Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989 25 Islenski fiskurinn hefiir ekki versnað 0 - segir Þórður Arelíusson eftirlitsmaður „EG TEL EKKI að íslenski fískurinn á mörkuðunum í Bretlandi hafí farið versnandi að undanförnu, eins og heilbrigðisfulltrúinn í Hull heldur fram,“ sagði Þórður Árelíusson, veiðieftirlitsmaður, í samtali við Morgunblaðið. Þórður var í Bretlandi í síðustu viku, ásamt Birni Jónssyni veiðieftirlitsmanni, til að fylgjast með sölu á ísfíski á mörkuðunum í Hull og Grimsby. Þórður Árelíusson sagði að tveir bátar hefðu selt lélegan fisk í Hull 31. maí síðastliðinn, eða í sömu viku og heilbrigðisfulltrúinn þar kvartaði undan versnandi gæðum íslenska fisksins. Annar báturinn hefði verið með lélega einangrun í lestinni en hinn hefði fyllti sig á þrem dögum og ekki átt löndunar- dag í Hull fyrr en nokkrum dögum síðar. Þórður sagði að báðir bátarn- ir hefðu verið með lítinn farm og á leiðinni til stórviðgerðar erlendis. Óvíst væri að þeir hefðu annars fengið leyfi til siglingar með aflann. Þórður sagði að ísfiskur, sem sendur væri héðan í gámum til Bretlands, væri ekki verri en fiskur sem seldur væri þar úr íslenskum fiskiskipum. Hann sagði að í síðustu viku hefði íslenski fiskurinn á bresku mörkuðunum yfirleitt verið góður. Þá hefði verið fiskur úr neta- báti í einum gáminum en lágt verð fengist fyrir netafisk á bresku mörkuðunum. Brýn þörf er á ným bj örgunarþyrlu - búum ella við falskt öryggi, segir Benóný Ásgrímsson, þyrluflugmaður „ÉG tel brýnt að Landhelgisgæzlan eignist aðra björgunarþyrlu og setji hana niður úti á landi, helzt í Neskaupstað. Án þess stendur þyrlubjörgunarþjónusta Gæzlunnar á brauðfótum. Mér fínnst lítill þrýstingur á þetta mál. Sá stuðningur sem við höfum orðið varir við er frá sjómönnum og ber að þakka hann. Hins vegar ræður skilning- ur sljórnvalda mestu, en hann skortir enn,“ sagði Benóný Ásgríms- son, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæzlunni, í samtali við Morgun- blaðið. Benóný segir, að þyrlubjörgunar- þjónusta Gæzlunnar standi ekki undir nafni eins og er. TF Sif hafi reyndar reynzt mjög vel, en ekki sé hægt að halda úti sólarhrings- vakt allt árið með einni vél. Venju- bundið viðhald, skoðanir og hugsan- legar bilanir komi í veg fyrir það. Því búi menn í raun við falskt ör- yggi hvað varðar þessa þjónustu. Benóný segir eðlilegast, verði ný þyrla keypt, að hún verði staðsett úti á landi og komi Neskaupstaður helzt til greina. Þá sé þyrlan langt frá Reykjavík og jafnframt nærri fjölsóttum miðum svo sem togslóð- um á þorski og karfa, loðnumiðum og síldarmiðum. Norðijörðurinn sé fremur stuttur og breiður og þvi sæmilegt radaraðflug inn á hann. Loks sé sjúkrarhús á staðnum og stutt til varaflugvallar á Hornafirði. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 13. júní. