Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 44
 Aukin þægindi ofar skýjum FLUGLEIDIR / LAUGARDAGUR 22. APRIL 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. tJ SigluQörður; Nýtt fyrirtæki vill kaupa þrotabú Sigló TÍU aðilar á Siglufirði hafa tekið höndum saman um stofhun nýs fyrir- tækis, sem fengið hefur nafnið Sunna hf., og er fyrirtækinu fyrst og fremst ætlað að kaupa þrotabú Sigló hf., sem lýst var gjaldþrota fyrr í mánuðinum. Stærstu aðilar fyrirtækisins eru Siglufjarðarbær, rafveitan, verka- lýðsfélagið, Þormóður rammi, Eg- ilssíld og nánast öll þjónustufyrirtæki í bænum og meiningin er síðar að gera fyrirtækið að almenningshluta- félagi. Stofnfé fyrirtækisins nemur 1,5 milljónum króna og hefur nýkjör- in stjórn heimild til að auka hlutafé upp í 30 milljónir kr. „Við bjóðum almenningi hlutafé í fyrirtækinu um leið og ljóst verður hvenær við náum tangarhaldi á þrotabúi Sigló hf.,“ sagði Sigurður Fanndal, stjórnarformaður Sunnu hf. í samtali við Morgunblaðið. Eins og fram hefur komið leigðu skiptaráð- andi og bústjóri nýju fyrirtæki, Siglu- nesi hf., þrotabúið til sjö mánaða, en eigendur Sigluness eru fyrrum eigendur Sigló hf. Stjórn Sunnu hf. mun á næstu dögum fara fram á það að fá leigu- samningi Sigluness hf. rift þannig að Sunna hf. geti keypt þrotabúið. „Það er mikið siðleysi og andlegur doði hjá skiptaráðanda og bústjóra ef þeir gefa leigusamninginn ekki eftir. Að því búnu verður gengið til veðhafa, sem höfnuðu fyrri eigendum Sigló hf. Ég held að það sé öllum ljóst að Siglunes er andvana fætt. Ef svona fyrirtæki þrífst í svona litlu bæjarfélagi, þá er allt hægt,“ sagði Sigurður. Þess má geta að mikill meirihluti Sigluness er í eigu utan- bæjaraðila. Stjóm og varastjórn Sunnu hf. var kjörin á stofnfundi í fyrradag. Auk Sigurðar, sem er veiðarfærasali á Siglufirði, sitja í aðalstjóm þeir Ólaf- ur Marteinsson, framkvæmdastjóri rækjuvinnslunnar Hafnarfells, og Freyr Sigurðsson, framkvæmdastjóri Ratbæjar hf. Varastjóm skipa ísak Ólafsson, bæjarstjóri, Jón Dýrfjörð, framkvæmdastjóri vélaverkstæðis Jóns og Erlings, og Jóhann Guðna- son, sem sér um alla fraktskipaaf- greiðslu á Siglufirði. Auður Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir Systur létust eftir slys Tvær systur frá Raufarhöfn, Auður og Guðrún Jónsdætur, létust á Borgarspítalanum í Reykjavík á miðvikudag og fimmtudag af völdum áverka sem þær hlutu í umferðarslysi á laugardag. Systumar vom farþegar í bif- reið sem valt í Norðurárdal í Borg- arfirði snemma á laugardags- morgun. Auður Jónsdóttir var 23 ára, fædd 27. nóvember 1965. Guðrún Jónsdóttir var 26 ára, fædd 29. október 1962. Þær vom ógiftar og barnlausar, en Guðrún lætur eftir sig unnusta. Systurnar vom búsettar að Orrahólum 7 í Reykjavík. Upprennandi stjarna Tveir leikmenn bandaríska körfuknattleiksliðsins Harlem Globetrotters bregða á leik á barnadeild Landspítalans í gær. Liðið kom til landsins í gær og mun halda þrjár sýningar um helgina. Sú fyrsta verður í dag í Laugardalshöllinni kl. 15 og þaðan fer liðið til Akureyrar og verður í Höllinni kl. 20.30. Lokasýningin verður svoí Laugardalshöllinni kl. 15 ámorgun. Heimsóknir á sjúkrahús eru mikilvægur liður á ferðum liðsins og vakti sýning þeirra mikla lukku meðal sjúklinga á barnadeildinni. Morgunblaðið/Júlíus Húsbréfafirumvarpið aftur til stjórnarinnar?; Segi af mér verði afgreiðslu frestað - segir félagsmálaráðherra „ÉG MUN standa fast við þá ákvörðun mína að segja af mér ráðherradómi, verði frumvarpið um húsbréfakerfið ekki að lögum á þessu þingi,“ sagði Jóhanna Sig- urðardóttir, félagsmálaráðherra, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöld. Meirihluti félagsmála- nefndar neðri deildar Alþingis mun leggja til að frumvarpi ríkis- sljórnarinnar um húsbréfakerfi verði vísað á nýjan leik til ríkis- stjórnarinnar. Þetta hefúr Morg- unblaðið eftir áreiðanlegum heim- Fyrsti samningafimdur BHMR og stjórnvalda í