Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. J.ÚNÍ 1989 catffaM/b Bílslysið í Chappaquiddick 1969: t « ? « Hylmdu yfir Kennedy til að bjarga stjómmálaferli hans neLp -rHe c\\iLARe9 5mLe, Hjálpum börnunum að brosa! ALÞJÓÐLEG TEIKNIMYNDASAMKEPPNI Bresk hönnunarfyrirtæki í samvinnu við Svissneska Rauða Krossinn hefur beytt sér fyrir alþjóðlegri teikni- myndasamkeppni meðal 7-14 ára barna um allan heim. Tilgangurinn er að safna fé til hjálpar börnum í Súdan. Leitað er eftir góðum hugmyndum um fyndnar persónur eða dýr eins og í teiknimyndasögunum. Hér er því um að ræða teikningar sem fá fólk til að brosa. „Hjálpum börnunum að brosa“ (fáum börnin til að brosa) eru slagorð sem nefnd hafa verið fyrir keppnina. Bestu teikningunum verður safnað saman í bók og hún seld til ágóða fyrir hjálparstarfið í Súdan sem framkvæmt er af Alþjóða Rauða Krossinum. Teikningarnar eiga að vera í stærðinni A4, á hvítum pappír annað hvort í lit eða svart/hvítar. Texti má fylgja teikningunum en best er teikningar sjálfar tala sínu máli. Teikningunum skal skilað fyrir 1. ágúst 1989 til: Rauði Kross íslands, Alþjóða teiknimyndasamkeppnin Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Oddsson á skrifstofu RKÍ í síma 26722 frá kl. 8.00-16.00 virka daga. New York. Reuter. LESLIE Leland, formaður kviðdóms í Bandaríkjunum, sagðist á sunnudag hafa reynt að rannsaka þátt öldungadeildarþingmannsins Edwards Kennedys í bílslysi í Chappaquiddick, sem kostaði unga konu Iífið árið 1969, en hylmt hefði verið yfir með þingmanninum til að bjarga stjómmálaferli hans. Leland sagði í samtali við frétta- ritara Reuters að dómari hefði til- kynnt sér sem formanni kviðdóms- ins í Vineyard Haven þegar slysið átti sér stað að hann mætti ekki kalla lykilvitni fyrir dóminn. Ung kona í starfsliði Kennedys, Mary Jo Kopeche, lést er bifreið hans var ekið út af brú á eyjunni Chappaquiddick árið 1969 eftir að þau höfðu verið í samkvæmi. Ed- ward Kennedy, bróðir John F. Kennedys forseta, yfirgaf slysstað- inn á meðan konan var föst í bílnum. Leland sagði að skömmu eftir slysið hefðu lögreglustjóri og sak- sóknari staðarins sagt sér að slysið í Chappaquiddick hefði „aðeins ver- ið slys og að ekki væri þörf á því að rannsaka málið“. „Þeim var að- eins umhugað um að bjarga stjórn- málaferli Kennedys og vildu hylma yfir með honum,“ sagði Leland. Réttarrannsókn fór fram og engar ákærur voru birtar. „Það eru tvenns konar reglur sem gilda; annarsveg- ar fyrir auðuga stjórnmálamenn og hins vegar fyrir hinn almenna borg- ara,“ bætti Leland við. Leland sagðist hafa þagað um málið í tuttugu ár vegna ótta við að sér yrði refsað. „Saksóknarinn varaði mig við því að tala um mál- ið og þegar menn eru undir slíkum þrýstingi og vilja vemda fjölskyldu sína og fyrirtæki sitt missa þeir kjarkinn," sagði hann. „Ég hef mikla samúð með Kop- eche-fjölskyldunni. Hún hefur mátt þola margt allan þennan tíma. Dótt- ir þeirra lést og menn kærðu sig kollótta um allt nema stjórnmála- feril Kennedys," bætti Leland við. Nýr sendiheira Víetnams á íslandi: Aukið frelsi forsenda efiiahagsumbóta NÝR sendiherra Víetnams á ís- landi, Nguyen Dunh Phuong, hef- ur verið hér á landi og afhenti forseta íslands, Vigdísi Finn- bogadóttur, trúnaðarbréf sitt á fimmtudag. Phuong hefur aðset- ur i Stokkhólmi. Er blaðamaður Morgunblaðsins ræddi stuttlega við nýja sendiherrann kom fram að miklar breytingar