Morgunblaðið - 07.05.1989, Síða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAI 1989
Fleiri smá-
sögubrot úr
Borgarfirði
HðSGANGAR
okkar á milli ...
® Fyrirhuguð heimsókn þrett-
án ára tyrknesks drengs, búsetts
í Vestur-Þýskalandi, til ömmu
sinnar, fór á annan veg en hann
ætlaði. Amman var búsett í
Tyrklandi og varð drengurinn
sér úti um flugmiða og komst
án nokkurra vandræða í gegnum
allt eftirlit á Frankfurt-flugvelli.
Honum varð þó ljóst uppi í háloft-
unum að flugvélin var ekki á
leið til Tyrklands heldur Sri
Lanka. Þegar til Colombo, höfuð-
borgar Sri Lanka, var komið
brast hann kjark og hann fór að
hágráta i flugstöðinni. Farar-
stjóri einn sá aumur á drengnum,
tók hann að sér, og kom honum
aftur til Þýskalands seint og um
síðir. Þá hafði ítarleg leit staðið
yfir að drengnum í eina viku.
Ekki er vitað hvernig hann Qár-
magnaði þetta uppátæki.
® Kínverskt veitingahús eitt í
Frakklandi fékk reglulega sent
krydd frá Kína til að nota í mat-
reiðsluna. Dag einn kom hins
vegar sending af „kryddi" sem
eigendur veitingahússins könn-
uðust ekki við. Fannst þeim það
beiskt á bragðið og óhentugt til
matreiðslu. Viku seinna kom hins
vegar bréf sem skýrði málið:
„Amma er dáin og hún vildi að
þið fengjuð öskuna.“
■ Einn af flugmönnum
franska flughersins missti ný-
lega vinnuna, þar sem hann þótti
vera einum of ástfanginn. Yfir-
mönnum hans var svo sem ekk-
ert í nöp við að flugmaðurinn
kæmist í snertingu við örvar
Amors. Hins vegar þótti þeim
full langt gengið þegar í ljós kom
að hann hafði tekið sína heitt-
elskuðu með sér í flugferðir í
orrustuþotunni til að ganga í
augunáhenni. StS
Þýska límdósin
Nýja húsið var að verða tilbúið og
vinnufélagamir höfðu komið til
að leggja síðustu hönd á
lokafráganginn með eigandanum.
Þegar kom að því að dúkleggja kom
í ljós að húseigandinn hafði keypt
límdós af þýskri gerð. Kom nú babb
í bátinn, því enginn af þeim sem á
staðnum voru kunni stakt orð í þýsku.
Var þá brugðið á það ráð að kalla til
einn vinnufélagann sem hafði verið í
Þýskalandi um tíma fyrir mörgum
árum og var gjaman með þýskuglósur
á takteinum í vinnunni. Hann kom
strax á staðinn og var honum þá
fengin límdósin og hann beðinn um
að þýða leiðbeiningamar. Sat félaginn
þó nokkra stund með dósina fyrir
framan sig og las. Þegar félögum
hans fór að leiðast biðin, spuiðu þeir
hvað stæði eiginlega á dósinni. Þá
svaraði vinurinn: „Þeir segja að það
sé ekki svo nauið hvemig h'mið er
borið á gólfíð.“ Eftir þessa greinargóðu
þýðingu gekk dúklagningin auðvitað
mun betur fyrir sig og var létt yfir
mannskapnum.
Dunhill
Maður einn fékk gefíns forláta
Dunhill-pípu frá kunningja sínum. Hún
reyndist mjög vel í fyrstu en þar kom
að þegar eigandinn var eitt sinn að
slá úr henni í öskubakkann þá brotnaði
hún. Nú vom góð ráð dýr, en vinir
pípueigandans bmgðu á það ráð að
senda pípuna út til verksmiðjanna með
tilskrifum um að hún hefði verið gölluð.
Varð það úr að maðurinn fékk til baka
glænýja Dunhill-pípu sér að
kostnaðarlausu. Leið nú og beið og
undi maðurinn vel við nýju pípuna en
eitt sinn þegar hann var að slá úr
henni í öskubakkann þá brotnaði hún,
alveg eins og sú fyrri. Aftur var skrifað
og pípan send og aftur fékk maðurinn
nýja pípu. Fljótlega brotnaði sú þriðja
á sama hátt og hinar og enn var
skrifað út með þeirri brotnu. Og enn
og aftur kom ný pípa til baka frá
Dunhill-verksmiðjunum en nú með
eftirfarandi tilskrifí: „Sendið manninn
næst...“
Morð
Hann var að versla, það var margt
fólk; í versluninni og þar sem hann
stóð í miðri biðröðinni við
afgreiðslukassann sá hann hvar
kunningi hans kom askvaðandi inn.
