Morgunblaðið - 28.10.1989, Side 4
4
<rvn ítjbodio .32 ;rv»v3r vnu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTGBER 1989
40. þing Landsambands hestamannafélaga:
Samkomulagið við
Eyfírðinga samþykkt
Samkomulag sem stjórn Landsambands hestamannafélaga gerði
við hestamannafélögin Funa, Létti og Hring í Eyjafirði um væntan-
lega inngöngu félaganna í LH var staðfest af ársþingi LH sem nú
er haldið á Hótel Ork í Hveragerði.
Hlaut samkomulagið einróma
stuðning þingheims eftir litla um-
ræðu þar sem til máls tóku Leifur
Jóhannesson fyrrverandi formaður
LH og Ragnar Tómasson. í sam-
komulaginu segir að stjórn LH
skuli strax að loknu þingi skipa
tvær fimm manna nefndir, önnur
sem taki til endurskoðunar skipu-
lag LH þar sem m.a. verði tekið
tillit til breyttra aðstæðna vegna
stofnunar Hestaíþróttasambands
íslands, breytinga á búfjárræktar-
lögum. Þá eigi hin nefndin að end-
urskoða framtíðarskipulag stór-
móta og verði þar ijallað um tillög-
ur Eyfirðinga þar að lútandi. Gert
er ráð fyrir að nefnd þessi muni
skila áliti fyrir náesta ársþing. Þá
segir ennfremur í samningnum að
stjóm LH muni tryggja við úthlut-
VEÐUR
un reiðvegafjár 1990 að Eyfirðing-
ar fái réttlátan hlut af þeim fjár-
munum verði félögin orðin aðilar
að LH.
Fyrsta skrefið í þá átt að Eyfirð-
ingar gangi til liðs við LH á nýjan
leik hefur nú verið stigið með sam-
þykkt ársþingsins á samningnum
og eiga stjómir eyfirsku félaganna
því næsta leik sem verður væntan-
lega að þær leggi fram tillögu á
aðalfundum félaganna um umsókn
um aðild að LH. Verði tillaga um
inngöngu samþykkt munu félögin
öðlast full réttindi innan LH frá
1. janúar sem þýðir að Eyfírðingar
verði gjaldgengir á Landsmótinu
næsta sumar sem og öðrum hesta-
mótum sem haldin verða í nafni
samtakanna.
Kvennalistakonur þinga í Básum í gær.
Landsfimdur Kvennalistans:
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Staða kvenna innan hag-
fi*æðinnar eitt höfiiðmálið
Selfossi.
STAÐA kvenna innan hagíræð-
innar er eitt af höfuðmálum 7.
Landsfundar Kvennalistans sem
fram fer um helgina. Onnur aðal-
IDAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa fslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 28. OKTOBER:
YFIRLIT í GÆR: Yfir Norðaustur-Grænlandi er-1.010 mb hæð en
allmikil 978 mb lægð á leið suðaustur og verður ó Grænlandshafi
á morgun.
SPÁ: Breytileg átt og léttskýjað í kvöld, en hætt við éljum á stöku
stað við suöur- og vesturströndina. Gengur í sunnankalda í nótt.
Áfram bjart veður norðan- og austanlands á morgun, en skýjað
og dálítil súld við suðurströndina. Veður fer hlýnandi.
VEÐURHORFUR NÆSW DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Vaxandi suðaustanátt og hlýnandi veð-
ur. Slydda og síðan rigning um sunnan- og vestanvert landið en
þurrt á Norðausturlandi.
HORFUR Á MÁNUDAG: Austan- og suðaustanstrekkingur og hlýtt
miðað vð árstíma. Rigning og súld um mest allt land, þó síst í inn-
sveitum norðanlands.