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 68,00 30,00 55,69 16,834 937.502 Ýsa(smá) 63,00 25,00 36,86 14,903 554.942 Karfi 41,50 15,00 35,26 20,991 740.337 Ufsi 33,00 33,00 33,00 0,668 22.045 Steinbítur 36,00 35,00 35,51 4,160 147.725 Langa 39,50 32,00 35,97 2,263 81.414 Lúða 120,00 70,00 88,77 0,311 27.609 Koli 55,50 54,00 54,49 8,565 466.781 Keila(ósL) 14,00 14,00 14,00 0,212 2.968 Skata 40,00 40,00 40,00 0,067 2.662 Skötuselur 106,00 100,00 102,27 2,634 269.400 Samtals 45,43 71,607 3.253.385 Selt var m.a. úr Arnari SU og Sigurjóni Arnlaugssyni HF. I dag verða m.a. seld 25 tonn af þorski, 7 tonn af ýsu, 3 tonn af kola, 1,5 tonn af skötusel og óákv. magn af öðrum teg. úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 63,00 27,00 58,60 16,543 969.410 Ýsa 72,00 35,00 68,80 35,593 2.448.663 Karfi 35,00 31,50 34,93 6,981 243.820 Ufsi 32,00 15,00 29,75 0,717 21.329 Steinbítur 40,00 30,00 32,45 0,869 28.202 Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,060 900 Langlúra 8,00 8,00 8,00 0,440 3.520 Langa 28,00 28,00 28,00 0,093 2.604 Blálanga 41,00 41,00 41,00 4,842 198.502 Lúða 205,00 115,00 171,13 0,973 166.505 Grálúða 56,00 53,50 54,79 96,199 5.271.079 Skarkoli 68,00 49,00 50,04 0,255 12.761 Skötuselsh. 235,00 235,00 235,00 0,136 31.960 Samtals 57,36 164,450 9.433.237 Selt var úr Sunnutindi SU, Krossnesi SH og bátum. í dag verð- ur selt óákveðið magn úr Freyju RE, Hoffelli SU og bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 90,00 45,00 54,44 17,823 970.341 Þorskur(smár) 29,50 25,00 28,29 0,739 20.905 Ýsa 62,00 35,00 46,46 1,354 62.913 Karfi 35,00 27,00 31,52 2,008 63.301 Ufsi 34,00 30,50 33,39 8,237 275.087 Steinbítur 41,50 30,50 34,17 0,795 27.151 Hlýri+steinb. 27,00 27,00 27,00 0,368 9.923 Langa 37,00 30,00 36,48 4,282 156.203 Lúða 155,00 105,00 132,43 0,871 115.350 Sólkoli 51,00 51,00 51,00 0,279 14.229 Skarkoli 42,00 35,00 35,24 0,575 20.265 Skata 50,00 50,00 50,00 0,029 1.450 Skötuselur 220,00 92,00 94,44 0,105 9.916 Öfugkjafta 15,00 15,00 15,00 0,182 2.730 Samtals 46,46 37,659 1.749.829 Sélt var meðal annars úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. ( dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr ýmsum bátum. Einn viðskiptavina HAZARS BAZARS leikur listir sínar á hjólabretti. Ók á dreng og í burtu Tvö prestaköll auglýst laus til um- sóknar BISKUP íslands hefíir nýlega auglýst tvö grestaköll laus til umsóknar í Isafjarðarprófasts- dæmi, en það eru Holtspresta- kall (Holts-, Flateyrar- og Kirkjubólssóknir) og Isafjarðar- prestakall (Eyrarsókn í Seyðis- fírði, Hnífsdals- og ísafjarðar- sóknir). Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, sem hefur gegnt stöðu sóknar- prests í ísafjarðarprestakalli frá 1. október 1977, tekur við stöðu annars prests við Dómkirkjuna í Reykjavík 15. júní nk., en sr. Lárus Þorvaldur Guðmundsson, sem verið hefur prestur í Holtsprestakalli sl. 26 ár, mun taka við stöðu sendi- ráðsprests í Kaupmannahöfn 15. júlí nk. Þá er einnig laust til umsóknar starf fræðslufulltrúa Þjóðkirkjunn- ar með búsetu á Norðurlandi. Umsóknarfrestur um þessar þijár stöður er til 8. júlí nk. Námskeið hjá Kramhúsinu KRAMHÚSIÐ heldur Alþjóðlegt sumamámskeið dagana 19. júní til 2. júli. Námskeiðið er 10 daga heilsdags námskeið fyrir dans- ara og dansáhugafólk. Einnig er mögulegt að sækja einstaka kennslugreinar innan nám- skeiðsins fyrir þá sem ekki geta nýtt sér námskeiðið að fullu. Kennslugreinarnar eru þijár. Auður Bjarnadóttir kennir klassískan ballet, Anna Haynes og Christien Polos kenna danstækni og kóreógrafík og Adrienne Haw- kins og Christien Polos kenna jass- dans/ nútímajass/blues. Fólki er bent á að skrá sig sem fyrst, þar sem fjöldi á námskeiðinu verður tak- markaður. Sýning verður að loknu námskeiðinu. í júlí heldur Kramhúsið áfram starfsemi sinni með leikfimi, samba, karneval/afró. Einnig verð- ur boðið upp á leikfimi fyrir fólk með álagssjúkdóma. Helgina 23.