Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 51
51 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 Nytjalistarskólinn Kaupmannahöfii: Tvær íslenzkar systur ljúka námi Jónshús. HINIR virðulegu sýningarsalir Nikolaj-kirkju rétt við Strikið eru nú ramminn um sýningu út- skriftarnemenda Nytjalistarskól- ans, „Skolen for brugskunst“. Fjölbreyttir munir nemenda af 6 mismunandi brautum fylla gólf- flöt og veggi gamla kirkjuhúss- ins. Tvær íslenskar systur eru meðal nemenda, sem ljúka 4 ára námi, en þær eru frá Melaleiti í Borgar- firði. Áslaug Jónsdóttir stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands, áður en hún hóf hér nám á teikni- og grafíkbraut. Það er fjöl- mennasta deild skólans með 38 nemendur. Áslaug sýnir refskák, þ.e. taflborð með 13 lömbum og ref úr leir með ítarlegri lýsingu á þessu gamla spili. Þá er einnig myndröð hennar við gamla þulu til sýnis unnin með blandaðri tækni og fögru litaspili. Védís Jónsdóttir var ein af 18, sem komust inn á fatahönn- unarbraut, en umsækjendur fyrir 4 árum voru 300. Hún sýnir hér kjól- dragt og glæsilegan stuttjakka með skinni. En hinir nýútskrifuðu fata- hönnuðir munu halda tízkusýningu í byijun júní. Védís hefur senn störf hjá Alafossi á Akureyri og hyggur gott til heimkomunnar. Loks skal nefnd hér glerlista- konan Tora Stefania Urup, sem Eitt verka glerlistarkonunnar Toru Stefaniu Urup. útskrifast af gler- og keramik- braut. Hún er dóttir listamannanna Guðrúnar Sigurðardóttur og Jens Urup og sýnir listræna muni, vasa, glös, könnur og bakka. Eru háls- löngu, örmjóu vasamir hennar sér- lega eigulegir. Er enginn svikinn af að leggja leið sína í Nikolaj- kirkju þessa dagana og er sýningin opin fram í júní. - G.L. Ásg. Samband palestínskra kvennafélaga: Líf án frelsis er verra en dauðinn Védís Jónsdóttir var ein af 18 sem komust inn á fatahönnunar- braut. Eitt verka Áslaugar Jónsdóttur. Hússljórnarkennarafélag íslands: Allir grunnskóla- nemar fái kennslu í heimilisfræði AÐALFUNDUR Hússtjórnarkennarafélags Islands var haldinn í Verkmenntaskólanum á Akureyri 2. júní síðastliðinn. Auk venju- legra aðalfundarstarfa var rætt um stöðu heimilis- og hússtjómar- fræðslu í landinu og í ályktunum fúndarins var meðal annars skorað á menntamálaráðherra og Aíþingi að beita sér fyrir því, að allir grunnskólanemar fái heimilisfræðikennslu í 1. til 9. bekk, eins og gert sé ráð fyrir í viðmiðunarstundaskrá. Aðalfundur Hússtjórnarkennara- félagsins ályktaði enn fremur, að þar sem 9. bekkur væri skyldunám, væri eðlilegt að heimilisfræði, sem og aðrar list- og verkgreinar, væru í kjarnanámi, þar sem grunnskóla- lög kvæðu á um að bóknám og verknám skyldu metin að jöfnu. Fundurinn hvatti til þess, að komið yrði á kennslu í matreiðslu og næringarfræði, umhverfis- og neytendafræði í öllum framhalds- skólum landsins. Einnig yrði gefínn kostur á endurmenntunamámskeið- um fyrir matráðsfólk á dagvistum, heimavistum, dvalarheimilum og hvers konar mötuneytum. Skorað er á stjómvöld að móta heildar- stefnu í námsframboði hússtjómar- skóla og tryggja þeim flárhagsleg- an grundvöll, auk þess sem lögð var áhersla á, að þeim íjármunum, sem áður var veitt til hússtjómar- skóla, sem nú hafa verið lagðir nið- ur, verði varið til hússtjómarmennt- unar á framhaldsskólastigi. Lagt er til í ályktunum fundar- ins, að krafist verði undirbúnings- náms í hússtjórnargreinum á fram- haldsskólastigi fyrir kennaranám í heimilisfræði og að kennsla í nær- ingar- og neytendafræði verði