Morgunblaðið - 18.10.1989, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 18.10.1989, Qupperneq 21
MOÉÖlíNklMÐlÐ MlÖVIKUDAGUR 18. 0KTÓBER 'ig89 2^ Turgut Ozal Tyrkland: Ozal í framboð til forseta Ankara. Reuter. TURGUT Ozal, forsætisráð- herra Tyrklands, tilkynnti í gær að hann yrði í framboði í forseta- kjörinu, sem hefst á þinginu í Ankara á föstudag. Miklar líkur eru taldar á að Ozal beri sigur úr býtum í kjörinu þar sem flokk- ur hans hefur 289 þingmenn af 450. Ozal var í gær sá eini sem tilkynnt hafði framboð, en frest- urinn til þess rennur út á morg- un. Sex bíða bana í eldsvoða í Ank- ara SEX manns biðu bana og ellefu slösuðust þegar eldur braust út eftir að bensínbrúsi hafði sprungið á skemmtistað í mið- borg Ankara í gærmorgun. Talið er að mennirnir hafi allir starfað á skemmtistaðnum og sofið þar eftir að honum var lokað um nóttina. Banamein þeirra sem létust var reykeitrun. Danmörk: Átök á milli lög- reglu og mót- mælenda Kaupmannahöfn. Reuter. NÍU manns urðu fyrir meiðslum og fimm voru handteknir þegar óeirðalögregla kvað niður mót- mæli 300 íbúa Kristjaníu í mið- borg Kaupmannahafnar á mánudagskvöld. Til átaka kom á milli lögreglunnar og mótmæ- lenda eftir að heimatilbúin sprengja hafði sprungið fyrir utan banka. Pjórar heimatilbún- ar sprengjur fundust síðar í grenndinni. Mótmælendurnir, sem flestir hveijir hafa lagt und- ir sig húsnæði í Kristjaníu, beittu lurkum og steinum í átökunum. Þeir voru að mótmæla mengun og kynþáttahatri, auk þess sem þeir kröfðust friðar í heiminum. Blökkumenn tilbiöji svartan Jesúm Lundúnum. Rcutcr. MUHAMMAD Ali, fyn-um heimsmeistari í hnefaleikum, tel- ur að kristnir svertingjar eigi að tilbiðja sinn eigin Jesúm, svartan á hörund, að því er breska dagblaðið Sun skýrði frá í gær. Ali segir að þeir sem lýsi Jesú, englunum og dýrlingunum sem hvítum séu aðeins að renna stoðum undir kenninguna um yfirburði hvíta kynstofnsins og telja svertingjum trú um að þeir séu óæðri. Talsmaður katólsku kirkjunnar kvaðst aðspurður vera þeirrar skoðunar að þar sem Jesús hafi verið frá Mið-Austurl- öndum hafi hann verið nokkuð sólbrúnn - en þó ekki svartur. Óvissa í dönskum stjórnmálum: Yiðræðum stjóm- arinnar ogjafn- aðarmanna slitið Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaösins. VIÐRÆÐUFUNDUR minnihlutastjórnar Pouls Schliiters og fulltrúa jafnaðarmanna um efiiahagstillögur stjórnarinnar varð árangurslaus í gær og var honum slitið eftir skamma hríð. „Það er tilgangslaust að halda þessu áfram,“ sagði Schliiter og bætti því við að svo langt væri á milli sjónarmiðanna að ekki væri hægt að búast við samkomu- lagi. Stjórn borgaraflokkanna mun meta stöðu sína næstu daga en mörg dagblöð telja líklegt að nýjar þingkosningar verði í janúar. Svend Auken, leiðtogi jafnaðar- manna, sagði að viðræðurnar hefðu aldrei hafist í alvöru. „Okkur voru veittir þeir kostir að samþykkja eða hafna tillögum stjórnarinnar. Slíkum málatilbúnaði urðum við að hafna þótt við værum komin til að ræða um alvarlegt ástand í efna- hagsmálum landsins," sagði Auken. Stjómin getur nú