Morgunblaðið - 14.06.1989, Qupperneq 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 1989
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691 tOO. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið.
Mannfyrirlitning
valdhafanna í Peking
Lýsingamar á því hvernig
hermenn gengu til verks á
Torgi hins himneska friðar eru
með eindæmum óhugnanlegar.
Alþýðufrelsishermenn, eins og
þeir heita fullu, opinberu nafni,
beittu námsmenn og alþýðu
manna ótrúlegri grimmd. Virð-
ingarleysi fyrir mannslífunum
var algjört. „Ekið var yfir stúd-
entana með þungum herflutn-
ingavögnum og skriðdrekum,
sem síðan óku fram og aftur
yfir lík hinna þar til þau voru
orðin að mauki einu. Eftir það
var jarðýtum ekið inn á torgið
og líkamsleifunum ýtt saman
í hrúgur, sem síðan var kveikt
í af hermönnum með eldvörp-
um.“
Þessa ómannúðlegu lýsingu
sjónarvotts á því sem gerðist
á Torgi hins himneska friðar
fyrir aðeins tíu dögum las Bob
Hawke, forsætisráðherra Ástr-
alíu, í minningarathöfn um
hina látnu. Þarf engan að
undra þótt ráðherrann brysti í
grát við lesturinn. Lýsingar af
þessu tagi vekja aðeins upp
minningar um framferði of-
beldismanna á vegum Hitlers
og Stalíns eða Pols Pots og Idi
Amins.
Þeir skipta þúsundum sem
týndu lífi þegar þessi frelsisher
kínverskrar alþýðu ruddist inn
á friðartorg öldunganna, sem
enn hafa öll ráð Kínverja í
höndum sér. Þeir ætla sér
greinilega að kæfa andóf
æskumannanna sem risu upp
gegn alræði kommúnista-
flokksins í blóði og með mis-
kunnarlausum ofsóknum.
Kínverska sjónvarpið er sá
miðill sem nota má til að ná
til þeirra ellefu hundruð millj-
óna manna sem búa í Kína.
Þeir sem fylgjast með því nú
í upphafi fjöldafangelsana
komast í kynni við, hvernig
unnt er að misbeita áhrifamikl-
um ijölmiðlum markvisst í
þágu óprúttinna valdhafa. Birt
eru símanúmer á skjánum og
fólk hvatt til að hringja í þau
og segja frá nöfnum manna,
sem það telur andvíga stjórn-
völdum. Ekki er krafist annars
en nafns sakbomingsins,
ákærandinn getur falið sig á
bak við nafnleynd. Síðan era
sýndar myndir af hinum valda-
miklu gamalmennum að hylla
hermenn og foringja þeirra eða
af útsendurum stjórnvalda,
sem leiða ungt fólk í yfirheyrsl-
ur og fangelsi. Vestrænir sjón-
varpsmenn hafa undrast hve
lengi þeir fá að starfa óhindrað
á götum úti í Peking og víðar
í Kína. Ein ástæðan fyrir því
er sú, að myndir þeirra eru
notaðar af leynilögreglunni og
hernum til að hafa uppi á þeim,
sem andvígir eru stjórninni.
Grimmdarstjórnin í Kína
verður óhjákvæmilega til þess
að vekja viðbjóð. Áhrifa hans
á stefnu stjórnvalda gætir
meira í lýðræðislöndum en ein-
ræðisríkjum. Blóðbaðið og
fangelsanirnar í Kína geta
þannig hæglega orðið til þess
að treysta samskipti kín-
verskra og sovéskra ráða-
manna. Staða Hong Kong, þar
sem milljónir manna gera
kröfu til þess, að breskur ríkis-
borgararéttur þeirra verði virt-
ur í reynd og þeir fái að flytj-
ast til Bretlands ef í harðbakka
slær, kann þegar fram líða
stundir að minna á stöðu Vest-
ur-Berlínar. Þar snúist frjáls-
huga menn til vamar gegn ein-
ræði, sem umlykur þá á allar
hliðar.
Mannfyrirlitningu kín-
verskra valdhafa eru engin
takmörk sett. Þeir leggja allt
í sölurnar fyrir eigin völd.
Vegna náttúralögmála hljóta
bráðlega að myndast skörð í
hina öldnu kínversku forystu-
sveit. Hvort brotthvarf hennar
leiðir til þess að draumar náms-
mannanna sem kröfðust mann-
réttinda í skjóli Lýðræðisstytt-
unnar á Torgi hins himneska
friðar rætast skal ósagt látið.
