Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 44
vZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
Allt að 700 manns voru á fundinum á Hótel Borg í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Þorkell
Hækkun eignaskatts harðlega
gagnrýnd á um 700 manna ftindi
FUNDUR um ekknaskatt, eins og sagði í fundarboði, var haldinn
á Hótel Borg í gSerkvöldi og gagnrýndu fundarmenn harðlega
eignaskattshækkun þá sem ákveðin var síðasta vetur. Húsfyllir
var og starfsmenn hússins gátu sér þess til að allt að 700 manns
hefðu verið á fundinum. Frummælendur voru Þuríður Pálsdóttir
óperusöngkona, Sigurður Líndal lagaprófessor, Sigurður Tómas-
son endurskoðandi og Kristjana Milla Thorsteinsson viðskipta-
íræðingur. Fundarstjóri var Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi.
Þuríður Pálsdóttir sagði á fund-
inum að með álagningu ekkna-
skattsins væri bæði um eignaupp-
töku og margsköttun að ræða.
Greiðendur þessa skatts hefðu
áður greitt skatt af tekjum sem
þeir hefðu notað til að koma sér
upp húsnæði, svo og byggingar-
efni sem þeir hefðu notað í það.
Sigurður Líndal lagaprófessor
fjallaði um lagalega hlið þessarar
skattlagningar og velti fyrir sér
hvort hún stangast á við þau
ákvæði stjórnarskrárinnar sem
vemda eignarrétt manna en sagð-
ist ekki geta svarað spurning-
unni. „Hins vegar hefur oft verið
stofnað til málaferla af minna til-
efni en þessu,“ sagði Sigurður.
Sigurður Tómasson endurskoð-
andi sagði að fasteignamat, sem
lægi til grundvallar álagningu
eignaskatta, hefði hækkað meira
en skattleysismörk og því hækk-
uðu skattamir meira en ella.
Kristjana Milla Thorsteinsson
sagði að með sköttum af þessu
tagi væri verið að refsa fólki fyr-
ir að standa skil- á skuldum sínum
og þeir væru ekki til þess fallnir
að stuðla að sparnaði.
í máli annarra ræðumanna á
fundinum kom einnig fram hörð
andstaða við eignaskattshækkun-
ina, svo og gagnrýni á sérstakan
eignaskattsauka vegna byggingar
Þjóðarbókhlöðunnar.
Á blaðsíðu 18 er sagt frá
blaðamannafundi Qármála-
ráðherra um eignaskattinn.
Flugmálasljórn kyrrsetur Boeing 737-400 þotur Flugleiða
Krafist verður breytinga á
hreyflum Flugleiðaþotnanna
Morgunblaðið/Bjami
CFM56-3C hreyfíll á Boeing 737-400 þotunni Aldísi. Guðmundur
Salbergsson flugvirki sýnir hvar hverfilblöðin eru fest í hreyfildisk.
Jarðhiti
hitaveitna
þverrandi
Egilsstöðum.
TALIÐ er að úr flestum jarðhita-
svæðum landsins sé unnið meira
vatn en svarar til náttúrulegs afls
þeirra. Líklegt er því talið að kalt
vatn streymi inn í jarðhitakerfin
eftir að nýting þeirra er hafin.
Þetta leiðir til þess að nýtt jarð-
hitasvæði í landinu muni fara kóln-
andi í framtíðinni og orka hita-
veitnanna þverrandi.
Þetta kom fram í erindi Guðna
Axelssonar sérfræðings hjá Orku-
stofnun um forðafræði jarðhitans á
aðalfundi Sambands íslenskra hita-
_ jæitna á Egilsstöðum.
Margar hitaveitur í landinu hafa
þegar brugðist við þessum kólnunar-
vandamálum með markvissum að-
gerðum. Hefur það verið gert með
því að setja upp rafkynnt grunnafl
og nota heitavatnsforðann sem vibót-
arafl á álagstímum. Einnig hafa hita-
veitur breytt um sölufyrirkomulag,
hætt að selja vatn eftir magnhemlum
og farið að selja eftir rennslismælum.
Hjá mörgum veitum hafa slíkar
breytingar dregið úr vatnsnotkun um
20-30%.
- Björn
Svíar kanna
kostnað við
stækkun Isals
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
STARFSMENN sænska fyrirtæk-
isins SIAB, sem sá um byggingu
'álversins í Straumsvík á sínum
tíma, munu gera könnun á kostn-
aði í sambandi við stækkun versins
í næstu viku. Alusuisse hefur þeg-
- —nr gert athugun á því en Svíarnir
munu nú endurskoða hana og
leggja fram lokaniðurstöðu svo að
aðilarnir í Atlantal-hópnum geti
borið hana saman við kostnaðinn
við byggingu nýrrar álverksmiðju
við hlið ísals.
