Morgunblaðið - 18.10.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 1989.
25
Morgunblaðið/Árni Helgason
Héraðsráð Snæfellinga frá vinstri: Guðmundur Albertsson, Gunnar
Már Kristófersson, Sturla Böðvarsson, Guðbjartur Gunnarsson,
Kristján Guðmundsson og Stefán Jóhann Sigurðsson.
Stykkishólmur:
Héraðsnefiid Snæ-
fellsnes- og Hnappa-
dalssýslu stofiiuð
Stykkishólmi.
STOFNFUNDUR Héraðsnefiidar Snæfellinga var haldinn nýlega. Hér-
aðsneíndin tekur við eignum og skuldum sýslunefndar. Öll sveitarfélög
í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu eru stoftiaðilar, þau eru Neshrepp-
ur utan Ennis, Ólafsvíkurkaupstaður, Fróðárhreppur, Eyrarsveit,
Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Skógarstrandarhreppur, Kolbeins-
staðahreppur, Éyjahreppur, Miklaholtshreppur, Staðarsveit og
Breiðuvíkurhreppur.
Sveitarfélögin gerðu sérstakt
samkomulag um meðferð eigna sýsl-
unnar. Rekstur byggðasafna verður
helsta sameiginlegra rekstrarefni
héraðsnefndar. Samkv. samþykkt-
um héraðsnefndar eru helstu verk-
efnin sem héraðsnefndum er falið
með lögum: Samgöngumál, skóla-
og félagsmál, almannávarnir og ör-
yggismál, svæðaskipulag og
byggðaáætlanir, heilbrigðismál,
safna- og menningarmál, sameigin-
leg hátíðahöld í héraðinu og önnur
sveitarstjórnarmál sem varða sýsl-
una í heild svo og tillögur um hvað-
eina, sem verða má Snæfellingum
til gagns og framfara.
Formaðúr héraðsnefndar Snæfell-
inga var kjörinn Sturla Böðvarsson
bæjarstjóri í Stykkishólmi en í hér-
aðsráð voru kjörnir auk formanns
þeir Gunnar Már Kristófersson sveit-
arstjóri á Hellissandi og Guðbjartur
Gunnarsson oddviti í Miklaholts-
hreppi sem aðalmenn og til vara
Stefán Jóhann Sigurðsson bæjarfull-
trúi í Ólafsvík, Kristján Guðmunds-
son oddviti á Grundarfirði og Guð-
mundur Albertsson oddviti Kolbeins-
staðahrepps.
Á fundinn mættu fyrir hönd sýslu-
nefndar þeir Jón Magnússon sýslu-
maður og bæjarfógeti og Gissur
Tryggvason ritari sýslunefndar. Af-
henti sýslumaður formanni héraðs-
nefndar eignir sýslunefndar og ýmsa
sjóði sem héraðsnefndin tekur við.
- Árni
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 17. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verðfkr.)
Þorskur 85,00 35,00 71,36 2,529 180.487
Þorskur(ósl.) 35,00 35,00 35,00 0,016 543
Þorskur(smár) 47,00 47,00 47,00 0,167 7.849
Ýsa 105,00 98,00 103,28 2,878 297.240
Ýsa(ósL) 94,00 94,00 94,00 2,090 196.460
Ýsa(smá) 25,00 25,00 25,00 0,244 6.101
Ufsi 45,00 38,00 44,47 1,406 62.504
Ufsi(ósL) 38,00 38,00 38,00 0,023 874
Steinbítur 76,00 60,00 72,57 1,524 110.590
Langa 46,00 40,00 44,24 0,875 38.710
Langa(ósl.) 40,00 40,00 40,00 0,047 1.880
Lúða 190,00 180,00 182,47 0,142 25.911
Samtals 75,64 12,460 942.375
I dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 86,00 30,00 79,52 13,680 1.087.834
Ýsa 113,00 80,00 104,38 12,465 1.301.001
Karfi 42,00 40,00 40,81 5,858 239.065
Karfaflök 132,50 132,50 132,50 0,200 26.500
Ufsi 45,00 38,00 44,78 13,984 626.203
Steinbítur 67,00 49,00 57,91 0,285 16.503
Hlýri+steinb. 50,00 50,00 50,00 1,433 71.650
Hlýri 45,00 45,00 45,00 0,160 7.200
Langa 50,00 50,00 50,00 2,616 130.792
Luða 250,00 75,00 202,12 0,403 81.455
Skötuselur 185,00 185,00 185,00 0,160 29.600
Samtals 63,76 51,551 3.631.324
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 80,00 49,00 74,03 17,303 1.281.013
Þorskur(umál) 50,00 49,00 49,55 0,132 6.541
Ýsa 112,00 52,00 103,42 4,927 509.571
Karfi 40,50 30,00 38,70 1,404 54.328
Ufsi 43,00 15,00 28,03 0,754 21.136
Steinbitur 47,00 35,00 41,17 0,211 8.687
Langa 32,00 20,00 27,54 0,886 24.400
Lúða 300,00 70,00 219,14 0,041 8.875
Keila 20,50 10,00 17,72 1,282 22.720
Tindaskata 8,50 8,50 8,50 0,334 2.839
Samtals 70,97 27,553 1.955.365
Selt var úr Þorsteini Gíslasyni GK, Víði KE, Jóni Garðari KE og
Sæmundi HF. I dag verður selt úr línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 9. til 13. október.
