Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 35
að spila billjard og var þar á tíma- bili í fremstu röð'sem keppnismaður og margfaldur íslandsmeistari. Nokkur sumur var hann leiðsögu- maður erlendra laxveiðimanna í Kjarrá og hafði mikla ánægju af. A kveðjustund segja orðin lítið, minn- ingin mun ætíð lifa, um góðan dreng sem átti svo mikinn lífskraft og margt eftir ógert, en varð að gefa eftir við ofureflið. Félagsmenn FÍN minnast háns með virðingu og þökk, rhegi hann fá góða heimkomu. Okkar dýpstu samúðarkveðjur sendum við unn- ustu hans Jórunni, börnum, foreldr- um og aðstandendum öllum. Með von um að orð spámannsins Kahlils Gibrans megi verða þeim einhver huggun í sorg þeirra. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. F.h. Félags íslenskra nuddara, Oskar Jóhannesson. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 18/ OKTÓBER 1989 STURTUKLEFI M/ÖLLU! FLAIR STURTUKLEFI MEÐ ÖLLUM FYLGIHLUTUM Á HREINT FRÁBÆRU VERÐI KR: Suðurlandsbraut 20 • Sími 83833 1 11 1 1 Þarna sérðu Sigurbjörgu og Finn. Þau eru ó sjötugsaldri og alltaf að skemmta sér. Það er fátt sem aftrar þeim hjón- um frá því að láta gamla drauma rætast. Einn slíkur rættist um daginn, þegar þau komu á Péturstorgið í Róm. Þau eru ákveðin í því að nota tímann vel og kynnast helstu stórborgum heimsins á næstu árum, búa á bestu hótelunum og njóta þess sem hugurinn gimist. Samt eru þau ekki hátekjufólk. Þau eru hins vegar í viðskiptum við Fjárfestingarfélag íslands. Það gerir gæfumuninn.* *Finnur erfði litla íbúð foreldra sinna fyrir 10 árum og treysti sér ekki til þess að halda henni við og leigja hana út. Hann þóttist hins vegar vita að fasteign væri það eina sem héldi verðgildi sínu í þessu landi. Þess vegna þorði hann ekki að selja. Ekki fyrr en hann ákvað að leita ráða hjá sérfræðingunum hjá Fj árfestingarfélaginu: Finnur seldi íbúðina fyrir 20.000.000 krónur, eða 200.000 nýkrónur í júní 1979 og keypti spariskírteini ríkissjóðs. Arið 1985 voru þau orðin 2.721.000 kr. Fyrir þessa upphæð kaupir hann Kjarabréf og þegar þetta er ritað eru þau orðin 10.052.000 kr. Sigurbjörg og Finnur fá nú u.þ.b. eina mill- jón á ári í hreinar tekjur af Kjarabréfunum. Höfuðstólinn snerta þau ekki ennþá. Hann er varasjóðurinn þeirra. í>að má bæta því við að íbúð, svipuð og sú sem Finnur seldi, er um þessar mundir met- in á u.þ.b. 5.500.000 kr. en það er u.þ.b. helmingur þess sem hann á nú með aðstoð Fj árfestingarfélagsins. Þessar tölur eru raunverulegar, en nöfnin ekki. Hafðu samband, athugaðu hvort við getum aðstoðað þig. Ob FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSIANDS HF. HAFNARSTRÆTI • KRINGLUNNI ■ AKUREYRI 28566 689700 25000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.