Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 40

Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 Sr. Jakoh Jónsson - In memoriam Fæddur 20. janúar 1904 Dáinn 17. júní 1989 Allmargir dagar voru liðnir án þess að séra Jakob hringdi í mig, og var ég farinn að sakna þess að heyra ekki frá honum, er ég fékk andlátsfregnina og varð að orði: Nú hringir hann ekki oftar. Það var fastur liður í tilveru okkar beggja að hann hringdi öðru hvoru tii þess að segja mér frá nýjum hugmynd- um, eða lýsa þræðinum í nýju leik- riti sem honum hafði dottið í hug, eða ausa yfir mig einhverri hneyksl- un sinni, eins og um prédikun prest- anna sem honum fannst oft sam- safn af sundurleitu efni í margar ræður og saknaði hinnar klassísku þrískiptingar Jóns Helgasonar og Sigurðar Sívertsens, eða þá til að spytja einhvers úr fræðunum eða fá mig til að fletta upp einhverju, og ekki ósjaldan sagði hann mér frá frumlegum hugmyndum sínum, eins og þegar hann var að undirbúa grein um sköpun Evu úr rifi Adams (bæði í gamni og stökustu alvöru) og hafði fengið tilvísanir hjá tengdasyni sínum, dr. Jóni Hnefli, og fundið eitthvað sem mér hafði aldrei til hugar komið. Las hann mér greinina, sem átti að birtast í blaði Seljahlíðar, dvalarheimilisins þar sem þau frú Þóra bjuggu og nutu góðrar aðhlynningar hins frá- bæra starfsliðs sem séra Jakob var hugfanginn af. Aldrei sendi hann mér greinina, sem var þó meining- in, og hefúr hún kannski ekki enn komið út, en er vel þess virði að prentast með smælki þessa fijóa höfundar í safnriti stærri verka hans, ef einhvemtíma yrði út gefið. — Hugmyndir fékk séra Jakob svo margar að hann var eins og vell- andi hver sem kann að gjósa á hverri stundu. Er séra Jakob hafði lokið dokt- orsprófí sínu í Háskólanum, bauð frú Þóra upp á kafli. Séra Jakob fylgdi mér út að garðshliði í veislu- lok. Þar sagði hann, „Ja, lagsmað- ur, ég skal segja þér hvaða bók ég ætla að skrifa næst“, og svo kom hugmyndin að næstu bók, þótt vart væri þornuð prentsvertan á hinni fyrri. Við vorum í tíðum símasamskipt- um, því að séra Jakob fylgdi þeirri gömlu reglu reykvískra andans manna, sem nú er löngu af lögð, að hringja ef maður lét í sér heyra í útvarpi eða blöðum, þakkaði erind- ið eða greinina en notaði fyrst og fremst tækifærið til að ræða mál- efnið, gagnrýna og hrósa á víxl og spinna fjörlegt samtal, oft kryddað sögum af kellingum og köllum á Djúpavogi frá uppvaxtarárum hans, sumar glettnislegar, aðrar lær- dómsríkar. Og ekki lét ég undir höfuð leggjast að svara símleiðis í sömu mynt þegar tækifæri gafst. Séra Jakob var, eins og aðrir dauð- legir menn, ákaflega feginn þegar einhver lét svo lítið að renna þang- að augum sem hann var að fást við eitthvað og var því innilega þakklátur hve margir komu að sjá einþáttungana hans í Hallgríms- kirkju nú í vor (sem sýndu skáldið og fræðimanninn í einni hugfijórri persónu), og lét það óspart í ljós. Við vorum ákaflega ólíkrar gerð- ar og baksviðs, mín hetja var séra Bjami en hans Haraldur Níelsson. En séra Jakob staðnaði aldrei. Hann mat nýjungar lærifeðra sinna á sínum tíma en skildi þá eftir í fortíð sinni og hélt stöðugt áfram að hugsa og vinna, var í lifandi sam- bandi við umheiminn um leið og hann var uppruna sínum á Aust- fjörðum trúr. Hann var bindindis- samur heimsmaður og fór um allt, frakkur að koma sér áfram og hugðarefnum sínum, stundum af kappi fremur en forsjá, eins og í Lundi, en heimkominn með doktors- ritgerðina vængbrotna leitaði hann til okkar í deildinni og fékk þær ordrur, sem hann hlýddi samvisku- samlega, að leggja nýja ritgerð undir dóm nýrra manna annarra