lent í erfiðleikum með að fá fjárlagafmmvarpið sam- þykkt í þinginu nema hún semji um stuðning Framfaraflokksins. Því hafa borgaraflokkarnir sem standa að stjórninni til þessa hafnað vegna skilyrða Framfaraflokksins fyrir stuðningi. Framfaraflokkurinn er yst til hægri í dönskum stjórn- málum. Fyrr í mánuðinum urðu manna- breytingar í stjórninni. Kent Kirk frá Esbjerg, sem var áður talsmað- ur íhaldsflokksins á þingi, tók við stöðu sjávarútvegsráðherra en hann er umsvifamikill útgerðarmaður. Kirk vakti mikla athygli árið 1983 er hann sigldi togskipi sínu inn í breska fiskveiðilögsögu til að mót- mæla meintum brotum Breta á samningum Evrópubandalagsins um gagnkvæm fiskveiðiréttindi. Var hann færður til hafnar í Bret- landi fyrir vikið. Kirk var þá þing- maður á Evrópuþinginu en ári síðar var hann kjörinn á danska Þjóð- þingið. Lars Gammelgaard, sem áður var sjávarútvegsráðherra, tek- ur við stöðu formanns þingflokks íhaldsmanna en forveri hans í því starfi, Hans Engell, varð dóms- málaráðherra í stað H.P. Clausens er tók við stöðu forseta Þjóðþings- ins. Erik Ninn-Hansen, fyrrum dómsmálaráðherra, hafði verið ætl- uð sú staða en hann varð að víkja eftir harðar deilur vegna lagasetn- ingar um réttindi innflytjenda. Við stöðu Kents Kirks sem tals- maður á þingi tók nú Connie He- degaard, sem er aðeins 29 ára að aldri. Hún er dóttir söluturnseig- anda á Sjálandi, þykir vera fram- takssöm og eiga gott með að koma fyrir sig orði. Reuter Sprengjutílræði íkólumbískri borg Fjórir létust og sjö manns særðust þegar bílsprengja sprakk á mánu- dag fyrir utan ritstjórnarskrifstofur dagblaðsins Vanguardia Liberal í borginni Bucaramanga, í um 300 km fjarlægð frá höfuðborg Kól- umbíu, Bogota. Grunur leikur á að eiturlyfjasalar hafi staðið að baki sprengingunni. Þetta er alvarlegasta tilræði eiturlyfjasala gegn kól- umbískum dagblöðum til þessa. Sprengjan, sem gerð var úr 50 kg af dínamíti, sprakk í dagrenningu fyrir utan aðalinngang dagblaðsins. Hinir látnu voru allir starfsmenn dagblaðsins svo og fjórir hinna særðu. Þingkosning- ar boðaðar í Indlandi Nýju Delí. Rcuter. STJÓRN Rajivs Gandhis í Indlandi ákvað í gær að boða til kosninga 22. nóvember nk. og tveim dögum síðar verður síðan kosið í nokkr- um afskekktum kjördæmum. Gandhi hefur aflýst för sinni á leiðtogafúnd ríkja breska sam- veldisins sem hefst í Kuala Lump- ur, höfúðborg Maiasíu, á morgun. Gandhi hefur sætt sívaxandi gagn- rýni vegna ásakana um hlutdeild háttsettra ráðamanna í Bofors- mútuhneykslinu sem valdið hefur hörðum deilum í Indlandi í tvö ár. Framan af var ekki talið að Gandhi hefði sjálfur átt neinn þátt í lög- brotum en undanfarnar vikur hafa dagblöð gefið í skyn að forsætisráð- herrann væri ekki með alveg hreinan skjöld. Stjórnarandstæðingar hafa hundsað fundi neðri deildar þingsins síðustu mánuði og krafist afsagnar Gandhis. ÁRVÍK ABMÚLI 1 -BEYKJAVlK- SlMI 687222 -TELEFAX 687295 BEGA útiljós Bjartari framtíö Það sem gerir byggingu að listaverki er lýsingin og þar er Bega i fyrsta sæti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.