Morgunblaðið - 02.07.1989, Page 18

Morgunblaðið - 02.07.1989, Page 18
ÍBL Ú MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1989 í jjölmiðlum ■ÍÞRÓTTADEILD Ríkissjón- varpsins vinnur nú að gerð heim- ildarmyndar um knattspymu- kappann Asgeir Sigurvinsson. Jón Óskar Sólnes annast umsjón með gerð myndarinnar, en í henni verður rakinn glæsi- legur ferill Ás- geirs á knatt- spymusviðinu. Að sögn Jóns Óskars er vinnsla mynd- arinnarfremur ÁSGEIR tímafrek því auk viðtala við Ásgeir þarf að grafa upp ýmsar eldri myndir frá 17 ára löngum ferli hans í at- vinnumennskunni. Stefiit er að þvi að sýna myndina i Sjónvarp- inu með haustinu. ■ NEIL Sheehan, sem fylgdist með stríðinu í Víetnam fyrir New York Times á sinum tíma, hlaut nýlega Pulitzer-verðlaun fyrir bók um stríðið. Philadelphia In- quirer og Chicago Trihune hlutu tvenn Pulitzer- verðlaun hvort blað. New York Times og Was- hington Post fengu verðlaunin fyrir erlendar fréttir í samein- ingu. Sheehan vann í 16 ár að bók sinni, sem hann nefiiir Part- ing ofthe Waters: John Paul Vann and America in Vietnam. í bókinni notar hann ævi sögu- hetjunnar til að lýsa reynslu Bandarikjamanna í heild af Víet- namstriðinu. ■ÍTALSKI sjónvarpsjöfúrinn Silvio Berliisconi, hefúr ákveðið að leggja fram 25% hlutaíjár í eina af þremur frjálsum sjón- varpsstöðvum, sem fyrirhugað er að setja upp á Spáni, en eins og kunnugter hefúr ríkisein- okun á sjón- varpsútsend- ingum nú verið aflétt þar í Iandi. Berlus- coni hefiir enn- fremur gert samkomulag við svæðisstöðvar í Katalóníu og Baskahéruðunum og á i samn- ingaviðræðum við slíkar stöðvar í Madrid og Galicia. BERLUSCONI Aðnota böm AÐ SJÁ yfirgefið og umkomulaust barn gerir flest okkar sem eldri erum varnarlaus með öllu. Að sjá böm, sem yfirleitt em sakleysið uppmálað, við ógnandi aðstæður sem þau hafa engan hátt mótað og em augljós fóraarlömb, kallar á sterk tilfinninga- leg viðbrögð og við viljum gjaman leggja okkar af mörkum barn- inu til vamar. Að sjá brosandi og hamingjusamt bam hefúr einn- ig mikil áhrif á fúllorðið fólk, einkum foreldra, því það gefúr til kynna heilbrigt og hamingjuríkt umhverfi þess, — heilbrigt og hamingjusamt flölskyldulíf. eir sem starfa við myndmiðla hafa löngum gert sér grein fyrir þessu og nýtt stundum til hins ítrasta. Kunnastar eru að líkindum myndir af hungruðum, sjúkum og þjáðum bömum sem hjálparstofnanir hafa beitt við fjár- söfnun til styrktar fólki sem býr í vonleysi við ömurlegar aðstæður. Sumar af alfrægustu stríðsfréttamyndum sem til eru sýna ein- mitt börn sem fóm- arlömb átaka eða sem ráðvillta þátttakendur. Einnig hefur það orðið æ algengara að vöra- framleiðendur auglýsi vörar sínar með börn- um þó svo að augljóst sé að barnið geti ekki verið neytandinn og þaðan af síður kaup- andinn. Það er deginum ljósara að myndmiðlar nota böm til þess að hafa áhrif á fullorðið fólk. Mynd af ungu bami táknar í fyrsta lagi sakleysi, hreinleika, hrekkleysi og í raun allt það sem foraðum veruleika hefur ekki tek- ist að saurga. Barnið táknar í öðru lagi umkomuleysið, bjargarleysið og ósjálfstæðið. Það kallar á um- hyggju, væntumþykju og ást og þegar um slíka ást er að ræða er oft sælla að gefa en að þiggja. I þriðja lagi er ungbamið í mynd- miðlum hvoragkyn, þ.e. að við það era ekki tengdir kynbundnir eigin- leikar eða ósiðir og auk þess er það hafið yfir alla félagslega sundrungu og því er það að stjórn- málamenn, einkum erlendis enn sem komið er a.m.k., láta gjaman mynda sig með börnum. Það er sjaldnast hægt að segja það um ímynd ungbams að hún sé uppa- eða