Morgunblaðið - 02.07.1989, Qupperneq 25
morgunblaðið
IUIYNDASÖGUR SUNNUDAGUR 2.
1989
t
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Ljónið
Ég hef rekið mig á það að
þegar sagt er að einhver
ágætur maður sé í Ljóns-
merkinu eða Rísandi Ljón,
að menn verði hissa: „Er
hann ljón. Aldrei hefði mér
dottið það í hug.“
Hin hliðin
í lýsingum á Ljónsmerkinu
er oft sagt að það sé opin-
skátt í framkomu, hlýtt, glað-
legt og einlægt. Einnig er
sagt að það vilji stíl og glæsi-
leika í líf sitt, og sé ráðríkt
og stjórnsamt. Þegar menn
síðan horfa á hið þunga Ljón,
þá fallast þeim hendur og
spurningin 'er hann Ljón?“,
er borin fram.
Sýnir óánœgju
Það sem oft er misskilið er
það hvernig hið opna og ein-
læga eðli Ljónsins birtist. Það
að vera opínskár er einnig
það að sýna óánægju. Ef
Ljóni gengur illa í lífinu þá
sjáum við það utan á Ljón-
inu. Það verður þungt og
óánægt á svip.
Áberandi
Hvað varðar stíl og glæsi-
leika þá eru hin einstöku Ljón
misjafnlega smekkleg eins
og gengur. Það sem er sam-
eiginlegt með Ljónum er að
þau eru oft áberandi, en það
sama á hér við og um skap-
ið. Þó til séu glæsileg Ljón,
eins og t.d. Baldvin Jónsson
fegurðarkóngur, þá eru sum
þeirra áberandi fyrir óglæsi-
leika. Það sem ég er að reyna
að segja er að einstök ljón
geta dregið fram gamla
brúnköflótta kápu og grænar
buxur og skartað þessu án
þess að fá minnsta samvisku-
bit.
Stórgert
Það er nefnilega staðreyndin
með Ljónið að það er oft stór-
gert og grófgert. Það er á
hinn bóginn oft Meyja sem
er fínleg, 100% rétt til höfð
og smekkleg í venjulegri
merkingu þess orðs. Ljónið á
hins vegar til að gefa lítið út
á smáatriði.
Hávaöi
Einlægni og opið eðli Ljóns-
ins getur því einnig birst á
neikvæðan hátt. Það er t.d.
ekki óalgengt að Ljónið ropi
og reki við án þess að blikna
eða blána. Það fylgja Ljóninu
oft hávaði og viss læti.
Brosir ekki
Svona til að draga þessa
Ljónsumfjöllun saman, eða
þesa hlið á Ljóninu, því hin
ljónin er einnig til, sem eru
virðuleg í öllum háttum, get-
um við sagt að Ljónið sé oft
stórgert. Það hrúgar saman
alls konar glingri, engu máli
skiptir þó skartgripir séu
ekta eða ekki (Madonna).
Það er hávært og stórkalla-
legt, segir sýna meiningu án
þess að blikna og er ekki að
brosa framan í þá sem því
líkar ekki við (Ingvi Hrafn
Jónsson og Aðalheiður Bjarn-
héðinsdóttir).
Stjórnsemi
í sambandi við stjórnsemi þá
er það rétt að Ljónin eru oft
frek og ráðrík. Það er hins
vegar ekki alltaf áberandi
frekt og til að skilja það verð-
um við að taka sálfræði í
okkar þjónustu. Ljónið er
persóna sem þarf á hrósi og
jákvæðri uppörvun að halda.
Ef það er vanrækt, t.d. í
bernsku, er hætt við að Ljón-
ið telji að eitthvað sé að sér
og dragi sig þá í skel. Ef
Ljónið fær ekki tækifæri til
að skína, þá dregur það sig
einnig oft í skel. Ljón sem er
í aukastarfí á vinnustað, er
lítt áberandi. Annað hvort er
það í miðju eða hvergi. Þegar
komið er heim, þá getur þetta
sama Ljón breyst og þar tek-
ur það völdin.
GARPUR
'a <súð<see.e>ab.fr.u/vis/>j/n<su
/' /COMUMGL EGA L HUS/SIÍJ _
APAM,
8KOSTV BAEA
tíAA/NSkr/UET
AÐE/NS ANÞARTAK- Ti). - þAE>
EKAPAM PWNS STALFVe.. .
/' F~yL(5D EB 8ENUR. ‘U
^ PR./NSESSU ÚR- BVJONUM !
þ/B -TVÖ ERUB FALLE&T PAR...
GETA AhoREENBUIZ FAPte AÐ
HLANKA r/L KONUNGLEEPAR.
sAme/N/A/aAR avll/ riRjanna.
