Morgunblaðið - 18.10.1989, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.10.1989, Qupperneq 4
4' MORGUNBLAÐp MIÐVIKUDAGUR, Jft. OKTÓljER 1989 Tuttugasta Kirkjuþingið sett í gær: Kirkjan grundvöllurinn sem allt annað byggir á - sagði Óli Þ. Guðbjartsson, kirkjumálaráðherra BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, setti 20. Kirkjuþing hinnar íslensku þjóðkirkju í Bústaðakirkju í gær eftir guðsþjónustu, sem þar var haldin. Að setningu lokinni flutti nýr kirkjumálaráðherra, Óli Þ. Guðbjartsson, ávarp. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýr kiriyumáiaráðherra var viðstaddur setningu Kirkjuþings. Óli Þ. Guðbjartsson til vinstri og biskupinn yfir íslandi, herra Ólafur Skúlason. VEÐUR Ráðherrann sagði að kirkjuþing hefði þegar hafið undirbúning kristnitökuafmælisins, m.a. með samþykkt sinni 1986 um „að efling kirkjulegs starfs skuli vera megin- markmið hátíðahaldanna vegna þúsund ára afmælis kristnitökunnar árið 2000“. Þessa stefnu hefði prestastefnan 1989 áréttað með ályktun sinni um „að safnaðarupp- bygging sé verðugt viðfangsefni næsta áratugar sem aðdragandi hátíðarhaldanna árið 2000“. „Þegar sr. Pétur Sigurgeirsson biskup lét af embætti nú í sumar var hann spurður í blaðaviðtali hvort hann væri ánægður með / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) VEÐURHQRFUR I DAG, 18. OKTOBER: YFIRLIT í GÆR: Um 250 km suðvestur af Reykjanesi er 986 mb lægð sem þokast austnorðaustur en yfir norðausturströnd Græn- lands er 1019 mb heldur vaxandi hæð. Hiti breytist lítið. SPÁ: Suðlæg átt um mest allt land, víðast gola eða kaldi. Skúrir sunnan- og vestanlands, en þurrt og öllu bjartara veður á Norður- og Austurlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Austanátt og fremur milt veður. Rigning eða skúrir við austur- og suðausturströndina, en annars þurrt að mestu. HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustanátt og kólnandi um mest allt land. Þurrt á Suður- og Suövesturlandi, en rigning eða slydda á víð og dreif í öðrum landshlutum. TAKN: Heiðskírt y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstlg. . / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V E' — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur - |- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 6 skýjað Reykjavík 9 skúr Bergen 12 skýjað Helsinki 8 skýjaft Kaupmannah. 14 þokumóða Narssarssuaq +1 skýjað Nuuk t3 léttskýjað Osló 6 þokumóða Stokkhólmur 8 skýjað Þórshöfn 10 skýjað Algarve 22 hálfskýjað Amsterdam 17 mistur Barcelona 21 léttskýjað Berlín 16 léttskýjað Chicago 8 súid Feneyjar 16 þokumóða Frankfurt 12 mistur Glasgow 13 rigning Hamborg 14 þokumóða Las Palmas vantar London 19 heiðskirt Los Angeles 15 þokumóða Lúxemborg 13 léttskýjað Madríd 16 þokumóða Malaga 23 skýjað Mallorca 21 alskýjað Montreal 4 alskýjað New York 21 mlstur Orlando 23 skýjað París 18 léttskýjað Róm 19 heiðskírt Vín 16 skýjað Washington 21 skúr Wlnnipeg 0 alskýjað tengsl ríkis og kirkju hérlendis. Hann svaraði: „Já, ég kem ekki auga á betra form en þjóðkirkjuna. En gætum þess að líta ekki á hana sem ríkisstofnun. Hún er sjálfstæð. Ríkið styður hana og styrkir, en það er gagnkvæmt. Kirkjan á að vera grundvöllur þess skipulags, sem allt annað byggir á.