Morgunblaðið - 14.06.1989, Side 26

Morgunblaðið - 14.06.1989, Side 26
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bræðumir, Helgi og Jón, á Vatnsenda í Ljósavatnshreppi hafa verið að bera á tún sín síðustu daga. Innbæingar ætla að stoíha hverfasamtök STEFNT er að því að stofiia íbúasamtök Innbæinga síðar í sumar eða í haust. Á fundi íbúa hverfísins, sem haldinn var í gömlu gróðrarstöð- inni I fyrrakvöld, voru kosnir þrír menn í undirbúningsnefiid, þeir Hallgrímur Indriðason, Halldór Jóhannsson og Sverrir Hermannsson. Eyjafiörður; Sláttur hefst um mánaðamót Búfé víða á gjöf REIKNA má með nokkuð rýrari heyfeng í Eyjafirði nú í sumar en að jafiiaði og segir Ólafur Vagnsson, ráðunautur hjá Bún- aðarsambandi EyjaQarðar, að ástæða sé til að óttast allverulegt kal í túnum í utanverðum fírðin- um, vestan megin. Hann segir óvenju litlar fyrningar til I hérað- inu nú, en fyrirsjánalegt að bæði mjólkurkýr og sauðfé verði á gjöf enn um sinn, þó komið sé firam í miðjan júní. Að jafnaði hefur sláttur hafíst á fyrstu bæjunum í Eyjafirði á tíma- bilinu 10.-20. júní, en Ólafur segir að sláttur hefjist að líkindum ekki fyrr en í kringum mánaðamót nú. Hann sagði gróður hafa tekið stakkaskiptum i góða veðrinu und- anfarna daga, en einkum hafi næt- urfrostin haldið aftur af sprettu. Ofurlítill hiti hefur verið síðustu nætur og sagði Ólafur það skipta miklu varðandi sprettu. Á Árskógströnd, í Svarfaðar- og Skíðadal eru enn myndarlegir skafl- ar á túnum, en öskugrátt það sem nýlega er komið undan snjó. Ólafur segist reikna með rýrari uppskeru víða í fírðinum vegna kals, einkum út með firði að vestanverðu, en ekki sé mikið um að stórar spildur séu dauðkalnar. Erfitt sé að segja nákvæmlega fyrir um hversu mikið kalið verður, þar sem tún er víða enn undir snjó, en ástæða sé til að óttast allverulegar kalskemmdir á ákveðnum túnum. Hallgrímur sagði í samtaii við Morgunblaðið að boðað hefði verið til fundarins með garðyrkjustjóra bæjarins, m.a. til að fá upplýsingar um framkvæmdir við Leirutjöm, en geysimiklu magni af mold hefur verið keyrt í tjömina og hefur hún grynnkað mjög mikið. „Við ræddum vítt og breitt um ástandið í Innbænum. Þetta er sér- stakt hverfi, safnhverfi og hér koma þúsundir ferðamanna á hveiju sumri og því þykir okkur miður að það skuli vera draslaralegasta hverfi bæjarins," sagði Hallgrímur. Hallgrímur sagði að fólki þætti ekki nægilega vel staðið að ýmsum framkvæmdum á vegum bæjarfé- lagsins. Hann nefndi gagnstéttir, sem dpnar hefðu verið í mörg ár, en hafist var handa við hellulagn- ingu síðasta sumar og hefði þar ekki verið sérlega vel að verki stað- ið. Þá sagði Hallgrímur bílastæða- mál í ólestri, en engin sérstök bíla- stæði eru fyrir hendi fyrir minja- safnið og Nonnahús, þar sem oft er fjöldi gesta. Umferðina um Aðal- stræti sagði hann einnig vera mjög hraða og hefði komið fram á fund- inu hvort hraðahindrun gæti dregið úr glannaakstri í gegnum hverfíð. Einnig nefndi Hallgrímur að þeg- ar skipuiag fyrir hverfið var lagt fram á sínum tíma hefði verið rætt um að hafa náið samráð við íbúa hverfisins, en efndir engar orðið. „Við höfum margt við fram- kvæmdir bæjaryfírvalda