Morgunblaðið - 07.05.1989, Side 4

Morgunblaðið - 07.05.1989, Side 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989 BJARNI ÓLAFSSON fSLEHSKUKENNMI „Það hefði verið dauður bókmenntakennari, sem ekki hefði tekið eftir óhrifum rauðsokka ó ii bókmenntir og listir. félagsins, að engum nema körlum væri trúandi fyrir neinu. Það fannst mér og finnst enn óþægilegt. Það var ekki fyrr en síðar að umræðan snerist gegn okkur en mér hefur alltaf fundist það hlægilegt og ekki léð því eyra. Það er erfitt að mæla árangur baráttunnar, nema þá í hugarfars- breytingu. Nú þykir ekki lengur undarlegt þó karlar sinni því sem áður voru nefnd kvennastörf. Ég held að það þyki t.d. ábyrgðarlaust að skipta sér ekki af uppeldi barna sinna. En því fer fjarri að unnist hafi einhver fulinaðarsigur. Barátt- unni hefur ekki verið fylgt nægilega vel eftir, við sjáum það til dæmis á því hveijir skipa æðstu stöðurnar. Það eru karlar sem halda í sín gömiu forréttindi. Mér finnst að á rauðsokkaámn- um hafi ég mótast og sé meðvit- aðri en ég hefði annars orðið. Jafn- vel þó að ég hefði ekki gerst rauð- Vorum aldrci hættu- legir hreyfingunni Einn fárra karla í Rauðsokkahreyfingunni var Bjarni Ólafsson íslenskukennari. Hann gekk í hreyfinguna þegar í upphafi en starfaði stutt í henni. Hann segist þó alltaf hafa fylgst vel með baráttunni. „Eg horfi ekki til þessara tíma með glýju í augum. Þettá var mjög skemmtilegt fyrir þau sem þátt tóku í þessu og vígstaðan var góð þó að fordómarnir væru miklir. Aðferðirnar voru nýstárlegar og ádeiluefni okkar berskjölduð." * Eg gekk í Rauðsokkahreyfing- una einfaldlega til þess að vinna að mannréttindum; jafnrétti fólks. Ég lagði aðaláherslu á að þjóðfélagið veitti körlum þrýsting til að sinna heimilinu frekar og svo að gera karla jákvæða gagnvart því. Þetta vom að lang- stærstum hluta konur en svo fiutum við nokkrir eiginmenn með. Og síðar fieíri karlar. Eg var töiu- vert virkur í fáein misseri, mætti á fundi og tók þátt í umræðuhópum. Á þeim tíma sem ég var í hreyfing- unni var talið jákvætt að hafa karla með, það var ekki fyrr en síðar að konumar þóttust sjá að við væmm enn einu sinni að reyna að hlaða undir rassinn á okkur. En ég held að við höfum aldrei verið hættuleg- ir hreyfingunni hérlendis. Ég varð aldrei var við að kyn- bræðmm mínum þætti neitt skrýtið að ég væri í Rauðsokkahreyfmg- unni. Ég minnist þess heldur ekki að við höfum verið kallaðir ljótum nöfnum eða gagnrýndir. Við lágum líklega ekki eins vel við höggi og konumar. En auðvitað var hreyf- ingin gagnrýnd, enda var hún eina kvenréttindahreyfingin sem ýtti við baráttumálum. Hún spratt upp eftir erfiða tíma og við urðum vör við tortryggni frá öðmm kvenréttinda- samtökum. Þeim fannst að við vær- um að sletta okkur fram í eðlilegan framgang mála og gerðum van- hugsaðar kröfur. Þó tóku margar kvennanna okkur vel. Gagnrýnin beindist ekki að okkur körlum, heldur þeirri stefnu þjóð- sokkur hefði verið óhjákvæmilegt að verða fyrir áhrifum frá hreyfing- unni, að ekki sé nú minnst á áhrif hennar á bókmenntir og listir. Af þeim sem skrifuðu fyrir málstaðinn má nefna Svövu Jakobsdóttur og Jakobínu Sigurðardóttur. Þessa sér líka stað í bókmenntum karla. Það hefði verið dauður bókmenntakenn- ari, sem ekki hefði tekið eftir þessu. Nú og svo var ég, og er enn, vinstri maður í pólitík og okkar hugmynd er sú að þegnar séu jafnir, ekki síður kyn en stéttir. Ég held að hreyfingin hafi ekki náð að festa sig í sessi í sögunni, nema sem ein lína, ekki miklu meira. Það veltur allt á því hvert framhaldið verður. Ég er á því að hennar verði minnst sem einhvers konar undanfara Kvennalistans. Ef ástandið í jafnréttismálum verður eitthvað svipað um næstu aldamót og fyrir daga Rauðsokkahreyfmg- arinnar, þá tekur því ekki að nefna hana. En ef það verður orðið sjálf- sagt að konur og karlar séu jafn- gild í þjóðfélaginu, væri sögufölsun að geta þess ekki hvenær hún kom upp.