hippaleg, sveitaleg, mennta- mannaleg, millistétta- eða borgaraleg. Ung- barnið er einfaldlega bara fallegt, hárlaust, krúttlegt og með stór augu. I fjórða lagi er ímynd bamsins ná- tengd í mynd fjölskyld- unnar, — mannsins, konunnar og barnanna. Bamið er ávöxtur þeirra tilfinninga og ástríðna sem við hátíðleg tækifæri heit- ir homsteinn samfélagsins. Það er ýmislegt at- hyglisvert sem kemur í ljós þegar gaumur er gefmn ímynd barnsins í íslenskum myndmiðlum og þá um leið í íslensku samfélagi, sem eins og allir vita er án stríða og stétta. Bjargarleysi og sakleysi bama er oft notað hér á landi þegar venja þarf fullorðið fólk af ósiðum og löstum. Umferðarmenningu er oft reynt að bæta með því að sýna varnarlaus og falleg böm sem fómarlömb óvarkárra, ölvaðra eða bijálaðra bílstjóra. Eins hefur börnum verið otað gegn fullorðn- um í baráttunni gegn tóbaksneysl- unni. Nýverið birtust auglýsingar frá slysavarnafélagi þar sem reynt BAKSVID eftir Ásgeir Friðgeirsson var að fá almenning til þess að losa takið á buddunni með því að sýna villtan drenghnokka í óbyggðum leggjast undir stein. Algengasta bamsímynd íslenskra myndmiðla er brosmilda hamingju- sama bamið sem allir dá og sem feykir burt á vit gleymsku öllum vandamálum fjölskyldunnar. Til- efnislausar baksíðumyndir í þessu blaði jafnt sem vorfréttir í sjón- varpi þar sem ungviðið er í aðal- hlutverki er fjölmiðlaefni fyrir full- orðið fjölskyldufólk miklu frekar en börn. Þegar ferðaskrifstofa auglýsir fjölskylduferð era yfirleitt ekki sýndar myndir af pabbanum á bamum heldur barninu að búa til sandkastala. Fjölskyldan er neyslueining og auglýsendur hafa fyrir langa löngu komist að því að viljirðu háfa áhrif á sameiginlega neyslu hennar kemurðu skilaboð- unum áleiðis til hinna fullorðnu með því að nota ímynd bama. Bamsímyndin er afurð mynd- miðla. Líkt og samskipti okkar við ungabörn eru orðfirrt þá er barns- ímyndin orðlaus og fyrst mynd getur sagt meira en þúsund orð þá er náttúralega svo praktískt að nota hana. Barnið er fmynd sak- leysis, bjarg- arleysis, fé- lagslegrar einingarog hamingjuríks fjölskyldulífs Hvað er ífiéttum? Aður hef ég í þessum pistlum minnst lítil- lega á fréttir og fréttamat flölmiðla og geri það enn í þessum. Það er nefnilega býsna merkilegt að fylgjast með fréttum og sjá og heyra hvar áherslur fréttamanna liggja, ekki síst þegar fréttnæmt efni er manni skylt. Ég hef að vísu ekki kannað þetta mál á fé- lagsvísindalegan hátt með tilteknu úrtaki úr þjóðskrá eða sláandi og litskrúðugum línuritum, eins og hljóð- og myndmiðlarnir birta með lát- um þegar þeim hentar. Mæli- tæki mín eru augu þau og eyru sem ég er sjálfur búinn. Það eru ágæt tæki. Ég minnist þess fyrir ára- tug eða rúmlega það þegar Passíukórinn á Akureyri flutti mikilsverð stórtónverk heimsbókmenntanna héma í Iþróttaskemmunni, sem var að vísu upphaflega reist til að hýsa veghefla og jarðýtur en tekin undir íþróttakennslu og -starf, og ér enn, þegar á þarf að halda, breytt í tón- leikahöll. Þarna var meðal annars ráðist til atlögu við Sálumessu Mozarts, Árstíð- irnar eftir Haydn og Messías Hándels í fullri lengd í fyrsta og ég held eina sinn hér á landi. Enda þótt við, sem að kómum stóðum, reyndum allt sem við gátum til að ná athygli fjölmiðla til þess að kynna þetta menningarátak, sem hlýtur að mega teljast óvenjulegt og merkilegt í ekki stærri kaupstað í heim- inum en Akureyri er, var það án teljandi árangurs. Sum blöð birtu að vísu fréttatil- kynningar og smámyndir ef við komum með þær á stað- inn. Enginn áhugi virtist á því að kynna þetta menning- arstarf. Á sama tíma þótti hins vegar