að athuga, en íbúarnir eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að lagfæra það sem betur má fara í samvinnu við bæjaryfírvöld,“ sagði Hallgrímur. Tónleikar í Ak- ureyrarkirkju PÁLL Jóhannesson tenórsöngvari og Dorota Manczyk halda tónleik- ar í Akureyrarkirkju í kvöld, fímmtudagskvöldið 15. júní, og heíjast þeir kl. 21. Efnisskráin er fíölbreytt, en flutt verða söngverk fyrir píanó og orgel. Flutt verða lög eftir Sigfús Einars- son, Sigvalda Kaldalóns, Handel, Stradella, Rossini, Puccini og fleiri. Páll Jóhannesson hefur síðustu þijú ár kennt söng við Tónlistarskól- ann á Akureyri og Dorota Manczyk er einnig kennari við skólann. Til greina kemur að halda samskonar tónleika víðar í sumar. Þj óðmálakönnun Félagsvísindastofiiunar; Fylgi stjórnarflokka stendur í stað en stuðningur við stjórnina minnkar Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar frá könnun í maí Tafla 1 Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú? Fjöldi Allir Sjáifstæðisflokkurinn fékk mest fylgi í könnun Félagsvísindastofh- unar á fylgi stjórnmálaflokkanna, sem unnin var fyrir Morgunblaðið. Fékk flokkurinn 39,7% fylgi þeirra, sem tóku afstöðu, en það er 2,5% minna en flokkurinn fékk í síðustu könnun stofiiunarinnar í maí. Framsóknarflokkur fékk 20,3% fylgji og bætti aðeins við sig frá síðustu könnun og Kvennalist- inn fékk 15,2% og bætti við sig tæpum 3%. Tveir ríkisstjórnar- flokkamir, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, bæta samtals við sig 0,9% frá siðustu könnun, en Alþýðubandalag tapar 0,1%. Fylgi ríkisstjómarinnar hefiir þó minnkað vemlega frá síðustu könnun. Þá studdu hana 31,7%, en nú er stuðningurinn 23,7% Um framkvæmd og heimtur íjúní 1989 Félagsvísindastofnun gerði þjóð- málakönnun dagana 3. til 6. júní 1989. Leitað var til 1.000 manna á aldrinum 15 til 80 ára á öllu landinu. Upplýsinga var aflað um ýmis at- riði er tengjast þjóðfélagsmálum. Viðtöl voru tekin í sima. Alls feng- ust svör frá 699 manns af þeim 1.000 sem komu í úrtakið, sem var slemb- iúrtak úr þjóðskrá, og er það 70%. Nettósvörun, þegar frá upphaflegu úrtaki hafa verið dregnir þeir sem eru nýlega látnir, veikir, erlendir ríkisborgarar og fólk, sem dvelur erlendis eða er að heiman, er 73%. Úrtakið er stórt og gefur því mikla möguleika til greiningar á niðurstöð- um. Fullnægjandi samræmi er milli skiptingar úrtaksins og þjóðarinnar allrar eftir aldri, kyni og búsetu. Því má ætla að úrtakið endurspegli þjóð- ina, 15—80 ára, allvel. Alþingiskosningar Þijár spurningar voru lagðar fyrir svarendur á aldrinum 18—80 ára um hvað þeir myndu kjósa, ef alþingis- kosningar yrðu haldnar á morgun. Fyrst voru menn spurðir: Ef alþingis- Alþýðuflokkur 51 7,7 Framsóknarflokkur 92 13,9 Sjálfstæðisflokkur 178 26,9 Alþýðubandalag 39 5,9 Kvennalisti 69 10,4 Flokkur mannsins 5 0,8 Samt. jafhr. og félagsh. 4 0,6 Þjóðarflokkur 5 0,8 Borgaraflokkur 8 1,2 Frjálsl. hægrimenn 2 0,3 Græningjar - - Myndi ekki kjósa 80 12,1 Skila auðu 50 7,6 Neita að svara 38 5,7 Veit ekki 40 6,1 kosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú myndir kjósa? Þeir, sem sögðu „veit ekki“, við þessari spumingu voru spurðir áfram: En hvaða flokk eða lista heldurðu að líklegast sé að þú myndir kjósa? Segðu menn enn „veit ekki“ voru þeir spurðir: En hvort heldurðu að sé líklegara að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvem annan flokk eða lista? 