níu daga; Meint verkfellsbrot gætu komið í veg fyrir fund Ríkissáttasemjari hefúr boðað fúnd í kjaradeilu Bandalags háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna og stjórnvalda klukkan 16 í dag, en fúndir hafa ekki verið með aðilum í nær níu sólarhringa. Tvísýnt var í gærkveldi hvort samninganefnd BHMR mætti til fúndarins vegna meintra verkfallsbrota sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem gelhar hafa verið út reglugerðir um lokanir á veiðisvæðum. Fiskifræðingar telja ráðuneytið með þessu fara inn á verksvið sitt og í kringum lög. Tíu félög BSRB hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Ölafur Karvel Pálsson fískifræð- ingur, sem situr í samninganefnd BHMR, sagði að ákvörðun sjávarút- vegsráðuneytisins yrði ekki til þess að stuðla að lausn kjaradeilunnar. Það yrði metið í ljósi viðbragða stjómvalda við mótmælum gegn verkfallsbrotunum hvort samninga- nefndin mætti á fundinn. Wincie Jóhannsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags, tók í sama streng; þetta stefndi samn- ingaviðræðunum í hættu og hún gæti ekki fullyrt um hvort af fund- inum yrði. „A hinn bóginn gleður það mig mjög að heyra formann samninganefndar ríkisins segja að sér fínnist ástæða til þess að leysa þessa deilu. Okkur hefur löngum fundist ástæða til þess en hann hefur ekki viljað ræða við okkur,“ sagði hún. „Við létum þess getið við ríkis- sáttasemjara þegar hann grennsl- aðist fyrir um stöðu mála að við teldum fyrir okkar leyti ekki rangt að ræðast við og að aðilar gerðu grein fyrir stöðunni," sagði Indriði H. Þorláksson, formaður samninga- nefndar ríkisins. Sjá ennfremur fréttir á bls. 2 og 4. ildum. Verði niðurstaðan sú að þetta verði samþykkt á Alþingi, verður frumvarpið ekki afgreitt á þessu þingi. Það eru þau Geir H. Haarde, Egg- ert Haukdal, Alexander Stefánsson og Kristín Einarsdóttir sem munu leggja þetta til, annað hvort á mánu- dag eða þriðjudag. Þau Guðrún Helgadóttir, Jón Sæmundur Sigur- jónsson og Jón Kristjánsson vilja á hinn bóginn að frumvarpið komi til atkvæða á þessu þingi. Geir H. Haarde sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann væri vissulega samþykkur því að hús- bréfakerfið kæmist á laggirnar hér, en á hinn bóginn teldi hann að frum- varpið væri gallað og þyrfti frekari vinnslu. Því hefði verið breytt í með- förum stjómarflokkanna, eftir að gengið var frá því í milliþinganefnd. Því kæmi vissulega til greina að vísa því til ríkisstjórnarinnar og þannig væri hægt að nota tímann í sumar til þess að sníða hnökrana af frum- varpinu og meðfylgjandi vaxtabóta- frumvarpi og síðan væri hægt að afgreiða það í upphafi næsta þings, þannig að þetta þyrfti ekki að tefja framkvæmd málsins á nokkurn hátt. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra leggur höfuðáherslu á að frumvarpið verði að lögum á þessu þingi. Málið var rætt á fundi ríkis- stjórnarinnar í gær, þar sem félags- málaráðherra lýsti áhyggjum sínum vegna þessa. Jóhanna sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöld að sín afstaða hefði ekkert breyst í þessu máli. Hún myndi hiklaust standa við þau orð sín að segja af sér ráðherradómi verði frumvarpið ekki að lögum á yfírstandandi þingi. Jóhanna Sigurðardóttir Frestun á afgreiðslu þess kæmi ekki til greina að sínum dómi. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að hann tryði því að húsbréfafrumvarpið yrði afgreitt á þessu þingi. „Ef svona tillaga kemur frá meirihluta félagsmálanefndar, þá kemur til atkvæðagreiðslu þingsins um hana. Ég held að slík tillaga hlyti ekki meirihluta," sagði forsætisráð- herra. Forsætisráðherra var spurður hvort þessi staða væri ekki ríkis- stjórninni áhyggjuefni: „Nei, ekki svo. Það er náttúrlega alltaf slæmt, þegar ráðherrar eru búnir að gefa of miklar yfírlýsingar. Félagsmála- ráðherra er því að sjálfsögðu mjög mótfallinn að þessi háttur verði hafð- ur á.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.