Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 27. JÚNÍ1989 35 Astrún Guðmunds dóttir - Minning Fædd 6. desember 1906 Dáin 20. júní 1989 Hugurinn reikar til miðbiks fimmta áratugarins. Ég er í heim- sókn sem oftar með mömmu hjá móðurfólki mínu á Skólavörðustíg 35 T' Reykjavík. Við ungu frænd- systkinin sitjum á gólfinu og erum að leika okkur. Mamma og systur hennar þrjár rifja upp gámlar end- urminningar. Það er glatt á hjalla, og ég heyri oft sagt: ,já, manstu í gamla daga“. Þeir hljóta að hafa verið skemmtilegir þessir gömlu dagar, hugsa ég. Þarna bjuggu móðursystur mínar, Ástrún, Elín og Guðmunda ásamt Ingibjörgu ömmu, sem var ekkja. Leikfélagi minn var Guð- mundur, sonur Ástrúnar, sem var á svipuðu reki og ég. í dag, þriðjudag, kl. 15 fer fram frá Fossvogskirkju útför einnar af þessum þremur systrum, Ástrúnar Guðmundsdóttur (Ástu), en hún lést í Landspítalanum 20. júní sl. eftir erfið veikindi undanfarin ár. Orð eru lítils megnug, en mig langar til að minnast hennar fáein- um orðum með þakklæti í huga. Ásta fæddist í Reylqavík 6. des- ember 1906, fjórða barn þeirra hjóna Ingibjargar Bjamadóttur frá Sviðugörðum í Flóa og Guðmundar Guðmundssonar, „keyrslumanns“ í Reykjavík frá Stórholti á Rangár- völlum. Þau eignuðust 9 börn, en 7 þeirra komust upp, 5 systur og 2 bræður. Eftirlifandi eru Elín og Guðmunda (Didda). Árið 1938 giftist Ásta Elíasi Loftssyni, öndvegismanni, frá Neðra-Seli í Rangárvailasýslu. Þau eignuðust einn son, Guðmund Inga Sævar (f. 27. júlí 1939), lækni í Reykjavík, sem kvæntur er Ragn- heiði H. Briem, og eiga þau tvo syni, Atla Stein, 15 ára og Kára Snæ, 9 ára. Elías fórst á stríðsárun- um með togaranum Braga, 30. október 1940. Mannkostamaður var hrifinn á brott frá ungri konu og syni. Það var mikið áfall, en ást sína og sorg bar hún í hljóði. En öll él birta um síðir. Hin unga ekkja var afar glæsileg kona, mikil- hæf húsmóðir, og hinn vænsti kven- kostur. Árið 1947 breytast heimilishagir, en þá giftist Ásta eftirlifandi eigin- manni sínum, Sigurði Sigbjörnssyni frá Vík í Fáskrúðsfirði (fæddur 1900), einlægum og góðum dreng. Sannarlega voru það gæfuspor beggja. Sigurður var þá ekkjumað- ur, en átti uppkominn son, Þorstein B. Sigurðsson, flugumferðarstjóra í Reykjavík, sem kvæntur er Ing- unni Sigurðardóttur. Þau eiga eina dóttur, Sigrúnu, sem gift er í Reykjavík. Góð vinátta og hlýleikar eru milli sona Ástu og Sigurðar og fjölskyldna þeirra. Hjónaband Ástu og Sigurðar ein- kenndist af gagnkvæmri tillitssemi og virðingu. Hann bar hana á hönd- um sér allan þeirra hjúskap og best kom það fram í hennar erfiðu veik- indum. Ásta var hlédræg en ákveð- in og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Hún var sérlega vönduð til orðs og æðis, trygglynd og vinföst, en undir sló viðkvæmt kærleiksríkt hjarta. Árið 1951 fluttist öll fjölskyldan í Stangarholt 16. Fjölskylduböndin voru sterk og samkomulagið eins og best var á kosið milli þessara þriggja kynslóða. Ingibjörg