Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 17 meðan mál hans er rannsakað þar til úr því er skorið hvort hann heldur starfi sínu. Hér verður úriausn að velta á því hvort efnisrök leiða til sömu niður- stöðu um aðferðina til að-víkja dóm- ara frá um stundarsakir annars veg- ar og frávikningu til fullnaðar hins vegar. Samkvæmt 2. gr. stjórnarskrár- innar um þrígreiningu ríkisvaldsins fara dómendur með dómsvaldið og þeir skulu samkvæmt 1. málslið 61. gr. stjórnarskrárinnar fara einungis eftir lögunum í embættisverkum sínum. Þeim ber að sýna fyllstu óhlutdrægni í dómum og þeir mega ekki láta undan neins konar þrýst- ingi þannig að hallað sé réttu máli. Akvæðum 61. gr. stjómarskrárinnar virðist einkum ætlað að girða fyrir að handhafar framkvæmdavaldsins geti beitt dómara þrýstingi með hót- un um frávikningu og tekjumissi eða með frávikningu komið í veg fyrir að dómari sem ekki er stjórnvöidum að skapi vinni tiltekin dómaraverk. Þessar efnisástæður sem bann 61. gr. stjórnarskrárinnar um frávikn- ingu án dóms byggjast á virðast eiga bæði við vikningu til fullnaðar og um stundarsakir. Samkvæmt þessum rökum verður að telja að ekki sé hægt að skerða þá vörn sem greinin veitir umboðs- starfalausum dómurum með setn- ingu almennra laga um aðra aðgerð við frávikningu um stundarsakir en við frávikningu að fullu. Því verður ekki talið, gegn ákvæðum 61. gr. stjórnarskrárinnar, að 3. mgr. 35. gr. laga nr. 85/1936 eða 7. gr. laga nr. 38/1954 hafi að geyma heimild framkvæmdavaldinu til handa til þess að víkja umboðsstarfalausum dómurum úr embætti um stundar- sakir. Sú nauðsyn sem kann að vera á því að umboðsstarfalausum dómara verði vikið úr embætti með svo skjót- virkum hætti sem vikning ráðherra getur verið þykir engan veginn geta leitt til þess að 61. gr. stjórnarskrár- innar verði skýrð svo að nauðsyn víki ákvæðum greinarinnar til hliðar. í því tilviki verður framkvæmdavald- ið að sætta sig við að bera kröfu um vikningu um stundarsakir undir dóm- stóla, enda þótt gildandi réttarfars- reglur kunni að hafa í för með sér að sú leið sé seinfarin, þar sem sérá- kvæði um skjóta meðferð slíkra mála er ekki að finna í lögum. Samkvæmt þessu verður talið að frávikning umboðsstarfaiauss dóm- ara um stundarsakir sé ekki heimil nema með dómi. Framangreind niðurstaða leiðir sjálfkrafa til þess að hér á ekki við 9. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, sem kveður á um það að starfsmaður njóti hálfra fastra launa er stöðu hans fylgir á meðan lausn um stund- arsakir stendur. Niðurstaða dómsins í gagnsök er því sú að gagnstefnandi hafi átt rétt á fullum launum og ber því að taka gagnkröfu hans til greina, en fjárhæð hennar er óumdeild. Rétt þykir að hvor aðili beri sinn kostnað af rekstri málsins í báðum sökum. Dóm þennan kváðu upp Friðgeir Björnsson, yfirborgardómari, Eggert Óskarsson, borgardómari og Steingrímur Gautur Kristjánsson, borgardómari. Dómsorð: Stefnda í aðalsök, Magnúsi Thor- oddsen, er vikið úr embætti dómara við Hæstarétt íslands. Stefndi í gagnsök, dómsmálaráð- herra f.h. ríkisvaldsins greiði stefn- anda í gagnsök, Magnúsi Thorodd- sen, kr. 388.477 með 21,6% ársvöxt- um af kr. 96.366 frá 1. janúar 1989 til 1. febrúar 1989, af kr. 193.335 frá þeim degi til 1. mars 1989, með 24% ársvöxtum af kr. 290.906 frá þeim degi til 1. apríl 1989, en með 33,6% ársvöxtum af kr. 388.477 frá þeim degi til 1. maí 1989 og með áframhaldandi dráttarvöxtum sam- kvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 frá þeim degi til greiðslu- dags. Áfallnir vextir leggist við höf- uðstól skuldar samkvæmt