Morgunblaðið - 18.10.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 18.10.1989, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989 Minninff: Gunnar Eggert Júlíusson, nuddari Fæddur 8. ágúst 1959 Dáinn 8. október 1989 Þær eru æðimargar minningarn- ar sem sækja á hugann, nú þegar Gunnar vinur minn heldur á ókunna stigu. Þegar við kynntumst í Súðarvog- inum fyrir um 15 árum var oft unun að hlusta á laxveiðisögurnar frá Kjarrá þar sem Gunnar starfaði sem leiðsögumaður. Bílaáhuginn var okkur sameiginlegur og var Gunnar þar sem í öðra mikill keppn- ismaður og vann til verðlauna í bíla- íþróttum. Samt átti ballskákin hug hans seinni árin og vann hann verð- laun þar í september sl. í geysi- sterku móti. Þegar hinn alvarlegi sjúkdómur kom í Ijós fyrir ári, reyndi á karlmennsku hans. Unn- usta Gunnars, Jórunn, stóð eins og klettur við hlið hans allan tímann. Ástin flytur fjöll og þau uppskáru dásamlegt vor saman. Mörgum stundum eyddum við saman í bílskúrnum hjá mér í sumar. Áhugamál Gunnars voru m.a. dúfur, en aðstöðuleysi kom í veg fyrir áframhald. Hann gat töfrað fugl ofan úr tré, og lagni hans við hunda var aðdáunarverð. Gunnar lærði nudd' sem ævistarf og lauk meistarastigi þar í. Af hinum geysi- stóra hópi viðskiptavina mátti sjá hæfni hans. Gunnar var að ráðast í að opna nýja stofu ásamt Tomma vini sínum í World Class, Heilsu- ræktinni, þegar hann tók hinn illvíga sjúkdóm. Drottinn gaf og drottinn tók. í einlægri þökk við hinn æðsta höfuðsmið himins og jarðar sem gæddi Gunnar heitinn svo ríkulega þeim gáfum, sem bestu menn prýða og munu verða honum ljósið sem lýsir veginn um hulda heima. Elsku Jórunn, við Heiða vottum þér og fjölskyldunni okkar dýpstu samúðarkveðjur. Böddi og Heiða Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Okkur finnst það samt ósann- gjarnt þegar ungur maður í blóma lífsins er hrifinn brott úr þessu lífi. Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan hann varð þrítugur. Við ól- umst upp saman í nokkur ár hjá henni Guðrúnu ömmu okkar á Fjölnisvegi, og ég leit á Gunna sem litla bróður minn, enda kallaði ég hann alltaf Gunna bróður. Hann ólst síðan upp hjá móður sinni, Þrúði Pálsdóttur, og fósturföður, Þorgeiri Yngvasyni. Fyrir nokkrum mánuðum fluttu Gunni og Jórunn unnusta hans í nýja íbúð á jarðhæð hjá foreldram Gunna, þar sem Þor- geir hafði útbúið litla og fallega íbúð fyrir þau. Fyrir ári veiktist Gunni af alvarlegum sjúkdómi sem hann barðist hetjulega við og hann missti ekki trúna á lífið, enda hafði hann svo margt til að lifa fyrir. Það rofaði til í hans veikindum og allt virtist svo bjart framundan. Þá kom áfallið. Síminn hringdi hjá mér rétt eftir kvöldmat þann 8. okt., og Þrúður sagði mér að Gunni væri dáinn. Gunni þessi fallegi, bjarti ungi maður. Hann er hoffinn sjón- um okkar, en hann lifir í hjörtum okkar. Elsku Jórann, Deddý, Þorgeir, Júlíus og fjölskylda, systkini, börn og aðrir aðstandendur, mínar inni- legustu samúðaróskir til ykkar allra. Ég veit að þið hafið misst mikið, en hann skildi líka mikið eftir sig hjá ykkur. Ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Gunnrún og fjölskylda Mig langar að minnast hans Gunna, eins besta drengs sem ég hef á ævi minni kynnst, með þessu einfalda vísubroti sem bar fyrir augu mín fyrir mörgum árum og mér lærðist. Hún segir þó allt sem þarf að segja. Allar stundir okkar hér er mér Ijúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Höf. ókunnur). Elsku Fjölnir, Jórunn og aðrir aðstandendur, ég sendi mínar inni- legustu samúðarkveðjur í sorg ykk- ar. Jóna Margrét Guðmundsdóttir Við kveðjum vin okkar, Gunnar Eggert Júlíusson, með miklum söknuði og trega, og óneitanlega kemur sú stóra spurning í hugann af hveiju hann? En við fáum víst ekkert svar. Við huggum okkur við að honum hlýtur að vera ætlað eitthvað annað og meira þar sem hann er nú. Margar góðar minningar eigum t Eiginkona mín, MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR frá Kópaskeri, Hamraborg 14, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Þórhallur Björnsson. Sveina Sveinbjörns- dóttir - Minning t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu, við andlát' og útför eiginkonu minnar, móður, dóttur og tengdadóttur, HULDU RÓBERTSDÓTTUR, Sólbarði, Bessastaðahreppi. Sveinbjörn Hrafn Sveinbjörnsson, Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir, Björn Sveinbjörnsson, Margrét Sveinbjömsdóttir, Þórlaug Guðmundsdóttir, Róbert Bjarnason. Margrét Sveinsdóttir, Við jafn hörmuleg tíðindi, sem sviplegt og ótímabært andlát ungr- ar eiginkonu, móður og góðrar vin- konu, verður hugur manns alger- lega tómur í fyrstu. Því næst fyllist hann heitri samúð tii aðstandanda og fyrir þeim eru beðnar allar þ.ær bestu bænir sem maður á til. Smám saman taka sfðan minningarnar að leita á hug- ann. Ég minnist Sólveigar Sveinu, hér um slóðir var hún alltaf kölluð Sveina. Þær komu tvær, að vori til 1967, ungar kaupakonur nýkomnar í sveitina og börðu að dyrum heima + Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur vinarhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, JÓNS ÓSKARS PÁLSSONAR frá Seljanesi, Reykjabraut 9, Reykhólum. Ingibjörg Sveinsdóttir, PállJónsson, Unnur Stefánsdóttir, Sveinn Jónsson, Dagbjört Hafsteinsdóttir, Magnús Jónsson, Dagný Stefánsdóttir, Jón Hjálmar Jónsson, Svala Sigurvinsdóttir, Sesselja Jónsdóttir, Wivi Hassing, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, GUÐMUNDAR EIRÍKSSONAR BREIÐ. Sérstakar þakkir til starfsfólks á ellideild sjúkrahússins á Sauðár- króki. Jórunn Guðmundsdóttir, Svanhildur Sigfúsdóttir, Steindór Sigfússon, Guðmunda Sigfúsdóttir, Sindri Sigfússon, Jón Guðmundsson, Sigfús Steindórsson, Haukur Sigfússon, Jóhanna Óskardóttir, Jón Björn Sigurgeirsson, Erna Reynisdóttir, og barnabarnabörn. Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 19090 hjá mér. Sú ljósskolhærða með slétta hárið og toppinn næstum niðri í augum var svolítið feimin, en spurði þó með svo hýru brosi, hvort kaupakonan mín og sonur minn, sem voru á svipuðum aldri, vildu ekki koma út að labba með þeim. Þetta var fyrsta heimsóknin hennar Sveinu af ótal mörgum, bæði þetta tiltekna sumar og svo mörg eftir það, því að hún var eins og farfuglarnir, hún kom á vorin og fór á haustin lengst af. Við kynntumst vel á þessum árum, þegar unglingarnir gengu út og inn hjá mér í frístundum sínum og hlátrasköllin glumdu við, eða þegar ég fylgdist með þeim í fót- bolta á túninu fyrir utan eldhús- gluggann minn. Sveina var alltaf með sama hýra brosið og með tímanum náði brosið líka til augnanna, sem urðu svo hlý, þó