Morgunblaðið - 27.06.1989, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 27.06.1989, Qupperneq 44
44 Shefe fiorgcous. and sIhbs nevcr bcen kjssed Necdksss to say. shes (wm another ptenei MyStepmotherlsAn + ..._______________________ „Efþú tekurhana ekki ofalvarlega ættirðu aðgeta skemmt þér dægilega á þessari fuðrulegu, hugmyndaríku ogoft sprenghlægilegugamanmynd..." ★ ★ ★ AI. Mbl. HVAÐ ER TIL RÁÐA ÞEGAR STTÚPA MANNS ER GEIMVERA? KIM BASINGER (Nadine, Blind Date) og DAN AYKROYD (Ghostbusters, Trading Places) í glænýrri, óviðjafnanlegri og sjúklega fyndinni dellurnynd, ásamt TON LOVITS, ALYSON HANNINGAN og TOS- EPH MAHER. Leikstj.: RICHARD BENJAMIN. Dr. Steve Mills þráir það heitast að uppgötva líf á öðrum plánetum en hann órar ekki fyrir afleiðingunum. EINSTAKAR BRELLUR, FRÁBÆR TÓNLIST, AFBURÐA LEIKUR. Sýndkl. 5,7,9og11. HARRY...HVAÐ? ★ ★★ SV.MBL. Frábær islensk kvikmynd með Sigurði Sigurjónssyni o.fl Sýnd kl. 5,9 og 11. Sýnd kl. 7. MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 GIFT MAFÍUNNI „...fersk og ærslafull gamanmynd full af bráðfyndnum uppákomum frá upphafi til enda. Leikhópurinn er skotheldur, tónlist Burne hress- andi að vanda, leikstjómin hug- myndarík og lauflétt." ★ ★★ SV.Mbl. MYND FYRIR ÞÁ SEM VILJA HRAÐA OG SKEMMTILEGA AT- BURÐARÁS. *** CHICAGO TRIBUNE. *** CHICAGO SUN TIMES. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. HVERER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? 5. sýn. fimmtudag kl. 20.30. í. sýn. föstudag kl. 20.30. 7. sýn. hugardag kl. 20.30. Ósóttar pantanir eru seldar sýningardag! Miðasala opin daglega (rá kl. 14.00-19.00 simi 16620. Munið Virginiukvöldverðinn á Hótel Borg. Borðapantanir í sima 11440. Morgunblaðið/Einar Falur Jóhann Ásmundsson dró ekki af sér. David O’Higgins, vaxinn inn í Mezzoforte. Seiður í Tunglinu AÐ sögn mætra manna lék hljómsveitin Mezzoforte fyrir tómum sal á sinum lyrstu tónleikum á íslenskri grund en eftir að tónlist þeirra vakti athygli erlendis segja sömu menn að landar vorir hafi loks séð að sér og tekið fyrirbærið í sátt. Á fimmtudagskvöld léku piltarnir í Tunglinu eftir þriggja ára hvíld frá íslenskum áhorfendum. Fjölmargir lögðu leið sína í Tunglið til að hlýða á þessa einu „atvinnumannabræðingshljóm- sveit“ Islands. Á efnisskránni voru lög sem hljóm- sveitin gaf út í vor og eru á plötunni Playing for Time. Einnig var „kýlt“ á eldri lagasmíðar, eins og Rockall og Sprett úr spori. Tónleikamir hófust á slaginu hál- fellefu á laginu Hitch hiker, sem er að finna á Playing for Time. Því næst kom Especially, gríðarlega fönkað og þétt lag, sem kveikti bók- staflega í salnum. í Tunglinu voru gamlir aðdáendur Mezzoforte, þar var td. einn áhuga- maður sem á allar plötur sveitarinn- ar. Svo var þarna yngra fólk ásamt nokkrum ferðamönnum frá meginl- andi Vestur-Evrópu, þar sem hljóm- sveitin nýtur mikilla vinsælda. Seiðurinn hófst