-25. júní verður reið- námskeið á vegum Kramhússins haldið á Sigmundarstöðum í Hálsa- sveit. Kennari verður Reynir Aðal- steinsson. Sérverslun með hjólabretti FYRIR stuttu var opnuð fyrsta hjólabrettasérverslunin á Is- landi, HAZAR BAZAR, á Skóla- vörðustíg 17B. Hún var opnuð vegna sívaxandi vinsælda hjóla- brettaíþróttarinnar hérlendis sem erlendis. Verslunin er sérhæfð í hjóla- brettum og er þar allt fáanlegt sem að þeim lýtur. Þar má nefna sam- sett hjólabretti og ósamsett, allir varahlutir, allur öryggisbúnaður s.s. hlífar og hjálmar, fatnaður, skór og svo framvegis. Helstu merkin í hjólabrettaiðn- aðinum eru á boðstólum: Pacer, Santa Cruz, Powell Peralta, Vision, Sims, Blockhead, Zorlack, Protec, Gullwing, Tracker, Independent og fleiri. Hjólabrettasnillingarnir Shane O’Brian og Dan Adams, sem staddir voru hérlendis nýverið, tóku þátt í hönnun og frágangi Hazars Bazars að erlendri fyrirmynd. Lögð er áhersla á varahluta- og viðgerðaþjónustu. Verslunin er op- in frá mánudegi til fimmtudags 9-18, föstudaga 9-19 og lokað laugardaga. Eigandi HAZARS BAZARS er reiðhjólaverslunin Örninn. Vitni vantar Rannsóknarlögreglan í Hafíi- arfirði lýsir eftir vitnum að því er ekið var á grænan Fiat Uno bíl við Riddarann, Vesturgötu 8 í Hafíiarfirði aðfaranótt laugar- dags. Sá sem tjóninu olli gaf sig ekki fram heldur ók af vettvangi. Vitni eru beðin að hafa samband við lög- regluna í Hafnarfirði. Slysarannsóknadeild lögregl- unnar í Reykjavík lýsir eftir vitn- um að því er ekið var á dreng á mótum Laugavegar og Rauð- arárstígs um klukkan 17.30 síðastliðinn föstudag. Sá sem það gerði fór af vettvangi. Drengurinn slasaðist ekki alvar- lega en er þroskaheftur og getur lítið tjáð sig um málsatvik. Skorað er á ökumanninn eða vitni að at- burðinum að gefa sig fram við lög- reglu. Vestnorræna þingmannaráðið fundar á íslandi ÁRLEGUR fúndur Vestnorræna þingmannaráðsins (Vestnordens Parlamentariske Samarbejdsrád — VPS —) verður að þessu sinni haldinn í Stykkishólmi dagana 14.-16. júní nk. Er þetta í annað sinn sem ráðið heldur fund á Islandi, en það var stofnað í Nuuk á Grænlandi 1985. Hlutverk ráðsins er að annast samastarf þjóðþinga Færeyja, Grænlands og íslands og vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þjóðanna. Ráðið hefur tillögurétt gagnvart þingum og stjómum landanna þriggja. Formaður Vestnorræna þing- mannaráðsins er kosinn til eins árs í senn. Núverandi formaður er Preben Lange, landsþingsmaður frá Grænlandi, en á fundinum í Stykkishólmi mun Friðjón Þórðar- son, formaður íslandsdeildar ráðs- ins, taka við formennsku. Núverandi íslandsdeild Vestnor- ræna þingmannaráðsins skipa, auk Friðjóns Þórðarsonar formanns: Alexander Stefánsson, Óli Þ. Guð- bjartsson, Árni Gunnarsson, Mar- grét Frímannsdóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir. < i/i '»"» 1----TT MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ NÍÐSTERK ÞUNGAVIGTARLÍNA Fœst í nœstu sportvöruverslun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.