Morgunblaðið - 07.05.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989
rC 15
og armböndum, silfur- og gull-
munum að ógleymdum eitur-
lyfjunum, sem lögreglan veit
þó ekki enn hvað um varð. Á
þeim mánuði, sem þeir glæpa-
félagarnir gengu lausir komu
þeir þessum djásnum í verð
með ýmsum hætti. Gimstein-
amir voru seldir í Belgíu,
skartgripirnir í ísrael og suð-
ur-afrísku gullpeningarnir
(Krugerrand) í Bandaríkjun-
um. Það er dálítið kaldhæðnis-
legt, að mikið af fénu, sem
þeir fengu fyrir, geymdu þeir
í sams konar öryggishólfum
og þeir rændu í Knightsbridge.
Viccei var handtekinn mán-
uði eftir ránið og ef til vill má
hann þakka fyrir það þrátt
fyrir allt. Hann hafði stolið frá
mönnum, sem vilja sem minnst
af lögreglunni vita, þjófurinn
hafði stolið frá þjófum og það
er ekki víst, að hann væri á
lífi hefði lögreglan ekki náð
honum jafn fljótt og raun ber
vitni.
Agnarögn af þeim hluta þýfisins sem lögreglunni tókst að endur-
heimta.
Öllu lokið þegar Stephen Mann
leysti frá skjóðunni.
sér stöðugt af því að hafa „skipu-
lagt hann og framkvæmt". Þegar
honum var hins vegar sagt, að játn-
ingin þýddi það, að hann kæmi
ekki fyrir réttinn fyrr en dómurinn
yrði kveðinn upp, venti hann sínu
kvæði í kross og afturkallaði hana.
Hann vildi vera viðstaddur réttar-
höldin í Old Bailey og fylgjast með
sumum félaga sinna, sem kváðust
vera saklausir, og hlýða á Stephen
Mann, annan glæpafélagann í frá,
sem hafði gerst vitni saksóknarans.
Réttarhöldin stóðu í þrjá mánuði
og allt frá upphafi var eins og Vic-
cei væri að fara með áhrifamikið
hlutverk á sviði. Á fyrsta degi
mætti hann í dýrindis Giorgio Ar-
mani-fötum og með sólgleraugu,
sem hann tók aðeins ofan til að
hlæja að kviðdómnum þegar á hann
var bent. Þegar fram kom, að sam-
starfsmenn hans hefðu gengið ber-
serksgang í trylltu kaupæði strax
eftir ránið sneri hann sér að þeim,
hristi höfuðið með ýktum vandlæt-
ingarsvip eða bara hló upp í opið
geðið á þeim.
Þegar Mann sagði, að Viccei
hefði verið með byssu og tilbúinn
til að nota hana hallaði Viccei sér
fram og sagði svo allir máttuheyra:
„Já, og einkanlega á þig.“
Pakistaninn Latif var dæmdur í
18 ára fangelsi fyrir ránið og 12
ára fangelsi fyrir vopnaburð. David
Pole, annar samstarfsmaður þeirra,
fékk 16 og fimm ár fyrir sömu sak-
ir.
Þótt Viccei hafi verið trúði líkast-
ur við réttarhöldin segir það ekki
alla söguna um manninn. Á Ítalíu
var hann í slagtogi með alræmdum
fasistum og grunaður um aðild að
ýmsum hryðjuverkum. Hann er
fæddur í Ascoli Pinceno árið 1955
og rekur móðir hans vinsæla loð-
feldaverslun í þessum ferða-
mannabæ við Adríahafið. Að skóla-
göngu lokinni gekk hann í ítölsku
sósíalhreyfinguna, nýfasískan
flokk, sem rak hann seinna burt
vegna þess, að hann þótti einum
of öfgafullur.
Meðal hryðjuverkanna, sem Vic-
cei er grunaður um, er tilraun til
að sprengja í loft járnbrautarlestina
milli Mílanó og Lecce með 1.500
farþegum. Hafði dýnamíthleðslu
verið komið fyrir á teinunum en svo
vildi til, að sprengiþráðurinn slitn-
aði þegar önnur lest fór yfir hann.
Gerðist þett.a á árinu 1974 og síðar
það ár var Viccei sakaður um að
hafa ætlað ásamt öðrum að spengja
upp stífluna við Campotosto-vatn
en hefði hún brostið, hefði ógurlegt
vatnsmagn steypst yfir þorpin
Montorio og Teramo.
í bréfi, sem Viccei skrifaði dóm-
aranum þegar hann var í gæslu-
varðhaldi í London, reynir hann að
skýra út hvað vakti fyrir honum
með ráninu:
„Það, sem ég^gerði, er vissulega
mjög alvarlegt. Eg mun greiða fyr-
ir það með bestu árum ævi minnar
en ég iðrast þó einskis. Það getur
vel verið, að ég sé rómantískur
bijálæðingur og lifi í mínum eigin
drauma- og ímyndunarheimi en það
var síður en svo, að ég sæktist eft-
ir peningunum. Það, sem fyrir mér
vakti, var að gera eitthvað, sem
stæði upp úr og ætti sér engin for-
dæmi.“
SPORTVORU
MARKAÐURSPÖRTU
KRINGLUNNI4
Sfionfoönctn, á,
Kringlurini 4 - Sími 680835
SPORTVÖRUVERSLUNIN
L-b'LiJlAtij
Legghlífar
Verd kr. 390,
Puma Stenzel
Leðurskór. Nr. 3]h-9]h
(36-44).
Verd kr. 1.490,-
Töskur kr. 890,
Glansgallar, barna og unglinga kr. 1.990,-
Bómullargalíar nr. S - M - L - XL kr. 1.990,-
Apaskinnsgallar nr. S - M - L kr.
Patrick Baby Gray
Nr. 27-34.
Verökr. 1.190,-
Adidas J.L. Junior
Nr. 30-35.
Veró kr. 990,-
Adidas Breitner Super
Nr. 40-44 (6'h-9'h
Verókr. 1.490,-
Adidas Volley
Nr. 7]h-1 1 'h
Veró kr. 1.990,'
Adidas Squash
Nr. 7'h-W'h
Verókr. 1.990,-
Póstsendum
Adidas Topspin High
Nr. 5]h-1OV2
Veró kr. 2.420,-
Fótboltar nr. 4 og 5
kr. 790,- ~
Adidas Freerun
Nr. 36-44.
Verókr.990,-
Adidas Orion
Nr. 35-42.
Verókr. 1.290,-