í reykmekki og neóneldglæringum og þegar rofaði til stóðu á sviðinu Jóhann Ásmunds- son bassaleikari, Eyþór Gunnarsson hljómborðsleikari, sem var eins og æðstiprestur þar sem hann stóð við útblástur reykvélarinnar, Friðrik Karlsson gítarleikari, David O’Higg- ins saxafónleikari og bak við þá Gunnlaugur Briem. Eins og vænta mátti lék Mezzof- orte efni af nýju plötunni, Playing for Time, sem var hátt á annað ár í vinnslu. Piatan ber þess enda merki, vandaðri bræðingurervandfundinn. Kvöldið hófst, eins og fyrr segir á Hitch hiker, sem var reyndar annað af tveimur aukalögum sem hljóm- sveitin lék, og síðan kom óður Mez- zoforte til útþenslustefnu íslendinga, Rockall af Rising. Keyrsla, það er rétta orðið yfir það sem þarna fór fram. í tæpa tvo tíma var hvert lagið á fætur öðru keyrt í gegn, og var jafnvel ekki haft fyrir því að kynna lagasmíðarnar. Ekki var um neitt hlé að ræða heldur léku Friðrik og Eyþór rólegt og rafmagnað dúó meðan aðrir hvíldu. Mezzoforte hefur bæst góður liðs- auki en það er saxafónleikarinn David O’Higgins. Hann er 24 ára gamall Breti sem hefur vakið töluverða at- hygli í Bretlandi og m.a. leikið með eigin hljómsveit í jassklúbbi Ronnie Scott’s í London og þykir einn af efnilegustu tenórsaxafónleikurum þar í landi. Þá var hann með í tón- leikaför Mezzoforte til Evrópu í fyrra. Mezzoforte var vel tekið á fyrstu tónleikum sínum á íslandi í um þrjú ár. Tvö aukalög þurfti til að seðja íslenska áheyrendur. Fyrst Hitch hi- ker og Chicken eftir James Brown, sem þeir félagar léku einnig í Heita pottinum í síðustu viku sællar minn- ingar, sló botninn í stórgóða tónleika. Gugu ÍC M M' SÍMI 11384 - SNORRABRAUT 37 ALLIR MUNA EETIR HINNI FRÁBÆRU ÚRVALS- MYND „COCOON" SEM SÝND VAR FYRIR NOKKRU. NÚNA ER FRAMHALDIÐ KOMIÐ „COCOON-THE RETURN". TOPPLEIKARARNIR DON AMECHE, STEVE GUTT- ENBERG OG WILFORD BRIMLEY ERU KOMNIR HÉR AFTUR í ÞESSU STÓRGÓÐA FRAMHALDI. SJÁÐU „COCOON - THE RETCRN"! Aðaihlutverk: Don Ameche, Steve Guttenberg, Wilford Brimley, Barret Oliver. Leikstj.: Daniel Petrie. Framl.: R. Zanuck/D. Brown (Jaws 1 &. 2). Sýnd kl. 5,7.05,9.05 og 11.15. HIÐ BLAA VOLDUGA ,THE BIG BLUE" ER EIN AF AÐSÓKNARMESTU MYNDUNUM í EVRÓPU OG í FRAKKLANDI SLÓ HÚN ÖLL MET. Sýnd kl. 5,7.05,9.10 og 11.15. HÆTTULEG SAMBOMD ★ ★★★ AI.MBL Sýnd kl. 5 og 7.30. Bönnuð innan 14 ára. REGNMAÐURINN ★ ★★★ SV.MBL. Sýnd kl. 10. Hid íslenzka skylmingafélag Sumarnámskeið í ólympískum skylmingum. Tvö námskeiö verða í boði; annars vegar fyrir 16 ára og eldri og hins veg- ar fyrir 10-15 ára. Takmark þessara 8 vikna námskeiða er að kynna öryggisreglur og grundvall- artækni íþróttarinnar að því marki, að þátttakendur geti að þeim loknum skylmst sér til ánægju. Öll nauðsynleg tæki eru á staðnum. Upplýsingar og skráning í síma 14387 eða í ÍR-húsinu v/Túngötu næstu kvöld. Blaðid sem þú vakrnr við!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.