Hitt er víst að óvinir unga
fólksins hafa reist sér ógleym-
anlega minnisvarða úr líkams-
leifum andófsmannanna og
lýsingar eins og þessi hjá Chai
Ling, sem var í forystu lýðræð-
issinnaðra stúdenta á torginu,
munu fylgja þeim hér eftir:
„Stúdentarnir voru dauðupp-
gefnir og lágu sofandi í tjöld-
unum, en skriðdrekamir óku
yfir þá og breyttu þeim í kjöt-
kássu. Seinna komumst við að
því að þessir fasistar höfðu
notað vélbyssur og skriðdreka
til þess að drepa fólkið og síðan
komu aðrir hermenn og stöfl-
uðu líkunum inn í strætis-
vagna. Sumir voru lifandi þeg-
ar þeir voru settir ásamt líkun-
um inn í vagnana, en þeir köfn-
uðu brátt.“
Breska flugmálasljórnin:
Flugbann gæti
staðið fleiri daga
Athuga hvort hreyflarnir þoli
illa að starfa á fullu afli
„FLUGBANNIÐ verður í gildi þar til leitt hefur verið í ljós hvað
olli biluninni i þotunum tveimur um helgina og uns fullnægjandi
ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að tryggja öryggi. Það gæti
því alveg eins staðið yfír í marga daga,“ sagði John Freeman, talsmað-
ur bresku fhigmaálstjórnarinnar (CAA), í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Freeman var spurður hvers
vegna CAA hefði kyrrsett Boeing
737-400 þotur breskra flugfélaga í
fyrradag. „Við ákváðum að kyrr-
setja þær annars vegar vegna
ábendingar frönsku verksmiðjunnar
sem framleiðir hreyfiana og hins
vegar vegna hreyfilbilana í tveimur
breskum þotum af gerðinni Boeing
737-400 um helgina. Rannsókn á
orsökum er ólokið og með engu
móti hægt að segja til um ástæður
bilunarinnar. Meðal annars verður
kannað hvort hreyflarnir séu hugs-
anlega ekki nógu sterkbyggðir til
að framleiða það afl sem þeim var
ætlað,“ sagði Freeman.
Freeman sagði að flugmenn
þotnanna tveggja, sem urðu fyrir
hreyfilbilun um helgina, hefðu orðið
varir við mikinn titring. Bilunin í
þeim lýsti sér nákvæmlega eins og
bilun í 737-400 þotu British Mid-
lands-flugfélagsins sem fórst við
East-Midlands flugvöllinn í janúar
síðastliðnum. í því tilviki slökktu
flugmenn þó á röngum hreyfli og
náðu ekki inn á flugbraut á þeim
bilaða. Önnur þotan, sem varð fyrir
bilun um helgina, var frá British
Midland-flugfélaginu og lenti í var-
úðarskyni á East Midlands-flugvell-
inum.
John Freeman var spurður að því
hvort bresk flugmálayfirvöld
myndu hugsanlega hafa eitthvað
við það að athuga ef Flugleiðir
flygju 737-þotum sínum til áfanga-
staða í Bretlandi meðan breskar
systurvélar þeirra væru í flug-
banni. „Við höfum engin yfirráð
yfir þotum annarra flugfélaga en
breskra og okkur koma ferðir fiug-
véla Flugleiða hingað til lands þvi
ekkert við,“ sagði Freeman.
Bandaríska flugmálastjórnin;
Breytinga verður
krafist á hreyflunum
„ÞAÐ er verið að ganga frá tilkynningu bandarísku flugmálastjórnar-
innar (FAA) til flugfélaga sem reka Boeing 737-400 þotur með
CFM56-3C hreyflum. Viðbrögð FAA ættu að liggja fyrir á morgun
[miðvikudag] en í aðalatriðum verður farið fram á breytingar á
hreyflunum og að þeim verði ekki beitt af fiillu afli,“ sagði talsmað-
ur bandarísku flugmálastjórnarinnar í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Þegar Morgunblaðið hafði síðast
samband við bandarísku flugmál-
stjórnina í gærkvöldi til þess að fá
viðbrögð hennar við kyrrsetningu
Boeing 737-400 í eigu breskra flug-
félaga var frágangi tilkynningar til
flugfélaga og flugmálayfirvalda
ólokið. Fulltrúi FAA sagði að niður-
staða ætti að liggja fyrir í dag en
hann treysti sér ekki til að segja
hvaða áhrif fyrirmælin kæmu til
með að hafa á rekstur viðkomandi
flugvéla. Um væri að ræða milli
27 og 30 737-400 þotur í eigu flug-
félaganna Korean Airlines, Asiana,
Air Europe, Air U.K., British Mid-
lands, Dan Air, Hapag Lloyd, Istan-
bul Áirline, NorthJet, Novair og
Flugleiða. Öll væru þessi flugfélög
í Evrópu og Asíu en 737-400 þotur
í eigu bandarískra flugfélaga væru
knúnar aflminni hreyfli en þotur
framangreindra flugfélaga og vörð-
uðu fyrirmæli FAA þær því ekki.
