Morgunblaðið - 27.06.1989, Síða 25

Morgunblaðið - 27.06.1989, Síða 25
MORGL'NBLADIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27i ITÚNÍ Í1989 25 Reuter Merki HM á Ítalíu Merki heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, sem haldin verður á Italíu næsta sumar, er risið af stalli í Rómarborg. Um er að ræða gríðarstora eftirlíkingu af knattspyrnumanni sem gerður er úr 24 rauðum, hvítum og grænum bitum og einu fótbolta- höfði. Efiit var til samkeppni um heiti merkisins og í lokakeppn- inni bar heitið „Ciao“ (Halló) sigurorð af „Amico“, (Vinur) með um 60.000 atkvæðum. „Ciao“ er eitt algengasta orðið í ítölsku og getur bæði merkt „halló" og „bless“. Flutningar aldar- innar í Frakklandi Trier. Frá Steingrírai Sigurgeirssyni fréttaritara Morgunblaðsins. EMBÆTTISMENN franska fjármálaráðuneytisins voru flestir hverjir ekkert alltof glaðir á brún um helgina. Eftir að hafa haft starfsaðstöðu sína um 118 ára skeið í einni af álmum Louvre-hallar- innar, við Rue de Rivoli í París, og þar með getað státað af „falleg- asta ráðuneyti veraldar", þurftu þeir að flytja sig um set, alls Qög- urra kílómetra vegalengd, í nýja byggingu sem reist hefiir verið fyrir ráðuneytið í hverfinu Bercy í austurhluta Parísar. Alls þurftu 6.000 starfsmenn að skipta um aðsetur og eru þetta þar með um- fangsmestu flutningar, sem átt hafa sér stað í Frakklandi á þess- ari öld. - Það hgfur lengi verið á döfinni, að flytja ráðuneytið úr Louvre- höll, og veita Louvre-safninu, þar sem meðal annars Mona Lisa da Vincis er til sýnis, alla höllina til umráða. Embættismenn fjármála- ráðuneytisins börðust hins vegar lengi gegn öllum slíkum hugmynd- um og það var ekki fyrr en Fran- cois Mitterrand tók við forsetaemb- ætti að tókst að fá þá til að sam- þykkja áformin. í stað konungs- hallarinnar gömlu hefur verið reist nýtískuleg risabygging fyrir ráðu- neytið að andvirði um 30 milljarða íslenskra króna þar sem meðal annars er að finna 1.000 skrifstof- ur, 27 kílómetra af göngum, íjóra veitingastaði, barnaheimili og þyrluflugvöll. Auk ráðherrabílsins mun fjármálaráðherrann, Pierre Beregovoy nú einnig hafa Signu- hraðbát til umráða. Þrátt fyrir allan glæsileikann og tæknina í nýju byggingunni eru embættismennirnir langt frá því að vera ánægðir. Kvarta þeir und- an „Stalín-arkitektúr“ og þröngum skrifstofum, enda öðru vanir í hin- um glæsilegu sölum Louvre. Bretland: Minnkandi fylgi Ihaldsflokksins Lundunura. Reuter. BRESKI íhaldsflokkurinn hefur misst talsvert fylgi, ef marka má skoðanakönnun sem birtist í dagblaðinu Observer á sunnudaginn. Einungis 34% þeirra sem spurðir voru sögðust styðja íhaldsflokkinn. Talið er að fylgistap íhaldsmanna megi rekja til deilna innan flokksins en afstaða Margrétar Thatcher, forsætisráðherra, gegn sameigin- legum gjaldmiðli Evrópubandalags- ins, hefur sætt mikilli gagntýni. Verkamannaflokkurinn fékk stuðning 48% aðspurðra þó ekki sé langt síðan að innan hans var deilt harkalega um efnahags- og varnar- mál. Skoðanakönnunina gerði Harris stofnunin síðasta miðvikudag, stuttu eftir að Verkamannaflokkur- inn vann stóran sigur á íhaldsmönn- um í kosningum til þings Evrópu- bandalagsins. Umrótið í sovésku Mið-Asíulýðveldunum: Æðsta ráðið vill að gripið verði í taumana Moskvu. Reuter. SOVÉSKA Æðsta ráðið, sem kom aftur saman í gær, hefiir hvatt stjórnvöld til að grípa strax í taumana í þremur sovétlýðveldanna þar sem ástandið einkennist af ofbeldi