Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 1989 Stjórn Byggðastofiiunar: Akveðið að kaupa hlutdeildarskírteini STJÓRN Byggðastofounar ákvað á fundi sínum í gær að veita for- stjóra stofhunarinnar heimild til þess að klaupa svokölluð A-hlut- deildarskírteini af HlutaQársjóði vegna sjö fiskvinnslufyrirtækja samtals að upphæð tæpar 165 milljónir króna. Þá var ákveðið að veita 59 eigendum smábáta lán samtals að upphæð 8,4 millj- ónir og er jafnframt verið að Jafiiréttisráð: Mál Valgerðar Selmu skoðað JAFNRÉTTISRÁÐ hefur tekið fyrir mál Valgerðar Selmu Guðnadóttur en hún kærði setn- ingu Reynis Daníels Gunnarsson- ar í stöðu skólastjóra Oldusels- skóla á sínum tíma. Jafnréttisráð mun á næstunni afla gagna og upplýsinga &á umsagnaraðilum í málinu en meðal gagna sem óskað er eftir er jafiiréttisáætlun menntamálaráðuneytisins. Ásdís J. Rafnar formaður Jafn- réttisráðs segir að úrskurðar ráðs- ins sé ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi í ágúst n.k. Valgerður var ann- ar umsækjenda um stöðu skóla- stjóra Ölduselsskóla og telur hún að jafnréttislög hafi verið brotin er gengið var framhjá henni við setn- ingu í stöðuna. vinna úr 100 slíkum umsóknum til viðbótar. Þessi fiskvinnslufyrirtæki eru Hraðfrystihús Stöðvaríjarðar hf., Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf., Bú- landstindur hf, Djúpavogi, Hrað- frystihús Patreksgarðar hf., Fisk- vinnslan hf., Bíldudal, Fáfnir hf. og Kaupfélag Dýrfirðinga og Hrað- frystihús Breiðdælinga. Þá var samþykkt heimild til.for- stjóra um að lána Hlaðsvík á Suður- eyri til að koma togara fyrirtækis- ins, Elínu Þorbjamardóttur aftur til veiða og jafnframt lýsti stjómin yfir vilja stofnunarinnar til þess að kaupa A-hlutdeildarskírteini af Hlutafjársjóði Byggðastofnunar vegna Fiskiðjunnar Freyju og Hlaðsvíkur hf. á Suðureyri fyrir allt að 19,3 milljónir. Mortfunblaðið/Bjami Umferð áberandi minni á álagstímum Margir virðast hafa farið að áskorun Alþýðusambands íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og skilið bílinn eftir heima til að mótmæla verðhækkunum undanfarið. Samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar í Reykjavík var umferðin áberandi minni á hefð- bundnum álagstíma í gærmorgun þegar fólk fór til vinnu og eins þegar fólk fór úr vinnu. Umferðarlögreglunni þótti umferðin svip- uð þess í milli, en mjög fá umferðaróhöpp voru einnig í gær eða fjögur fram að kvöldmat. Mörg ný andlit sáust í strætisvögnunum og bæta þurfti aukavögnum inn á leiðir í gærmorgun. Þess þurfti ekki um eftfimiðdaginn, en SVR eru undir það búnir að bæta inn aukavögnum á Breiðholts- og Árbæjarleiðir í dag. Pétur kjörinn í Glerársókn PÉTUR Þórarinsson, prestur á Möðruvöllum, var kjörinn sókn- arprestur í Glerárprestakalli á kjörmannafúndi í gærkvöldi. Séra Pétur Þórarinsson hiaut meirihluta atkvæða kjörmanna í fyrstu umferð kosninganna í gær- kvöldi. Tveir aðrir sóttu um presta- kallið er staðan var auglýst laus til umsóknar, séra Svavar Alfreð Jóns- son sóknarprestur í Ólafsfirði og séra Ólafur Jóhannsson skólaprest- ur í Reykjavík. Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofiiunar íyrir Morgunblaðið: Fylgi Sjálfstæðis- flokksins nú 39,3% Andstaða við aðild að EB fer minnkandi FLEIRI telja það æskilegt að sækja um aðild að Evrópubanda- laginu, en óæskilegt, samkvæmt þjóðmálakönnun sem Félagsvís- indastofiiun hefur gert fyrir Morgunblaðið. Virðist andstaða við aðild að EB frekar fara minnkandi meðal almennings. í könnuninni var spurt hvort æskilegt eða óæskilegt væri að ís- land sæki um aðild að Evrópu- bandalaginu. 