Morgunblaðið - 14.06.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 14.06.1989, Síða 17
!V}QfiGyNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989 17 Þegar Benedikt hætti sem for- seti ÍSÍ 1962 var hann kosinn heið- ursforseti þess. Þetta ár eru sam- bandsfélög orðin 245, héraðs- sambönd 27 og sérsambönd 7. Iðk- endafjöldi 16.211. í milliþinga- nefnd um íþróttamál, sem skipuð var 1938 og í voru 9 valinkunnir íþróttaforystumenn, var Benedikt ekki. Þegar frumvarp nefndarinnar að íþróttalögum var lagt fram á Alþingi kom fram við það gagn- rýni, sem sjálfstæðismenn báru fram, en Benedikt með stjórn ÍSÍ að baki sér, stóð að. Varðaði Jsetta einkum stöðu ÍSÍ og UMFI hlið við hlið í þjóðfélaginu. Milli forystu þessara tveggja samtaka urðu hörð átök og hótaði forsætisráðherra, Hermann Jónasson, að draga frumvarpið frá þinginu, ef eigi næðist samkomulag. Það náðist og Benedikt náði því, sem ÍSÍ sótti fastast, að ÍSÍ yrði æðsti aðili um íþróttamál áhugamanna og annað- ist þau erlendis. í fyrstu íþrótta- nefnd ríkisins átti Benedikt sæti. Þegar litið er yfir fyrstu starfsár stjórnar ÍSÍ þá er eigi annað hægt en dást að hveiju hún kom í verk. Fyrst verka var þátttaka í Ólympíuleikum í Stokkhólmi og að takast skyldi að koma átta til leik- anna. Fjárráð voru lítil. Það er sýnt, að þegar Benedikt kemur í stjórnina, er betur tekið á útgáfu- málum. Lög og leikreglur koma út 1915, Knattspyrnulög 1916 og 1920, Heragabálkur skáta 1918 og Handbók skata 1919, Sundbók í tveimur heftum 1920 og 1921 og Heilsufræði íþróttamanna 1925 o.s.frv. Benedikt og íþróttavinir hans, Helgi Jónasson frá Brennu og Sig- uijón Pétursson, unnu saman að stofnun fyrsta skátafélags Reykjavíkur 1913. Axel V. Tulin- íus, sem var forseti ISÍ 1912- 1925, var aðal forystumaður skátahreyfingarinnar hér á landi um árabih Hann beitti sér fyrir stuðningi ÍSÍ við skátana og því annaðist stjórn ÍSÍ útgáfu fyrir þá, en árið 1920 efldi stjórn ÍSÍ skát- ana til þess að axla eigin mál. Benedikt leit alltaf á sig sem skáta og mætti á landsmótum þeirra. Hver sem flettir Sundbók ÍSÍ sér hvílíkt verk Benedikt hefur unnið, svo þessi tvö hefti hennar kæmust út. Hann skrifaði textann og hann sat fyrir hjá ljósmyndar- anum. Hann vann með bókinni þarft verk. Mikilvægan þátt átti Benedikt að því að vandað mál væri í öllum ritum ÍSÍ. Reglur allra íþrótta nema glímu varð að þýða. Hræðilegt málfar var hjá íþrótta- mönnum á hugtökum íþrótta þeirra, því að eigi bíða þeir mál- vöndunarmanna með iðkanir. Með aðstoð Guðmundar Bjömssonar landlæknis og Björns Kalmans lög- fræðings tókst Benedikti að fá Málning -100% ACRYL MÁLNING - TEYGJANLEG MÁLNING - HRAUN MÁLNING - GÓÐ MÁLNING Málning með reynslu !i steinprýði Stangarhyl 7, simi: 672777. hugstæð nýyrði, og það sem meira var, hann var innan um iðkendur, sem þátttakandi í leikum þeirra og mótum, svo að hann kom mál- vöndun sinni á framfæri. íþróttafé- lag Reykjavíkur hóf 1916 útgáfu tímarits um íþróttir, Sumarblaðið hét það. í 3 ár kom ritið út um sumarmál, þá var breytt um nafn og nefnt Þróttur. Til ársins 1923 kom Þróttur út. Björn Ólafsson, kaupmaður og síðar ráðherra, rit- stýrði því um skeið en þá tók Bene- dikt við enda hafði hann haft hönd í bagga með þessu tímarit. Stjórn ÍSÍ keypti Þrótt og hóf útgáfu þess 1924 undir nafninu íþrótta- blaðið. Á ýmsu hefur gengið með útgáfu þessa blaðs fram til 1959 að það hætti um skeið, en óþreyt- andi var Benedikt löngum að halda