háskóla, sem hann gerði og varð doktor frá Háskóla íslands með sóma á ábyrgð háskólanna í Strass- borg og Edinborg, án nokkurs stuðnings innlendra vinatengsla. Gat því engin hrukka né blettur fallið á fræðimannsheiður hans. Fræg var tilhneiging hans að segja sögur til þess að koma mál- stað fram, jafnvel þótt timinn leyfði það ekki, og kom það sér eitt sinn vel þegar hann sótti stuðning prest- um í greipar ráðuneytisins. Við vor- um saman í stjórn Prestafélags Is- lands, hann sem formaður og ég sem „menig Soldat“, og var stefnt að því að halda hér norrænt presta- þing, en peninga vantaði. Var þá sér Jakob falið að ganga á fund ráðuneytisstjóra, sem þá var Gústav A. Jónasson, en neitaði að fara nema ég kæmi með. Fórum við sem leið liggur niður í Arnarhvol, en þegar við komum í kirkjumálaráðu- neytið var þar allt á flugi. Eitthvað óskaplegt var á seyði, og þeyttist ráðuneytisstjórinn um allt og mátti ekkert vera að því að tala við okk- ur. Séra Jakob sagði með stóískri ró að við myndum bíða, og sett- umst við þar. Eftir langa hríð bar ráðuneytisstjórann að á flugferðum sínum meðal starfsmannanna og sá okkur sitjandi á bekk. „Eruð þið þarna enn?“ spurði hann undrandi, „best þið komið inn.“ Við snöruðum okkur inn á einkaskrifstofuna, en sér Jakob settist makindalega í hægindastól í norðvesturhominu, sveiflaði nasavængjunum, eins og honum einum var lagið, eins og til að gefa til kynna að nú væri spaug í aðsigi, og sagði að þetta minnti sig á sögu um kall og kellingu á Austfjörðum, og svo koma sagan, sögð með viðeigandi tilbrigðum og ræskingum. Gústav var allur á iði, mátti ekki vera að þessu, ók sér öllum, og klukkan tifaði, og um leið og séra Jakob lauk sögunni, nærri því hreytti hann út úr sér, Hvað vantar ykkur mikið? Ja, svona hundrað þúsund, svaraði séra Jakob hóglega. „Gott, þið fáið það“, sagði Gústav og' vatt sér út tii annarra starfa, en við héldum heim á leið, ég himinlifandi yfír snilli vinar míns að koma málum fram. Eitt sinn skrifaði séra Jakob grein um Kýrosarrímur og fékk hana birta erlendis. Þegar svo ír- anskeisari hugðist halda upp á 2000 ára afmæli Kýrosar Persakonungs var m.a. boðið sérfræðingum allra landa í írönskum fræðum. Einn ís- lendingur hafði birt grein um íranskt efni og var þar með útnefnd- ur íranológ, séra Jakob Jósson, dr. theol. Og var honum prompte boðið í afmælið. Ég var á göngu heim til mín á Bárugötuna úr fyrirlestri kl. um tóif á hádegi, og sem ég beygði af Túngötu inn á Ægisgötuna sé ég séra Jakob vera að kveðja hóp syijenda fyrir utan líkhúsið, og vindur hann sér að mér og segir: Nú er íranskeisari búinn að bjóða mér til íran á Kýrosarafmælið. Ég samfagnaði innilega, því að ekkert gat komið mér á óvart um frumleg uppátæki séra Jakobs. Á næsta ári var konan mín á leið út á Keflavík- urflugvöll, því að ég kenndi þá við Edinborgarháskóla, og viti menn, með henni í rútunni eru séra Jakob og frú Þóra, á leið í Kýrosaraf- mælið í íran. Skyndilega geysist fram úr þeim bílalest svartra límosína, og þegar á völlinn kemur verður ljóst að þarna eru íslenskir ráðherrar að kveðja ráðherra frá svörtustu Afríku. Séra Jakob vindur sér að íslensku ráðherrunum og segir við þá, „Ég hélt þið væruð komnir til að kveðja mig, þegar ég sá þessa bílalest, ég er að fara til íran í boði íranskeisara." Þegar hann hvarf aftur til kvennanna seg- ir hann við nöfnu sína (Jakobínu konu mína nefndi hann ætíð svo): „Ég held þeir hafí talið mig ljúga þessu. Ég skal segja þér að maður- inn þinn var sá eini sem trúði mér lengi vel!