33,1% þeirra sem svöruðu töldu það æskilegt, 23,9% töldu það óæskilegt, en 41,6% voru óvissir í afstöðunni. Ef einungis var litið á þá sem afstöðu tóku töldu 58% æskilegt að ísland sæki um aðild, en 42% töldu það óæskilegt. í þjóðmálakönnun í maí síðast- liðnum var sömu spumingar spurt. Þá sögðust 34,4% telja æskilegt að ísland sækti um aðild að EB. 28,5% töldu það óæskilegt en 34,7% svar- enda voru óvissir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur 39,3% fylgi, samkvæmtþjóðmála- könnun Félagsvísindastofiiunar sem gerð var fyrir Morgunblaðið í byijun júní. Stuðningur við flokkinn hefiir þó minnkað frá síðustu þjóðmálakönnun sem gerð var í maí. Tveir ríkisstjórn- arflokkanna, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, bæta við sig fylgi frá síðustu könnun, en Al- þýðubandalag missir fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina hefur minnkað um 8% frá síðustu þjóðmálakönnun. í könnuninni voru svarendur spurðir hvaða flokk þeir kysu ef Alþingiskosningar yrðu á morgun. Þeir sem sögðu „veit ekki“ voru spurðir áfram hvaða flokk eða lista líklegast væri að þeir kysu og ef svarið var enn „veit ekki“ voru þeir spurðir hvort líklegra væri að þeir kysu Sjálfstæðisflokk eða aðra flokka og lista. Fylgi flokka var eftirfarandi ef miðað er við þá sem afstöðu tóku: Alþýðuflokkur fékk 11,3% (10,9% í maíkönnun og 15,2% í kosning- um), Framsóknarflokkur fékk 20,3% (19,8% og 18,9%), Sjálfstæð- isflokkúr 39,3% (41,8% og 27,2%), Alþýðubandalag 8,6% (9,7% og 13,4%), Kvennalisti 15,2% (12,6% og 10,1%), Flokkur mannsins 1,1% (0,8% og 1,6%), Samtök um jafn- rétti og féíagshyggju 0,9% (0,3% og 1,2%), Þjóðarflokkur 1,1% (1,9% og 1,3%), Borgaraflokkur 1,8% (0,5% og 10,9%) og Frjálslyndir hægrimenn 0,4% (1,6%). Græningj- ar komust ekki á blað. Þegar spurt var hvort svarendur væru frekar stuðningsmenn ríkis- stjómarinnar eða andstæðingar sögðust 23,6% styðja stjómina en 53,1% var á móti henni. 21,5% vom óviss og 1,8% neitaðu að svara. í síðustu könnun studdu 31,7% svar- enda stjómina, 44,2% vom á móti henni en 22,2% tóku ekki afstöðu. Stuðningur við stjómina var mestur meðal kjósenda Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks eða 73% en minnstur meðal kjós- enda 'Sjálfstæðisflokks eða 6%. Þá fór stuðningur við stjórnina vaxandi eftir aldri og hlutfallslega fleiri stuðningsmenn stjórnarinnar em á landsbyggðinni. Könnunin fór fram 3.-6. júní og var úrtakið 1.000 manns á aldrinum 15-80 ára. Alls fengust svör frá 699 manns. Sjá ennfremur bls. 26. Vatnavextir valda spjöllum Egrlssladir. VERULEGIR vatnavextir hafa verið víða á Austurlandi vegna hlýinda og rigninga undanfarna daga. Víða hafa hlotist vegar- skemmdir og samgöngutruflanir af þessum sökum. Brýr hefur tekið af eða þær skemmst og vegir grafist í sundur. Lagarfljót er í óvenju miklum vexti og flæðir nú yfir öll nes. Mest allt Egilsstaðanes er undir vatni og það sama gildir um Finns- staðanes. Af þessum sökum hafa verktakar við nýjan Egilsstaðaflug- völl orðið að leggja niður vinnu vegna þess að allt athafnasvæði þeirra er umflotið vatni eða komið undir vatn. Að sögn Guðjóns Sveinssonar, verktaka við flugvall- argerðina, er þetta ekkert sem kem- ur þeim á óvart. Flóð í Lagarfljóti em árviss. Björn Fí kniefnasj úkl- ingnr lést á með- ferðarstoftiun Rúmlega fertugur fíkniefiia- sjúklingur lést á meðferðarstofn- un fyrir áfengis- og fíkniefiia- sjúklinga um helgina. í fórum ' hans fannst nokkuð af kókaíni og sprautur. Dánarorsök er ókunn. Komið var að manninum látnum á stofnuninni á sunnudag. Læknir var þegar kvaddur til svo og sýslu- maður. Lík mannsins var sent til krufningar og er nú beðið niður- stöðu hennar hvað varðar dánar- orsök. Reykjavík: Þúsund manns án atvinnu 50 umsóknir til ráðuneytis um styrki til að ráða skólafólk til vinnu RÚMLEGA þúsund manns, eða 1.035, eru á atvinnuleysisskrá hjá Ráðningarskrifstofu Reykjavík- urborgar, þar af er 321 skóla- Morprunblaðið/Þorkell Mikill áhugi fyrir landsleiknum Mikill áhugi virðist á landsleik íslendinga og Austurríkismanna í knattspyrnu, sem fram fer