“ Gleymdu því sem gott var INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, SAGNFRÆÐINGUR „Þegar umræðan fór allt í einu að snúast um að það væri ekki eftirsóknarvert og í raun ekkert starf að vera húsmóðir, þó var það mikið vanmat ó ævistarfi mjðg margra kvenna. I „Rauðsokkahreyfingin kenndi mér að efast. Að setja spurningarmerki við hlutverkaskiptinguna í samfélaginu og þá pólitík, sem þar er rekin. í hreyfingunni lærði ég að horfa á heiminn öðrum augum en ég hefði annars gert. Mér fannst mjög gaman þar, en þó var Kvennaframboðið mun stærri upplifiin fyrir mig. Hugmyndafræði Kvennaframboðs og -lista hafði það til að bera, sem alltaf vantaði í Rauðsokkahreyfinguna. Konur voru á þeim tíma svo uppteknar af því að bæta stöðu sína, sem vonlegt var, að þær horfðu of mikið á neikvæðu hliðina á því að vera kona en gleymdu því sem gott var.“ Svo farast Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sagnfræðingi og fyrrverandi borgarfulltrúa Kvennaframboðs orð um Rauðsokkahreyfinguna. Eg fylgdist með Rauðsokka- hreyfingunni allt frá 1974 er umræðan um fóstureyðingalöggjöf- ina stóð sem hæst. Ég dáðist að kjarki kvennanna sem fóru fyrir baráttunni. Umræðan um fóstur- eyðingar og kvenna- frídagurinn 1975 urðu til þess að ég fór að fylgjast vel með, þó að það væri ekki fyrr en 1976 sem ég gerðist virk í hreyf- ingunni. Ég var þá orðin formaður Stúdentaráðs og fannst ég hafa virkilega þörf fyrir Rauðsokkahreyfinguna. Allt í einu fannst mér ég vera komin inn í æfingabúðir upprennandi pólitík- usa, þar sem giltu hin hörðu lög- mál karlaheimsins. Rauðsokka- hreyfingin gaf mér kjark til þess að gera mér aðra kvenímynd en hafði verið ríkjandi. Ég starfaði í hreyfingunni fram til ársins 1979 og fylgdist með henni allt til loka. Rauðsokkahreyfingin losaði um hefbundið hlutverk kvenna. Konur Forverar Rauðsokkahreyfingar- innar voru Úumar svonefndu, æskudeild Kvenréttindafélags ís- lands. Úumar vom stofnaðar 1967 til að vekja áhuga ungra kvenna á starfi félagsins. Sjálf Rauðsokka- hreyfingin var mynduð sumarið 1970 og hreif brátt með sér fjölda kvenna sem áhuga höfðu á jafnrétt- ismálum þó að stjómmálaskoðunum þeirra bæri ekki alltaf saman. Hreyfingin vakti fyrst athygli í kröfugöngu 1. maí það ár, er hópur kvenna á rauðum sokkum bar líkneski Venusar úr leikritinu Lýs- iströtu með áletruninni „Manneskja ekki markaðsvara". Ekki munu rauðsokkar þó hafa haldið sokka- litnum til streitu í starfi sínu. Á tveimur fundum þá um sumarið var uppbygging og starfsemi Rauð- sokkahreyfingarinnar skipulögð og hún formlega stofnuð í október það ár. Komið var á fót starfshópum er tóku fyrir þau mál er þeim þótti mikilvægust. Tengiliður hópanna var svonefnd miðstöð. Karlar voru í hreyfíngunni frá upphafi en þeir vom aldrei margir. Rauðsokkahreyfingin var nýtt afl Blaðamannafundur rauðsokka og 8. mars-hreyfingarinnar í mars 1979. F.v.: Einn hópanna sem störfuðu fyrsta veturinn, 1970- Hildur Jónsdóttir, Margrét Rún Guðmundsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir frá rauðsokk- 1971. Viðfangsefnið var hjúskaparlöggjöfin. F.v. Stef- um, Elín Vilhelmsdóttir, Sigrún Ágústsdóttir og Ásta Þórarinsdóttir frá 8. mars-hreyfingunni. án Karlsson, Lilja Ólafsdóttir, Guðjón Friðriksson og í réttindabaráttu kvenna, sem hafði það að meginmarkmiði að vekja konur til vitundar um stöðu sína. Skipulagi hennar og baráttumálum svipaði til erlendra hreyfinga sem störfuðu undir sama nafni. Dagvist- armál, fóstureyðingalöggjöfin, fyr- irvinnuhugtak, skattamál og feg- urðarsamkeppnir vom meðal þess sem rauðsokkar tóku fyrir. Baráttuaðferðir rauðsokka vom nýstárlegar og vöktu athygli og stundum hneykslun. Þær komu oft illa við fólk, bæði þá sem gagnrýn- in beindist að, en ekki síður þá sem barist var fyrir. Hreyfingin var gagnrýnd harðlega, bæði fyrir bar- áttumál sín og aðferðir, að Bjarni Ólafssoi ógleymdu útliti rauðsokkanna. Allt fram til ársins 1974 var Rauðsokkahreyfingin ópólitísk. En á fyrsta þingi hennar á Skógum í júlí 1974 var samþykkt að barist skyldi fyrir jafnrétti með vopnum stéttabaráttu. Þá þegar gengu nokkrar konur úr hreyfingunni og þeim fjölgaði síðar, er pólitísk öfl nýttu sér hreyfinguna í æ ríkari mæli til að koma stefnumiðum sínum á framfæri. Miklar deilur urðu í Rauðsokkahreyfingunni milli þeirra kvenna sem starfað höfðu frá upphafi og málsvara róttækra vinstri hópa. Smám saman fækkaði félögunum og hreyfingin var form- Iega lögð niður 1982.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.