amma andaðist árið 1961. Sigurður stund- aði á þessum árum sjómennsku og síðar verkamannavinnu í landi. Elín og Guðmunda störfuðu utan heimil- isins, en Ásta helgaði sig eingöngu störfum innan þess með sannkölluð- um glæsibrag. Hið fallega heimili þeirra bar ríkan vott smekkvísi og einstakri reglusemi. Það hefur verið lengi viðkomustaður ættingja og vina víðsvegar að. Mér hefur verið það mikils virði ekki síst eftir að ég missti móður mína að finna opin faðminn í bókstaflegri merkingu. Mikil gestrisni ríkti ætíð frá tíð ömmu. Oft á stórhátíðum og þegar tækifæri gafst, var sest við orgelið og tekið lagið. Þau systkinin voru öll mjög söngelsk og stundum var sungið margraddað. Það eru marg- ar gleðistundir sem koma fram í minningunni frá Stangarholtinu. Frá upphafí hefur einnig búið í Stangarholti 16 (niðri) sama fjöl- skyidan, hjónin Elínborg Jónsdóttir og Egill Þorsteinsson ásamt þremur sonum. Það myndaðist strax gott samband milli þessa ágæta fólks, sem aldrei hefur borið skugga á. Elínborg lifir nú þar ein eftir. í hinum löngu og erfiðu veikind- um Ástu var hún heima, nema allra síðast. Það var henni og fjölskyld- unni ómetanlegt hve sonur hennar annaðist hana vel allan þennan tíma, enda var samband þeirra allt- af mjög náið. Guðmundur ber for- eldrum sínum fagurt vitni. Sigurður ber enn þrátt fyrir háan aldur merki sægarpsins, stæltan líkama og kjark. Það hefur marg- oft gefið á bátinn í brimi og nú við boðahlein. En ég hef þá trú, að hann enn og nú kljúfi kólguna þungu, þegar hyllir til vonarstrand- ar. Æðri máttarvöld standa með einlægum og góðum dreng. Það er líka mikils virði að finna samkennd og blíðu bamanna og ástvina. Systrunum Ellu og Diddu votta ég einlæga samúð, þær hafa ávallt sýna í verki umhyggju og kærleika. Syni Astu, Guðmundi, stjúpsyni og fjölskyldum þeirra beggja flyt ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur, og bið þess að góðar vættir vaki yfir velferð þeirra. Við ástvinirnir þökkum langa og góða samfylgd og biðjum henni biessunar. Guðlaug Elísa Kristinsdóttir Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. AUGLYSINGAR FELAGSSTARF sns Sumarskóli - NUU Ungir sjálfstæðismenn takið eftir! Sumarskóli NUU (Æskulýðssam- taka norrænna íhaldsflokka) verður haldinn i Skálholti og í Reykjavík dagana 17.-23. júli nk. í skólanum gefst einstakt tækifæri til þess að kynnast norrænu samstarfi, fræðast um stjórnmál á Norðurlönd- um og eiga skemmtilegar stundir með norrænum skoðanabræörum. Enn eru örfá pláss laus. Allar upplýsingar um dagskrá, þátttökugjald o.þ.h. eru veittar á skrif- stofu SUS, Valhöll, Háaleitisbraut 1, sími 82900. Áhugamenn um norrænt samstarf eru hvattir til að sækja um. Samband ungra sjálfstæðismanna. ísfirðingar og nágrannar Eru kosningar nauðsyn? Býður Sjálfstæðisflokkurinn betri valkost? Þorsteinn Pálsson, alþingismaður, formað- ur Sjálfstæöisflokksins, er ræðumaður á almennum stjórnmálafundi á Hótel (safirði fimmtudaginn 29. júni nk. kl. 20.30. Umræöuefnið er: Eru kosningar nauðsyn? Hvaða valkost hefur Sjálfstæðisflokkurinn upp á að bjóða? Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélag ísafjarðar. Félag sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi heldur almennan fé- lagsfund i safnaðar- heimili Seljakirkju þriðjudaginn 27. júní kl. 20.30. Gestir fundarins verða Magnús L. Sveins- son, forseti borgar- stjórnar og Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi. Fundarefni: Málefni Skóga- og Selja- hverfis. Allir velkomnir. Stjórnin. Wélagslíf [Bíj Útivist Ferðist innaniands með Útivist. 1) Sumarleyfi f Þórsmörk. Brott- för miðvikudagsmorgna, föstu- dagskvöld og sunnudags- morgna. Fjöldi dvalardaga að eigin vali. Ódýrt sumarleyfi í hlý- legu umhverfi Básanna. Tilvalið fyrir fjölskyldur. Ennfremur dagsferðir í Þórsmörk. Mlð- vikudagsferð 28. júní. 2) 5.-11. júlf Hornstrandir- Hornavík. Til ísafjarðar á mið- vikudegi með rútu (ný áætlun m.a. með siglingu yfir Breiða- fjörð) eða flug á miðvikudags- kvöldi. Siglt i Hornavík á fimmtu- dag og dvaliö til mánudags. Fjöl- breyttar gönguferðir um þessa paradis á norðurhjara. 3) 6.-14. júlí í Hornstrandir: Hesteyri-Aðalvík-Hornvík. Góð bakpokaferö. Gengiö á fjörum til fimm dögum. 4) 5.-9. júlf Hoffellsdalur- Goðaborg. Gengiö í skála á Goðahnúkum á Vatnajökli. Hús og tjöld. 5) 12.-21. júlí Hornstrandir: Hornvfk-Reykjafjörður. Bak- pokaferð að hluta. 6) 14.-21. júlí Hornstrandir: Strandir-Reykjafjörður. Dvalið i góðu yfirlæti i Reykjafirði. Fjöl- breyttar gönguleiðir. Tjöld. 7) 15-22. júlf Lónsöræfi-Lóns- sveit. Tjaldað í 5 nætur við llla- kamb og 2 nætur að Stafafelli. Rúta eða flug til Hornafjarðar. 8) 22.-29. júlí Nýr hálendis- hringur: Lón, Hallormsstaður, Snæfell, Kverkfjöll, Hvannalind- ir, Herðubreiðarlindir, Mývatn, Sprengisandur. Gist í svefn- pokaplássi. 9.) Fjallaferð í Noregi 18.-27. ágúst. Upplýsingablað á skrif- stofunni. Frestur til að staðfesta Noregsferðina er til 15. júli. Frá- bær gönguferð um Jötunheima viö allra hæfi. Nokkur sæti laus. Uppl. og farm. á skrifst., Gróf- inni 1, simar 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 oq 19533. Ferðir miðvikudaginn 28. júnf: Kl. 08.00. Þórsmörk - dagsferð. Nú eru sumarleyfin hafin. Kynnið ykkur tilboð Ferðafélagsins um ódýra gistingu í Skagfjörðs- skála/Langadal. Kl. 20.00. Heiðmörk. Þetta veröur siðasta ókeypis kvöldferðin í Heiömörk á þessu sumri. Hlúð að gróðri i reit Ferðafélagsins. Leiðbeinandi: Sveinn Ólafsson. Farið frá Umferðarmiðstööinni, austanmegin. Ferðafélag íslands. [Kíj Útivist Miðvikudagur 28. júní kl. 20. Viðey - Vesturey Allir ættu að kynnast þessari útivistarparadis Reykvikinga. Góð leiðsögn. Létt ganga m.a. út í Vesturey sem sjaldan er skoðuð. Verð 400 kr., frítt f. börn með fullorönum. Brottför frá Sundahöfn (Viðeyjar- bryggju). Hekluganga é laugardag kl. 8. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. FERDAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SIMAR11798 og 19533. Miðvikudagur 28. júní: Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð - sumarleyflsdvöl. Það er skemmtileg tilbreyting að dvelja hjá Ferðafélaginu i Þórsmörk. Kl. 20.00 Heiðmörk. Siðasta kvöldferðin i Heiðmörk. Fararstjóri: Sveinn Ólafsson. Komið með í ókeypis ferð. Feröafélag íslands. Útivist Sfmar: 14606 og 23732 Helgarferðir 30. júnf-2. júlí 1) Þórsmörk - Goðaland. Skipulagðar gönguferðir við allra hæfi. Góð gisting i Útivistarskál- unum Básum. Nú er Mörkin komin i sannkallaðan sumar- skrúða. 2) Eiríksjökull - Surtshellir. Missið ekki af þessari síðustu jökulgöngu ársins. Tjaldað i Torfabæli. 3) Hellaskoðunarferð - Húsa- fell. Tjaldað í Húsafelli. Stærstu hraunhellar landsins, Surtshellir og Stefánshellir, skoðaöir. Þrjár spennandi helgarferðir. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. IBJJ Útivist Helgarferðir Ferðafélagsins: 30. júní - 2. júlf: Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála. Nú er rétti timinn til þess að njóta dvalar i Þórsmörk. Afsláttur ef verið er lengur en þrjár nætur. Kannið verð og tilhögun. 30. júní - 2. júlí: Dalir - gengin gömul þjóðleið frá Hvammi i Fagradal. Gist í svefnplássi á Laugum, Sælingsdal. 30. júní - 2. júlf: Öræfajökull. Gist i tjöldum við þjónustumið- stöðina í Skaftafelli. Brottför föstudag kl. 08.00. 14.-16. júli: Snæfellsnes - Elliðahamar - Berserkjahraun. Gengið frá Syðra Lágafelli, hjá Baulárvallavatni, um hlíöar Vatnafells, á Horn (406 m) og meðfram Selvallavatni að Ber- serkjahrauni. Létt gönguferð i forvitnilegu landslagi. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu FÍ, Öldugötu 3. Ferðafélag (slands. FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 8ÍMAR11791 og 19531 „Laugavegurinn“ Landmannalaugar-Þórsmörk. Gengið á fjórum dögum milli gönguhúsa Ferðafélagsins i Hrafntinnuskeri, við Álftavatn og á Emstrum. Ferðirnar hefjast í Landmannalaugum eða Þórs- mörk. 1) 5.-9. júli kl 08 Landmannalaugar-Þórsmörk. 2) 7.-12. júlí kl. 20 Landmannalaugar-Þórsmörk. 3) 12.-16. júli kl. 08 Landmannalaugar-Þórsmörk. 4) 13.-18. júli kl. 20 Landmannalaugar-Þórsmörk. 5) 14.-19. júli kl. 20 Landmannalaugar-Þórsmörk. 6) 19.-23. júlí kl. 08 Landmannalaugar-Þrosmörk. 7) 20.-25. júlí kl. 20 Landmannalaugar-Þórsmörk. 8) 21.-26. júlí kl. 20 Landmannalaugar-Þórsmörk. 9) 26.-30. júlí kl. 08 Landmannalaugar-Álftavatn. 10) 26.-30. júlí kl. 08 Þórsmörk-Álftavatn. 11) 26.-30. júli kl. 08 Lándmannalaugar-Þórsmörk. Framanskráðar ferðir eru skipu- lagðar af F.(. í júli frá Land- mannalaugum til Þórsmerkur. Pantið tímanlega í ferðirnar. Takmarkaður fjöldi í hverja ferð. Upplýsingar á skrifstofu F.í. Ferðafélag íslands. t*JÓNUSTA Hilmar Foss lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnarstræti 11, símar 14824 og 621464. National ofnaviðgerðir og þjónusta. National gaseldavélar með grilli fyrirliggjandi. RAFBORG SF„ Rauðarárstíg 1, s. 622130.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.