Morgunblaðið - 18.10.1989, Page 29

Morgunblaðið - 18.10.1989, Page 29
MORGJJNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 1989 Sambýli: Lokaskrefið í endur- hæfingu geðsjúkra Geðverndarfélag íslands er 40 ára um þessar mundir. Tilgangur þess hefur einkum verið að vinna að bættum aðbúnaði og meðferð geðsjúkra og efla þá þjónustu sem heilbrigðiskerfið veitir. Um mörg undanfarin ár hefur Geðverndarfé- lagið beitt sér fyrir uppbyggingu endurhæfingarþjónustu fyrir geð- sjúka. Geðverndarfélagið hefur hins vegar yfir engu íjármagni að ráða öðru en því sem kemur frá fólkinu í landinu. Geðsjúkdómar og geðræn vandamál eru það algeng, að flestir þjóðfélagsþegnar hafa af þeim bein eða óbein kynni. Með aukinni fræðslu og opnari umræðu hefur óttinn við þessa sjúkdóma smám saman vikið fyrir velvild almenn- ings til úrbóta á þessu sviði og áhuga fyrir því að leggja geðsjúkum lið. Þetta hefur hvað skýrast komið fram í starfi Kiwanis-hreyfingar- innar á íslandi, sem hefur tekið þessi mál upp á sína arma í sam- vinnu við Gerðverndarfélagið og beitt sér fyrir fjársöfnun til stuðn- ings málefnum geðsjúkra. Viðbrögð almennings hafa orðið frábærlega góð og mikið fé safnast. Var það í fyrstu lagt til uppbyggingar endur- hæfingaraðstöðu við Kleppsspítal- ann, en síðan í byggingu áfanga- staðar fyrir geðsjúka í endurhæf- ingu í Álfalandi 15 í Reykjavík, sem tók til starfa fyrir nokkrum árúm. Fyrir 40 árum, þegar Geðvernd- arfélagið var stofnað, var Klepps- spítalinn eina geðsjúkrahúsið á landinu. Þá var meiri hluti legurýma bundinn af langlegusjúklingum, sem við þáverandi aðstæður áttu litla möguleika á að komast út í lífið á nýjan leik. Þetta takmarkaði mjög þann hóp sjúklinga sem hægt var að sinna, og sjúklingar sem útskrifuðust á ári hveiju fylltu vart hundraðið. Síðan hafa orðið stórstígar framfarir í lækningum geðsjúkra hvað snertir lyfjameð- ferð, sállækningar og félagslegar aðgerðir. Þótt leguplássum hafi fækkað á þessum tíma, hefur að- búnaður allur stórbatnað og nú fara um 1700 innlagðir sjúklingar 1 gegnum meðferð á Geðdeild Land- spítalans (en Kleppsspítaiinn er nú hluti af henni) á ári hverju, auk mikils fjölda sem sækir göngudeild- arþjónustu. Þessi árangur hefur m.a. náðst með síaukinni áherslu á endur- hæfingu geðsjúkra, bæði með að- gerðum til að koma í veg fyrir að sjúklingar staðni í sjúkdómsástandi sínu og með því að þjálfa til sjálfs- hjálpar þá sem lengi hafa dvalið á geðdeildum vegna varanlegra geð- sjúkdóma. Þannig hefur tekist að fækka langlegusjúklingum á geð- deildum. Við þetta hefur meðferð- arkeðjan teygst út fyrir veggi sjúkrahússins, en lokaþáttur hennar er að skila þjóðfélaginu fólki, sem getur lifað sjálfstæðu og hamingju- sömu lífi á eigin heimilum og í at- vinnulífinu. Flestir sjúklingar sem leggjast inn á geðdeildir fara heim og til fyrra lífs eftir að hafa fengið með- ferð á móttöku- og meðferðardeild- um. Nokkur hópur er þó haldinn þrálátum og langvarandi sjúk- dómum, sem gerir þá ófæra að lifa sjálfstæðu lífi og margir þeirra eiga ekki heimili eða fjölskyldu, sem hefur aðstöðu til að taka við þeim. Margir þessara sjúklinga hefðu áð- Brids Arnór Ragnarsson Bridsdagur í Keflavík Bridsfélag Suðurnesja gengst fyrir Bridsdegi í Keflavík laugardaginn 21. október í sal Karlakórs Keflavíkur í Vesturbraut 17 (KK-húsið). Hátíðin hefst með aðalfundi félags- ins kl. 13.00 og strax að honum loknum verður keppni í tvímenningi þar sem peningaverðlaun eru í boði. Þátttöku- gjald er kr. 500 á spilara. 