Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989
3Q
MALAÐU
BETUR
MEÐ
MÁLNINGU
FRÁ
OKKUR
2
mSlippfélagiðm
m Málningarverksmiðjam
Dugguvogi 4
Minning:
Vigdís Helgadóttir
Fædd 9. mars 1924
Dáin 4. júní 1989
Mér er skylt að minnast nokkrum
orðum Vigdísar Helgadóttur, sem
lézt 4. júní sl., þegar hún nú er til
grafar borin, svo vinsamleg og hlý
var hún mér og fjölskyldu minni.
Vigdís fæddist í Reykjavík 9.
marz 1926, dóttir hjónanna Helga
Sigurðssonar húsgagnab Istrara og
konu hans, Steinunnar G ðmunds-
dóttur, en þau hjón eru nú bæði
látin.
Vigdís naut góðs atlætis í for-
eldrahúsum, en að venjubundinni
skólagöngu lokinni tók hún að vinna
við afgreiðslustörf.
Þann 18. apríl 1946 giftist hún
Þorsteini Árriasyni verzlunarmanni
og átti með honum tvö börn, Hall-
fríði hárgreiðslukonu, sem gift er
Ríkharði Björnssyni bakarameist-
ara á Dalvík, og eiga þau hjón tvo
drengi, og Helga, kvæntan sænskri
konu, Birgittu Þorsteinsdóttur, og
eru þau hjón búsett í Svíþjóð, en
áður hafði Vigdís eignast dótturina
Kötlu, sem foreldrar hennar ólu
upp. Katla er gift Ásgeiri Ólafssyni
fulltrúa og eiga þau tvo syni. Þor-
steinn Árnason lézt 9. september
1973.
Síðari manni sínum, Karli R.
Guðmundssyni úrsmíðameistara,
giftist Vigdís 24. júlí 1981.
Karl var ekkjumaður og létti það
honum lífið að fá þessa ágætu konu
á heimili sitt, og það fór vel á með
þeim hjónum. Tengdaföður mínum
var mikil stoð að konu sinni,
Vigdísi, sem bjó honum á ný nota-
legt heimili, og þau hjón ferðuðust
mikið innanlands og utan.
Vigdís reyndist vel barnabömum
Karls og þau hændust að henni.
Það virtist allt leika í lyndi í einka-
lífi tengdaföður míns, þegar dauð-
inn barði skyndilega og óvænt dyra
á húsinu á Fossheiði 16 á Selfossi.
Vigdís fékk hjartaáfall að morgni
4. júní. Hún komst undir Iæknis-
hendur, en varð ekki bjargað.
Vigdís var mikil hannyrðakona
og eftir hana liggja mörg smekkleg
og vel unnin verk af því tagi.
Húsmóðurstörf fórust henni vei
úr hendi, eins og öll verk sem hún
vann, því hún var kona verklagin
og verkhyggin.
Prójaðu. Græðandi varasalvi
ú kraftavefkaþykkbloðungnum ALOE VERA
Heilsuval, laugavegi 92, S: 626275 og 11275
Heimili þeirra hjóna, Vigdísar og
Karls, stóð barnabörnum Karls
jafnan opið, og þar mættu þau hlýju
viðmóti og góðu atlæti og sakna
börnin þessarar iátnu konu,
„Vigdísar ömmu“, eins og mín börn
kölluðu hana.
Tengdaföður mínum er þetta
mikill missir. Blessuð sé minning
þessarar góðu konu. _
Jóhannes Ásgeirsson
í dag, miðvikudaginn 14. júní,
er gerð útför mágkonu minnar,
Vigdísar Helgadóttur, og fer hún
fram frá Fossvogskirkju.
Vigdís var fædd í Reykjavík,
dóttir hjónanna Steinunnar Guð-
mundsdóttur og Helga Sigurðsson-
ar húsgagnabólstrara.
