Morgunblaðið - 07.05.1989, Side 16

Morgunblaðið - 07.05.1989, Side 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989 eftir Guórúnu Guðlaugsdóttur Um daginn fór ég til spákonu. Kristjana Valdi- marsdóttir heitir hún og býr í Hafiiarfirði. Það var hláka og hlýir vindar í lofti þegar ég lagði af stað og vatnselgurinn á götunum mikill. A leiðinni setti ég mér fyrir sjónir hvemig spákona myndi búa. ímyndaði mér að inni hjá henni hlyti að vera dimmt og dularfiillt um að litast og sjálf hlyti hún að vera mjög leyndardómsfiill í bragði. Spákonan, kona á miðjum aldri, reyndist búa á jarðhæð í blokk og andstætt ímynd minni var nánast ungpíulegt um að litast í íbúðinni hennar. Allt í hvítu eða ljósum pastellitum, kertaljós á Kristjana Valdi- marsdóttir spáir í spil og bolla borði og hálfTullur kaffibolli fyrir framan stólinn þar sem mér var ætlað að sitja. Kristals- kúla var þarna eng- in en hinsvegar spilabunki á borðinu fyrir framan stól spákonunn- ar. Ég settist og fann hríslast um mig óþreyju og eftirvæntingu. Það er ekki á hverjum degi sem manni stendur til boða að fá að skyggnast inn í framtíð sína. Spákonan vissi ekki nafn mitt og gerði engar tilraunir til að spyrja mig neins, spurði mig ekki einu sinni hvort ég vildi sykur- mola með svörtu kaffinu. Hins vegar var auðsótt mál að fá sykur og hún bað mig endilega að drekka kaffið í rólegheitum, ekkert lægi á. Svo fór hún að spá. Eg supla kaffið meðan hún lætur mig draga spil úr bunkanum. Áður hefur hún spurt mig hvort hún mætti ekki líta aðeins til baka í fortíð mína. Ég jánkaði því og dreg nú sex spil einhvers staðar úr spilabunkanum. Það ríkir rafmögn- uð þögn meðan ég dreg spiiin og það smellur í borðinu þegar spákon- an leggur þau á borðið, eitt af öðru. Því næst spyr hún mig í hvaða stjör- numerki ég sé. Ég segi henni að ég sé fædd í lok tímabils krabba- merkisins. Heilsufar mitt er fyrst á dagskrá. Spákonan segir að það sé í dag nokkuð gott en ég hafi verið lasin á síðasta ári. Ég hugsa til vöðvabólgunnar sem hijáði mig þá og fæ með naumindum varist því að kinka kolli. Ég fæ einnig að vita það að ég hafi verið undir nokkuð miklu álagi en nú sé því að létta. Ég neita því ekki að það hýrnar yfir mér við þær fréttir. Þessu næst hefur spákonan orð á að ég hafí haft nokkrar áhyggjur af ung- um manni eða pilti eins og hún orðar það. Hugur minn tekur til starfa í hendingskasti. Hvaða ung- um manni hef ég haft áhyggjur af? Ég man í fljótu bragði ekki eftir neinum slíkum. Og þó, kannski að hún eigi við ungan strák sem ná- kominn ættingi minn í kvenlegg hætti að vera með á síðasta ári. Satt að segja þótti mér miður þegar hann hvarf út úr hvunndagslífi mínu. Það kemur Iíka í ljós að í kringum þennan umrædda unga mann eru slík gæfuspil að ég þarf ekki að bera neinn kvíðboga fyrir afdrifum hans. Næst kemur röðin að fjármálunum. Um þau er spá- konan fáorð að sinni en lofar meiru seinna og snýr sér að svo mæltu að tilfinningamálunum. Hún segir mig hafa fundið fyrir vanlíðan en ákveður að athuga það líka betur seinna. Svo koma atvinnumálin. Hún segir mig hafa nýverið gert breytingar á atvinnumálunum sem hún telur að hafi verið mér til góðs. Svo sópar hún spilunum saman og þakkar mér fyrir að hafa leyft sér að líta tii baka. Segir að sumir vilji snúið honum þijá hringi réttsælis yfir höfðinu á mér og sett hann svo á ofn. Nú er hann í höndum spákon- unnar og vitnar þar um næstu framtíð mína. Hún sér þijú börn í bollanum en tvö börn í spilunum. Ég geri hvorki að játa né neita. Aftur kemur ungi pilturinn til sög- unnar og áhyggjur mínar af honum sem ekki er líklegt að Ijúki fyrr en seinnipartinn á árinu. Ég gef mig á vald hugrenningum um hvort líklegt sé að nýr strákur komi til sögunnar hjá fyrrnefndum ættingja mínum en hrekk upp úr þeim hugs- unum þegar atvinnumálin eru aftur það ekki og það þyki sér ógurlega erfitt. Næst dreg ég spil fyrir hvern staf í nafninu mínu. Ég tel í hugan- um stafina í nafninu mínu, sex staf- ir, sex spil. Spákonan smellir þeim jafnóðum á borðið og leggur svo mörg spil úr bunkanum ofan á spil- in sem ég dró. Nú er það nútíðin sem gildir. Ég reynist draga inn á mig áhyggjur og það veldur spákon- unni áhyggjum. Ég er sammála henni að þetta sé ekki gott hjá mér en get lítið í því gert. Eg dró bara einhver spil og væntanlega eru það forlögin sem stjóma því hvaða spil koma upp. Spákonan segist í það minnsta vera þeirrar trúar. Hún rýnir í spilin og hefur bollann minn til hliðsjónar. Eg hafði drukkið kaff- ið í snarheitum, blásið í hann og á dagskrá. Eitthvert rót virðist vera á þeim eða hafa verið og ég í spennu af þeim sökum. En sem betur fer segja spilin að ég eigi von á skemmtilegu ferðalagi sem ekki komi mér þó á óvart. Spilin spá vel fyrir því ferðalagi. Fjármál mín eiga líka eftir að batna samkvæmt upplýsingum Kristjönu spákonu. Ekki veitir af hugsa ég og minnist matarskattsins og fleiri álaga sem komið hafa illa við launþega þessa lands. Svo kem- ur að rúsínunni í pylsuendanum, ástarmálunum sem öllum finnst svo spennandi. Spilin segja að ég hafi góð tök á ástarmálunum í náinni framtíð. „ Gott“ hugsa ég. Spá- dómnum lýkur með því að spákonan segir mér að það sé gil framundan hjá mér, sem ég verði að ganga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.