Morgunblaðið - 02.07.1989, Side 19
MO fiGÉ(NBLAÍ)fe «ÖUimMJm«0>i8&%wK TOLf .'T9S9Í
Gl lflT
Bylgjan-Stjarnan:
Starfsmönnum fækk-
að um tæpan flórð-
ung eftir sameiningu
FASTRÁÐNU STARFSFÓLKI á Bylgjunni og Stjörnunni hefiir fækk-
að um tæpan fjórðung frá því stöðvarnar voru sameinaðar. Starfs-
menn Stjörnunnar voru 18 og hjá Bylgjunni unnu 17 fastráðnir
starfsmenn fyrir sameiningu. Samanlagt vinna nú 27 manns hjá fyrir-
tækinu auk átta lausráðinna starfsmanna, sem er svipað og var hjá
báðum stöðvunum fyrir sameiningu. Að sögn Jóns-Ólafssonar, sljórn-
arformanns Islenska útvarpsfélagsins, er fækkun starfsfólks liður í
aukinni liagræðingu, sem nú er unnið að innan fyrirtækisins. Stefnt
er að því að öll starfsemi verði komin undir sama þak, í Sigtúni 7,
þar sem Stjarnan er til húsa, ekki síðar en í ágústmánuði næstkom-
andi.
Sumir hafa reyndar farið í sam-
keppni við okkur og er ekki nema
gott eitt um það að segja. Hvað
varðar hina hagkvæmu hlið samein-
ingarinnar þá er Ijóst að hún hefur
tekist mjög vel. Við sameininguna
var öll fita skorin í burtu og jafn-
vel eitthvað kjöt líka, ef svo má að
orði komast. Nú er hins vegar búið
að ná tökum á fjárhagsmálum fyrir-
tækisins. Vandamálið var stórt sem
var við að etja þegar stöðvarnar
tvær voru í harðri samkeppni, en
sameinaðar eru þær mjög öflugur
miðill. Þetta hefur skilað sér í veru-
legum auglýsingatekjum, sem hafa
þrefaldast frá því Bylgjan og
Stjarnan sameinuðust,“ sagði Jón.
Hann kvaðst þeirrar skoðunar, í
ljósi . reynslunnar, að ekki væri
svigrúm nema fyrir eina öfluga út-
, varpsstöð í samkeppni við Ríkisút-
varpið. Það hefði komið berleg í ljós
á meðan að Bylgjan og Stjarnan
slógust um athygli hlustenda. „Við
teljum hins vegar að það þurfi að
vera til stór öflug einkastöð til að
keppa við Ríkisútvarpið, enda veitir
slík samkeppni aðhald og er af hinu
góða,“ sagði Jón Ólafsson.
Jón sagði að sameiningin hefði
vissulega verið erfið að því leyti
að með henni hefðu verið leiddir
saman ólíkir hópar, sem áður hefðu
unnið í harðri samkeppni gegn hvor
öðrum. „Þetta hlaut að valda tauga-
titringi hjá sumum þegar samein-
ingin átti sér stað,“ sagði hann.
„Afleiðingar af þessu hafa verið að
koma í ljós að undanförnu þar sem
ákveðnir aðilar hafa yfirgefið út-
varpsstöðvarnar og farið í annað.
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANNA
(Óheyrilegs athæfisdeild)
Bandaríska alríkislögreglan
hafði hafið eftirlit með honum
vegna áhuga hans á sovéskri ljóð-
list.
Monrunblaðið, Reutersfiétt.
Sj ónvarpsstöðv-
ar í sápustríði
Coronation Street
ur náð yfirhöndinni um hylli
breskra sjónvarpsáhorfenda
ef marka má nýjustu tölur.