Foreldrar Vigdísar giftust árið
1924 og bjuggu alla sína tíð í
Reykjavík, lengst af á Leifsgötu 17.
Bæði eru þau dáin fyrir nokkrum
árum.
Vigdís var elst systra sinna, en
þær eru: Sigrún, Fríða, Hlíf og
Steinunn.
Haustið 1944 átti ég því láni að
fagna að kynnast fjölskyldunni á
Leifsgötu 17 og njóta þess glæsi-
lega heimilis, gestrisni og elskuleg-
heita fólksins þar, og síðar að gift-
ast næstelstu dótturinni, Sigrúnu.
Á Leifsgötunni var þá Vigdís,
tengdamóðir Helga, og fylgdi sú
góða kona fjölskyldunni til æviloka.
Einnig var þar lítil „dama“, Katla,
sem var augasteinn allra á heimil-
inu, þessi hnáta var dóttir Viggu,
en Vigdís gekk undir því gælunafni
meðal ættingja og vina.
Katla varð síðar kjördóttir ömmu
sinnar og afa og ólst þar upp. Katla
er gift Ásgeiri Braga Olafssyni
skrifstofumanni og búa þau í
Reykjavík.
Á Leifsgötu 17 var gott að koma
eins og ég hef áður sagt, enda voru
konur þar í miklum meirihluta.
Systurnar voru mjög samrýndar og
miklar vinkonur og bundust þær
traustum vináttuböndum sem end-
ist þeim lífið.
Vigga giftist Þorsteini Árnasyni,
skrifstofumanni í Reykjavík, 18.
apríl 1946 og eignuðust þau
tvíbura: Hallfríði hárgreiðslumeist-
ara, gift Rikarði Björnssyni bakara-
meistara og búa þau á Dalvík og
Helga rennismið, kvæntur Birgith
Þorsteinsson sjúkraþjálfa og búa
þau í Svíþjóð.
Þorsteinn andaðist 9. september
1973.
Á heimili Viggu og Steina kom-
um við Sigrún oft og áttum þar
ógleymanlegar stundir.
Vigga eignaðist 6 barnabörn og
1 barnabarnabarn og eru það allt
drengir.
24. júlí 1980 giftist Vigga eftirlif-
andi manni sínum, Karli R. Guð-
mundssyni úrsmíðameistara, og
bjuggu þau á Fossheiði 16, Sel-
fossi. Karl var ekkjumaður og á 3
uppkomin börn, sem reyndust
Viggu vel.
A Fossheiði 16 var gott að koma,
þar réð ríkjum hlýleiki og reisn
hjónanna og þar var snyrtimennsk-
an og smekkvísin í hávegum höfð.
Síðast kom ég á heimili þeirra
hjóna í mars sl., þá var merkis-
dagur frúarinnar, þá þótti sjálfsagt
að fagna, halda boð henni til heið-
urs og bjóða skyldmennum og vin-
um, þá var glatt á hjalla og veitt
af rausn og gestrisni hjónanna naut
sín. Allir sem þar voru eiga fagrar
minningar frá þeirri kvöldstund.
Er mér barst sú fregn, að mág-
kona mín hefði verið flutt í skyndi
í sjúkrahús í Reykjavík átti ég síst
von á því að kveðjustundin væri
komin, en því miður reyndist svo
vera.
Við sem þekktum Viggu söknum
glæsilegrar og góðrar konu. Vigga
var skemmtileg kona í góðum vina-
hópi, hún var meiningargóð, hafði
sínar skoðanir á málum, hún gat
verið spaugsöm og aðeins stríðin
en sanngjörn.
Við minnumst Viggu fyrir marga
kosti sem hún átti í fari sínu, t.d.
bar hún ekki óvild í huga til neins
og öfund þekkti hún ekki, gjafmildi
einkenndi far hennar og hún mátti
ekkert aumt sjá, þá var hönd henn-
ar útrétt.
Nú hafa leiðir skilið um stund
og kveðjum við Viggu með harm í
hjarta.
Með þessum fátæklegu línum er
góð kona kvödd og votta ég eftirlif-
andi eiginmanni og öllum ættingj-
um mína innilegustu samúð.
Jón Ásgeirsson
Sunnudaginn 4. júní barst okkur
sú sorgarfregn að Vigga frænka
væri látin. Ekkert okkar var við-
búið skyndilegu brottkalli hennar
úr hópi systranna, mæðra okkar.
Samheldni þeirra er slík að við litum
alltaf á þær sem óijúfanlega heild,
enda gengur systrahópurinn undir
nafninu „blokkin" okkar á meðal.
Fyrir þremur mánuðum héldum
við yfir heiðar og fögnuðum 65 ára
afmæli Viggu á yndislegu heimili
hennar og Kalla. Við erum þakklát
fyrir þessa síðustu minningu um
Viggu, glaða og reifa í hópi fjöl-
skyldu og vina, þessa kvöldstund
sem við vorum öll saman.
Vigga var okkur kær fyrir
margra hluta sakir. Ríkur þáttur í
fari hennar var hversu traustur fé-
lagi hún var vinum sínum og alltaf
var gaman að ræða málin við Viggu
því hún var skemmtileg, hreinskilin
og víðsýn.
Með þessum fáu orðum viljum
við kveðja okkar elskulegu frænku
sem mun lifa í hjörtum okkar.
Elsku Kalli, Katla, Fríða og
Helgi, við biðjum góðan Guð að
styrkja ykkur við fráfall ástkærrar
eiginkonu og móður.
Ég gestur er í heimi hér,
tíðin líður, boð ei bíður.
Senn ég heim til feðra fer.
Ó, ljúfi faðir, lít til mín,
að ég megi, ég þótt deyi,
koma heim til þeirra og þín.
(Vald. Briem)
Systrabörn
María B. Gunnbjöms-
dóttir - Kveðjuorð
Tölvusumarskóli • 10 -14 ára
Skemmtileg 3ja vikna sumamámskeið
hefjast 26.júní. Tímar 9-12 eða 13-16
Ódýr og fræðandi námskeið!
Tölvu- og verkfræöiþjónustan Hringiö og fáiö
Grensásvegi 16* sími 68 80 90 sendan bækling
Fædd 4. ágúst 1968
dáin 1. mai 1989
Okkur langar til að minnast í
örfáum orðum Maríu Bjargar
Gunnbjörnsdóttur.
Við kynntumst Maju haustið
1987, er hún hóf nám við Fjöl-
brautaskólann á Sauðárkróki, þá
nýkomin heim eftir ársdvöl í
Þýskalandi á vegum AFS.
Það kom fljótt i ljós að hér var
ÖRN OG
isr •
SÍÐUMÚLA 11 - SÍMI 84866
ÖRLYGUR
HM
*
ARNARik.ORLYGS
Handbók ræktunarmannsins. Leiðbeiningar
um ræktun og hirðingu. Með 170 litmyndum.
á ferð hress, en tilfinningarík og
hreinskilin ung kona. Áhugi á fé-
lagsstörfum var mikill, jafnt innan
skólans þar sem hún lagði leiklist-
inni lið og hjá AFS þar sem hún
var ávallt tilbúin til starfa.
Það sem einkenndi Maju sein-
asta ár, þrátt fyrir veikindi, var
ótrúleg elja og hugrekki. Aldrei
var gefist upp og hún stundaði
námið af mikilli ákveðni og reisn.
Að lokum þökkum við fyrir að
hafa kynnst Maju og vottum ást-
vinum hennar, okkar dýpstu sam-
úð í sorg þeirra.
Fyrir hönd AFS á_ íslandi.
Eva Hjörtína Ólafsdóttir,
Rannveig J. Jónasdóttir.
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!