á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn er iiður í heimsmeistarakeppninni. Þeir rúmlega sex hundruð miðar, sem eftir voru í stúku áður en forsala hófst í gær, seldust á svipstundu enda höfðu myndast biðraðir áður en sölufólk mætti til vinnu. Allt er nú til reiðu í Laugardal — á myndinni leggja Þorvaldur Jónasson, teiknikennari, og Ómar Magnússon, starfs- maður Laugardalsvallar síðustu hönd á skiltin sem verða á marka- töflunni í kvöld. Nánar um leikinn á íþróttasíðum, bls. 42 og 43. nemi. Á sama tíma í fyrra voru 194 skráðir atvinnulausir, þar af voru 68 skólanemar. í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Akur- eyri fengust þær upplýsingar að rúmlega helmingi fleiri hefðu verið á atvinnuleysisskrá 1. maí síðastliðinn, miðað við sama tíma í fyrra en þá var nær ekkert at- vinnuleysi yfir sumarmánuðina. Ekki er vitað um hversu margt skólafólk er atvinnulaust í þess- um sveitarfélögum, þar sem end- anlegri skráningu er ekki lokið. Félagsmálaráðuneytinu hafa borist um 50 umsóknir frá félaga- samtökum, einstaklingum og stofnunum um styrki til að ráða skólafólk til vinnu og eru flestar umsóknir af landsbyggðinni. Nefnd skipuð fúlltrúum þriggja ráðuneyta, félags-, fjármála og forsætisráðuneytis tjallar um umsóknirnar. Að sögn Gunnars Helgasonar, forstöðumanns Ráðningarskrifstofu Reykjavíkurborgar, hefur almennt atvinnuleysi ekki verið jafn mikið í Reykjavík í tíu ár. Á sama tíma í fyrra voru 88 karlar skráðir at- vinnulausir og 106 konur eða 194. Þar af var skólafólk 68, eða 28 strákar og 40 stúlkur. „Nú erum við með 1.035 á skrá, þar af eru 159 skólastrákar og 162 skólastúlk- ur. Útlit með ráðningu þeirra er mjög slæmt í sumar því borgin er þegar búin að ráða í þær stöður sem bættust við með aukafjárveiting- unni. Ríkisvaldið hefur lofað 200 milljónum, sem við bíðum eftir að sjá hvað verður um, en þetta hefur aldrei verið svona slæmt áður. Und- anfarin tíu ár hafa allir verið komn- ir til vinnu um miðjan júní,“ sagði Gunnar. „Fyrir utan skólafólkið eru rúmlega 700 á almennri atvinnu- leysisskrá, þar af er 131 verkamað- ur en var 21 í fyrra og verkakonur eru 97 en voru 24 í fyrra. Þá eru 75 karlar úr verslunarstétt skráðir en þeir voru 5 á síðasta ári og 119 konur en þær voru 16 í fyrra.“ í lok maí voru 104 skráðir at- vinnulausir í Kópavogi, þar af 50 karlar og 54 konur. „Af skráning- unni má ráða að hér sé ekki um hefðbundið atvinnuleysi að ræða,“ sagði Hrafn Sæmundsson, atvinnu- málafulltrúi Kópavogs. „Af 25 verkalýðsfélögum sem eiga ein- staka félagsmenn á skrá eru 49 félagar í Versiunarmannafélagi Reykjavíkur. Næst er Dagsbrún með 20 félagsmenn á skrá. I fyrra var ekkert atvinnuleysi yfir sumarið frekar en árin á undan.“ Sérstök vinnumiðlun hefur verið í gangi fyrir námsmenn og voru milli 50 og 60 — 16 ára og eldri — búnir að láta skrá sig fyrir helgi en bæjar- stjórn Kópavogs mun ætla að beita sér fyrir aðstoð við þetta fólk. í Hafnarfirði var 61 á almennri atvinnuleysisskrá 1. maí síðastlið- inn og eru það mun fleiri en í fyrra. Margrét Pálmarsdóttir, forstöðu- maður vinnumiðlunar unglinga, sagði að 170 unglingar væru ráðn- ir til vinnu hjá bænum í sumar en 60 væru enn atvinnulausir og hefur verið sett upp sérstök vinnumiðlun vegna þeirra. í Garðabæ eru 49 á atvinnuleys- isskrá en voru 30 um mánaðamótin maí og júní. Á sama tíma í fyrra voru 4 á skrá í lok maí og 22 í júní eftir að skólum lauk. Þá hefur verið tekin upp skráning skólafólks, 16 ára og eldri, en það hefur aldrei verið gert áður og hafa 26 þegar látið skrá sig. Á Ákureyri voru 120 skráðir at- vinnulausir 31. maí, þar af 57 kon- ur og 63 karlar en á sama tíma í fyrra voru samtals 58 atvinnulaus- ir. Þá hefur bæjarstjórn tekið ákvörðun um að kanna atvinnuleysi meðal skólafólks og verður það skráð í þessari viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.