Engir gallar fimdust
í hreyflum Aldísar
FLUGLEIÐIR tóku báðar Boeing 737-400-þotur sínar, Aldísi og
Eydísi, úr notkun í fyrrinótt og hreyflar þeirra voru teknir til ná-
kvæmrar skoðunar. Akvörðun um þetta var tekin í framhaldi af því,
að breska flugmálastjómin lét i fyrradag kyrrselja allar slíkar flug-
vélar í eigu breskra flugfélaga, vegna gmns um galla í hverfilblöðum
hreyflanna. Lokið var við að yfirfara hreyfla Aldísar um hádegisbil
i gær og höfðu engir gallar komið fram í þeim.
í þremur tilvikum, sem vitað er
um, hafa komið fram gallar í hverf-
ilblöðum hreyfla 737-400-flugvéla,
en þeir erú smíðaðir í Bandaríkjun-
um og Frakklandi og settir saman
í Frakklandi af fyrirtækinu
SNECMA. Um síðustu helgi biluðu
hreyflar tveggja slíkra flugvéla og
kom í ljós að brotnað hafði af enda
Jón R. Steindórsson;
Aldrei orðið
varirvið neitt
óeðlilegt
JÓN R. Steindórsson, yfirflug-
stjóri hjá Flugleiðum, segir
að flugmenn félagsins, sem
flogið hafa Boeing 737-400
vélunum Aldísi og Eydísi, hafi
aldrei orðið varir við neinn
titring í hreyflunum eða ann-
að sem gæti bent til að eitt-
hvað væri í ólagi.
„Við erum kannski ekki búnir
að fljúga þessum vélum lengi en
við höfum aldrei fundið fyrir einu
eða neinu,“ sagði Jón. Hann
sagðist að öðru leyti lítið geta
tjáð sig um málið, en sagðist
fagna því að til víðtækra örygg-
isráðstafana og fyrirbyggjandi
aðgerða væri gripið þegar upp
kæmi galli í vélum af þessari
tegund. „Þessi vél hefur auðvit-
að verið í brennidepli allt frá
British Midland-slysinu," sagði
Jón.
hverfilblaða. í framhaldi af því
barst Flugleiðum skeyti frá fram-
leiðendum hreyflanna, þar sem ráð-
lagt var að beita ekki fullu afli
hreyflanna.
Að lokinni skoðunn á Aldísi á
hádegi í' gær var Eydís tekin inn í
skýli og var búist við að skoðun
hreyfla hennar lyki í gærkvöldi.
Hámarksþrýstiafl CFM-56-3C-
hreyflanna í þotum Flugleiða og
bresku flugfélaganna er 23.500
pund frá hvorum hreyfli. Framleið-
andi ráðlagði í fyrradag að aflið
yrði ekki meira en 22.000 pund og
ætti þá að vera tryggt að ekki
kæmu sprungur í hverfilblöðin. Að
sögn Guðmundar Salbergssonar
flugvirkja í viðhaldseftirliti Flug-
leiða hefur afl hreyfla Flugleiðavél-
anna verið takmarkað við þennan
þrýsting. Hvorug vélanna hefur
tilkynnmgu:
Eftir að fyrri fréttatilkynning
Flugmálastjórnar var send fjölmiðl-
,um í dag hefur eftirfarandi komið
í ljós við frekari rannsókn málsins.
Öll flugfélög sem nota Boeing
737-400 flugvélar hafa í gær og í
dag verið að skoða hreyfla flugvéla
sinna á sama hátt og Flugleiðir og
reyndar notað svo mikið afl til þessa
og segir Guðmundur að 22.000
pund séu vel yfir aflþörf þeirra við
þau verkefni sem vélarnar sinna
fyrir Flugleiðir.