“ Það var áhugi séra Jakobs á bókmenntum sem var kveikjan að doktorsritgerð hans og raunar áhrifavaldur um skilning hans á Nýja testamentinu. Þessi áhugi Minning: Ingjaldur Jónsson húsasmíðameistari Fæddur 15. nóvember 1894 Dáinn 24. júní 1989 Aðfaramótt 21. júní lést í Borg- arspítalanum í Reykjavík Ingjaldur Jónsson skipstjóri og húsasmíða- meistari á nítugasta og fímmta ald- ursári. Hann hélt til hinstu stundar á löngum ævivegi óskertum kostum persónuleika síns, tilfinningaríkur og beinskeyttur í viðhorfí til manna og málefna. Hann var eitt besta úrtak hins dæmigerða manns alda- mótakynslóðarinnar sem nú er óðum til síðasta manns að hníga til foldar. Ingjaldur fæddist í Melhúsum í Leiru 15. nóvember 1894. Voru for- eldrar hans Margrét Ingjaldsdóttir, húsfreyja þar, af hinum merka ætt- bálki Magnúsar lögréttumanns að Litlu-Tungu í Holtum, Guðmunds- sonar og Jón Bjamason útvegsbóndi og formaður sama stað af ætt Bjama sýslumanns frá Búlandi á Síðu, Eiríkssonar. Jón, faðir Ingjaldar, var 3 ára þegar hann kom með foreldrum sínum út í Garð frá Núpi undir Eyjafjöllum. Hann óx þar upp til harðra átaka við úfínn sjó og snauða landkosti. Hann giftist 26 ára 1892 hinni söngelsku, þá 20 ára gömlu, Margréti frá Hafurbjamarstöðum í Garði, Ingjaldsdóttur. Hún ól manni sínum 13 böm og stóð með reisn og sæmd við hlið manns síns í ein- dæma hjúskaparfarsæld. Ingjaldur hefur á fullorðinsárum minnst þess með undmn og aðdáun hve óhemju miklu faðir hans kom í verk á umbýlisárum sínum. Hann reisti frá granni af eigin rammleik og með mikilli lagni lítið snoturt hús. Ræktaði hann í kringum "það tún og hlóð umhverfis það mikinn gijótgarð. Allt þetta gerði hann samtímis sjósókn tl lífsbjargar á fyrstu 6 búskaparáram sínum, þeg- ar elstu bömin vora í frambemsku. En á gamlársdag við aldamót 1900 brann til kaldra kola hús bónd- ans í Melbæ í næstu nánd, sem svo leiddi til burtflutnings fjölskyldunn- ar er þar bjó. Þá var það að Jón Bjamason á kost á því að flytja búsetu sina þangað, sem honum var hagstæðara vegna nálægðar við sjó. Byggði hann nú á granni hins brunna húss af áræðni og með fram- sýni vandað timburhús sem taldist tvílyft. Flutti Jón með fjölskyldu sína i hið nýbyggða hús og þar með í Melbæ. Voru þá 5 börn þeirra hjóna fædd. í Melbæ fæddust þeim 8 börn til viðbótar og þar uxu þau elstu upp til sjálfbjargar undir farsælli sýóm hinna samhentu foreldra sem áttu miklu barnaláni að fagna. Þau fluttu svo með yngri bömum sínum á bú- og sjávaijörðina Stórhólma og bjuggu þar góðbúi til dánardæg- urs. Ingjaldur var annar í aldursröð systkina sinna. Sólmundur var elst- ur, kunnur aflaformaður allt frá tvítugsaldri og skipasmiður að auki. Ungur laðaðist Ingjaldur mjög að hinum dverghaga Helga í Hrúðu- nesi og lærði margt af honum er að smíðum laut. Hann varð þó ung- ur að leggja lið föður sínum við að draga björg úr sjó í stórheimilið að Melbæ. Hann naut vel barnaskóla- náms síns undir handleiðslu hins skapfasta Gunnlaugs Kristmunds- sonar, síðar sandgræðslustjóra. Þegar Ingjaidur er við fermingu ber svo til einn góðan veðurdag að flóabáturinn Ingólfur hefur stöðvað ferð sína á móts við Melbæ. Jón kallar á syni sína Sólmund og Ingj- ald til farar á heimilisbátnum út að mb. Ingólfí. Er þá kassa snotrum rennt niður í skut róðrarbátsins og tekinn með varúð upp úr honum við lendingu. Hann var síðan fluttur á vagni heim að bæ og ekki opnaður fyrr en á stofugólfi. Þegar það var gert og til undranar heimilisfólki öðra en bónda, var dregið út úr honum lítið orgel, einfalt að gerð en hljómfagurt. Að því búnu snýr Jón bóndi sér að Ingjaldi og segir:„Á þetta hljóðfæri átt þú að læra,“ og þó að Ingjaldur andmælti dugar það