Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 30
30 ■ MORGUNBtAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR:27.' JÚNÍ 1989 Tölvur Sjóvá-Almennar hf. semja um tölvulagnir SJÓVÁ-ALMENNAR tryggingar hf. hafa gert samning við fyrir- tækið Tölvulagnir hf., þess hljóð- andi að síðarnefnda fyrirtækið hanni og setji upp IBM-töIvu- lagnakerfí í hið nýja húsnæði tryggingafélagsins að Kringl- unni 5. Kaplar af þeirri gerð sem notaðir verða í kerfíð hafa ekki verið notaðir áður hér á landi. Með kerfinu verður Sjóvá- Almennum kleift að tengjast öllum þeim staðarnetstengingum sem eru á markaðinum í dag, svo sem Lan- Token Ring, Novell NetWare, Et- hernet og fleirum, að því er segir í frétt frá Tölvulögnum hf. Kaplam- ir sem notaðir verða í netið eru af gerðinni Type-2, og eru þeir þeim hæfileikum búnir að hægt er að tengja síma og kallkerfi, sem og önnur kerfi sem þurfa litla flutn- ingsgetu, inn á kapal þar sem stað- arnetstenging og hefðbundnar tölvutengingar eru fyrir. Þá verður hægt að tengja ljósleiðara inn á kerfið. í frétt Tölvulagna segir ennfrem- ur, að helsti kostur kerfisins sé að hægt sé að nota eina gerð kapal- búnaðar fyrir mismunandi gerðir tenginga, sem gefi möguleika á ein- földun kapallagna. Allar IBM, Hew- lett Packard, Wang og Digital vélar geta tengst kerfinu, auk annarra tölvutegunda. SOLUMET — Á myndinni sést Hans Peter Hambuecker fram- kvæmdastjóri Evrópudeildar Omron veita Magnúsi Ágeirssyni viður- kenningu fyrir góðan söluárangur á árinu 1988. Omron heiðrar sölu- mann Skrifstofuvéla EVRÓPUDEILD japanska fyrir- tækisins Omron heiðraði nýverið Magnús Ásgeirsson sölumann Skrifstofuvéla, fyrir að hafa selt flest Omron tæki á síðastliðnu ári. Skrifstofiivélar seldu fleiri Omron tæki hér í fyrra en áður hafa verið seld í einu landi á einu ári rúmlega 1300 tæki. Markaðs- hlutdeild Omron hér á landi er einnig sú mesta sem fyrirtækið hefiir í Evrópu, eða yfir fímmtíu af hundraði. Hans Peter Hambuecker fram- kvæmdastjóri Evrópudeildar Omron kom sérstaklega hingað til lands til þess að veita Magnúsi Ásgeirssyni sölumanni Skrifstofuvéla viður- kenninguna. Þetta er í fimmta sinn sem Magnús fær viðurkenningu frá Omron fyrir góðan söluárangur. Sjálfstýrikerfíð sparar milljón á ári — segir Sigurður Svanbergsson hjá Vatnsveitu Akureyrar VATNSVEITA Akureyrar tók ekki alls fyrir löngu í notkun sjálfstýrikerfi fyrir vatnsöílun og dreifíngu, en vinna við kerfið hófst árið 1985. Kerfið gerir það að verkum að auðveldara er en áður að fylgjast með allri vatn- söflun og notkun á hvaða tíma sem er, auk þess sem kerfið ger- ir viðvart í bilunartilfellum. Að sögn Sigurðar Svanbergssonar vatnsveitustjóra á Akureyri mun kerfið spara veitunni um eina milljón króna í raforkukaupum og vinnu á ári. Sigurður sagði, að sú reynsla sem þegar er komin á kerfíð væri mjög góð, það yki öryggi veitunnar og stuðlaði að hagræðingu í rekstri hennar. Kerfíð byggist upp á iðnt- ölvum frá Siemens, auk kerfisráðs og samtengingarhugbúnaðar sem veitan keypti frá fyrirtækinu Tæknival í Reykjavík. Kerfið var hannað hjá Verkfræðistofu Sigurð- VATNSVEITA — Á myndinni sést sjálfstýrikerfið sem sett hefur verið upp hjá Vatnsveitu Akureyrar. ar Thoroddsen. Hugbúnaðurinn, sem er bandarískur og nefnist Fix, er staðlaður en hefur verið aðlagað- ur að þörfum veitunnar. TÖLVULAGNIR —- Hér sjást Siguijón Pétursson aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjóvá-Almenna hf. og Haraldur Leifsson frá Tölvu- lögnum við undirritun samningsins. VSI tengist gagna- grunn danska utan- ríkisráðuneytisins TÖLVUKERFI Vinnuveitendasambandsins var nýlega tengt við gag- nagrunn danska utanríkisráðuneytisins um innri markað Evrópu- bandalagins, UDIM (udenrigsministeriets database om det indre marked). Markmið VSI með þessari tengingu er fyrst og fremst að geta á örskammri stundu og án vandkvæða fengið upplýsingar um stöðu og þróun framkvæmdar við væntanlegan innri markað og geta svarað fyrirspurnum íslenskra fyrirtækja um það sem er að gerast í þeim málum, að sögn Kisljáns Jóhannssonar hjá VSÍ. I gagnagrunninum eru margvís- legar upplýsingar um hvemig fram- kvæmdum verður háttað við vætan- legum innri markaði Evrópu. Hann er byggður þannig upp að hægt er að fá upplýsingar um allar þær réttarrelgur, sem snerta ákveðinn