18,2% svarendanna sögðu „veit ekki“ við fyrstu tveimur spurningun- um, en þegar svörum við þriðju spumingu er bætt við fer hlutfall óráðinna niður í 6,1%. Tafla 1 sýnir niðurstöðurnar, sem fengust úr þessum þremur spurning- um samanlögðum, og er þeim sem svara þriðja lið spumingarinnar þannig, að þeir muni líklega kjósa einhvem flokk annan en Sjálfstæðis- flokkinn, skipt á milli þeirra flokka í sömu innbyrðis hlutföllum og feng- ust við fyrri tveimur liðum spuming- arinnar. Til samanburðar eru líka í Kjósa Maí Nóv.Kosning nú 1989 1988 1987 % % % 11,3 10,9 10,5 15,2 20,3 19,8 23,3 18,9 39,3 41,8 29,6 27,2 8,6 9,7 10,6 13,4 15,2 12,6 21,3 10,1 1,1 0,8 0,7 1,6 0,9 0,3 0,1 1,2 1,1 1,9 0,7 1,3 1,8 0,5 3,0 10,9 0,4 1,6 - - - 0,1 - - 100% töflunni niðurstöður úr þjóðmála- könnunum Félagsvísindastofnunar, sem gerðar vom í nóvember 1988 og byijun maí 1989, og úrslit þing- kosninganna 1987. Afstaðan til ríkissljórnarinnar Um afstöðuna til ríkisstjórnarinn- ar var spurt með þessum hætti: „Hvort ertu frekar stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar eða andstæðing- ur?“ Niðurstöðurnar em í töflu 2. Sé einungis litið á þá sem taka af- stöðu með eða á móti stjórninni era 69% andstæðingar ríkisstjórnarinn- ar, en 31% stuðningsmenn. í töflum 2a og 2c er þeim 12 einstaklingum, sem neituðu að svara spurningunni, sleppt. Afstaðan til EB Spurt var: „Telur þú æskilegt eða óæskilegt að ísland sæki um aðild að Evrópubandalaginu?“ Niðurstöð- urnar eru í töflu 3. Ef þeim 9 ein- saklingum sem neituðu að svara Samtals 661 100% Tafla 2 Hvort ertu frekar stuðningsmaður ríkisstjómarinnar eða andstæðingur? Fjöldi Hlutfall Kutfall júní 1989 maí 1989 Stuðningsmaður 156 23,6 31,7 Hvomgt, óviss 142 21,5 22,2 Andstæðingur 351 53,1 44,2 Neitar 12 1,8 1,9 Alls 661 100% 100% - Tafla 2a Afstaða til ríkisstjómarinnar. Skipt eftir stuðningi við flokka. A B D G V Aðrir Stuðningsmaður 49 73 6 73 23 15 Hvomgt, óviss 13 21 6 20 13 33 Andstæðingur 38 6 88 7 64 52 Alls 100% 100% 100% 100% 100% 100% Fjöldi 39 70 162 30 52 296 Tafla 2c. Afstaða til ríkisstjómarinnar. Skipt eftir aldri. 18-24 25-39 40-49 50-59 60-75 Stuðningsmaður 16 21 29 28 33 Hvomgt, óviss 29 18 23 21 22 Andstæðingur 54 61 48 51 45 Alls 99% 100% 100% 100% 100% Fjöldi 119 236 112 96 86 Tafla 3 Telur þú æskilegt eða óæskilegt að ísland sæki um aðild að Evrópubandalaginu? Fjöldi Hlutfall Hlutfall júní1989 maí 1989 Mjög æskilegt 51 7,7 8,8 Frekar æskilegt 168 25,4 25,6 Óviss 275 41,6 -34,7 Frekar óæskilegt 96 14,5 16,3 Mjög óæskilegt 62 9,4 12,4 Neita að svara 9 1,4 2,1 Alls 661 100% 100% spurningunni er sleppt kemur í ljós að 33,6% telja æskilegt að íslending- ar sæki um aðild, 24,2% telja það óæskilegt, en 42,2% eru óvissir í af- stöðu sinni. Sé einungis litið á þá, sem afstöðu taka, telja 58% æskilegt að ísland sæki um aðild, en 42% telja það óæskilegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.