1. verðlaun verða 6.000 krónur, 2. verðlaun 4.000 kr. og 3. verðlaun 2.000 kr. Kl. 19.30 hefst síðan árshátíð félags- ins á sama stað þar sem borðaður verð- ur tvíréttaður hátíðamatur og strax eftir borðhald verða verðlaun fyrir síðasta keppnistímabil afhent. Eftir verðlaunaafliendingu er svo farið niður í Glaumberg og horft á skemmti- og rokksýninguna Rokk, sviti og pilsaþyt- ur. Verð er aðeins kr. 2.500 á mann. Stjórnin hvetur alla meðlimi félags- ins til að tilkynna þátttöku til Jóhannes- ar Sigurðssonar í síma 12621, Heiðars Ragnarssonar í síma 14810 og Þórðar ur orðið langlegusjúklingar. Nú er hins vegar lögð áhersla á að skapa sem best skilyrði til endurhæfingar þeirra, svo að þeir geti snúið til hins daglega lífs utan spítalans á ný- Endurhæfingin hefst inni á sjúkrahúslnu á áfangadeildum, þar sem þeir eru þátttakendur í daglegu iífi, samveru og samvinnu fólksins á deildinni og taka á sig ábyrgð og skyldur, eins og hvert annað heimilisfólk. Þeir fá tækifæri til að þjálfa huga og hönd í iðjuþjálfun, og á dagdeildinni geta þeir sótt markviss námskeið í félagslegri þjálfun og sjálfshjálp. í tengslum við geðdeildirnar er einnig rekið fyrirtæki, Bergiðjan, sem framleiðir vörur, sem þegar hafa unnið sér tryggan sess á almennum markaði. Þetta er verndaður vinnustaður, þar sem sjúklingum gefst kostur á að sækja vinnu og fá þar starfsþjálf- un, sem býr þá undir störf á hinum almenna vinnumarkaði. Margir dveljast einnig um lengri eða skemmri tíma á Reykjalundi, þar sem markviss endurhæfing af þessu tagi fer fram. Næsta skref endurhæfingarinnar er áfangastaður utan sjúkrahúss- Kristjánssonar í síma 14441. Einnig er áhugafólki um brids bent á þetta góða tækifæri til að horfa á og kynna sér hvernig keppnisbrids fer fram. Stórmót í parakeppni Laugardaginn 18. nóvember verður haldið sjlfurstigamót í parakeppni, hið fyrsta sinnar tegundar i sögu brids- íþróttar á íslandi. Mótshaldari er Brids- klúbbur hjóna, fyrirkomulag og stiga- gjöf er samkvæmt reglum Bridssam- bands íslands. Spilaður er barómeter með tölvuútreikningi. Verðlaun sem veitt verða eru: 1. kr. 80.000. 2. kr. 50.000. 3. kr. 30.000. 4. kr. 15.000. Helmingur allra verðlauna verða peningaverðlaun ti! parsins sem daman tekur á móti fyrir hönd parsins. Síðari helmingur verðlaunanna skiptist í tvennt, annar helmingur sér verðlaun til dömunnar og hinn helmingur sér verðlaun til herrans. Spilastaður er Sigtún 9. Skráning í mótið er í síma Bridssambandsins. Gylfi Ásmundsson „Kiwanis-hreyfingin ætlar nú enn á ný að beita sér fyrir flársöfn- un í þágu geðsjúkra, og hefiir verið ákveðið að verja fénu til stofnunar sambýlis fyrir þá sem hafa lokið endurhæf- ingu vegna geðsjúk- dóma.“ ins, nokkurs konar verndað heimili, þar sem vistmönnum gefst tæki- færi, undir nauðsynlegri leiðsögn og stuðningi, til að læra að taka ábyrgð á sjálfum sér, eigum sínum og fjármálum, að umg-angast og mynda tengsl við aðra innan og utan heimilisins, að venjast því að 1 fara út að vinna, mæta á réttum tíma og standa við skuldbindingar sínar, svo eitthvað sé nefnt. Lokaskrefið er síðan að hverfa til síns heima og skapa sér sjálf- stæða tilveru. Það skref getur þó orðið mörgum hið erfiðasta eftir langvarandi vernd. Því er hætt við að heimilið, sem átti aðeins að vera áfangastaður á leiðinni, ver§i dval- arstaður til lengri tíma. Þar með teppist leiðin fyrir aðra, sem þurfa að fara þessa endurhæfingarleið. Á þessu verður að finna lausn, sem hjálpar þessum einstaklingum að eignast eigið heimili og um leið greiðir fyrir endurhæfingu annarra sjúklinga. Kiwanis-hreyfingin ætlar nú enn á ný að beita sér fyrir fjársöfnun í þágu geðsjúkra og hefur verið ákveðið að veija fénu til stofnunar sambýlis fyrir þá sem hafa lokið endurhæfingu vegna geðsjúkdóma. Á síðustu árum hafa verið stofn- uð sambýli fyrir fólk úr hinum ýmsu hópum