Þorskur 121,81 17,934 2.184.493
Ýsa
Ufsi
Karfi
Grálúða
Samtals
114,41 2,710
89,14 51,560
87,22 487,554
117,66 1,650
87,00 592,536
310.042
4.596.072
42.525.052
194.142
51.550.159
Selt var úr Engey RE 9. október, Ljósafelli SU 11. október og
Víði HF 12. október. Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven.
„Neyðar-
fundur“
um málefhi
geðsjúkra
KIWANISHREYFINGIN á ís-
landi efiiir til „neyðarfundar“
um málefni geðsjúkra í dag.
Fundurinn er á Hótel Borg og
hefst kl. 17. Til fundarins er
boðið alþingisinönnuin, borgar-
fúlltrúum, embættismönnum,
íbúum sambýla og áfangastaða,
starfsfólki í geðheilbrigðiskerf-
inu ö.fl. Fundirinn er öllum op-
inn.
Sex sérfræðingar flytja stutt
erindi á fundinum: Bjarney Kristj-
ánsdóttir, yfirfélagsráðgjafi á
Landsspítalanum, Bragi Guð-
brandsson, félagsmálastjóri í Kópa-
vogi, Jón G. Stefánsson, yfirlæknir
á geðdeild Landsspítalans, Magnús
Þorgrímsson, sálfræðingur og for-
maður Geðhjálpar, Margrét
Bárðardóttir, sálfræðingur á
Kleppsspítala og Ólafur Ölafsson
landlæknir.
Á laugardaginn munu Kiwanis-
menn svo selja K-lykilinn til styrkt-
ar geðsjúkum en hagnaði af söl-
unni verður varið til byggingar
sambýlis í Reykjavík.
Þjóðviljinn á
laugardögum
FRAMKVÆMDASTJÓRN Þjóð-
viljans hefúr ákveðið að endur-
vekja laugardagsblaðið. Vegna
samdráttar í útgáfu blaðsins í
apríl sl. var ákveðið að fella blað-
ið niður.
„Við höfum náð útgjölduni niður
og staðan er mun betri nú. Auk
þess lofuðum við því að þetta yrði
ekki til langframa," sagði Árni
Bergmann, ritstjóri Þjóðviljans.
Blaðið verður með svipuðu sniði
og virka daga en fastir þættirverða
í laugardagsblaðinu, að sögn Árna.
Vetrarfundur
SÍR og SÍH
VETRARFUNDUR Sambands
íslenskra rafveitna og Sambands
íslenskra hitaveitna verður hald-
inn að Hótel Loftleiðum 19. og
20. október næstkomandi.
Á vetrarfundinum verða flutt
fjölmörg erindi, og auk þess munu
sérstakir umræðuhópar fjalla um
ákveðin málefni. Þá mun Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra ávarpa
fundargesti.
Selfoss:
Sigurdur Einars-
son í Listasafiiinu
Selfossi.
SIGURÐUR Einarsson opnaði
málverkasýningu í Listasafni
Árnesinga laugardaginn 14.
október. Myndefiii Sigurðar er
landið og fólkið.
Á sýningu Sigurðar eru 30 smá-
myndir auk 17 olíumynda á striga
og stór vatnslitamynd. Sigyirður
hefur haldið þrjár einkasýningar,
eina á Hornafirði og tvær í Þrasta-
lundi. Hann hefur sýnt fimm sinn-
um með Myndlistarfélagi Árnes-
sýslu og átti myndir á sumarsýn-
ingu Gallerís Nýhafnar í Reykjavík
í júlí.
Sýning Sigurðar er opin daglega
klukkan 17.00-19.30 og lýkur 22.
október.
— Sig. Jóns.
Afhenti trúnað-
arbréf
Nýlega afhenti Hjálniar W.
Hannesson, sendiherra, Dr. Kurt
Waldheim, forseta Austurríkis,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Austurríki, með aðsetri í
Bonn.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hallgrímur Sigurðsson og Saga Jónsdóttir i Frúnni í Hamborg.
Vestmannaeyjar:
Arnarflug sækir
um áætlunarleyfi
V estmannaeyj u m.
ARNARFLUG efndi fyrir
skömmu til kynningar á starf-
semi sinni í Eyjum. Kynningin
fór fram á veitingastaðnum Mun-
inn en einnig var fólki boðið í
flugferð með Dornier-vél félags-
ins. Arnarflug hefúr nú sótt um
leyfi til áætlunarfiugs til Vest-
mannaeyja, en um næstu áramót
rennur núverandi áætlunarleyfi
út.
