Morgunblaðið - 08.10.1989, Síða 4
*
4 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER
!
1
í
Símar 35408 og 83033
GRAFARVOGUR
Miðhúsog nágr.
FÍI AnFI FÍA
1 lUr&UL/L/l 1/m
rORLAG
91-20735.
KVIKMYNDAHÁTÍÐ LISTAHÁTÍÐAR 1989
HANUSSEN
Kvikmyndir
Sttœbj'óm Valdemarsson
Leikstjóri: István Szabó. Hand-
rit Szabó, Petér Dobai. Aðal-
leikendur: Klaus Maria Brand-
auer, Erland Josephson. Ung-
verjaland/Þýskaland 1988.
*
Iþriðja sinn leggjum við upp í
félagsskap Szabós og Brandau-
ers og ferðinni heitið til Þriðja
ríkisins. Myndin hefst í fyrri
heimsstyijöldinni, Brandauer
verður fyrir slysi sem verður þess
valdandi að hann sér fyrir óorðna
hluti. Vinur hans, læknirinn Er-
landson, hvetur hann til að nota
þessa náðargáfu í þjónustu
læknavísindanna en Brandauer
kýs frekar að gerast skemmti-
kraftur, heldur skyggnilýsingar
og spáir fram í tímann í samkomu-
húsum. Leiðin liggur til Þýska-
lands þar sem Hitler og árar hans
eru að grafa um sig. Foringjanum
líkar vel er sjáandinn spáir honum
kanslaraembættinu en forspá um
Þinghúsbrunann hentar áróð-
ursmaskínu Göbbels ver svo
Brandauer mætir örlögum sínum
í kjölfar hennar.
Heldur risminni en hinar mynd1
irnar í þrennunni, Mephisto og
Redl ofursti, engu að síður kjarn-
mikil og litrík skoðun á uþpgangi
nasismans og þeim hættum sem
honum fylgdu. Hversu skammt
var á milli frægðar og falls. Hér
koma frægar persónur til sögunn-
ar, líkt og áróðursmeistarinn, ljós-
mýndarinn og kvikmyndaleik-
stjórinn Leni Riefenstahl í eftir-
minnilegu atriði, ekki síður áhri-
farík er sú mynd sem hann dreg-
ur upp af hinu lævi blandna og
gjörspillta andrúmslofti og
ástandi í Berlín þriðja áratugar-
ins. Persónan sjálf er ýkt og sjálf-
sagt margir orðnir leiðir á tilþrifa-
miklum en steinrunnum leik
Brandauers. Josephson traustur
að vanda, sömuleiðis allir þeir
kvenleikarar sem koma við sögu
sem ástkonur hins þurftaríka sjá-
anda. Langt frá því að vera besta
verk Szabós, engu að síður
ögrandi viðfangsefni sem einn af
mestu snillingum evrópskrar kvik-
myndagerðar í dag vinnur eins
og honum er einum lagið. Undir-
strikar jafnframt hina sögulegu
hefð sem Ungverjaland hefur sem
eitt af ríkjum Mið-Evrópu, honum
falla sjálfsagt vel þær breytingar
sem í aðsigi eru í föðurlandi hans.
PÍSLARGANGA
JUDITH HEARNE
Kvikmyndir
Amaldur Indribason
Píslarganga Judith Hearne
(„The Lonely Passion of Judith
Ilearne'j. Leikstjóri: Jack Clay-
ton. Helstu hlutverk: Maggie
Smitli og Bob Hoskins. Bretland.
1987.
Bíómynd um piparkerlingu á ír-
landi eftir stríð hljómar kannski
ekki freistandi nú á dögum 50
milljóna dollara tækniþrillera og
Batmanísa. En eins og „The Lon-
ely Passion of Judith Heame“ sýn-
ir svo snilldarlega þarf ekki marga
dollara til að gera góða bíómynd
heldur yfirlætisleysi góðrar sögu
og pínulítið af þessu sem kallast
leikiist og Hollywood hefur næstum
tekist að úthýsa úr myndum sínum.
En Hollywood er heldur ekki bresk.
„Judith Hearne“ er „bresk“ í
þess orðs jákvæðustu merkingu,
þeirri merkingu sem við tengjum
við góðar, bókmenntalegar og frá-
bærlega vel leiknar myndir, sem
krækja í þig á fyrstu fimm mínút-
unum og neita að sleppa þegar þær
eru búnar og eru sönnun þess að
það jafnast engir fyllilega á við
Breta þegar kemur að því að kvik-
mynda bækur.