Hverfilblöðin, sem skoðuð eru,
veita um 80% þess þrýstings sem
hreyfillinn skilar til að knýja flug-
vélina áfram. Blöðin eru 38 talsins
í hvorum hreyfli, gerð úr títaní-
umblöndu og kosta nálægt 450
þúsund krónum hvert. Hreyfill, eins
og Flugleiðir eiga til vara í við-
gerðaskýlinu á Keflavíkurflugvelli,
kostar um 165 milljónir króna.
Hverfilblöðin eru skoðuð með því
að úðað er á þau ýmsum efnum,
sem hafa þann eiginleika að þau
smjúga inn í grennstu sprungur og
þegar blöðin eru síðan sett undir
sérstakt ljós, endurvarpa efnin birt-
unni og kemur þá í ljós hvort
sprungumyndun er í málminum.
Sérþjálfaður flugvirki frá Flugleið-
um leitar að sprungunum, en alls
þarf fímm flugvirkja til að vinna
allt verkið. Fulltrúi hreyfilframleið-
andans fylgist með verkinu, en hann
er staðsettur hér á landi næstu tvö
árin ásamt fulltrúa Boeing-verk-
eins og fram kom hafa flugmála-
stjórn og Flugleiðir fylgst náið með
framvindu þeirra mála og verið í
nánu sambandi við flugmálastjórnir
erlendis og framleiðendur.
Ekkert hefur komið athugavert
í Ijós á Boeing 737-400 flugvélum
Flugleiða, en í ljós kom síðdegis við
Morgunblaðið/Bjarni
Hér sést á þann hluta hverfilblað-
anna, þar sem hætta var talin á
sprungumyndun. Á myndinni er
bent á staðinn, þar sem hverfil-
blöð brotnuðu í tveimur breskum
þotum um síðustu helgi.
skoðun hjá British Midland flugfé-
laginu i Bretlandi sprunga í hreyf-
ildiski og er unnið að frekari rann-
sókn af breskum flugmálayfirvöld-
um, flugfélaginu og framleiðendum.
Með hliðsjón af því að gæta
fyllsta öryggis hefur því verið
ákveðið að bíða enn um sinn með
að taka aftur í notkun Boeing
737-400 flugvélar Flugleiða, þótt
ekkert hafi fundist athugavert við
þær, þar til nánari upplýsingar
liggja fyrir.
Fréttatilkynning Flugleiða:
Aætlunar-
ferðir endur-
skipulagðar
FLUGLEIÐIR sendu í gærkvöldi
frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu um stöðvun flugs með Boeing
737-400 þotum félagsins:
Ákveðið hefur verið að bíða um
sinn með að taka í notkun Boeing
737-400 flugvélar Flugleiða. Ekkert
fannst athugavert við skoðun fýrri
vélar félagsins á Keflavíkurflugvelli
í dag, en í ljós kom síðdegis við skoð-
un á einni 737-400 flugvél British
Midland-flugfélagsins að sprunga
fannst í hreyfildiski. Unnið er að
frekari rannsókn af flugmálayfir-
völdum í Bretlandi, framleiðanda
vélarinnar og flugfélaginu. Þótt ekk-
ert hafi fundist athugavert við skoð-
un Flugleiðavéla í dag var því ákveð-
ið að bíða með að taka vélamar á ný
í notkun.
Flugleiðir tóku báðar Boeing
737-400 flugvélar sínar úr notkun í
nótt og ákváðu að hefja þegar í stað
skoðun, sem framleiðendur vélana
og flugmálayfirvöld ytra lögðu til að
yrði gerð áður en þær lykju næstu
fimmtán ferðum. Ekki var talin
ástæða til að bíða með þá skoðun.
Eins og að framan segir kom ekkert
óvenjulegt í ljós. Misjafnt er hvemig
haldið hefur verið á þessum málum
hjá erlendum flugfélögum í dag. í
Bretlandi voru allar 737-400 vélar
stöðvaðar í gærkvöldi, en í Þýska-
landi voru þær í flugi í dag og áttu
að koma inn til skoðunar í kvöld.