Líklegt þykir að stækkun álvers
Alusuisse, með aðild fleiri fyrirtækja,
verði ofan á. Austurríska fyrirtækið
Austria Metal mun láta vita á næstu
dögum hvort það hyggst fjárfesta í
álframleiðslu á íslandi.
Sænska fyrirtækið Grangers og
hollenska Alumined Beheer hafa ver-
ið áhugasamari um áætlunargerðina
þar en hið austurríska.
FLUGMÁLASTJÓRN kyrrsetti í
gær Boeing 737-400 þotur Flug-
leiða, Aldísi og Eydísi, eftir að
sprunga fannst í hreyfildiski í
breskri systurvél þeirra. Ákveðið
var að beðið skyldi nánari upplýs-
inga úr rannsókn breskra flug-
málayfirvalda á orsökum bilunar
í tveimur 737-400 þotum þar í
landi uns Flugleiðavélarnar
fengju að fljúga á ný. Fulltrúi
bandarísku flugmálastjórnarinnar
(FAA) sagði i samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að stofnunin
myndi í dag senda flugmálayfir-
völdum og flugfélögum fyrirmæli,
þar sem m.a. yrði krafist breyt-
inga á hreyflunum, sem knýja
þotur Flugleiða. Fyrirmæli stofn-
unarinnar varðandi flugvélar, sem
smíðaðar eru I Bandaríkjunum,
eru látin gilda hvarvetna í heimin-
um.
Samkvæmt fréttatilkynningum,
sem Flugmálastjórn og Flugleiðir
sendu frá sér í gær, kom ekkert at-
hugavert í ljós við skoðun á hreyflum
Aldísar og Eydísar. Síðdegis í gær
hafði hins vegar við skoðun hjá Brit-
ish Midland-flugfélaginu í Bretlandi
komið í ljós sprunga í hreyfildiski.
Með hliðsjón af því að gæta fyllsta
öryggis hefði verið ákveðið að
737-400 þotur Flugleiða skyldu ekki
vera í notkun fyrr en nánari upplýs-
ingar úr rannsókn á bresku vélunum
lægju fyrir.
John Freeman, talsmaður bresku
fiugmálastjórnarinpar, sí^gty í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að flug-
bann, sem Boeing 737-400 þotur í
eigu breskra flugfélaga hefðu verið
settar í, gæti allt eins staðið í marga
daga.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að verið væri að
kanna það af hálfu fyrirtækisins
hver ætti að bera tjón, sem af kyrr-
setningu Aldisar pg Eydísar hjytist.
Ekki lægi fyrir hvert tjónið yrði.
Jón R. Steindórsson, yfirflugstjóri,
segir að flugmenn Flugleiða, sem
flogið hafa Boeing 737-400 vélunum
Aldísi og Eydísi, hafi aldrei orðið
varir við neinn titring í hreyflunum
né annað sem gæti bent til að eitt-
hvað væri í ólagi.
Sjá fréttir á bls. 22-23.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins:
Stjórnin fari frá og
kosið verði sem fyrst
MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins telur brýnt að ríkisstjórnin fari
frá og efiit verði til kosninga svo fljótt sem verða megi til þess að
unnt verði að mynda nýja starfhæfa ríkisstjórn áður en þing kemur
saman í haust. Þetta kemur fram í ályktun miðstjómarinnar, sem
samþykkt var á fiindi hennar í gær.
í ályktuninni segir að stefna í ályktuninni er gerð krafa um
stjómarinnar hafí beðið skipbrot að eignaskattshækkun, sem stjórn-
og hún sé rúin trausti almennings.
Ríkisstjómin hafí augljóslega ekki
burði til að takast á við mikil verk-
efni í efnahags- og atvinnumálum
og enn síður hafi hún styrk til að
móta stefnu ísler.dinga í samskipt-
um og viðskiptum við aðrar þjóðir
á tímum mikils umróts og breyt-
inga á alþjóðavettvangí.
in hafi lagt á síðastliðinn vetur,
verði afnumin. Hún sé óréttlát og
leggist þyngst á einstaklinga, eink-
um ekkjur og ekkla. Þá segir í
ályktun miðstjómarinnar: „Núver-
andi ríkisstjóm hefur tekið hags-
muni ríkissjóðs fram yfír hag heim-
ila og þarfír atvinnuvega,“ .