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og flaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\J Skúrir
* *
V El
= Þoka
— Þokumóða
» , » Súld
CO Mistur
—[- Skafrenningur
Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri +3 skýjað Reykjavík +1 léttskýjað
Björgvin 8 skúrir
Helsinki 8 hálfskýjað
Kaupmannah. 12 skýjað
Narssarssuaq +7 skýjað
Nuuk +1 skafrenningur
Ósló 9 léttskýjað
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 14 þokumóða
Barcelona 21 þokumóða
Berlfn 14 skýjað
Chicago 10 heiðskírt
Feneyjar 10 þoka
Frankfurt 18 heiðskírt
Glasgow 5 rigning
Hamborg 12 skýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 17 mistur
Los Angeles 12 heiðskirt
Lúxemborg 17 léttskýjað
Madríd 19 skýjað
Malaga 21 þokumóða
Mallorca 24 skýjað
Montreal 11 þoka
New York 13 mistur
Orlando 19 rigning
Paris 20 skýjað
Róm 20 þokumóða
Vin 18 mistur
Washington 10 þokumóða
Winnipeg 15 léttskýjað
mál eru atvinnumál kvenna, dag-
vistarmál, tengsl við Evrópu-
bandalagið og EFTA. Einnig er
þess vænst að mikil umræða
verði um sveitarstjórnarmál og
erindi kvenna inn á þann vett-
vang.
Landsfundurinn er haldinn í sam-
komuhúsinu Básum í Ölfusi. Það
var Ingibjörg Hafstað sem setti
fundinn áður en hún hóf erindi sitt
um „fáeinar stiklur úr feminískri
hugmyndafræði".
Landsfundurinn stendur fram á
sunnudag. Á laugardag verða um-
ræður um reynslu kvenna af sveit-
arstjórnarmálum og störfum á þeim
vettvangi. Þá verða stefnumál
Kvennalistans í komandi sveitar-
stjórnarkosningum reifuð.
Spurningunni um það hvort kon-
ur eigi að sitjaí bankaráðum verður
svarað á sunnudagsmorgun. Þær
konur sem rætt var við áður en
fundurinn hófst aftóku ekki að
Kvennalistakonur tækju sæti í
bankaráðum.
— Sig. Jóns.
„Það læra börnin sem fyrir
þeim erhaft“
Á myndinni sést Ingibjörg Kristleifsdóttir fóstra kenna börnunum í
leikskólanum Staðarborg þulur, sem þau myndskreyta. Bömin hafa
farið mikið í bókasöfn í vikunni enda sérstök bókasafnsvika. Þá
hafa þau fengið rithöfunda í heimsókn í tilefni af málræktarátakinu
í ár, að sögn Maríu Steindórsdóttur forstöðumanns Staðarborgar.
Viðskiptavaki húsbréfa:
Þrjú tilboð bárust
VERÐBRÉFAMARKAÐUR Iðnaðarbankans hf., Landsbanki íslands og
Landsbréf hf. og Kaupþing hf. skiluðu tilboðum um að taka að sér
viðskiptavaka húsbréfa. Tilboðin voru opnuð í gær og segir Sigurður
E. Guðmundsson forstjóri Húsnæðisstofhunar að farið verði yfir tilboð-
in á næstu dögum. Hann segir að ógemingur sé að meta þau á þessu
stigi.
Útboð viðskiptavakans var lokað
og var 11 aðilum gefinn kostur á
að bjóða. Þijú tilboð bárust og var
tilboð Landsbankans og Landsbréfa
sameiginlegt. Viðskiptavaki sér um
skráningu húsbréfa á Verðbréfaþingi
íslands og markaðssetningu þeirra,
setur fram tilboð í bréfin, er reiðubú-
inn tii að kaupa þau og á að sjá til
þess að viðskipti með þau gangi sem
greiðast um allt land.
Sigurður segir að gengið verði frá
ráðningu forstöðumanns húsbréfa-
deildar Húsnæðisstofnunar á næst-
unni, en að sögn Sigurðar er ekki
hægt að segja hvenær það verður
gert. Staðan hefur verið auglýst.
Annað starfsfólk verður einnig ráðið
til deildarinnar, en reynt verður að
halda ráðningum í lágmarki og að
einhveiju leyti verður hægt að nýta
starfskrafta sem þegar eru fyrir
hendi í stofnuninni.
f dag hefst kynningarátak þar sem
húsbréfakerfið verður kynnt almenn-
ingi með auglýsingum. Sigurður seg-
ir að ekki hafi verið ákveðið hvaða
vexti bréfin muni bera, það verði
ekki fyrr en reglugerð hefur verið
birt um bréfin, sem Sigurður bjóst
ekki við að yrði fyrr en í lok næstu
viku. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verða vextirnir um 6%.
Húsbréfakerfi á að koma til fram-
kvæmda 15. nóvember næstkom-
andi.