fatlaðra. Hér er um að ræða raunveruleg og varanleg heimili, þar sem 5-6 einstaklingar búa saman og hafa sameiginlegan heimilisrekstur. Ekki er minnst um vert, að þeir hafa félagsskap og stuðning hver af öðrum. Þessi sam- býli hafa gefist vel. og fyrir geð- sjúka að lokinni endurhæfingu virð- ist þetta vera hin ákjósanlegasta lausn, ef þau væru fyrir hendi. Með átaki Kiwanis-hreyfingarinnar og stuðningi almennings nú sem endranær verður stigið stórt'fram- faraspor í endurhæfingarmálum geðsjúkra. Höfitndur er sálfræðingur. íslandsmót kvenna og yngri spilara Skráning í íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi stendur nú yfir, en mótið fer fram helgina 21.—22. október. Spilaður er barómeter, með sömu spilum fyrir báðar keppnir. Keppnisstjóri er Agnar Jörgensen og reiknimeistari Kristján Hauksson. Rétt til þátttöku í yngri spilaramótinu hafa allir þeir sem fæddir eru 1. janúar 1965 og síðar. Vegna fyrirkomulags mótsins þar sem raða þarf spilum fyrir- fram, eru þeir sem hug hafa á að taka þátt í mótinu beðnir að skrá sig hið fyrsta i síma Bridssambandsins, 689360. Áætlað er að spilamennska hefjist kl. 13.00, laugardaginn 21. októ- ber. Ilw Jé SJÁLFSTŒDISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Aðalfundur sjálfstæðisfélagsins Ingólfs, Hveragerði verður haldinn laugardaginn 21. október á Hótel Örk, ráðstefnusal, kl. 17.00. Dagskrá; 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Kl. 19.00. Mæting á enska barnum fyrir sjálfstæðisfólk og maka þeirra. Kl. 20.00. Sameiginlegur kvöldverður. Árni Johnsen mætir með gitarinn og stjórnar fjöldasöng. Helgi Þorsteins og Kristinn Kristjáns þenja nikkurnar. Sýnum samstöðu og mætum öll. Stjórnin. Sauðárkrókur - sjálfstæðiskonur Fundur verður i Sjálfstæðiskvennafélagi Sauðárkróks i Sæborg mið- vikudaginn 18. október kl. 20.30. Fundarefni: 1. Ný afstaðinn landsfundur. 2. Jólabasar. 3. Önnur mál. Sjálfstæðiskonur verið velkomnar og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Þorsteinn og Davíð á Selfossfundi um þjóðmálin Fundur verður haldinn í Hótel Selfossi miðvikudaginn 18. okt. kl. 20.30. Þar munu Þorsteinn Pálsson, alþingismaður, formaöur Sjólf- stæðisflokksins, og Davíð Oddsson, borgarstjóri, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, ræða þjóðmálin og væntanlegar sveitarstjórnakosn- ingar. Fundurinn er öllum opinn. Sjálfstæðisfélögin á Suðurlandi og kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi. smá auglýsingar fÉLAGSLÍF □ GLITNIR 5989 18117 = 1 I.O.O.F. 9 = 17110188’/! = I.O.O.F. 7 = 17110187’/! = 8.I - 9.II. □ HELGAFELL 598910187 IV/V 2. Stúkan Einingin nr. 14 Fyrsti fundur vetrarins i Templ- arahöllinni i kvöld kl. 20.30. Haustdagskrá í umsjón hag- nefndar. Mætum öll. Æðstitemplar. ÉSAMBAND ISLEN2KRA ____f KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssambandið Almenn samkoma i sal kristni- boðssambandsins, Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð, i kvöld kl. 20.30. Mikill söngur og einsöngur. Friðrik Hilmarsson talar. Þu ert velkomin. Hörgshiíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma i kvöld kl. 20.00. M útívist Fjallaferð um veturnætur - óvissuferð! - 20.-22. okt. Ein af hinum sigildu, vinsælu Útivistarferðum. Upplýsingar og miðar á skrifstofu, Grófinni 1, kl. 12-18. Simar: 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist. IBÍj Útivist Myndakvöld Útivistar Fyrsta myndakvöld vetrarins verður haldið fimmtudaginn 19. október i Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi 109 og hefst kl. 20.30. Sýndar verða myndir ur Jökulsárgljúfri. Góðar kaffiveit- ingar i hléi. Sjáumst, Útivist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.