Morgunblaðið - 27.06.1989, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989
47.
í»essir hringdu ...
Vargur
Lesandi hringdi:
„Komið hefur fram í fréttum
að hrafnar hafi spillt varpi við
Tjörnina en ég vil vekja athygli á
því að hvítur köttur hefur verið
að spilla varpi þarna. Það sást til
hans við Alþingishúsið eftir að
hann hafði drepið önd. Ég hefði
ekki trúað að köttur gæti drepið
önd svona auðveldlega en þennan
varg verður að uppræta."
Allir eiga að vera jafiiir
fyrirlögum
Signrður hringdi:
„Nokkur orð varðandi dóm sem
féll í sakadómi gegn Halli Magn-
ússyni fréttamanni. Mér þykir
athyglisvert í þessu máli hve
frjálslega saksóknari hefur tjáð
sig um þetta mál áður en það var
tekið fyrir. Finnst mér óeðlilegt
að opinberir starfsmenn megi tjá
sig með þessum hætti meðan þeir
njóta sjálfir verndar eins og kem-
ur fram í 108. grein hegningar-
laga. Ef eitthvað væri t.d. sagt
opinberlega um lögbrot dómara á
almannafæri, þó satt væri, væru
slík ummæli ólögleg samkvæmt
þessari grein. Allir eiga að vera
jafnir fyrir lögum og finnst mér
mikil skinhelgi felast í þessu.“
Sumarblóm á 42 krónur.
Haft var samband frá Gróðrar-
stöðinni til leiðréttingar á mis-
skilningi sem fram kom í Velvak-
anda fyrir skömmu þar sem sagt
var að sumarblóm kostuðu 45
krónur. í Grórarstöðinni Birkihlíð,
Alaska í Breiðholti, Alaska Mikl-
atorgi og Gróðrarstöðinni Skuld í
Hafnarfirði kosta sumarblóm 42
krónur. Verðkönnun var gerð á
garðplöntum í vor en var ekki
birt og hafði því takmarkað gildi.
T.S. hringdi:
„Það er einkenni á samfélgi
okkar að ekkert fær að vera í
friði fyrir skemmdarvörgum. Til
dæmis fá almenningssímar sjaldn-
ast að vera í friði. Að vísu þekk-
ist þetta líka erlendis t.d. í fá-
tækrahverfum en jafnvel þar virð-
ist skemmdarfysnin ekki jafn mik-
il. Veggjakrot en einn anginn af
þessu sama vandamáli. Það fólk
virðast til sem finnst viðeigandi
að krota alls konar klúryrði á
húsveggi og hvar sem er. Þessu
fólki er auðvitað vorkun sem þetta
stundar því bágt hlýtur það að
eiga. Ef til vill er ekki tekið jafn
hart á þessu hér og annars stað-
ar. Ef svo er mætti gera betur.
Vinna þyrfti markvisst að því að
uppræta þennan þjóðarlöst.
Kettlingur
Tveggja mánaða kettlingur,
svartur á baki og bröndóttur,
kassavanur og mjög mannelskur,
fæst gefins. Upplýsingar í síma
43908 eftir kl. 16.
Vinsæl mynd
Bjarni Krisjánsson hringdi:
„Fyrir nokkru var beðið um að
sjónvarpið sýndi kvikmyndina
Innrásin í Normandí og hefur hún
verið sýnd. Ég vil fara þess á leit
við sjónvarpið að kvikmyndin
Blóðský á himni verði sýnd en hún
var mjög vinsæl á sínum tíma.“
Hjól
Svart strákahjól með gulum
brettum var skilið eftir við Hörða-
land í Fossvogi fyrir nokkru. Upp-
lýsingar í síma 31702.
Köttur
Svartur fresskötur hefur verið
á flækingi í Hlíðunum í lengri
tíma. Hann er mannelskur og
greinilega heimilisköttur. Eigandi
hans er beðinn að hringa í síma
672909.
Myndavél
Myndavél af tegundinni Min-
olta fannst við Bergstaðastræti
17. júní. Upplýsingar í síma
19004.
Úlpa
Dökkblá vinnuúlpa tapaðist við
Laugalækjarskóla. Upplýsingar í
síma 82638.
i«*r. Ragnheiðarstaðir
Ragnheiðarstaðahatíð verður haldin laugardaginn 1. júlí og
hefst kl. 18.00 með skemmtidagskrá, grillveislu og dansleik
á eftir.
Hópferð á hestum frá Efri Fák föstudaginn 30. júní kl. 14.00.
Hestamannafélagið Fákur.
Svangir Islendingar!
Takió ykkur frí frá matseld
7DIIRISTMENU
\^eitingastaóir víða um land innan Sambands
veitinga- og gistihúsa bjóóa ísumar sérstakan
matseðil, Sumarrétti SVG, þarsem áhersla erlögð
á staögðúan mat é gððu mði.
Sumarréttamatseðillinn
gildir frá 7. júní til 15. september.
Hádegisv. Kvöldverður
Forréttur eöa súpa, kjöt- eða fiskréttur, kaffi. 600-750kr. 850-1200kr.
Börn 0 til 5 ára: Ökeypis
Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
Samlega gáú tíiinti Irrir sraaga ferðalanga.
Upplýsingabæklingur fæst á ferðaskrifstofum
og upplýsingamiðstöó í Ingólfsstræti 5.
Sjá þátttakendalista íMorgunblaðinu
laugardaginn 1. júlí.
VERÐ
- 15.675
- 22.320
- 25.390
0\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurtandsbraut 16,108 Reykjavík - Sími 91-680 780
UNBEAM GRILL=
"Þetta er
ROLLSINN
í gasgrillum !"
segir Hilmar
B. Jónsson
matreiöslu-
meistari, en hann valdi
SUNBEAM gasgrill að vel
athuguðu máli. Það eru
ótvíræð meðmæli. Vandaðu
valið - veldu SUNBEAM.
y Handhægt
✓ Einfalt
/ Öruggt
/ þrifalegt
Útsölustaðir
um allt land
Sportgrill
C
■UWOCAWO
GREIÐSLUKJÖR
Hrfytjántton hF
FAXAFENl 9 S. 91 - 67 88 00
GREIÐSLUKJOR