sjálfsagt að hafa heilar opnur með viðtölum og flennistórum myndum á áberandi stöðum í blöðum, • myndir frá æfingum ásamt viðtölum í sjónvarpi og viðtöl og kynningar í útvarpi þegar sambærilegir kórar í Reykjavík fluttu sambærileg verk á tónleikum þar. Síðan eru liðin mörg ár, eins og skáldið kvað. Þeim hluta Islands sem er utan borgarmarka Reykjavíkur, og var um skeið greinilega skilinn frá borginni með stór- um ljósaskiltum, bregður nú sífellt oftar fyrir í iandsfjöl- miðlunum, sem eiga að vísu allir heima í Reykjavík eða svo til. Þó er enn alltof mik- ið um það að fréttamats- menn á höfuðborgarsvæðinu dæmi það sem utan borgar gerist Iandsbyggðarkjaftæði og varla hæft til annars en uppfyllingar ef allt annað þrýtur. Á fréttaefni er ekki ein- ungis landshlutakvarði held- ur líka einhvers konar spennukvarði. Hann hefur smám saman orðið meira áberandi eftir að tók að snjóa- til landsins fólki sem hefur lagt stund á fréttamennsku- nám f útlöndum. Þetta hefur trúlega hafist með svokall- aðri rannsóknarblaða- mennsku, sem byggðist á því að fréttamaður reyndi að grípa viðmælanda eins og lögreglumaður væri að hand- taka þijót. Síðan var reynt að fletta ofan af þijótnum og smjatta á því sem frétt- næmt þótti og því meir sem mál var viðkvæmara. Raunar var engu líkara en frétta- menn rugluðu saman frétta- mennsku og lögreglustarfi. Þeir era raunar ótrúlega margir ennþá í sífelldum lögguleik. En hvað sem því líður er oft átakanlegt að sjá hvernig reynt er að gera ein- falda frétt að spennuleik og ef ekki vill betur til að skálda í ímyndaðar eyður og mat- reiða hasarkenndar frásagn- ir í fréttagervi. Gott og skýrt dæmi um þetta var þegar verkfalli BHMR lauk, en fréttamenn gerðu það að verkfalli kennara sérstak- lega. Skólameistari Mennta- skólans í Kópavogi lýsti ágætlega hér í Morgunblað- inu hvemig fréttahaukar hömuðust við að búa til æsi- fréttir úr umræðum nem- enda og yfirvalda um skóla- lok. Um það þarf ekki fleiri orð. En ósköp voru frétta- og myndamenn duglegir við að búa til hernaðarástand úr litlu efni og taka myndir af unglingum sem langaði til að sjá sig í blöðum eða sjónvarpi. Það var engu líkara en ástandið í Reykjavík væri jafnalvarlegt og á Torgi hins himneska friðar! Á sama tíma var í ró og spekt samið um skólalok í framhaldsskólunum hér á Akureyri. Svo ég taki Menntaskólann sem dæmi, því hann þekki ég best, var sest niður og gerðar áætlan- ir, síðan kennt og tekin full- gild próf. Nemendur unnu af þvílíkum kröftum og af- köstuðu slíku að undrum sætti. Og hér var starfað af þeim metnaði að öllum gæti orðið að fullu gagni. En þetta þótti Jjölmiðlum bara alls ekkert merkilegt og þeir sem fylgdust með þeim þessa daga urðu þess ekki ■ varir að neinir framhalds- skólar væru til utan borgar- markanna. Þetta var nefni- lega hvort tveggja: Úti á landi og enginn hasar! Út- koman úr dæminu: Ekki fréttnæmt! Og til þess að botna þessa sögu má geta þess að Menntaskólanum á Akureyri var slitið þann 17. júní. Á skólaslitahátíðinni voru að viðstöddum rúmlega eitt þúsund gestum brautskráðir stúdentar, 121 að tölu. Þeir höfðu allir lokið reglulegum, fullgildum stúdentsprófum, sem hlýtur að teljast merki- legt eftir erfiðan og óreglu- legan vetur sem í flestum framhaldsskólum lauk með próflausu mati. Samt minnist ég þess ekki að skólaslit MA hafi fengið minna rúm í Ijöl- miðlum. Þetta þótti ekki umtalsvert fréttaefni, enda var enginn laminn, enginn staðinn áð svindli og engin kröfuspjöld á lofti — og svo var þetta bara norður á Akureyri! Sverrir Páll Erlendsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.