ákvæðum 12. gr. laga nr. 25/1987. Málskostnaður í báðum sökum fellur niður. Friðgeir _ Björnsson Eggert Oskarsson Steingrímur Gautur Kristjánsson * Halldór Asgrímsson dómsmálaráðherra: Gerð krafa staðfest í meginatriðum „SÚ krafa sem gerð var er í meginatriðum staðfest með þessum dómi, að öðru leyti en því að það er fallist á að greiða Magnúsi full laun fram að þeim tíma er dómur fellur,“ sagði Halldór Ás- grímsson dómsmálaráðherra þegar viðbragða hans við dómi í máli Magnúsar Thoroddsen var leitað. Ráðherra sagði að engin standa að skipun dómara í stað ákvörðun hefði verið tekin um hvort þeim þætti málsins sem féll ríkinu í óhag yrði áfrýjað. Hann sagði að beðið yrði álits Hæsta- réttar á hæfi dómara þar, fyrrum samstarfsmanna Magnúsar Thor- oddsen í málinu áður en ákveðið yrði með hvaða hætti ætti að þeirra. Bent hefur verið á að þar sem dómsmálaráðherra sé aðili að málinu fyrir hönd ríkisvaldsins hæfi ekki að hann skipi dómara í stað þeirra sem kunna að teljast vanhæfír vegna tengsla við Magn- ús. Aðspurður sagði Halldór Ás- grímsson að engar fyrirætlanir væru uppi, nú frekar en áður, um að stefna öðrum en Magnúsi Thoroddsen vegna áfengiskaupa á kostnaðarverði. „Það má segja að þessi dómur gefi tilefni til þess að slíkt verði alls ekki gert, miðað við forsendur dómsúrskurðar," sagði dómsmálaráðherrá. Um það hvort dómurinn gæfi tilefni til að endurskoða reglur um áfengiskaup á kostnaðarverði sagðist Halldór almennt telja að reglur þyrftu að vera skýrar og ótvíræðar. „Eftir að þetta mál kom upp voru gerðar breytingar á reglunum,“ sagði ráðherra. „Eftir þær breytingar tel ég að reglurnar séu skýrar, þótt alltaf megi deila um hvemig slíkar regl- ur skuli vera,“ sagði hann. „Hvort dómurinn gefur tilefni til að enn frekari breytingar verði gerðar skal ég ekkert fullyrða um á þessu stigi en ég tek mjög undir það að þær séu afdráttarlausar." Ráðherra sagði koma til greina að afnema heimildir til áfengis- kaupa á kostnaðarverði með öllu. „Hér er um að ræða tilfærslur. Það kemur út á eitt hvemig það er gert.“ Hann sagði að sambæri- legar reglur um kostnaðarverð væru viðhafðar í flestum ná- grannalöndum en sér þætti koma til álita að færa það á útsölu- verði. „En ég tel það ekki vera aðalmál heldur það að reglurnar séu skýrar og ótvíræðar," sagði Halldór Ásgrímsson dómsmála- ráðherra. Hleðslur sem gefa görðum, svo og umhverfi fyrirtækja og Hæðarmismunur leysist auðveldlega með Stoðveggjaeiningum. stofnana glæsilegt yfirbragð. Stoðveggjakerfið leysir margvísleg vandamál á auðveldan hátt. Horneiningar gefa mikla möguleika \'ið hinar ýmsu hleðslur. Stoove B.M. Vallá kynnir nýtt kerfi steinsteyptra ein- inga sem gefa garðinum þínum stílhreint og glæsilegt yfirbragð Með Stoðveggjaeiningum færð þú stílhreinan og fallegan garðvegg og leysir hæðarmismun auðveldlega. Einnig er hægt að útbúa stærri blómaker með Stoðveggjaeiningum svo og ýmsar aðrar skemmtilegar hleðslur. Stoðveggjaeiningarnar eru framleiddar úr járnbentri, veðrunarþolinni steinsteypu. Uppsetning er einföld og festingar fylgja með. akerfið Óteljandi möguleikar á útfærslum Stoðveggjakerfið býður upp á ótæmandi möguleika við lausn margvíslegra vandamála við skipulagningu garða og svæða í kringum einbýlishús, fjölbýlis- hús, fýrirtæki, stofnanir o.s.frv. Pantanasími er (91) 68 50 06. Hafðu samband við okkur.við munum með ánægju veita þér allar frekari upplýsingar. B.MVAHA" | Steinaverksmiðja Söluskrifstofa Breiðhöföa 3 Sími (91) 68 50 06 Aðalskrifstofa Korngörðum 1 104 Reykjavík Sími (91) 680 600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.