Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 19
19 markmið Háskólans að efla starf- emina, hins vegar markmið fjár- málaráðuneytisins að skera niður ríkisútgjöld og auka sparnað í rekstri. Vonandi tekst að leysa vandann árekstralítið. í nýrri þjóðmálakönnun Félags- vísindastofnunar Háskólans voru viðhorf almennings til Háskóia Is- lands könnuð svo og ímynd Há- skóla íslands í samanburði við nokkrar opinberar stofnanir. Um 90% fólks áaldrinum 18—75 ára teija Háskólann vera vandaða kennslustofnun og 78% eru ósam- mála því að Háskólinn sé fílabeins- turn eða lokuð stofnun sérfræðinga. Almennt telur fólk að Háskólinn gegni hlutverki sínu vel en að tengsl Háskólans við þjóðlífið séu of lítil og telja jafnframt ástæðu til að kynna almenningi starfsemina bet- ur en gert hefur verið. Verulegt átak hefur einmitt verið gert í jjví að kynna starfsemi Há- skóla Islands á síðustu árum, með opnu húsi árlega, með útgáfu Tíma- rits Háskólans, með Rannsókna- þjónustu og ekki síst með kynning- armyndum í sjónvarpi, bæði með kynningum á merkum háskóla- mönnum og með kynningu á starf- semi háskóladeilda. Á siðustu vik- um hafa sex slíkar myndir verið sýndar hjá Stöð 2 og vil ég þakka forsvarsmönnum Stöðvar 2 sérstak- lega fyrir góðan samstarfsvilja og stuðning í þessari viðleitni Háskól- ans. Viðbrögð almennings hafa ein- mitt verið mjög örvandi því fólk hefur almennt mikinn áhuga á slíkum málum og vill frekari upplýs- ingar eins og fram kom í þessari þjóðmálakönnun. Eru fleiri slíkar kynningarmyndir í undirbúningi enda liður í þeirri viðleitni að veita sem besta þjónustu. Ágætu kandidatar. Háskóli ís- lands fagnar með ykkur og fjöl- skyldum ykkar langþráðum og verðskulduðum áfanga er þið takið við prófskírteini úr hendi deildarfor- seta. Háskólinn hefur veitt ykkur góða menntun, góða undirstöðu til að byggja á en þið munuð halda menntun ykkar áfram í lífsins skóla. Við höfum leitast við að miðla ykk- ur þekkingu og þjálfun en fyrst og síðast hafið þið lært að vinna sjálf- stætt. Þið vitíð bæði hvar og hvern- ig þið getið stöðugt aflað nýrrar þekkingar eftir síbreytilegum þörf- um ykkar sjálfra og eftir framvindu fræðigreinarinnar. Kæri kandidat, þegar þú tekur við nýju starfi þá væntir vinnuveit- andi þinn faglegra vinnubragða og vinnusemi, heiðarleika og trú- mennsku. Þúátt að miðla af þekk- ingu þinni og eldmóði, en með hóg- værð og án drambs og yfirlætis. Aðalsmerki hins menntaða manns er einmitt víðsýni og umburðarlyndi auk þeirrar þekkingar sem hann Blomberq Frystiskápar 120-308 lítra. Einstaklega hagstætt verð. Góð greiðslukjör. ___________ffiá.____ Einar Farestveit&Co.hff. BORQARTÚMI28, SÍM116995. Laið 4 stoppar vlA dymar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUPAQUR 27. jýNÍ lj)89. hefur aflað sér með námi sínu. Fátt er hvimleiðara en hrokafulli sérfræðingurinn sem skortir í raun bæði víðsýni og umburðarlyndi. Þess verður vænst, kæri kandi- dat, að- þú beitir einnig kröftum þínum, þekkingu og færni í þágu samfélagsjns. Þú verður sjálfur að taka til hendi og vinna að því að móta það þjóðfélag sem þér er að skapi. Ef þú vilt raunverulegt lýð- ræði þar sem þú og nágrannar þínir getið haft áhrif á þróun mála þá verður þú að gera þér það ómak að vera með í leiknum og leggja þitt af mörkum. Ef þú vilt ekki fela fámennum hópi í raun öll völd og áhrif þá verður þú að vera virkur, láta rödd þína heyrast og taka þátt í þjóðmálabaráttunni, taka einmitt þátt í starfi stjórnmálaflokkanna. í skoðanakönnunum kemur æði oft fram að stór hluti kjósenda er óákveðinn, veit ekki hverjum hann getur treyst. Umhverfismálin ber nú oftar á góma en áður, því ekki er lengur um að ræða óspillta náttúru lands- ins. Viðleitni landgræðslumanna megnar ekki að stemma stigu við landeyðingunni, hafið umhverfis Iandið mengast í vaxandi mæli vegna okkar eigin hirðuleysis og vegna nágranna okkar á plánetunni Jörð, loftið hér í Reykjavík mengast meir ár frá ári og matvælin okkar, hvort heldur þau koma úr garðinum eða úr sláturhúsinu þarfnast einnig nákvæmara eftirlits. Þegar við ferðumst um megin- land Evrópu þá dáumst við að görð- um og gróðri inni í stórborgunum, hvort heldur í París, London, Múnc- hen eða annars staðar. Það voru framsýnir menn sem skipulögðu þessa garða og gáfu borgunum líf, gáfu íbúunum tækifæri til að njóta þessara garða um ókomnar aldir. Þegar þið akið um Suðurgötu þá getið þið fylgst með því hvernig Háskóli íslands er að breyta mal- biki og möl Melavallar í gróðursæl- an völl, þar sem tré og runnar munu jafnframt gleðja augað. Fyrir einum áratug voru uppi óskir og áætlanir um að byggja þéttar við Háskóla íslands, tillögur um að rífa upp Skeifuna og gjörbreyta þessu andliti Háskólans sem Skeifan og Aðalbyggingin mynda. Var hætt við þessi áform en það sem nú vant- ar er meiri gróður í Skeifuna en ekki steinsteypu. Verða tré og runn- ar og annar gróður settur þar niður á næstu árum því það er helsta vörnin gegn slíkri ásókn. Kæru kandidatar, ég vona að þið gefið þessum málum gaum. Dag hvern er verið að móta umhverfi ykkar og barna ykkar. Sýnið þess- um málum áhuga. Það varðar ykk- ur miklu hvernig umhverfi ykkar verður í framtíðinni. Það var mikið lán að Reykjavíkurborg hætti við að leggja hraðbraut um Elliðaárdal en þar eru nú skógi- og kjarrivaxn- ar eyrar og friðsæit og fagurt um- hverfi, sem ég hvet ykkur til að njóta. Skal þá engan undra að það skyli vera andstaða gegn því að leggja Fossvogsdal undir hraðbraut en þar er skjólsælt og tök að skapa friðland fyrir framtíðina við hjarta Reykj avíkurborgar. Ágæti kandidat, hugleiddu sjálf- ur hvernig lífi þú vilt lifa og í hvern- ig umhverfi. Þú verður sjálfur að leggja þig fram til að skapa þín lífskjör, þitt stjórnarfar, þitt um- hverfi. Þú ert ábyrgur fyrir börnum þínum og framtíð þeirra. Þú hefur í senn frlesi og skyldur til að vera virkur og baráttufús í mótun þess þjóðfélags og þess umhverfis sem þú vilt búa börnum þínum. í prentaðri dagskrá þessarar há- tíðar eru þessi tvö erindi: „Ég vil elska mitt land“_ og „Ég vil frelsi míns lands“, úr Íslandsvísum Guð- mundar Magnússonar sem við mun- um syngja með Háskólakórnum í lok þessarar hátíðar. Vona ég að þið íhugið og takið undir þessi orð skáldsins, að þið verndið og auðgið landið og tryggið jafnframt frelsi og farsæld þjóðar- innar. Þið sáuð hér áðan lýst kjöri heið- ursdoktors, þið sáuð hvernig Há- skóli íslands „lagði heiðursins krans að höfði þess manns“ sem hann vildi sýna þann mesta sóma sem hann getur sýnt nokkrum manni fyrir framlag hans til vísinda, fræða og framfara í þágu íslensku þjóðar- innar. Háskóli íslands hefur í dag heiðrað Jóhannes Nordal öðru sinni með heiðursdoktorsnafnbót en slíkt er fágætt. Komið er að kveðjustund. Há- skóli íslands árnar ykkur og fjöl- skyldum ykkar heilla og farsældar í framtíðinni og þakkar ykkur sam- starfið. Guð veri með ykkur. FKsadagar. Notaðu tækifærið! Allar flísar Fagurt umhverfi bætir mannlífið! HÚSA SMIÐJAIM SKÚTUVOGI 16 SÍMI 687700 á feikigóðu verði þessa viku. Efni, áhöld og góðar hugmyndir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.