Á kynningu félagsins var aðal-
áhersla lögð á að kynna áætlunar-
staði félagsins erlendis. Bæklingar
með upplýsingum lágu frammi og
á staðnum var Frúin í Hamborg,
sem tók á móti gestum á skemrhti-
legan hátt, og hengdi í þá merki
og ýmislegt skraut.
Áuk þess að kynna millilanda-
flug félagsins þá var einnig í gangi
kynning á innanlandsdeild Arnar-
flugs. Arnarflug hefur um nokk-
urra ára skeið haldið uppi áætíun-
arflugi til ýmissa staða innanlands.
Nú hyggjast þeir auka þá starfsemi
sína og hafa sótt um leyfi til áætl-
unarflugs til Eyja. Arnarflug hefur
staðið fyrir undirskriftasöfnun í
Eyjum af þessu tilefni og hefur
fjöldi Eyjamanna skrifað undir
meðmæli með því að félagið fái
leyfi til áætlunarflugs til Eyja.
Þegar kynning félagsins stóð í
Eyjum var bæjarstjórninni og fleir-
um boðið til flugs með Dornier-vél
félagsins, en þeir hyggjast nota
slíkar vélar í flugið til Eyja ef leyf-
ið fæst.
Grímur
Ný verslun með
náttúrusteina
BERGLIST, ný sérverslun með
náttúrusteina og skartgripi úr
náttúrusteinum, hefur verið opn-
uð á Laugavegi 11 við Smiðju-
stíg.
Þar verður einnig ýmislegt ann-
að á boðstólum, meðal annars
heilsusnakk og drykkir.
Opnunartími er milli klukkan 1
og 6 virka daga. Eigandi er Leifur
Leopoldsson.
landsflugi sem bæði sýmr þraut-
seigju varðandi þjónstu við hina
smærri staði á landsbyggðinni svo
og sérstaklega mikilli þjónustu-
tryggð við Siglfirðinga. Daglegt
flug Arnarflugs innanlands hf. til
hinna minni staða á landsbyggðinni
er mjög mikilvægt í sambandi við
vöxt og viðgang hvers sveitarfé-
lags.
Bæjarráð Siglufjarðar skorar því
á háttvirtan samgöngumálaráð-
herra, Steingrím J. Sigfússon, að
veita Arnarflugi innanlands hf.
fleiri sérleyfi til að fljúga á og með
því treysta framtíðarrekstur fé-
lagsins.
Aukin verkefni með fleiri sér-
leyfuni gerir félaginu kleift að end-
urnýja flugvélakost sinn og um leið
auka enn frekar og bæta þjón-
ustuna við þau sveitarfélög sem
Arnarflug nþ þjónar, íbúum sveit-
arfélaganna til mikilla hagsbóta.
Bæjarráð Siglufjarðar veitir
Arnarflugi innanlands hf. bestu
meðmæli sín fyrir góða og trygga
þjónustu á undanförnum árum og
væntir þess að njóta sömu þjónustu
. og áður og vonar um leið að fleiri
sveitarfélög á landsbyggðinni fái
notið hennar á komandi árum.“
- mj
Námskeið í
kvennaft’æðum
HELGA Siguijónsdóttir, heldur
námskeið í kvennafræðum, um
sögu kvennabaráttu, stefnur og
strauma í kvennapólitík, kvenna-
inenningu og fleira í Menntaskól-
anum í Kópavogi við Digranes-
veg næstu vikurnar.
I næstu viku
hefst sex vikna
byijendanám-
skeið fyrir kon-
ur og flögurra
vikna frani-
haldsnámskeið
fyrir þær konur
sem hafa verið
áður á nám-
skeiðum hjá Helgu. Kennt er eitt
kvöld í viku á hvoru námskeiði,
tveir og hálfur til þrír tímar í senn.
Auk þess geta kvennahópar og
aðrið námshópar pantað sérstakt
námskeið.
SigluQörður:
Styðja umsókn
Arnarflugs
Siglufirði.
BÆJARRÁÐ Siglufjarðar hefúr
lýst yfir trausti sínu og ánægju
með að Arnarflug innanlands hf.
skuli sækja um endurnýjun á
flugsérleyfi sínu á leiðinni
Reykjavík-Siglufjörður-Reykja-
vík.
I samþykki bæjarráðsins segir:
„Arnarflug hefur í fjölda mörg ár
þjónað Siglfirðingum vel og dyggi-
lega með reglubundnum beinum
ferðum milli Reykjavíkur og Siglu-
fjarðar og flugmenn félagsins búa
yfir allt að 30 ára reynslu á innan-
Mæisku- og rök-
ræðukeppni ITC
FYRSTA mælsku- og rökræðu-
keppni III ráðs ITC á starfsárinu
1989-1990 verður baldin í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi,
A-sal, klukkan 14, sunnudaginn
22. október 1989
ITC Ösp frá
Akranesi legg-
ur fram þá til-
lögu að göng
verði lögð undir
Hvalfjörð og
hafist verði
handa strax í nóvember 1989
ITC Melkorka styður tillöguná
en ITC Ösp er á móti.