Nú er verið að vinna að endur-
skipulagningu áætlunarferða félags-
ins með það fyrir augum að röskun
verði sem minnst. Ekki er gert ráð
fyrir að verulegar breytingar verði á
fluginu á morgun. Þó mun flugi til
London í fyrramálið seinka til klukk-
an 11.30, en vélin átti að fara klukk-
an 8.05. Einnig verður seinkun á
sólarlandaflugi til Palma og gert ráð
fyrir brottför klukkan 19.00.
Flugleiðir leggja ofurkapp á að
tryggja öryggi í fluginu. Því verður
fylgt út í æsar tilmælum flugmála-
stjórna hér og í framleiðslulöndum
flugvéla félagsins um skoðanir og
úrbætur.
smiðjanna.
Fréttatilkynning Flugmálastj órnar;
Náið fylgst með fimnvmdu mála
UPP ÚR hádegi í gær sendi Flugmálastjórn frá sér fréttatilkynningu
um að loftferðaeftirlitið hefði heimilað áframhaldandi flug Flugleiða
með Boeing 737-400 flugvélum. Þremur stundum síðar hafði stofnun-
in breytt þeirri ákvörðun og sendi hún þá frá sér eftirfarandi frétta-
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir KRISTÓFER MÁ KRISTINSSON
Evrópuhöllin í Strassborg. Þar eru höfuðstöðvar Evrópuráðsins en einnig fundarstaður þings Evr-
ópubandalagsins, Evrópuþingsins. Þessi staðreynd hefur orðið fólki endalaust tilefni til að rugla
þessum tveimur ólíku stofnunum saman.
Kosningar til Evrópuþingsins:
240 milljón kjósend-
ur í tólf þjóðríkjum
Ibúar evrópubandalagsins kjósa 518 fúlltrúa á þing bandalags-
ins í Strassborg. Kosið er í fímm aðildarríkjum á fimmtudag en
hinum sjö á sunnudag. Engin úrslit verða birt fyrr en kjörstöðum
hefúr verið lokað á sunnudag. Þetta eru þriðju beinu kosningarn-
ar til þingsins en áður sátu á þinginu fúlltrúar valdir af þjóð-
þingum aðildarríkjanna. Á kjörskrá eru 240 milljónir kjósenda
sem eiga kost á að velja á milli rúmlega 5.000 frambjóðenda af
tæplegum 100 framborðslistum. Flestir listar eru tvöfaldir, þ.e.
annars vegar er boðið fram í þingsæti og hins vegar eru boðnir
fram varamannalistar. Þingmenn eru kosnir beinni kosningu til
fimm ára i senn og umboð þeirra er hliðstætt því sem gerist með
þingmenn á þjóðþingum, þ.e. þeir eru engu bundnir nema eigin
sannfeeringu.
Frakkland 81 688.321
Þýskaland 81 756.976
A
Ireglugerð um kosningamar er
kveðið á um fjölda þingmanna
frá hverju ríki og skyldur þeirra.
Samkvæmt reglunum er þing-
mönnum óheimilt að gegna emb-
ættum innan EB samhliða þing-
mennsku og að sama skapi er
þeim óheimil seta í efnahags- og
félagsmálanefnd bandalagsins.
Aðildarríkjunum er heimilt að
setja ítarlegri reglur en þetta svo
sem að banna þingmönnum á
Evrópuþinginu setu á þjóðþing-
um.
í flestum aðildarrílq'anna er
kosningin hlutfallskosning, en á
Bretlandi er viðhaft sama fýrir-
komulag og í þingkosningum,
þarlendis. Þingmenn á Evrópu-
þinginu hafa ekki samræmd
launakjör heldur er samkomulag
um að þeir njóti sömu kjar og
þingmenn þjóðþinga heimalands-
ins. Launamunur á þinginu er því
umtalsverður eða allt að áttfaldur
á milli þingmanna frá Portúgal,
annars vegar og Vestur-Þýska-
lands hins vegar. Þingmenn á
Evrópuþinginu njóta þjóðhelgi á
sama hátt og þingmenn á þjóð-
þingum.
Þingsætin 518 skiptast í hlut-
falli við fólksfjölda á milli aðild-
arríkja bandalagsins, að svo miklu
leyti sem það er fært. Fæstir íbú-
ar eru á bak við þingmenn frá
Lúxemborg, 62.000 íbúar á bak
við hvern þingmann, en flestir á
bak við þingmenn frá Vestur-
Þýskalandi, 757.000. Skipting
þingsæta á milli aðildarríkjanna
er þessi:
Grikkland 24 416.667
Irland 15 235.934
Ítalía 81 708.630
Lúxemborg 6 62.000
Holland 25 588.600
Portúgal 24 427.917
Spánn 60 648.567
Bretland 81 703.914
Þátttaka í kosningum til Evr-
ópuþingsins er mjög misjöfn eftir
aðildarríkjum EB og endurspeglar
áhuga almennings á málefnum
bandalagsins. Ahúgaleysi §öl-
miðla um starfsemi þingsins hefur
alla tíð háð þingmönnum þegar
að kosningum kemur. Þeir eru
yfirleitt óþekktir eða hafa fallið í
gleymsku á þeim fimm árum sem
eru á milli kosninga. Af skiljanleg-
um ástæðum sker Belgía sig úr
hvað varðar kosningaþáttöku.
í kosningunum 1984 kusu
92,2% þeirra sem kosningarétt
höfðu í Belgíu, enda er þátttaka
í kosningum skylda samkvæmt
lögum að viðlagðri refsingu (fjár-
sekt), Minnst hefur kjörsóknin
verið Bretlandi, 32,6% árið 1984,
en 52,3% Dana kaus í kosningum
það árið. Meðalkjörsókn innan EB
var árið 1984 61% en Portúgalir
og Spánverjar kusu í fyrsta skipti
til þingsins árið 1987.
Evrópuþingið kemur saman í
húsnæði Evrópuráðsins í Strass-
borg sem hefur orðið fólki enda-
laust tilefni til að rugla þessum
stofnunum saman. Samkvæmt
samkomulagi sem ráðherranefnd
EB gerði hefur þingið aðsetur í
þremur borgum. Þingfundir eru
Strassborg, skrifstofur
þingsins eru í Lúxemborg og
skrifstofur þingmanna í Brussel.
Á þessu arí kostar rekstur
þingsins, laun þingmanna ekki
talin með, rúmlega 24 milljarða
íslenskra króna. A vegum þings-
ins starfa 3.405 manns. Lang-
stærsti útgjaldaliðurinn eru þýð-
ingar. Allt sem fram fer á þing-
fundum og nefndarfundum er
þýtt viðstöðulaust á níu tungu-
mál. Á þinginu skipta þingmenn
sér í þingflokka eftir stjómmála-
skoðunum en ekki þjóðerni. Þó
eru á því undantekningar, t.d.
þegar fjallað er um heimilisfang
þingsins hafa þingmenn frá
Frakklandi og Lúxemborg lagst
einhuga gegn öllum hugmyndum
um að flytja starfsemina til Bmss-
el.
Samkvæmt evrópsku einingar-
lögunum hefur þingið orðið um-
talsverð áhrif á tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar og ákvarð-
anir ráðherranefndanna. Á þing-
inu er gott samkomulag um það
að þingið sé eina stofnun EB sem
hafi lýðræðislegt umboð til
ákvarðana og mikill áhugi er á
því meðal þingmanna að afla
þinginu umboðs til lagasetningar.
Vert er að hafa í huga að stjórn-
skipan Evrópubandalagsins er
miðuð við sex aðildarríki og ýmis-
legt bendir til þess að fyrirkomu-
lagið henti tólf ríkjum illa og full-
yrða má að það gengur ekki upp
með sextán aðildarríkjum. Það
virðist þess vegna líklegt að vegur
Evrópuþingsins fari vaxandi í
framtíðinni.
Umræða um skort á lýðræði
innan EB hefur farið vaxandi
síðustu ár og bent er á þá þver-
sögn sem felst í því að ráðherra-
nefndirnar, sem eiga að bera lýð-
ræðislega ábyrgð, hafa mest graf-
ið undan lýðræðislegum aðferðum
við ákvarðanir með pukri og
leynd. Þegnar bandalagsins, þing
og embættismenn standa iðulega
frammi fyrir gerðum hlut. Fá-
mennur hópur ráðherra, ráðgjafa
þeirra með fulltingi framkvæmda-
stjórnar EB, gera út um mál á
næturlöngum lokuðum fundum.
Því er haldið fram að eina leiðin
út úr þessum ógöngum sé að efla
Evrópuþingið og fela því löggjaf-
arvald og bein áhrif á samsetn-
ingu framkvæmdastjórnarinnar.
Land þingsætiíbúar á bak við haldnir í
hvertþingsæti.
Belgía 24 411.500
Danmörk 16 320.563