Morgunblaðið - 02.07.1989, Síða 16

Morgunblaðið - 02.07.1989, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JULI 1989 VIÐBÚIN. TILBÚIN. BANG. Kapphlaupið um kvikmyndirn- ar í Bandaríkjunum er hafið. Skotið reið af undir lok maí með frumsýn- ingu á fyrstu stórmynd sumarsins, sem líka er fyrsta framhaldsmynd sumarsins og stefnir í mestu met- sölumynd allra sumra, Indiana Jon- es og síðustu krossferðinni. Hinar fylgja fast á eftir: „Star Trek V“, Draugabanar II, Karatestrákurinn III, „Licence to Kill“, Batman, Hyl- dýpið („The Abyss“), „Lethal Weap- on 11“ og áfram og áfram. Þetta er þúsund milljón dollara hindrunar- hlaup þar sem öllum brögðum er beitt og engin lyfjapróf þekkjast. Því meiri kraftur sem pumpast um æðar bíómynd- anna, því betra. Flestar stór- myndanna hafa áður tekið þátt í sumarhlaupinu og hafa róm- versku tölurnar til að sanna það; II og III og V og VIII eru skomar í þær til minningar um forna sigra. Eddie kornflex Nýju keppendurnir eiga sjálfsagt eftir að komast í rómversku tölumar seinna en þangað til eru þær eini vitnisburðurinn um að áræðni og þor og að eitthvað eins og hugmyndaríki fyrirfinnist ennþá í gömlu, góðu Jollywood. Stundum er engu líkara en kvikmyndaborgin sé rekin eins og bílaborg og það hefur sjaldan komið eins sterklega í ljós og í sum- ar. Menn halda sig við sömu gerðina ár eftir ár með lítillegum útlits- breytingum og það eru fyrst og fremst markaðssérfræðingarnir sem ráða. Það skortir frumleika, menn keppa við það sama ár eftir ár. „Kvikmyndirnar eru að verða vöru- merkjaiðnaður eins og bílaiðnaður- inn eða iðnaðurinn sem framleiðir morgunverðarkom," segir gagnrýn- andinn Harlan Jacobsen, ritstjóri „Film Comment“. Fáir treysta sér til að taka áhættu lengur. Þeir treysta á vörumerkin sín og marg- falda þau. „Eddie Murphy er okkar Kelloggs- komflex,“ segir Frank Mancuso, stjómarformaður Paramount-kvik- myndaversins en sjö myndir Murph- ys hafa gefið einn milljarð dollara af sér í tekjur það sem af er. í sam- anburði gróðapælinganna era leik- stjórar eins og Jonathan Demme lítið annað en kaldur hafragrautur. Vantar hugmyndir? „Mér finnst kvikmyndirnar setja dálítið niður með þessum framhalds- myndum," sagði Árni Samúelsson bíóeigandi sem tekur Bondmyndina- KVmiVIYNPIR eftir Amald IndriAason „Licence to Kill“ til sýninga um miðjan júlí. „Það er allt of mikið gert af þeim. Það er eins og þeir hafi ekki nógu mikið af nýjum hug- myndum. Um leið og Aftur til framt- íðar tvö er gerð er númer þrjú tekin líka og tvær stærstu myndir Columb- ia, sem verið hefur í lægð undanfar- in tvö ár, eru Draugabanar II og Karatestrákurinn III — og strákur- inn er orðinn 28 ára.“ Friðbert Pálsson, bíóstjóri í Há- skólabíói, sem tekur „Indiana Jones“ til sýninga í júlí lítur málið öðram augum. „Það era alltaf áhorfendurn- ir sem segja til um hvað er fram- leitt, þeir era alltaf síðasti dómarinn, og framhaldsmyndagerðin er tilraun framleiðandanna til að setja eitthvað upp sem þeir geta verið öruggir með. Þeir taka minnstu áhættu og framleiða það sem þeir vita þegar að fellur áhorfendum í geð.“ Það er ákveðið öryggi í leikuram eins og Eddie Murphy en ef hann er kornflex þá hlýtur Steven Spiel- berg að vera gullkorn. Þegar þetta er skrifað er eina stórmyndin sem framsýnd hefur verið vestra myndin um þá Jones-feðga, Harrison Ford og Sean Connery, og það stefnir í að hún verði fyrst í dollaramarkið. Hún sló öll fyrri met út þegar hún fékk rúmar 50 milljónir dollara á fyrstu sýningarvikunni. Hér era nokkrar myndir sem era líklegar til að veita henni samkeppni. Og keppendurnir eru... Draugabanar II (sýnd Stjörnubíói í desember) segir af fleiri bardögum Bill Murrays, Dan Aykro- yds og Harold Ramis við slepjulega stórborgardrauga undir leikstjórn Ivan Reitmans og með Sigourney Heilagar su- permyndir; POW, KRASS, BAMM. „StarTrek v“; eru þeir ekki orðnir of gamlir fyrir betta? Weaver í einu aðalhlutverkanna. Allir úr fyrri myndinni fengust sum sé til að endurtaka leikinn. Það er ekki síst þakkað nýja Columbia- forstjóranum Dawn Steel en það verður erfitt að feta í fótspor fyrri myndarinnar, sem enn er söluhæsta gamanmyndin sem gerð hefur verið. „Maður getur ekki annað en leitt hugann að því,“ segir Reitman. Uppskeran gæti orðið ánægjuleg þeim sem sáðu. Aðalpersónurnar fimm sömdu um prósentur af gróð- anum sem samanlagt er meira en kvikmyndaverið fær. Batman (sýnd í Bíóhöllinni/Bíó- toö Porsche umboösins á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.