Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 28
2»;
MORGUNBLAÐIÐ 'MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989
SMIÐJUVEG 11 - 200 KÓPAVOGI - S: 91-641340
Trésmiðir
óskast í vinnu nú þegar. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 641340.
Trésmiðir
Viljum ráða trésmiði til starfa á Reykjavíkur-
svæðinu.
Upplýsingar í síma 622700 á skrifstofutíma.
ISTAK
$júftrnbúsið í Húsavíft s.f.
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa um lengri eða skemmri tíma.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-41333.
ÁLFTÁRÓS HF
SMIÐJUVEG 11 - 200 KÓPAVOGI - S: 91-641340
Múrarar
óskast í vinnu nú þegar. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 641340.
Frá Héraðsskólanum í Reykholti,
Borgarfirði
Kennarastaða í ensku og íslensku er laus til
umsóknar. Um er að ræða kennslu í 9. bekk
og framhaldsdeildum skólans. Háskólapróf
æskilegt.
Góð aðstaða, gott húsnæði, mikil vinna.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum
93-51200 eða 93-51201.
Kennarar
Kennara vantar við Gagnfræðaskólann á
Selfossi. Kennslugreinar: Danska, íslenska,
enska, samfélagsgreinar og vélritun.
Umsóknarfrestur til 23. júní.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 98-21273
og yfirkennari í síma 98-21520.
Skólanefnd.
JL'WINNU Al JGI Y^llYlGAR
Laus staða
Sjávarútvegsráðuneytið vill ráða ritara til
starfa sem fyrst.
Starfsreynsla er nauðsynleg og kunnátta á
ritvinnslukerfið WordPerfect æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist ráðuneytinu á Skúla-
götu 4, 6. h., eigi síðar en 23. júní nk.
Sjávarútvegsráðuneytið,
12. júní 1989.
Kennarar
Við Barnaskólann á Selfossi vantar íþrótta-
kennara í heila stöðu og heimilisfræðikenn-
ara í hálfa stöðu.
Umsóknarfrestur til 23. júní.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 98-21498
og formaður skólanefndar í síma 98-22409.
Skólanefnd.
m
Holtaskóli, Keflavík
Næsta skólaár eru lausar fjórar kennarastöð-
ur, m.a. í ensku, íslensku, samfélagsfræði,
stærðfræði og raungreinum.
í skóianum eru u.þ.b. 500 nemendurfrá 6.-9.
bekkjar og kennarar um 30.
Einnig vantar íþróttakennari drengja.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-15597
og yfirkennari í síma 92-15652.
Skólanefnd.
Raungreinakennarar
Af sérstökum ástæðum er nú laus staða
kennara í líffræði og eðlisfræði í 7.-9. bekk
Garðaskóla.
Kennsluaðstaða er mjög góð og gott úrval
kennslugagna.
Vel menntaðir og áhugasamir kennarar und-
ir stjórn áfangastjóra í raungreinum munu
taka vel á móti nýjum kennara.
Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra eða
yfirkennara í síma 44466.
Skólafulltrúi Garðabæjar.
AUGLYSINGAR
HUSNÆÐIOSKAST
Lager- og skrifstofu-
húsnæði óskast
Sambyggt ca 400 fm lager- og 80-100 fm
skrifstofuhúsnæði óskast til leigu eða kaups
í Reykjavík eða nágrenni. Þarf að vera laust
strax. Æskileg staðsetning er í Reykjavík
vestan Elliðaáa.
Upplýsingar gefa Gunnar eða Birkir í síma
91-686377.
Skrifleg tilboð skal senda til auglýsingadeild-
ar Mbl. merkt: „L - 2970" fyrir föstudag 16.
júní nk.
YMISLEGT
f
si
Húsgagnamiðiun
Notuð húsgögn
Tökum í umboðssölu notuð og vel með farin
húsgögn o.fl.
Hringið og við komum og lítum á húsgögnin.
Einnig veitum við ráðgjöf og þjónustu vegna
sölu húsbúnaðar úr dánar- og þrotabúum.
Skeifan, húsgagnamiðlun,
Smiðjuvegi 6, Kópavogi.
Sími 77560 fráki 9-18.
Magnús Jóhannsson, frkvstj.
TIÍKYNNINGAR
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á
því, að eindagi launaskatts fyrir mánuðina
mars og apríl er 15. júní nk. Sé launaskattur
greiddur eftir eindaga, skal greiða dráttar-
vexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið
frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Hef flutt
lækningastofu mína í Síðumúla 27.
Tímapantanir virka daga frá kl. 15.00-16.00
síma 678557.
ÓlafurJóhann Jónsson,
geðlæknir.
FUNDIR - MANNFAGNAÐIR
Ráðstefna
boðar til ráðstefnu og sýningar á Natur-
al/Adabas fyrir einmenningstölvur í Kristals-
sal Hótels Loftleiða fimmtudaginn 15. júní
1989.
Dagskrá ráðstefnunnar:
13.20 Setning:
Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri
SKÝRR.
13.30 Nýjungar í ISA (Intergrated Software
Architecture):
Peter Page, forstjóri Software AG.
15.00 Skrifstofuhugbúnaður:
Gareth Jones, sölufulltrúi Software
AG, Bretlandi.
Kaffihlé.
Kynning á Natural Process og Natur-
al Operation:
Len Jenkinson, forstjóri Software AG,
Bretlandi.
17.15 Lokaorð:
Jóhann Gunnarsson, deildarstjóri fjár-
laga- og hagsýslustofnunar.
Natural/Adabas (PC Natural) fyrir einmenn-
ingstölvur verður til sýnis á ráðstefnunni.
Þátttaka tilkynnist í síma 695165.
16.00
16.15