Morgunblaðið - 02.07.1989, Síða 12
MORG.UNBLAÐIÐ M AIMNLÍ FSSTRAUM AR sö¥#ödagur . 2. Jpll 1989
TIL SÖLU
A-12 Mercedes Benz 280 SE 1985. Blár sanseraður, sjálf-
skiptur, ABS-hemlar, rafdrifnar rúður, rafdrifin sóllúga,
velour áklæði, endurryðvarinn 1988, með fylgja 4 álfelgur
með dekkjum, ekinn 62.000 km.
Kristján P. Guðmundsson,
sími 96-23876.
byrjendanámskeið
Fjölbreytt, vandað og skemmtilegt byrjenda-
námskeið fyrir fólk á öllum aldri.
Tilvalin námskeið til að losna við alla minni-
máttarkennd gagnvart tölvum.
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-tölva.
• Stýrikerfið MS-DOS.
• Ritvinnslukerfið WordPerfect.
• Töflureiknirinn Multiplan.
• Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 4., 6. 11. og 13. júlí kl. 20-23.
Innritun í síma 687590.
VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku í námskeiðinu.
Á TOPPINN
80BGARTUNI 26. SÍMI 62 22 62
y\llp a
emm
sPað
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
MATUR OG DRYKKUR /Hvemigmá spara
oglengja lífib í leibinnif
r
Abraham gat Isak...
JÓGÚRT er einhver elsta fæðutegund í heimi, þótt tiltölulega
stutt sé síðan Vesturlandabúar kynntust henni. Sögur herma að
hirðingjar í Asíu hafi uppgötvað hana fyrir tilviljun. A ferðalögum
geymdu þeir mjólk sína í belgjum gerðum úr kindamögum og
við sólarhitann mynuðust í þeim gerlar sem ollu því að mjólkin
„hljóp“ og varð að þeirri afiirð sem við nú köllum jógúrt. Hirðingj-
unum hefúr síðan skilist að jógúrtin geymdist mun betur en ný-
mjólk og að breyta mætti mjólk í jógúrt einfaldlega með því að
hræra örlitlum skammti af „lifandi" jógúrt saman við miklu
stærri mjólkurskammt.
Ymsar sögur eru tengdar holl-
ustu jógúrtarinnar sem marg-
ir vilja beinlínis eigna torskýrðan
töframátt. Sköpunarsagan hermir
t.d. að Abraham hafi boðið mönn-
unum þremur,
sem færðu hon-
um fregnina af
fæðingu Isaks,
að samfagna sér
með jógúrt (eða
laban), og gyð-
inglegar sagnir
þakka einmitt
jógúrtinni
langlífi og fijósemi Abrahams.
En hann var hundrað ára er hann
gat ísak, eins og menn sjálfsagt
muna...
Töframáttur og
næringargildi
Jógúrt hefur frá ómunatíð verið
algeng fæða víða í Mið-Asíu,
Austurlöndum nær, Miðausturl-
öndum, og svo í Balkanlöndunum.
Ilya Machinov, forstöðumaður
Pasteur-rannsóknarstofnunarinn-
ar á síðari hluta 19. aldar, vann
lengi við rannsóknir á öldruna-
rsjúkdómum. Það vakti furðu
hans hve gamalt fólk í Búlgaríu
var heilsuhraust og langlíft, karl-
mennimir héldu margir hveijir
áfram að stunda erfiðisvinnu og
geta böm löngu eftir að flestir
jafnaldrar þeirra vom komnir
undir græna torfu, æðakalkaðir
og ristilbólgnir. í ljós kom að
Búlgarar þessir borðuðu mun
minna en hinir skammæru Vest-
ur-Evrópubúar álitu nauðsynlegt,
en skófluðu daglega í sigjógúrt.
Niðurstað Mechinovs var allt-
ént sú að/í jógúrtinni fælist leynd-
ardómurinn að langlífi þeirra og
hestaheilsu. Honum tókst að ein-
angra úr henni tvo dúndurgerla,
sem hann nefndi Streptococcus
thermophilus og Lactobacillus
bulgaricus. Áleit hann að þeir
héldu í skefjum skaðlegum bakt-
eríum sem ella dveldust langdvöl-
um í meltingarvegi manna, ei-
tmðu smám saman út frá sér og
hröðuðu hrörnun líkamans.
Hvað sem fyrrgreindum töfra-
mætti líður hefur jógúrtin mjög
mikið næringargildi. Hún inni-
heldur meira af B-vítamínum
þíamíni og riboflavíni — en mjólk,
einnig meira af eggjahvítuefnum.
Auk þess er hún rík af kalsíum,
járni, fosfóri og kalíum, en er
afar fitusnauð.
Jógurt getur gegnt margvís-
legu hlutverki við matargerð.