“ Ég tel að hinn mæti kennimaður hafi þarna hitt naglann á höfuðið og sagt það sem máli skiptir,“ sagði Óli. Ráðherrann sagði að þijú unnin frumvörp hefðu legið í kirkjumála- ráðuneytinu þegar hann bar þar að garði fyrir fáeinum vikum og hefði hann hug á að leggja þau öll fyrir Alþingi. í fyrsta lagi væri um að ræða frumvarp til laga um helgi- dagafrið, sem lagt hefði verið fyrir síðasta þing en varð ekki útrætt. í öðru lagi er um að ræða viðamikið frumvarp um kirkjugarða og þriðja frumvarpið er um skipan presta- kalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkjunnar. Síðast- talda frumvarpið sagði Óli að væri mikilvægast því í því væri fjallað um_ sjálfa stjórnskipan kirkjunnar. Á Kirkjuþingi í dag leggur kirkjuráð fram drög að nýrri reglu- gerð um Hjálparstofnun kirkjunnar til kynningar. Ályktun um líffæra- flutninga og skilgreiningu dauðans verður kynnt, en þar er gert ráð fyrir að fram fari athugun á sið- fræðilegum sjónarmiðum hér á landi varðandi þetta efni. Sérfróðir menn á sviði læknisfræði og sið- fræði yrðu kallaðir til af biskupi íslands og skal álit þeirra lagt fyrir næsta Kirkjuþing. í greinargerð með ályktuninni segir m.a. að mál þetta fjallaði um spurningar, sem vakna oft í hugum lækna og hjúkr- unarfólks ekki síður en í hugum sjúkiinga og aðstandenda þeirra. Meðal þeirra atriða, sem fjalla þarf um, eru tæknifijóvganir, fóstureyð- ingar, líffæraflutningar og dánar- Léleg loðnuvertíð: > Ottast að loðnan hafi ekki getað far- ið til hrygningar - segir Jón Reynir Magnússon fram— kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins „LOÐNAN er laxfískur og ég óttast að þessi loðnuvertíð hafi verið léleg vegna þess að loðnan hafi, eins og laxinn, ekki náð að byggja sig upp í fitu til að geta farið til hrygningar," sagði Jón Reynir Magnússon, framkvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, í samtali við Morgunblaðið. „Það er greinilegt að eitthvað er óvenjulegt í hafinu, hvort sem það er nú hiti, sölt eða áta.“ Jón Reynir sagði að laxinn hefði ekki náð að byggja sig upp í fitu í ár og því ekki geng- ið upp í árnar nema að litlum hluta. „Lax í ám er aldrei horaður, heldur feitur og pattaralegur." Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, sagðist ekki hafa tiltækar skýringar á lélegri loðnuvertíð í haust. „Að vísu var sáralftil áta útaf Norðurlandi í vor og það voraði mjög seint,“ sagði Jakob. „Við erum náttúrulega óró- legir út af þessu. Eins árs gömul loðna hefur verið mæld undanfarin sex eða sjö ár og árgangurinn, sem á að vera í veiðinni núna, á að vera mjög þokkalegur." Jakob sagði að Bjarni Sæmundsson og Árni Frið- riksson, skip Hafrannsóknastofn- unar, færu í árlegan loðnuleiðangur 1. nóvember næstkomandi. Jón Reynir Magnússon sagði að Jón Kjartansson SU og Harpa RE hefðu fengið olíu hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins í haust fyrir 400 þúsund krónur, hvort skip, til að íeita að loðnu. „Við erum orðnir langeygðir eftir loðnu og þessi langi tími á milli vertíða fer náttúrulega ekki vel með fjárhaginn hjá okkur,“ sagði Jón Reynir. Hann sagðist halda að verksmiðjurnar væru ekki farnar að greiða sektir vegna þess að þær gætu ekki uppfyllt fyrir- framsamninga. „Það hefur afskap- lega lítið verið selt fyrirfram af loönu í ár og ég hygg að ekki þurfi að afgreiða loðnuafurðir fyrr en í nóvember," sagði Jón Reynir. Jón Kjartansson SU og Börkur NK leituðu að loðnu norðan við miðlínuna á milli Islands og Græn- lands á þriðjudag, svo og leitaði Harpa RE norður af Húnaflóa. Staumsvík: Stækkun hafnarinnar kostar 200 milljónir BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar hefiir ákveðið að hafnarbakkann í Straumsvíkurhöfn verði Iengd- ur um 120 metra verði af stækk- un Álversins í Straumsvík. Að sögn Guðmundar Árna Stefáns- sonar bæjarstjóra, er áætlaður kostnaður talinn vera um 200 milljónir króna. „Forsenda lengingarinnar er stækkun Álversins," sagði Guð mundur Árni. „Endanleg hönnui liggur ekki fyrir en hún verðu gerð í samráði við væntanlegi eignaraðila. Þessa dagana erum vii að átta okkur á hvað það er sen þeir telja sig þurfa. Endanlegu kostnaður liggur því ekki fyrir et hann verður væntanlega ekki undi 200 milljónum króna.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.