Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 37 Skátar í geimferð Aftnælismót SSR við Úlfljótsvatn eftir Guðfínn Þ. Pálsson Að Úlfljðtsvatni í Grafningi hafa skátar rekið sumarbúðir í tæp fimmtíu ár. Þar hefur einnig verið miðstöð foringjaþjálfunar skáta og vinsæll útilegu- og móts- staður. Það er því engin tilviljun að skátafélögin í Reykjavík efna nú til afmælismóts að Úlfljóts- vatni. Um þessar mundir eru liðin tuttugu ár frá því er skátafélög voru stofnuð í einstökum hverfum borgarinnar og horfið frá því að þjóna skátastarfi frá einni mið- stöð. Þetta gerðist einmitt árið 1969 árið sem tunglferðir hófust. Skátafélögin nýju í Reykjavík spruttu auðvitað úr gömlum jarð- vegi og samstarfsvettvangur þeirra, Skátasamband Reykjavík- ur, hvílir á gömlum merg. Skáta- félögin hafa á þessum tuttugu „Skátahreyfingin hef- ur ýmsan hátt á að miðla skátum reynslu, ekki síst með því að tengja þjálfimina skemmtilegnm leikj- um og nokkurri keppni.“ árum þurft að hafa töluvert fyrir lífinu og hefur fátt jafnþroskandi áhrif á félagsmenn en að fást við verðug viðfangsefni og finna lausn á þeim. Skátastörf miða einkum að því að þjálfa skáta í félagsmálum og útilífi. Skátar læra á kerfisbund- inn hátt, eftir aldri og þroska, að leysa verkefni í samvinnu, ferðast á hagkvæman hátt og eiga góða sambúð við náttúru landsins. Á skátamóti gefast ijölmörg tæki- færi til að reyna á kunnáttuna sem skátar hafa aflað 'sér í félags- starfínu, ennfremur koma menn saman til að reyna sig hver og einn og skátaflokkarnir, kjarna- einingar skátahreyfingarinnar, fá við Ulfljótsvatn tækifæri til að keppa í skátaíþróttum, sem allar tengjast fyrst og fremst hæfni í að bjarga sér og skynja hættu jafnt í þéttbýli sem í óbyggðum. Auðvitað verður mest áhersla lögð á að skátarnir leysi úr verkefnum skyldum sumarferðum þeirra. Þá þarf að ráða fram úr gátum korta- lesturs og finna þarf áttir og sýna kunnáttu í ratvísi. Góð athyglis- gáfa og nærfærni í samskiptum við náttúruna gefur mikið af sér í skátaferðum og skátar hafa markmið með ferðum sínum. Leita markverðra kennileita á leið Frá hverfismóti Garðbúa sinni, kynna sér landið og skoða ijölbreytni náttúrunnar. Oft er gripið til minnisbókar og mynda- vélar og niðurstöður ræddar á skátafundum að hausti. Það hefur verið meginmarkmið skátahreyf- unina skemmtilegum leikjum og nokkurri keppni. Það verður því glaðvær hópur skáta sem sækir afmælismót Skátasambands Reykjavíkur við Úlfljótsvatn 29. júní til 2. júlí 1989. Höfundur er aðstoðar- félagsforingi í Skátafélaginu Sjöldungum. 00®? Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Helstu Shell- og Esso -stöðvar og helstu byggingavöruverslanir. Dreifing: Hringás hf. s. 77878,985-29797. BOIL'IN'BAG SnR-IK-SEASOKiUa PRODUCT OEuSA ' EASYTO MfCRaVAVE OUARANTtsD PESFECTIN 8 M1NU7ÍS BeefO ríental Be*i fijrarríi Ri.v *Uh VeýeLsbUí Bragðgóður hrísgrjónaréttur með nautakjötskrafti og ör- litlu hvítlauksbragði. Saman- við er bætt ferskum grænum baunum og gulrótum. Sérlega góðuppfylling. Fyrir 4 — suóutími 8 mín. Heildsölubirgðir: KARL K. KARLSSON\CO. Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32 ajungflak. UPP UM FJOLL OG Hvort sem þú ætlar í stutta gönguferð í Heiðmörk eða í úti- legu í Þórsmörk þá hefst ferðin hjá okkur í Skátabúðinni. Mikið úrval af útilegubúnaði fyrir reynt sem óreynt útiveru fólk. Faglegar leiðbeiningar. Aðeins þekkt vörumerki. Upp um fjöll og firnindi með-Skátabúðinni. -3KMAK FRAMMR SNORRABRAUT 60 SÍM112045 SKATABUÐIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.