Hana er ekki aðeins hægt að
borða í morgunverð, eina og sér
í bland við musl og ávexti, heldur
má nota hana í ljúffenga drykki
með ýmiss konar bragði, heitar
og kaldar sósur með kjöti, fiski
eða grænmeti, í eftirrétti og til
baksturs. Þá er sáraeinfalt að búa
til jógúrt.
Heimatilbúin j ógúrt
6—10 dl nýmjólk
fk dl hrein jógúrt (1 dós)
Látið nýmjólkina bullsjóða
þannig að hún freyði upp að pott-
barminum og haldið pottinum yfir
hellunni svo að froðan haldist
þannig í eina til tvær mínútur.
Kælið mjólkina niður að u.þ.b. 43
°C. Hrærið jógúrtinni þá saman
við mjólkina, setjið lok á pottinn
og látið hann standa á heitum
stað í 5—10 klst. (eftir hitastigi).
Ýmsum hefur reynst vel að vefja
lopapéýsu utan um pottinn og láta
hann standa á miðstöðvarofni yfir
nótt.
Þegar jógúrtin er orðin þykkt
hlaup, hrærið þið í henni og kælið
í lokuðu íláti í ísskápnum. Kæling-
in stöðvar gerlastarfsemina; hald-
ið svo eftir u.þ.b 3 msk af jógúrt-
inni til að nota í næstu „lögn“.
Heilræði
1. Jógúrtin sem þið notið í
„lögnina“ verður að vera fersk.
2. Gangið úr skugga um að ílát-
in og áhöldin sem þið notið til
jógúrtgerðarinnar séu tandur-
hrein, til að forðast áhrif óviðkom-
andi baktería.
3. Jógúrtin verður að fá að
hvíla sig algjörlega í friði við jafnt
hitastig á meðan geijun stendur.
4. Hrein jógúrt geymist betur
en sú sem ávöxtum hefur verið
blandað saman við. Ávaxtagerl-
arnir geta gert jógúrtina hálf-
slepjulega og þess vegna er best
að blanda þeim saman við hana
rétt áður en hún skal etin (eða
a.m.k. samdægurs).
5. Ef jógúrtin súrnar er það
líkast til vegna þess að hún var
látin geijast of lengi, eða vegna
þess að mjólkin sem þið notuðuð
var of heit.
Allra mála drykkur
Þessum ljúffenga drykk má
gæða sér á við öll tækifæri. Einn
og sér er hann fyrirtaks hádegis-
verður fyrir þá sem þurfa að
gæta hófs í mataræði. Einnig má
vel hugsa sér hann sem eftirrétt.
Þessi skammtur fleytifyllir tvö
stór glös.
safi úr einni sítrónu
safi úr tveimur appelsínum
1 egg
2 msk hveitikím
1 msk fljótandi hunang
3 dl jógúrt
Hrærið öllu saman með tiltæk-
um áhöldum, í hrærivél, blandara
eða einfaldlega með gaffli.
Banana-raita
Þetta er indversk jógúrtsósa
með bönunum og ýmsum krydd-
tegundum sem gjarnan er borðuð
með karrýréttum.
1 tsk smjör
fk tsk kúmenfræ
'A tsk steytt kóríander
'U tsk cayennepipar
4 dl stappaðir bananar
4 dl hrein jógúrt
Bræðið smjörið á pönnu. Setjið
kryddin í mortél og steytið þau
gróft — það á ekki að meija þau
alveg í sundur — og hrærið þeim
saman við smjörið í nokkrar
mínútur. Blandið þá banönum
saman við með snöggum hand-
tökum. Takið blönduna af hell-
unni, hrærið jógúrtinni saman við,
setjið í skál og kælið vel í ísskáp
áður en borið er fram.
Jógúrtídýfa með púrru- og
hvítlauk
Þessi ídýfa, svo og sú sem á
eftir fylgir, er upplögð fyrir hráa
grænmetisstrimla.
2 k hrein jógúrt
2 marin hvítlauksrif
2 msk smátt saxaður púrrulaukur
salt og ögn af cayennepipar
Hrærið hvítlauk, salti og ob-
banum af púrrulauknum út í jóg-
úrtina. Smakkið til með cayenne-
pipar og hellið í skál. Stráið af-
gangnum af púrrulauknum yfir,
svo og ögn af cayennepipar. Berið
fram vel kælt.
Jógúrtídýfa með kotasælu
Úr þessari uppskrift verða
u.þ.b. ét dl af ídýfu.
225 g kotasæla
fk dl hrein jógúrt
1 lítill laukur, rifinn eða saxaður
smátt
1 tsk sítrónusafi
salt og pipar
1 tsk tómatkraftur
Hrærið saman við kotasælu og
jógúrt. Hrærið þá lauk og sítrónu-
safa saman við og að lokum salti,
pipar og tómatkrafti. Berið fram
vel kælt.
eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur