Morgunblaðið - 07.05.1989, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989
C 7
Martin Larsen myndi ekki tala um
neina lúðrablástra lífsgleðinnar. En
ég hafði gaman af því þegar sveit-
ungarnir héldu mér þessa veglegu
veislu á 100 ára afmælinu.i-Mér
þótti þó afleitt að stundum mundi
ég ekki alveg strax eftir fólki sem
var að heilsa mér og það varð að
segja á sér deili svo að ég áttaði
mig. Svona fara árin með mann. t
Samt man ég nú sumt af þessu
gamla, en stundum rekur mig í
vörðurnar og ég næ ekki þræðinum
aftur. Árans sem það fer í skapið
á mér stundum. Hvort ég hef verið
skapgóður um dagana? Eg held að
ég verði að segja eins og er, stund-
um hef ég verið hálfgerður skap-
fantur. En ég hef reynt að fara vel
með það. Sit út í horni og þegi.
Stundum lengi. Ég hef ekki alltaf
verið skemmtilegur í umgengni,
þótt ég hafi verið skemmtilegur að
sumra dómi!
Svo hló hann, og þótt þar hljóm-
uðu kannski ekki lúðrablástrar
lífsgleðinnar eimdi eftir af gamla
Eyjólfshlátrinum. Svo teygði hann
sig í pontuna, bauð í nefið og sagð-
ist hafa mest gaman af að tala um
hestana sína og rifjaupp gamlar
vísur. Af hestunum er honum kær-
astur Fögrubrekku-Rauður, sem
einniggekk undir nafninu Lúlli. Á
hundrað ára afmælinu létu börn
hans og tengdabörn gera teikningu
af þeim félögum eftirgamalli ljós-
mynd. „Sérðu augað í honum,“
sagði Eyjólfur og benti á myndina
sem hékk uppi á vegg. „Ég hefði
getað svarið fyrir að það væri hægt
aðnáþessubliki.“
Jú, ég hef átt margan góðan klár-
inn um dagana, en sumir eru meira
í huga mér en aðrir. Lúlli minn var
fjörugur og fimur og hafði svo gott
skap. Hann vargóðurtöltari, en
ég hef haft mest gaman af þeim
gangi. Ég fékk Lúlla — eða Rauð
— upphaflega til tamningar. Ég
vissi engin ráð til að eignast hann
og var dapur í huga. Þá varð þessi
vísa til:
Alltaf þyngjast örlögin
einn og gleðisnauður
horfí ég á hnakkinn minn
og hugsa til þín Rauður
Lúlli var fullviljugur fyrir eig-
anda sinn og með góðra manna
hjálp lenti hann hjá mér. Við urðum
virktavinir. En Lúlli varð ekki gam-
all, hann fékk skaufnabólgu og ég
varð að lóga honum. En mikið sá
ég eftir honum. Stundum finnst
mér hann komi enn á gluggann hjá
mér. Það er í draumi, líklega — eða
þegar ég er milli svefns og vöku.
En það er gaman að rifja upp þeg-
ar við Lúlli vorum báðir í essinu
okkar.
Þú varst mikið á ferðinni hér
áður fyrr. Sóttir flest hestamót og
svo varstu póstur í Búðardal á vetr-
um.
Já, en það voru nú engar svaðil-
farir. Oft leituðu Hrútfirðingar til
mín um að sækja lækni í Búðardal
eða ég var beðinn að fylgja mönnum
yfír heiðina. Hún getur verið gletti-
lega varasöm í þoku. En ég hef
alltaf verið ratvís. Stundum gátu
komið vond veður á leiðinni fram
dalinn. Ef riðið er viðstöðulítið var
ég venjulega þijá tíma í Búðardal.
En það má fara á skemmri tíma. Á
heimleiðinni vildi brenna við að ég
tefðist því að mér fannst gaman
að koma við á bæjunum. Eg erind-
aði ýmislegt fleira fyrir fólk en
sækja póstinn. í eðli mínu hef ég
alltaf verið dálítið greiðvikinn og
viljað vel. En það getur verið að
sumum hafí þótt fara fullmikið fyr-
ir mér. Það er liðinn tími nú.
Ertu enn að setja saman vísur?
Nei, ég get ekki sagt það. Og
margar vísur hafa verið eignaðar
mér sem ég hef ekkert átt í. En
ég get nú leyft þér að heyra nokkr-
ar. Hér er ein
Upp sér rykkir, fékk víst flog
folinn þykkjuríkur
klippti lykkjur allar og
engri bikkju líkur.
Þetta er um stjömóttan fola sem
ég hafði fyrir löngu í tamningu.
Ég var á ferð á honum og kominn
fram fyrir Gröf. Hann var léttur í
taumi og ég lét hann fara beint af
augum, þótt það væri þýft undir
fæti. En honum fipaðist ekki, rann
áfram eins og á sléttum vegi. Marg-
ar mínar vísur eru um hesta og
ýmsir kannast við þessa
Ég hef eignast hest og hest
höfðingjans sem kjósa
en mig hefur alltaf borið best
beinagrindin ljósa.
Þennan hest fékk ég í braski eins
og fleiri sem ég eignaðist. Hann
var holdlítill en ákaflega duglegur.
En víxlari alla daga. Það var alveg
furðulegt hvað hann ruglaðist í
gangi og ég náði ekki að koma því
í lag. Svo var hann góður að rata
og ég gat treyst hann skilaði mér
rétta leið.
Nei, ég hef ekki alltaf hlíft hest-
um, og var ekki nógu gætinn fram-
an af. En það var unggæðisskapur
og rann af. Það ljótasta sem ég
veit er að vera vondur við dýr.
Margir sendu mér fola í gamla daga
og vildu að égtemdi þá. Stundum
gekk mér það bara ágætlega. Ég
man eftir einum frá Brekkulæk í
Miðfirði.
Snöggt kann krælq'a traustri tá
töltið rækir þolinn.
Byrstur sækir brattann á
Brekkj ulækj arfolinn.
Eyjólfur fæddist á Gillastöðum
en kom ungur í Sólheima með for-
eldrum sínum og ólst þar upp. Hann
bjó á næsta bæ, Svalhöfða í nokkur
ár, en sfðustu sjötíu ár hefur hann
verið í Sólheimum. Bærinn brann
fyrir fáeinum árum og meðan byggt
var nýtt hús, fór Eyjólfur til sonar-
dóttur sinnar í Ásgarði í Hvamms-
sveit. Ingvi sonur hans tók við bú-
skapnum fyrir æðilöngu ásamt
Helgu Guðbrandsdóttur konu sinni
frá Lækjarskógi og nú síðustu ár
hefur þriðja kynslóðin komið til
sögunnar, Guðbrandur Ingvason
bý5 á móti föður sínum.
Stundum var ég nú sendur í
vinnu á bæi í gamla daga. Ég var
um tíma á Dönustöðum 1907, þeg-
ar ég var 18 ára. Dönustaðabóndi
og nokkrir fleiri mektarmenn úr
hreppnum fóru á Þingvöll að sjá
kónginn, Nei, mig langaði ekki, mér
var nokk sama um hann. Ég var
að hjálpa til við að laga fjósið og
binda hey af bökkunum. Ég stóð
mig hvorki vel né illa, ég hef alltaf
verið dálítið latur, en ég hafði gott
af að læra að vinna undir öðrum.
Afturámóti hef ég víst aldrei verið
góður bóndi. Þó að ég ljúgi nú
stundum, þyðir ekkert fyrir mig að
segjaþað.
Hvort ég sé dús við ævina mína?
0, ég veit það ekki. Það er margt
gott sem ég hef lifað. Ég hef átt
góða fjölskyldu og vini. Kannski
hafa þó sumir hestanna minna ver-
ið mínir bestu vinir. Og tveir hund-
ar sem ég hef átt, Kastor og Sveijk.
Dýrin eru misjöfn eins og mann-
skepnurnar, en geta verið það besta
og vitrasta í heiminum. En sjálfsagt
hefði ég einhvem tíma viljað eitt-
hvað öðruvísi. Varla þó meira en
gengur og gerist. Ég hafði gaman
af að lesa, svo að það fer í skapið
á mér að geta varla gert það leng-
ur. Það er margt farið að bila en’
mig dreymir enn og oft.. . hef allt-
af verið berdreyminn skal ég segja
þér. Svo hef ég látið margt ógert.
Ég kvennamaður? Nei, veistu nú
hvað.Ég hef verið alltof lítill
kvennamaður! Sé hálfpartinn eftir
þvi. En ég hef verið frjáls maður
og átt góðar stundir. Einhvers stað-
ar bar mig á góma ekki alls fyrir
löngu og sagði þá annar: „Nú, er
Eyjólfur lifandi enn.“ Enda er þetta
orðið nokkuð gott. Nú skal ég leyfa
þér heyra eina vísu og svo tölum
við ekki meira um aldurinn.
Átak lúið, að var sorfíð
orkuþörfín brýn
þetta er búið enda orðið
annarra þörf en mín
Svo rak hann upp skellihlátur og
rétti fram pontuna. „Svona lít ég
nú á það rafmagn, eins og einhver
sagði. Og nú er engin miskunn. Við
fáum okkur í nefið.“
SUMARBOÐ
OPUS
20 TOMMU
LITSJÓNVARP
OG
FULLKOMIÐ
VHSHO
MYNDBANDS-
TÆKI FYRIR
AÐEINS
59.900 STGR.
ÓTRÚLEGT EN SATT ÞETTA ER TILBOÐ SEM
EKKERT SLÆR ÚT. LÁTUM HENDUR STANDA
FRAM ÚR ERMUM, TAKMARKAÐ MAGN.