hafa verið gerðar á efnahagssteihunni í TUDOR FÆRAVINDU - RAFGEYMAR Tilboðsverð á hinum geysivinsælu TUDOR rafgeymum, Takmarkaðar birgðir. TUDOR rafgeymir með 9 líf. Umboðsmenn um land allt BÍLDSHÖFDA 12 s: 680010 Víetnam undanfarin ár. Um- fangsmiklu niðurgreiðslukerfi verður varpað fyrir róða. Stefnt er að því að hverfa frá miðstýrð- um búskap og láta markaðinn, framboð og eftirspum, ákveða verð á vöram og þjónustu; tala mætti um blandað hagkerfi sem markmið. Áður var lögð oftirá- hersla á ríkisrekstur og frum- kvæði einstaklinga heft með ýms- um hætti. Sljómvöld telja sig hafa sannreynt að raunveruleg- um efhahagsumbótum verði ekki hrint í framkvæmd án þess að auka frelsi og lýðræði og fólki leyfist nú að gagnrýna embættis- menn. Phuong sagði víetnömsku stjórn- ina bjartsýna á að efnahagsþróunin yrði hröð í landinu ef lausn fyndist á Kambódíudeilunni og Vesturveldin hættu þar með að einangra Víetnam á alþjóðavettvangi. Sendiherrann sagði erfitt að bera saman umbótastefnuna í landi sínu og umbætur Míkhaíls Gorbatsjovs í Sovétríkjunum; allar aðstæður væru svo gerólíkar. Aðspurður um andóf gegn stjómvöldum sagði hann að ekki væri um slíkt að ræða, hvorki einstaklinga né hópa. Spurt var hvort fjölflokkakerfi á borð við það sem ungverskir komm- únistar hyggjast leyfa á næsta ári gæti orðið raunhæfur möguleiki hjá Víetnömum í næstu framtíð. Phu- ong sagðist ekki vilja segja neitt um þróunina í Ungveijalandi þar sem hann vissi ekki nógu mikið um hana en taka yrði tillit til aðstæðna í hveiju landi fyrir sig. Spumingin um eins- eða fjölflokkakerfi væri ekki mikilvæg; ef fólk teldi stjórnina hafa bmgðist myndi það láta það í ljós. Sinna yrði réttlátum kröfum um frelsi og lýðræði þegar þær kæmu fram, annars gæti illa farið. Sendiherrann sagði Víetnama ekki hafa tekið afstöðu með eða móti Pekingstjóminni í deilum henn- ar við andófsmenn en harmaði að Morgunblaöið/Sverrir Nguyen Dinh Phuong, sendi- herra Víetnams. til blóðsúthellinga skyldi koma. Víetnamar væru að sjálfsögðu ekki hrifnir af því ofbeldi sem beitt hefði verið en valdabaráttan í Kína væri mál landsmanna sjálfra. Talsmaður víetnamska utanríkisráðuneytisins hefði lýst yfir þessari stefnu Víet- namstjómar. Bandarískar frétta- stofur hefðu mistúlkað yfirlýsing- una sem stuðning við Pekingstjóm- ina en sendiherrann tók fram að víetnamskir fjölmiðlar hefðu skýrt hlutlaust frá atburðunum og rakið kröfur kínversku stúdentanna um lýðræðisumbætur. Sendiherrann taldi ólíklegt að atburðimir í Kína myndu hafa bein áhrif á samskipti Víetnama og Kínveija. Phuong sendiherra sagðist von- góður um að friður kæmist á í Kambódíu en Víetnamar hafa heitið því að flytja síðustu hermenn sína frá landinu í september á þessu ári. Hann taldi nýlegar viðræður Norodoms Sihanouks og Huns Sens, sem er leiðtogi leppstjómar Víet- nama í Pnom Penh, lofa góðu. Mögulegt væri að Rauðu khmerarn- ir sættu sig við friðsamlega lausn ef Kínveijar hættu vopnastuðningi við þá. Auk þess hefðu Tælendingar nú lokað aðflutningsleiðum til khmeranna um land sitt og því fok- ið í flest skjól. Ekki mætti gleyma því að baráttuandi hersveita khme- ranna væri þverrandi; verulegur hluti liðsins væri unglingar úr flótta- mannabúðum sem þvingaðir hefðu verið til þjónustu. BOSCH GERIÐ VERÐSAMANBURÐ varist eftirlíkingar BRÆÐURNIR ORMSSONHF Lágmúla 9, sími: 38820

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.