxe5 — dxe5,
23. Hxfl og með tvo létta menn
fyrir hrók í miðtafli vann Jóhann
skákina auðveldlega. Jafnir og
efstir á mótinu urðu þeir
Ljubojevic og Kasparov með 11
vinninga af 16 mögulegum. Þetta
segir þó ekki alla söguna, því
Kasparov vann Spánveijann 111-
escas, en Ljubojevic gerði aðeins
jafntefli við hann. Þar sem skákir
gegn honum gilda ekki í stiga-
keppni heimsbikarmótanna telst
Kasparov í öðru sæti í henni. Þetta
þýðir að ef Anatoly Karpov sigrar
á næsta heimsbikarmóti í Rotter-
dam kemst hann upp fyrir Kasp-
arov. Þeir munu síðan báðir verða
með á síðasta mótinu, í Svíþjóð í
ágúst, og ráðast endanleg úrslit
líklega ekki fyrr en þá.
Vestur
♦ 42
♦ 854
♦ Á932
♦ K1095