því jgangandi, því að mikilsvert er að ISÍ eigi sér málgagn. Undrum sætir hve seint stjóm ÍSÍ kom starfsemi sinni fyrir á skrifstofu og réð sér starfskraft. Vegna þessa lenti öll afgreiðsla mála, fyrir- spurnir og beiðnir félaga inn til Benedikts og margir voru minni- smiðarnir í vösum og tösku Bene- dikts og aðdáunarvert hversu hann rækti að sinna erindum þeim sem miðamir geymdu. Enginn íslensk- ur félagsskapur hefur jafnmikil viðskipti við útlönd og íþrótta- hreyfingin. Þessi viðskipti, bréf- lega, í skeytum, símtölum og með utanferðum, lentu á Benedikt. Hann var því sá íslenskra íþrótta- frömuða, sem kunnastur varð er- lendis meðal íþróttasamtaka og einstaklinga. Þetta umstang tmfl- aði einkalíf Benedikts og einnig eyddi fyrir honum fé. Einn erlendra íþróttavina Bene- dikts var Svíinn Sigfried Edström sem tók við forsetastarfi Alþjóða- ólympíunefndarinnar eftir síðari heimsstyijöldina. Rúmlega 20 full- trúar nefndarinnar höfðu fallið frá og þurfti að fylla í skörðin. Bene- dikt G. Waage var einn þeirra sem að verðleikum varð fyrir valinu. Háttur nefndarinnar, þó hún hafi bækistöð í Lausanne í Sviss, er að efna til funda sinna á ýmsum stöð- um. Fyrir fulltrúana er nefndar- vinnan kostnaðarsöm og tímafrek. Einn þeirra, sem átti sæti í nefnd- inni með Benedikt var Kekkonen, sem varð forseti Finnlands. Hann dáði ljúfmannlega framkomu Benedikts og hnittna gamansemi. Hann sagði þeim sem þetta ritar, að eitt sinn er ræddar voru áhuga- mannareglur var hart deilt, aðal- lega af tveimur fulltrúum sem máttu sín mikils. Fosetinn var kominn í vandræði, reiðin svall niðri fyrir og dauðaþögn ríkt, þá stóð Benedikt á fætur, gekk til hinna ofsareiðu og bauð þeim lakkríspillur. Þetta gerði hann svo ljúfmannlega og öllum að óvörum, að hann bjargaði málinu. Benedikt G. Waage var heilsu- hraustur. Hann lést í svefni 77 ára gamall árið 1966. Við útför hans var honum vottað verðugt þakk- læti af mörgum. Hann hafði hlotið margar heiðursviðurkenningar. Öll heiðursmerki ÍSÍ höfðu honum ver- ið veitt og heiðursforseti ÍSÍ var hann kjörinn. Ólympíuorðu IOC bar hann. Stórriddarakross fálka- orðunnar veittist honum, svo og heiðursmerki erlendra þjóða, íþróttasamtaka, sérsambanda ÍSÍ, íþróttafélaga og félags íþrótta- fréttaritara. Með þessari samanþjöppuðu frá- sögn um líf og störf Benedikts G. Waage vill framkvæmdastjórn ÍSÍ minnast þessa mæta heiðursfor- seta síns. Höfundur er fyrrverandi íþrótta- fulftrúi ríkisins. Ævintýraferð fyrir minna verð Flugfar til Thailands kostar litlu meira en til evrópskra sólarlanda. Á móti kemur að verðlag í Thailandi er svo lágt að í heildina er ódýrara að ferðast til Thailands en annarra sólarlanda. Upplifun í Thailandsferð verður hins vegar ekki jafnað við venjulega sólarlandaferð. í Thailandi kynnist þú framandi menningu, fjölskrúðugu mannlífi, stórkostlegu landslagi og glæsilegri baðströndum en finnast annars staðar, Er ekki kominn tími til að breyta til? 17 daga ferð til Bangkok og Pattaya kostar aðeins kr. 90.560* fyrir manninn í tvíbýli. Innifalið er m.a. flug, gisting á fyrsta flokks hótelum og morgunverður. Allt að 50% afsláttur fyrir börn undir 12 ára. Bæklingur um Thailand liggur frammi á öllum ferðaskrifstofum. Þar færðu allar nánari upplýsingar um Thailandsferðir. * Verð miðast við gengi og fargjöld 1. júní. FLUGLEIÐIR SÍMI: 690300 /////SAS Laugavegur 3. simi 62 22 11 / 2 11 99 / 2 22 99

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.