að ekki væra höfð mörg orð um það. Árin liðu og unga stúlkan hætti að vera kaupakona. Það var svo margt fleira sem þurfti að gera, læra í almennum skóla og einnig í skóla lífsins. Hún kom samt oft til sinna fyrri húsbænda í sveitinni, þar sem hún undi sér svo vel og þá fengum við á mínum bæ líka oft heimsókn lengri eða skemmri, eftir því sem tíminn leyfði, stundum var hún mikið að flýta sér og var þotin á stundinni, en alltaf skildi við um góðan dreng, sem of langt yrði að telja upp hér en sérstaklega viljum við minnast þess að seinni- partinn í sumar fengum við að njóta þess að fá Gunnar og Jórunni með litla drenginn sinn til okkar í sumar- bústaðinn, og dvöldu þau hjá okkur í einn sólarhring í dásamlegu veðri, og var margt sér til gamans gert og erum við þakklát í hjarta okkar fyrir þessar samverustundir. Kæra Jórunn og Gunnar Eggert, og fjölskyldan að Súlunesi 10, Guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Kær kveðja, Nonni og Inga. Vegir Guðs eru órannsakanlegir, flaug í gegnum hugann, er ég frétti ótímabært lát góðs vinar og gam- als samstarfsmanns. í rétt eitt ár hafði Gunnar Eggert barist við skæðan sjúkdóm, sem hann ætlaði sér að yfii-vinna. Með trú sinni, vilja- styrk og bjartsýni að vopni, virtist honum ætlast að takast það, en svo kom snöggt bakslag, sem honum var um megn. Gunnar hóf verklegt nám 1981 í almennu nuddi á nudd- stofunni Sauna, Hátúni. Dugnaður hans og ósérhlífni voru í fyrirrúmi, verkin látin tala í orðsins fyllstu merkingu. Gunni starfaði síðan sjálfstætt með breiðan hóp við- skiptavina, m.a. í Sólarlandi (Hamraborg) og í Dansstúdíói Sól- eyjar. Réttindamál nuddara vora honum hugleikin og átti hann sinn þátt í því að endurvekja Félag íslenskra nuddara 1985, og sitja í stjórn þess fyrsta árið. Er það kald- hæðnislegt nú við fráfall hans, að loks hyllir endanlega undir lög- verndun félagsins. Hann var dagfarsprúður, hein- skilinn og glaðsinna í góðum félags- skap. Gunni hafði mikið dálæti af hún eftir hlýjan og hressandi and- blæ, sem fylgdi henni jafnan. Þó að Sveina tæki ástfóstri við Hranamannahrepp, þá var það norður i Þingeyjarsýslu sem hún settist að og þar voru hennar mestu hamingjudagar. Aldrei gleymdi hún þó gömlu kunningjunum. Jóiakortin komu reglulega og nokkur orð sem fylgdu jólakveðjunni, báru því glöggt vitni að þarna á indæla heimilinu sínu hafði hún fundið hamingjuna, hjá eiginmanni og börnum sínum elsku- legum. Þó að langt væri orðið á milli okkar gat maður alltaf átt von á að Sveina birtist einn góðan veður- dag, bara svona rétt í leiðinni, eins og hún sagði stundum og marga kveðjuna fékk ég frá henni eftir ýmsum leiðum. Svona var hún tryggur vinur. Nú er hún farin, að hausti, með farfuglunum líkt og fyrrum og eftir sitjum við hnípin, því að við vitum að hún hefur verið kölluð inn á lönd eilífðarinnar, og á þessari stundu skiljum við ekki tilganginn. Þessi fátæklegu orð eiga að vera kveðjuorð frá mér og börnum mínum, með þakklæti fyrir trygga vináttu. Við geymum hana í minn- ingunni. Ég bið Guð að halda verndar- hendi yfir börnunum hennar Sveinu og að hann gefi manninum hennar styrk í hans sáru sorg. Foreldrum hennar, systrum og öðrum aðstand- endum votta ég innilega samúð. Hvíli hún í friði. S.H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.