Þegar kunninginn kom auga á hann
kallaði hann til hans: „Hvenær eigum
við að fara að myrða hana?“ Við þessi
orð féll öll verslun niður og allt datt
í dúnalogn. um stund. Allra augu
beindust að
kunningjanum í
dyragættinni og
ekki var laust við
að sjá mætti
skelfingu í svip
afgreiðslustúlkunn-
ar og annarra
kvenna sem vom í
miklum meirihluta í
versluninni.
Auðvitað grunaði
þær ekki að
kunninginn ætti við
fiðraðar gæsir, en
þetta var að
haustlagi og
gæsaveiðitíminn
rétt hafínn.
Sryallur
Ungur
dekkjaviðgerðar-
maður sem eitt sinn
var starfandi í
Borgamesi sagði
gjaman, þegar
honum tókst upp við
viðgerðimar: „Nú er ég snjallur." Tokst
honum svo oft upp við viðgerðimar
að þar kom að hann var nefiidur
„Snjallur." Viðgerðarmaðurinn var
glaðsinna og flestum helgum eyddi
hann við gleðskap og söng með vinum
og kunningjum. Skar hann sig alls
staðar úr fjöldanum því hann bar ætíð
barðastóran hatt Jiegar hann var að
skemmta sér og öðmm. Af þessu
tvennu var hann því ætíð titlaður
„Snjallur kúreki.“
Ekki dónalegur
Það gerðist eitt sinn á dansleik í
Borgarfirðinum að góðglaður maður,
sem var oiðhvatur í meira lagi, kom
að borði þar sem kona sem hann
þekkti sat og var að ræða við
kuhningja sinn. Sá góðglaði bauð
konunni kurteislega upp í dans en hún
neitaði og kvaðst vera upptekin. Við
þessa afneitun fyrtist vinurinn, en sat
þó á sér um stund og settist við næsta
borð. Unglingspiltur sem fylgst hafði
með tilbuiðum þessum, sá hvar sá
góðglaði stóð allt
í einu upp og gekk
aftur að borðinu
til konunnar og
sagði stundarhátt
við hana: „Heyrðu
góða, það er eitt
sem ég verða að
segja þér. Þú ert
sú næst ljótasta
kona sem ég hef á
ævinni séð.“ Síðan
stmnsaði hann í
burtu án þess að
bíða eftir svari.
Pilturinn elti og
náði loks tali af
honum. Lék piltin-
um hugur á að vita
hvers vegna hann
hefði sagt við kon-
una „næst ljót-
asta“ en ekki „ljót-
asta“. Þá svaraði
sá góðglaði:
„Kjáni geturðu
verið, drengur. Ég
ætlaði ekki að vera
dónalegur við konuna“.
Annfulans
Á sínum yngri ámm var sögu-
hetjan virkur meðlimur í skáta-
hreyfingunni. Tók hann hlutverk
sitt þar mjög alvarlega og fór í einu
og öllu eftir „ritúalinu“ varðandi
alla hegðan og framkomu, jafnt á
fundum sem utan þeirra. Eitt var
það í reglunum sem hann átti þó í
verulegum erfiðleikum með að til-
einka sér, en það var að hætta að
bölva og ragna, sem honum var
mjög tamt í tíma og ótfma. Rættist
ekkert úr þessari raun hans fyrr
en einn daginn að honum hug-
kvæmdist að búa til ný blótsyrði í
stað þeirra forboðnu. Taldi hann
að með þessum nýyrðum bryti hann
í engu í bága við reglurnar, en sval-
aði þó þessari brýnu þörf sinni að
blóta hressilega. Þannig var það
að hann sagði „annfúlans“ í stað
andskotans, „hebúlans" í stað
helvítis og „ósansanns" í stað ein-
hvers enn ljótara.
Finnskur gæöaregnfatnaiur
ftalla
fjölskylduna
Bjóðum finnsk gæðaregnföt í miklu
úrvali á hagstæðu verði.
Nýjung á íslandii
Regnvettlingar - jafn sjálfsagdir og
stigvél, segja Finnar.
Verslaðu í Regnfatabúðinni, einu sérverslun sinnar tegundar á íslandi.
• Hlífðar- og tískuregnföt á alla fjölskylduna.#Mótorhjóla-, siglinga-,
golf- og sportregnföt. #Hjólaregnslár, regnhattar, stígvél, regnhlífar,
ofl. ofl.
Heildsöludreifing fyrir landsbyggóina.
Unnur og Sif sf.
Laugavegi 21 sími 18866.
Útsölustaóur á höfuóborgarsvæóinu:
Regnfatabúóin,
Laugavegi 21 sími 26606.