hluti af almennu kennaranámi. Formaður Hússtjómarkennara- félags íslands er Bryndís Steinþórs- dóttir, varaformaður Benedikta G. Waage, ritari Stefanía Stefánsdótt- ir, gjaldkeri Birna Kjartansdóttir og deildarstjóri Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir. í varastjóm félags- ins eru Helga Karlsdóttir og Dóm- hildur Sigfúsdóttir. „Já, vertu nú með upp í Vatnaskóg... “ SAMBAND palestínskra kvennafélaga hefur sent frá sér fréttatil- kynningu, þar sem hernám Israelsmanna í Palestínu er fordæmt og aðstoðar óskað til að vinna gegn því. Ástandinu er lýst og Qöldi látinna, særðra og útlægra talinn upp og loks lýsa konurnar yfir hungurverkfalli til að vekja athygli á baráttu sinni. í fréttatilkynningunni segir með- al annars að 547 séu látnir af völd- um ísraela, 138 bæklaðir, 23.000 særðir,'793 hús eyðilögð, 30.000 sé haldið fóngnum og útlægir séu 48. Þar segir ennfremur: „Þess vegna áköllum við heiminn, héðan frá landi okkar Palestínu, að hjálpa okkur til að stöðva án tafar rang- læti og þjáningar sem við og böm okkar verðum að þola. Beita verður ísrael viðeigandi þrýstingi til að fá það til að hlíta alþjóðalögum og svara ákalli réttlætis og sanngimi. Almenningsálit í heiminum og al- þjóðleg samtök hafa beðið um rétt- látan frið í Austurlöndum nær, svo þjóð okkar og börn geti loks notið öiyggis ásamt hinum þjóðunum í sjálfstæðis. Líf án frelsis er verra en dauðinn... Við skoram á Sameinuðu þjóðim- ar að senda liðssveitir til að veija okkur gegn lífláti, tvístran og þján- ingum uns við fáum að endur- heimta rétt okkar: Réttinn til að snúa aftur til ættjarðarinnar vorr- ar, réttinn til að öðlast sjálfsákvörð- unarrétt og réttinn til að stofna sjálfstætt Palestínuríki okkar undir forysti Frelsissamtaka Palestínu - eina lögmæta fulltrúa okkar - svo að friður megi ríkja í landi ástar og friðar." Fréttatilkynningin er send til _ íjölda aðþjóðlegra samtaka af ýmsu tagi. Almennt mót í Vntnnskógi 30. júní-2. júlí Kristilegar samkomur alia dagana: Föstudagur: Kl. 22.00 Upphafssamkoma Laugardagur: Kl. 10.30 Biblíulestur* Kl. 17.00 Samkoma/Kristniboðs- þáttur* Kl. 20.30 Vitnisburðarsamkoma Kl. 23.45 Miðnætursamvera Sunnudagur: Kl. 10.00 Guðsþjónusta* Kl. 14.00 Kristniboðssamkoma* Kl. 17.00 Lokasamkoma 'Bamasamkoma á sama tima. - Einstakt tækifæri til útivistar i fögru umhverfi. - Kaffitería, sælgætisverslun og matsala á staðnum. - Mótsgjald, kr. 450,- fyrir 12 ára og eldri er inn- heimt við komu á staðinn. Tjaldstæði innifalin. - Biblían og kristilegar bækur til sölu. - Barnasamkomur. Allir eru hjartanlega velkomnir ó mótið Kristniboóssambandió okkar heimshluta... Við lýsum því hér með yfir að initfaða þjóðar okkar heldur áfram þangað til við öðlumst frelsi og Skátamót að Úlf- ljótsvatni SKÁTASAMBAND Reykjavíkur er 20 ára um þessar mundir og er af því tilefiii efnt til skátamóts að Úlfljótsvatni dagana 29. júní til 2. júlí. í fréttatilkynningu vegna afmælismótsins kemur fram, að allir gamlir skátar, foreldrar skáta og aðrir sem kunni að hafa áhuga á því að fylgjast með, eða taka þátt í dagskrá mótsins, séu velkomnir. TIMKEN FAG KEILULEGUR KÚLU- OG RÚLLULEGUR Itu LEGUHÚS Eigum á lager allar gerðir af legum í bt'la, vinnuvélar, framleiðsluvélar og iðnaðartæki. Allt evrópsk og bandarísk gæðavara. Utvegum allar fáanlegar legur með hraði Það borgar sig að nota það besta. Þekking Reynsla Þjónusta < FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SiMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.