Myndinni er leikstýrt af einum
þekktasta leikstjóra Breta af gamla
skólanum, Jack Clayton („Room
at the Top“, „The Innocents", „The
Great Gatsby'j, og segir á lág-
stemmdan, dapurlegan hátt en með
réttu ögninni af breskri tragikómík,
einmanalega sögu piparkerlingar-
innar Judith Heame, sem Maggie
Smith leikur á stórkostlega áhrifa-
KLAKAHÖLLIN
Klakahöllin („Is-slotten‘j.
Leikstjóri: Per Blom Aðal-
hlutverk: Line Storesund og
Hilde Nyeggen. Norsk, 1987.
Klakahöllin er óhemju þunglynd-
isleg lítil saga um stelpu sem miss-
ir vinkonu sína og hefur þrúgandi
dapurleg, vonleysisleg áhrif á þig.
Þetta er mynd sem myrðir hægt
og rólega alit sem heitir andleg
upplyfting.
Bókin eftir Taijei Vesaas (hefur
komið út á íslensku) er ekki auð-
veld lesning og myndin gérir ekki
síður kröfur til áhorfenda. Hún ber
þig fyrirvaralaust inn í sína þung-
búnu innilokunarkenndu veröld
kulda og myrkurs norska skóglend-
isins. Hún leggur ofuráherslu á
nærmyndatökur, myndavélin dvel-
ur við andlit fólksins og'dregur upp
tilfinningar þess en opnar sig
sjaldnast út í víðáttuna. Myndin
er níðþung í framsögn og stíl og
það er aldrei slakað á, engin von
gefin. Sama dökka þunglyndið rík-
ir frá upphafi til enda án þess að
veita neina lausn.
Á sama hátt er Klakahöllin ótrú-
lega spör á samtöl og orð. Þarna
ræður þögnin ríkjum. Það eru at-
riði í myndinni sem ættu að frysta
í þér hjartað eins og dauði stelpunn-
ar í klakahöllinni og það er dulúð-
ugur, skandínavískur rökkursvipur
yfir myndinni allri en viðburðaleys-
ið, þögnin, nærmyndirnar stefna
okkur óumflýjanlega á þennan
arma stað sem kallast leiðindi.
ríkan máta. Lífið fór hjá henni á
meðan hún hugsaði um gamla
frænku sína og hún hefur piprað
í millitíðinni en flyst úr einu leigu-
herberginu í annað.
Judith er leiðinlegi gesturinn á
sunnudagssíðdögum, sem börnin
flissa að og bóndinn flýr. „Þetta
er bara ég,“ segir hún eins og af-
sökun fyrir tilveru sinni. Hún er
sífellt að hörfa undan eigin van-
mætti, hún drekkur til að bókstaf-
lega deyfa einmanakenndina og
hafa skemmtun af sjálfri sén.
Það er harmsaga œvi hennar að
einangrast í eigin óframfærni,
verða veiklulegt aðhlátursefni,
útskúfuð piparkerling. Smith leikur
hana eins og hungui-vofa í framan
en hana hungrar eftir virðingu
annarra og stöðu eiginkonu í sam-
félaginu. Og þegar hún hittir
mögulegan vonbiðil (Bob Hoskins),
mann sem sýnir henni velvilja og
virðingu — að vísu á öðrum for-
Bob Hoskins og Maggie Smith í Píslargöngunni.
sendum en hún heldur — kviknar
nýtt líf með henni sem verður þó
á endanum aðeins til að færa hana
á barm örvæntingar og guðsafneit-
unar.
Sögusviðið er Dublin eftir stríð
og Clayton endurskapar andrúms-
loft tímabilsins mjög vel eins og
við mátti búast og tilfinning hans
fyrir persónum hversdagsins er við-
brugðið. En það er sársauki Judith
Hearne sem fylgir þér útúr bíóinu
og heim. Hann kallar á vorkunn-
semi og hluttekningu og eðlilegar,
jarðbundnar tilfinningar, sem fáum
tekst að skapa svo vel sé eða kæra
sig um að skapa í dag.
HEILBRIGD S fl L I HRAUST