málaflokk eða framleiðslu og eiga að hafa tekið gildi fyrir árslok 1992. Til dæmis er hægt að fá fram allar þær reglur sem snerta fisk-, mat- FYRIRTÆKIÐ Þróun hf. hefur samið við norska fyrirtækið In- formatikk A/S um innflutning og þjónustu á hugbúnaði firá fyrir- tækinu hér á landi. Hugbúnaður sá er Informatikk framleiðir er sniðinn að IBM A/S400 og IBM S/36 tölvukerfum, og mun Þróun væla- og vélaframleiðslu, skatta- mál, fjármagnsmál o.s.frv. Gangagrunnurinn inniheldur stutta lýsingu eftir ákveðnu skipu- lagi um hverja réttarreglu innri markaðarins fyrir sig. Má þar nefna upplýsingar um hvenær samþykkt- ar reglur taki gildi, markmið þeirra, hvar lagatextann er að finna og hvar hægt er að fá ítarlegri upplýs- ingar. bjóða kerfin í íslenskri útgáfu. Informatikk A/S er annað stærsta hugbúnaðarfyrirtæki á Norðurlöndum, og heldur uppi starfsemi í Noregi, þar sem höfuð- stöðvar þess eru, Danmörku, Svíðþjóð og Bretlandi. Ný bók um notkun tölva í rekstri FYRIRTÆKIÐ Rekstrarráðgjöf hefur gefið út bókina Tölvan og fyrirtækið, eftir Prófessor Enid Mumford, í íslenskri þýðingu Guðjóns Guðmundssonar lektors og rekstrarráðgjafa. Bókin heitir „Using Computers for Business Success" á frummálinu, og fjallar um hvernig nota megi tölvur og upplýsingatækni til betri árang- urs í rekstri fyrirtækja. í frétt frá Rekstrarráðgjöf kemur fram að Mumford er virtur fræði- maður og ráðgjafi margra fyrir- tækja beggja vegna Atlantshafsins. Bókinni er sérstaklega beint að stjórnendum lítilla fyrirtækja, eða stjórnendum deilda í stærri fyrir- tækjum. Bókin, sem er í vinnubók- arformi, leiðir lesandann í gegnum ákveðið vinnu- og hugsanaferli, og er ætlað að kalla fram niðurstöðu um hvernig best sé að haga rekstr- inum þannig að hann skili tilætluð- um árangri, og þá sérstaklega hvort tölvuvæðing einhveija þátta fyrir- tækisins sé heillavænlegur kostur. Fyrst í stað verður bókin eingöngu seld gegn pöntunum sem berast bréflega eða símleiðis til Rekstrar- ráðgjafar. Þýðir af sex tungu- ínálum FJÖLTUNGA hefiir sett á mark- aðinn vasatölvu frá bandaríska fyrirtækinu Polyglot/Dictom- atic. Tölvan hefur 6.800 orða minni á sex tungumálum. Hún er fyrst og fremst hönnuð til að aðstoða fólk á ferðalögum og við tungumálanám en er um leið orðabók að því er segir í tilkynn- ingu frá Fjöltungu. Morgunblaðið/RAX TUNGUMÁL — Hexa- glot tölvan getur þýtt orð eða setningar á milli sex tungumála. Tungumálin sem tölvan getur þýtt á milli eru enska, spænska, franska, ítalska, þýska og portú- galska. Þá er verið að vinna að forritun fyrir sænsku og dönsku og eru þær tölvur væntanlegar á mark- aðinn í haust. Tölvan hefur fengið nafnið Hexa- glot og auk þess að þýða getur hún unnið sem reiknivél og reiknað út verð í sex mismunandi gjaldmiðlum. Fjórir orðaleikir eru innbyggðir í tölvuna til að gera notandanum kleift að styrkja stafsetningarkunn- áttu sína. Áætlað smásöluverð tölv- unnar hér á landi er um 12.500 krónur. Nýfjölskylda sam- tengdra skrif- stofukerfa Grá IBM IBM kynnti fyrir nokkru fjölskyldu samtengdra skrifstofukerfa, sem hafa hlotið heitið Skrifstofiisýn (Office View). Kerfin hafa ýmsar samræmdar aðgerðir eins og ritvinnslu, skjalavörslu, tölvupóst, nafnaskrár, dagbækur, tímabókanir og ýmis önnur hjálparkerfi fyr- ir ákvarðanir, en í nýju kerfiinum er einnig að finna nokkrar breyt- ingar frá eldri skrifstofukerfum fyrirtækisins. Þennan hugbúnað er hægt að fá fyrir stór og smá IBM tölvukerfi. Nýju tölvukerfin eru byggð á SAA hugbúnaðarstaðlinum sem kynntur var fyrir tveimur árum, og vinna undir OS/2 stýrikerfinu. Kerfin virka á þann hátt, að notand- inn getur framkvæmt samtímis ýmis skrifstofuverk með því að benda á tákn og litlar myndir á skjánum með mús eða hnappa- borði. Kerfið gerir notandanum einnig kleift að opna glugga eða sýn inn í önnur og stærri tólvu- kerfi úr PC eða PS/2 tölvunni sinni, og tengjast þeim beint ef þau eru líka með hugbúnaðinn Skrifstofu- sýn. í frétt frá IBM á íslandi segir, að verið sé að þýða megnið af hug- búnaðinum í Skrifstofusýn, auk handbóka, á ísienska tungu. Þá segir að Skrifstofusýn verði fáanleg í áföngum frá og með september á þessu ári til september á næsta ári, hér á landi sem erlendis. Þróun flyturinn hug búnað Informatikk A/S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.