Myndin til vinstri sýnir atriði úr nýja ITV- sjónvarpsþættinum Heima
og heiman, sem stefht er gegn BBC-þættinum Grönnunum
Bretland:
BRESKA ríkissjónvarpið BBC
og óháðu sjónvarpsstöðvarnar
ITV heyja nú harða baráttu um
hylli sjónvarpsáhorfenda þar
sem svonefiidum „sápuóperum"
er beitt fyrir vagninn. Eftir að
BBC hefur nú um þriggja ára
skeið haft yfirburði á listanum
yfir 10 vinsælustu þættina náði
ITV aftur forystunni í byijun
þessa árs með þættinum Coron-
ation Street, sem lengi hefur
verið skrautQöður þeirra á
þessum vettvangi og notið mik-
illar hylli breskra sjónvarpsá-
horfenda.
Nýjustu tölur um sjónvarpsá-
horf gefa til kynna að þáttur-
inn, sem sýndur er á Granada
sjónvarpsstöðinni, hafi komist yfir
helstu keppinautana hjá BBC,
Austurbæingana (EastEnders) og
ástralska sápuþáttinn Grannana
(Neighbours). Ekki er þó allt sem
sýnist í þessum efnum og hafa
sumir gert því skóna að tölur um
sjónvarpsáhorf hafi löngum
reynst varhugaverðar. Þannig
hafi ITV nú tekið upp gamalt
bragð, sem tíðkast hefur hjá BBC,
að leggja saman tölur um fjölda
áhorfenda á nýrri röð þátta í fram-
haldsmyndaflokki og áhorfendur
að eldri þáttaröð í sama fram-
haldsmyndaflokki, þegar hún er
endursýnd. Allt frá árinu 1985,
þegar BBC hóf endursýningar á
eldri þáttaröðum af Austurbæing-
unum og siðar af Grönnunum,
máttu ITV-menn horfa upp á töl-
ur um stórkostlega fjölgun áhorf-
enda að þessum þáttum, án þess
að fá nokkuð að gert. Nú hafa
þeir hins vegar tekið upp sömu
aðferðir og hafið endursýningar á
eldri þáttaröðum um Coronation
Street, með fyrrgreindum afleið-
ingum. ITV hefur nú einnig hafið
sýningar á nýjum framhaldsþætti,
Heima og heiman (Home and
away), og er honum einkum stefnt
gegn Grönnunum á BBC.
ISSi 2
FLUG OG BÍLL
VERÐ FRÁ KR.
25.800
(Verö m.v. bíl í c flokki í 2 vikur og A MANN
2 fullorðna og 2 börn 2-11 óro)
SALZBURG er ein fallegasta borg Evrópu með
glæsilegum byggingum, leikhúsum, tónleikasölum,
fjölmörgum kaffihúsum, veitingahúsum,
ölkjöllurum og stórgóðum skemmtistöðum.
Til Salzburg er flogið í beinu áætlunarflugi og gefst
farþegum Urvals kostur á ýmsum gerðum hótela,
bílaleigubíla auk dvalar á hinum vinsæla
sumardvalarstað WALCHSEE
í WALCHSEE er Úrval með aðalbækistöð sína í
Austurríki. Þaðan skipuleggja fararstjórar Úrvals,
þau Ingunn og Rudi, vikulega dagskrá með skoðun-
arferðum, íþróttum, leikjum og grillveislum.
Þeir farþegar, sem kjósa frekar að dvelja í ZELL
AM SEE, geta líka tekið þátt íflestu því sem
Ingunn og Rudi skipuleggja ÍWALCHSEE.
Tekið er á móti farþegum á flugvellinum í
Salzburg og þeir aðstoðaðir við að fá afgreiðslu á
bílaleigubílum o.fl. Einnig er boðið upp á rútuferð
frá flugvelli og til WALCHSEE við komu og brottför.
íbúð í viku frá kr.
12.600
WALCHSEE
VERÐ FRÁ KR.
35.050
A MANN
* Innifalið: Flug, flutningur til og frá flugvelli í
Salzburg, gisting í íbúð með einu svefnherbergi
íTvær vikur og íslensk fararstjórn.
(Verð m.v. staðgreiðslu og 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára).
FARKORT! FÍF
FiRDASKRIFSTOFAN URVAL
■ fólk sem kann sill fag!
Pósthússtrœli 13 - Simi 26900
FLUCLEIÐIR