ekki því faðir hans segist þegar hafa falið Þorsteini kirkjuorganista að kenna honum á hljóðfærið. Varð- svo að vera og gekk Ingjaldur af einhug og kappi til orgelnámsins. Ekki er að orðlengja það að Ingjald- ur náði þeim árangri að vera fær um að spila lög sálmasöngbókar. Ingjaldur taldi síðar á ævi áð þetta framtak föður síns hefði verið til þess að láta draum rætast, því for- eldrar hans unnu söng og hljóð- færaslætti. Ekki leið þó á löngu að Ingjaldur gengi aftur á vald raunveraleikans í lífsbaráttunni. Síðar þegar hægðist um á lífsbraut endumýjaði hann fyrri kynni sín við hljómborðið. Á uppvaxtarárum Ingjaldar var það viðtekin hefð að menn sunnan af Nesjum héldu austur á fírði til landróðra á smábátum. Og Ingjald- ur fer á eigin vegum austur á Bakkafjörð 17 ára gamall. Hann ræðst þar á bát hjá ágætum for- manni sem nýtur vel hins harðdug- lega unga sjómanns af Suðurnesjum og fræðir hann um fiskimið og sjó- sókn út af Bakkafirði. Þetta varð til þess að næsta sumar fara þeir þrír saman sunnan úr Leiru austur á Bakkafjörð bræðumir Ingjaldur og Sólmundur og leikfélagi þeirra yngri þeim, Tryggvi Ófeigsson. Fjórði maðurinn forfallaðist svo þeir urðu að ráða sér mann í hans stað á leið sinni norður A ustfirði. Þeir höfðu tryggt sér bát og aðstöðu á Bakkafirði. Nú var það vegna þekk- ingar sinnar á miðum og róðrar- háttum þama að það féll í hlut Ingj- alds að taka að sér formennsku á bátnum. Enda fórst honum það vel úr hendi eins og öll verk er hann síðar tók að sér. Um Ingjald sagði Tiyggvi Ófeigsson og hafði vafa- laust í huga samvist þeirra þetta sumar: „Hann (Ingjaldur) var for- maður á árabáti á Austfjörðum 18 ára. Góður formaður og aflasæll. Eftirsóttur í félagsskap vegna frá- bærs dugnaðar og„glaðlyndis. Á meðan Ingjaldur var á léttasta skeiði vann hann tveggja manna verk. Hvort hann vann sjálfum sér eða öðram breytti þar engu um.“ Þetta vora góð meðmæli frá einum mesta athafnamanni íslands. Ingjaldi fannst gaman á efri áram sínum að riija upp sumarævintýri þeirra félaga og var það löng og vel flutt saga. Árið 1915 erlngjaldur, fyrif railli- göngu föður síns, ráðinn á Reykjavíkurtogara, þá um tvítugt. Reyndi hann þá miskunnarleysi þess að vera togarsjómaður fyrir vöku- lög, þegar skipstjórar létu menn standa allt að þijá sólarhringa án svefns. Ingjaldur á þó svo góðan skipstjóra að hann leggur ekki meira á menn sína en tveggja sólarhringa törn. Árið 1916 fer Ingjaldur á Stýri- mannaskóla íslands og lýkur þaðan físki- og farmannaprófi 1918. Um þetta segir Tryggvi Ófeigsson: „Ingjaldur var í fremstu röð í Stýri- mannaskólanum. Það var gaman að lesa með honum, þ.e.a.S. hafa stuðning af honum fyrir þann, sem skemmra var kominn ... Hann var boðinn til þess að segja öðrum til og gerði það rétt og vel, því hann var sjálfur ágætis námsmaður." Hann fer þó ekki að prófi loknu sem stýrimaður á togara eins og vænta mátti. En nú hefur hann kynnst unnustu sinni, Kristjönu Kristjánsdóttur, honum fjóram árum yngri f. 2. desember 1898. Þau gifta sig 5. nóvember 1919. Ingjaldur snýr nú baki við sjó um sinn, en gengur óskiptur og kapps- fullur til þess verks er kallaði á smíði þaks yfír sig og konu sína. Hann er í öðrum byggingaráfanga kominn í eigið húsnæði á Baldurs- götu 24. Hann snýr sér nú aftur að sjómennsku 1922 og tekur nú á leigu 50 tonna skip sem hann sljórn- ar og gerir út á eigin vegum. Hann er fengsæll, einkum á síldveiðum. Birtíng afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins I Hafiiarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. , í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.