GRETTIR
BRENDA STARR
LÖ&GAN VEiT UAi t>!G, OG
G/E Tt XOM/D Hl/Efj/Ef? SBv
ER MEÐ &VSSUFZ
HUnda
úc,
, ^ þyfPLUi?.
pETTA EBU GÓÐAR OPPLVS-
/NðAR, /VHGUEL . ÉG EP
SUO pAT-KL/JTUT? AÐ £<5
STELPAN ER eafn
L/eue og afa-
KÖTTUp, ER
JÚ, BN
HUN ER.
Sn/DUGR/
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
50 LUHO UJANT5 TO U)IN
AN‘LUéLV P06" CONTE5T?
6E5IPE5, 5HE 60TTHE
TROPHV...ANP UJHAT
PIP I 6ET?
Hver vill svo sem vinna keppni um Auk þess fékk hún bikarinn ... og Ég má naga þetta bein í eitt ár!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hversu langt á að ganga til
að tryggja geimsamning á
kostnað yfirslags? Sígild spurn-
ing í sveitakeppni, sem menn
svara á mismunandi hátt, hver
eftir sinni skapgerð. Italinn
Franco seildist þó heldur langt
eftir IMP-anum í HM-leiknum
við Bandaríkjamenn 1979:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁDG54
VÁ764
♦ Á63
+ K
Vestur
♦ 3
VKDG10
♦ 109854
♦ 1084
Suður
♦ 1096
¥983
♦ KD2
♦ Á762
Austur
♦ K872
¥52
♦ G7
♦ DG953
Vestur Norður Austur Suður
_ _ _ Pass.
Pass 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 sþaðar Pass 2 grönd
Pass Pass 3 hjörtu Pass Pass Pass 4 spaðar
Útspil: hjartakóngur.
Franco var með spil suðurs
og sýndi 3 kontról með svarinu
á einum spaða við sterku laufi
DeFalco.
Slagirnir eru 10 þótt einn tap-
ist á spaða, svo varkárari menn
en Franco myndu einfaldlega
drepa strax á hjartaás og spila
spaðaás og meiri spaða. En
Franco vildi ekki kasta frá sér
spaðasvíningunni og fór þvi
heim á tígul í öðrum slag og lét
tromptíuna rúlla yfir til austurs.
Austur dúkkaði, en drap næst
á spaðakóng og spilaði hjarta.
Vestur tók þar tvo slagi og aust-
ur kastaði síðasta tíglinum
sínum: Stungan í tígli hnekkti
svo spilinu.
Nákvæmlega sama sagan
endurtók sig á öðru borðinu í
leik Polaris og landsliðsins á
dögunum, en á hinu borðinu
varð norður sagnhafi og fékk
út lauf, sem skapaði enga hættu.
Sá sagnhafi var þó ekki gráð-
ugri en svo, að hann lagði strax
niður spaðaásinn frekar en
hætta spilinu í 6-1-legunni í tígli.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Han-
inge í Sviþjóð í maímánuði var
þessi athyglisverða skák tefld:
Hvítt: Ferdinand Hellers, Svíþjóð,
Svart: Lev Polugajevsky, Sov-
étríkjunum, Sikileyjarvöm, Pol-
ugajevsky afbrigðið, 1. e4 - c5
2. Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4
- Rf6 5. Rc3 -a6 6. Bg5 - e6 7.
f4 - b5 (Hið hvassa afbrigði Pol-
ugajevskys sjálfs) 8. e5 - dxe5
9. _fxe5 - Dc7 10. exf6 - De5+
11. Be2 - Dxg5 12. Dd3 - Dxf6
13. Hfl - De5 14. Hdl - Ha7
15. Rf3 - Dc7 16. Rg5 - f5 17.
Dd4 - De7. 18. Bh5+ - g6 19.
Dxh8 - Dxg5 (í nýrri bók um
Najdorf afbrigði Sikileyjarvarnar
telur Nunn svart hafa frábærar
bætur fyrir skiptamun. En ...)
20. Bf3 - Rd7 21. Hf2 - Dh6
22. Hd6 - Rb6 23. He2 - Rc4
SMAFOLK
1 111 ■§ ■ *
í ■ iK IH•
kW. Hi®il
**■ iiC
* * m m
& m, & msMA m
Wk
ljótasta hundinn?
hvað fékk ég?
24. DfB! (Ef svartur þiggur hróks-
fórnina og leikur 24. - Rxd6 eða
24. - Bxd6 svarar hvítur með 25.
Bc6+ og mátar í öðrum leik) 24.
- Be7 25. Bc6+ - Bd7 26.
Hdxe6 gefíð. Það er sjaldan sem
Polugajevsky teflir afbrigði sitt
nú á dögum og varla eykur þessi
útreið löngun hans til þess. Bók
hans um afbrigðið o.fl. hefur m.a.
komið út á íslensku.