Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 1989
33
Helgi Bergvinsson
skipstjóri—Kveðjuorð
Fæddur 26. ágrúst 1918
Dáinn 16. maí 1989
Þann 16. maí sl. andaðist í
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum
frændi okkar og vinur, Helgi Berg-
vinsson skipstjóri. Helgi hafði átt
við veikindi að stríða nokkur undan-
farin ár svo það kom okkur kannski
ekki mjög á óvart þegar hann lést.
Þó er það nú svo, að alltaf setur
mann hljóðan þegar dauðinn bankar
á dyr sérstaklega þegar maður fær
andlátsfregn góðs vinar.
Helgi fæddist að Grund á Sval-
barðsströnd 26. ágúst 1918. For-
eldrar hans voru Bergvin Jóhanns-
son kennari og Sumarrós Magnús-
dóttir. Þau hjón eignuðust 9 börn
en nú eru aðeins þijú þeirra á lífi.
Helgi fór ungur til sjós og þar
átti hann eftir að eyða mestum
hluta starfsævinnar. Þegar hann
var 23ja ára gamall fór hann á stýri-
mannanámskeið austur á Nes-
kaupsstað og lauk þaðan skipstjórn-
arréttindum. Hann var síðan skip-
stjóri á ýmsum bátum frá Vest-
mannaeyjum næstu 25 árin. Hann
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Unni Leu Sigurðardóttur frá Vest-
mannaeyjum árið 1941 og eignuð-
ust þau 5 börn.
Það er óhætt að fullyrða að Helgi
Bergvinsson var góður skipstjóri.
Það var ekki einasta að hann væri
mikill aflamaður heldur var hann
líka mikill maður. Það var gott að
vera með honum á sjó enda hafði
hann sama mannskapinn ár eftir ár.
Vissulega koma ýmsar skemmti-
legar minningar upp í hugann, þeg-
ar liðin ár eru rifjuð upp. Þeir eru
áreiðanlega margir sem muna þeg-
ar Helgi fór upp á lögreglustöð á
Siglufirði og náði í hluta af skips-
höfninni, sem þar hafði lent vegna
einhverra óeirða. Hann stóð alltaf
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reylgavik og á skrif-
stofu blaðsins í Hafharstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfllegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. ______
með sínum mönnum og var þá ekki
alltaf að velta fyrir sér hvort ein-
hveijar reglur væru brotnar.
Það er oft svo með aflakónga
að þeir fara sjaldnast troðnar slóðir
við fiskveiðar. Sumir kunna ef til
vill að segja, að þess vegna séu
þeir einmitt aflakóngar. Eftir að
Helgi fékk Stíganda var hann ávallt
með efstu bátum á vetrarvertíðum
í Vestmannaeyjum. Árin 1960 og
1963 varð hann aflakóngur Eyj-
anna á vetrarvertíð. Raunar var það
svo, að nokkuð var sama hvert veið-
arfærið var alltaf fiskaði Helgi á
Stíganda vel. Fyrsti róður Helga á
Stíganda nýjum var út á Fjallasjó.
Þar fékk hann rúmlega 40 tonn
eftir nóttina og ýmsir höfðu á orði,
að það væru áreiðanlega ekki marg-
ir sem hefðu fengið betri útdrátt á
nýju skipi.
Þó ekki sé meiningin að rifja upp
einstaka atburði frekar, þá er ekki
hægt að annað en nefna örlítið árið
1965. Þetta sumar er okkur einkar
minnisstætt vegna þess, að þá
ákvað Helgi að reyna fyrir sér á
alveg nýjum miðum og áður ókunn-
um. Þegar aðrir bátar fóru á þorsk-
eða ufsaveiðar ákvað skipstjórinn á
Stíganda að veiða kola. Hann hafði
heyrt að út af Alviðru væru góð
mið þar sem einungis væri að finna
sólkola eða „Lemmon Sól“. Þessi
kolategund hafði ekki verið mjög
eftirsótt hér á landi en Helgi hafði
heyrt að Danir borguðu vel fyrir
lemmann svo hann ákvað að ná í
svona 30 tonn og sigla með til Es-
bjerg. Þetta fannst mönnum hið
mesta ævintýri og ýmsir urðu til
að efast um uppátækið. Það tók
ekki nema fimm daga að fá þessi
30 tonn og til Danmerkur var siglt
með aflann og hann seldur fyrir
ágætis verð.
Þannig var Helgi Bergvinsson.
Hann var ekkert að tvínóna við hlut-
ina, því hann var maður fram-
kvæmdanna. Hann var einstakt
snyrtimenni og var mjög kröfuharð-
ur um góða umgengni, hvort heldur
það var til sjós eða lands. Það er
mörgum minnisstætt þegar hann í
lok úthalds lét mannskapinn klifra
efst upp í mastur með sápuvatn í
fötu og skrúbb.
Helgi var mikill gleðimaður og
hafði mikla ánægju af að lyfta glasi
í góðra vina hópi. Þá var oft mikið
sungið því hann hafði mjög gaman
að því að taka lagið og þá var ekk-
ert gefið eftir. Þær eru margar
minningarnar um Helga, sem vissu-
lega væri gaman að rifja upp nú
að leiðarlokum en þær verða að
bíða betri tíma.
Við kveðjum hér góðan vin, sem
við munum ávallt minnast með
þakklæti og hlýju.
Elsku Lea, við sendum þér og
þínum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og vonum að minning um
góðan dreng lifi í bijóstum okkar
allra.
Guðmundur og Bergvin.
VOLUR H.F.
Við óskum ykkur hjart-
anlega til hamingju
með nýju KOMATSU
hjólaskófluna, sem
kom til landsins 12.
júní síðastliðinn!
•§• KOMATSU
ÖRYGGI — ENDING —
ARÐSEMI.
i u
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLSI1.SÍMI 681299
Sólarferðum.
Allt að 5 brottfarir á viku og stórborgar-
stopp á útleið eða heimleið, í Amsterdam
eða London.
Saga hefur einkaumboð fyrir vinsæl-
ustu gististaðina á Costa del Sol.
LAUST Á NÆSTUNNI
FRÁ16. JÚNÍ: Principito Sol 2 íbúðir.
Sunset Beach Club Uppselt.
FRÁ 20. JÚNÍ: Principito Sol 4 íbúðir.
Sunset Beach Club 3 íbúðir.
FRÁ 23. JÚNÍ: Principito Sol 2 íbúðir.
Sunset Beach Club 2 íbúðir.
FERÐASKRIFSTŒAN
Suöurgötu 7
S.624040
mnr