og átökum milli ólíkra þjóða. I þessum mánuði hafa á annað hundrað manns fallið í valinn í Kazakhstan, Úzbekístan og Tadzhíkístan og í Moldavíu og Hvíta Rússlandi kreQast margir aukinnar sjálfsljórnar. Ekki verður út- varpað eða sjónvarpað beint frá fiindum Æðsta ráðsins, aðeins skýrt frá þingstörfunum í samantekt á Pravda, málgagn kommúnista- flokksins, sagði á sunnudag, að átök hefðu verið í fimm bæjum í Kazakhstan um helgina. Hefði hóp- ur 150 manna vopnaður bareflum og gijóti ráðist á lögreglustöð í bænum Mangyshlak og í öðrum fjórum hefði verið um að ræða of- sóknir á hendur minnihlutahópum. 99 manns voru drepnir fyrr í mán- uðinum þegar Úzbekar réðust gegn Meskhetum, fólki af tyrkneskum ættum, og að minnsta kosti tveir féllu þegar ókyrrðin barst til ná- grannaríkisins Tadzhíkístan. Meðal fyrstu verka Æðsta ráðs- ins, sem er skipað 542 mönnum, verður að ræða nýjan ráðherralista, sem Níkolaj Ryzhkov forsætisráð- herra hefur lagt fram. Búist er við, að umræðurnar um hann verði heit- ar og taki nokkra daga en í síðustu viku var súmum ráðherraefnanna hafnað í þingnefndum. Um 40.000 manns söfnuðust um helgina saman í Kíshínev, höfuð- borg Moldavíu, til að „harma“ stofnun sovétlýðveldisins 20. júní árið 1940. Moldavía heyrði áður til Rúmeníu. Krafðist fólkið þess að fá að tala sína eigin tungu, rúm- enskuna; að latneska stafrófið yrði tekið upp í stað þess kýrílíska og síðast en ekki síst, að stofnað yrði nýtt lýðveldi Moldavíu og Norður- Búkovínu, sem rúmensk stjórnvöld gáfu Sovétstjórninni árið 1940. Nú um helgina var einnig stofn- fundur Alþýðufylkingarinnar í Hvíta Rússlandi og var hann hald- inn í Litháen vegna þess, að emb- ættismenn kommúnistaflokksins í Hvíta Rússlandi vildu ekki ljá neinn fundarsal þar í landi. 500 manns sátu stofnfundinn og voru aðalkröf- urnar þær, að Hvíta Rússland fengi aukna sjálfstjórn í efnahagsmálum, að mállýska íbúanna yrði jafn rétt- há stórrússneskunni og íbúarnir upplýstir að fullu um kjarnorku- slysið í Tsjernobyl og afleiðingar þess. EGILSSTAÐTR Páll Kr. Pálsson UPPBYGGING IÐNAÐAR f DREIFBÝLI Iðnlánasjóður gengst nú fyrir fundum um uppbyggingu iðnaðar í dreifbýli. Að þessu sinni: ■ 29. júní á EGILSSTÖÐUM Hótel Valaskjálf kl. 20.00. að kynna starfsemi Iðnlánasjóðs fyrir stjórn- endum fyrirtækja og fulltrúum atvinnulífs í dreifbýli, að vekja áhuga stjórnenda fyrirtækja á nýsköpun, sameiningu fyrirtækja og samstarfi þeirra. Lögð verður áhersla á þessa málaflokka: 1. Kynning á starfsemi Iðnlánasjóðs og þeirri fyrirgreiðslu sem. Iðnlánasjóður veitir fyrirtaekj- um. Bragi Hanr.esson, bankastjóri. 2. Fyrirlestur um markaðsathuganir og mat á markaðsþörf. Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri. 3. Fyrirlestur um vöruþróun. Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri. 4. Fyrirlestur um samstarf og samruna fyrirtækja. Pétur Fleimarsson, framkvæmdastjóri. 5. Fyrirlestur um arðsemismat á hugmyndum. Jafet S. Ólafsson, útibússtjóri. Lánafyrirgreiðslu, vöruþróun, markaðsmál, tækni, afkastagetu, söluaðferðir, dreifileiðir og samstarf við önnur fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að hver fyrirlestur taki 20-30 mínútur. Fundarstjóri verður Jón Magnússon, formaður stjórnar Iðnlánasjóðs. VIÐ HVETJUM ALLA ÞÁ SEM MÁLIÐ VARÐAR TIL AÐ KOMA. IÐN LÁNASJÓDUR ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 6804 00 APGúS SIA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.