Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 7
7 MORGUNBLAÐIÐ im Ný sundlaug verður vígð í Hafnarfirði í dag, Suðurbæjarlaug. Morgunblaðið/Emilía Hafharfjörður: Ný útísundlaug vígð í suðurbænum NÝ útisundlaug, Suðurbæjarlaug í suðurbæ HafnarQarðar, verð- ur formlega tekin í notkun í dag. Laugin er 12x25 m og er íullbúin fyrir alþjóðakeppni. Kostnaður við laugina eru tæpar 170 milljónir króna en með fullbúinni innisundlaug er heildar- kostnaður um 190 milljónir króna. Laugin og svæðið umhverf- is er hannað og byggt sem alhliða útivistarsvæði með aðstöðu til líkamsþjálfunar og útiveru. Útisundlaugin tengist sérstakri bamalaug, með vatnsrennibraut og stórum vatnssvepp í vaðlaug fyrir yngstu börnin. Þá er útisund- laugin tengd innisundlauginni með sérstakri rennu, en í frétt frá Hafnarfjarðarbæ segir, að slík tenging sé alger nýjung hérlendis. Innilaugin er 8x12,5 m og verður hún fullbúin næsta vor. Hún er fyrst og fremst hugsuð sem kennslulaug. Sundlaugarhúsið er á tveimur hæðum, samtals 1.040 fermetrar, með búningsaðstöðu fyrir rúm- lega 400 gesti og kaffisal en einn- ig eru sérstakir búningsklefar við útisundlaugina. Þrír heitir pottar eru á sundlaugarsvæðinu og 250 m löng malbikuð og upphituð hlaupabraut, auk þess 9 mini-golf brautir á útivistarsvæði við laug- ina. Undirbúningur að byggingu laugarinnar hófst fyrir réttum áratug og var fyrsta skóflustung- an tekin haustið 1984. Búnings- hús vom fokheld tveimur áram síðar og á síðustu þremur áram hefur sundlaugarmannvirkið verið reist og unnið að lokafrágangi útilaugar, útisvæðis og búnings- aðstöðu. Arkitekt er Sigurþór Aðal- steinsson og aðalverktaki að fulln- aðarfrágangi er Reisir sf., Hafn- arfirði. I byggingamefnd Suður- bæjarlaugar eiga sæti þeir Erling- ur Kristensson formaður, Daníel Pétursson forstöðumaður laugar- innar, Lúðvík Geirsson, Sigurður Þorvarðarson og Þór Gunnarsson. Starfsmenn laugarinnar era tíu. Undirskriftasöftiun gegn nýju ft*umvarpi STARFSFÓLK á dagvistarheimilum, jafiit menntaðar fóstrur sem ófaglærðar, gangast þessa dagana fyrir undirskriftasöfnun sín á meðal, á dagvistarstofiiunum um allt land, til þess að mótmæla þeim áformum, sem fram koma í frumvarpi félagsmálaráðherra um félags- þjónustu sveitarfélaga, að dagvistarmál flytjist úr menntamálaráðu- neyti í félagsmálaráðuneyti. A mánudaginn kl. 16 hyggst starfs- fólkið halda útifúnd við Alþingishúsið og aflienda forsætisráðherra undirskriftalistana. Að sögn Kristínar Dýríjörð, fóstru, eru um 600 fóstrar á landinu og ófaglært starfsfólk dagvistarheimila um þrisvar sinnum fleira. „Við ætlum að vera komin með rúmlega 2.000 undirskriftir í hendurnar í kvöld,“ sagði hún. Kristín sagði að þetta væri fyrsta skrefið í baráttu starfs- fólks dagvistarheimila fyrir því að dagvistarmálin tilheyrðu áfram menntamálaráðuneytinu. „Þetta er breiðfylking starfsfólks dagvistar- heimila í landinu gegn félagsmála- ráðherra," sagði Kristín. „ Ráðstenfa Félags viðskipta- og hagfræðinga um frumvarp til fjárlaga 1990 verður haldin í Holiday Inn mánudaginn 30. október nk. kl. 15-18. Fjárlagafrumvarpið 1990 Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri á Iðnþingi: ^ \ Horfið verði ft*á kerfi ríkis- ábyrgða og opinberra lánasjóða Dagskrá: 1. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli stjórnmálanna: Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 2. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli hagfræði- og efnahagsstjórnar: Már Guðmundsson, efnahagsráðunautur fjármálaráðuneytisins, Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur Vinnuveitendasambands íslands. SEM fyrst þarf að gera áætlun um afnám hafta á allar flármagns- hreyfingar á milli Islands og erlendra ríkja og því verki þarf að vera lokið í síðasta lagi á árinu 1992 vegna þeirrar víðtæku sam- vinnu við Evrópu sem framundan er. Þetta kom meðal annars fram í erindi Jóhannesar Nordals, seðlabankasljóra, sem hann flutti á Iðnþingi í gær. Þá telur hann ennfremur nauðsynlegt að horfið verði með öllu frá kerfi ríkisábyrgða og opinberra lánasjóða til þess að hér þróist heilbrigður opinn Qármagnsmarkaður „þar sem öll mismunun og ríkisafskipti af Qárfestingum fyrirtækja er úr sögunni." í erindi Jóhannesar kom enn- fremur fram að nauðsynlegt sé að markaðsöfl hafi vaxandi áhrif á landbúnaðarframleiðsluna og sam- keppni sé aukin meðal annars með innflutningi landbúnaðarvara frá öðrum löndum, sem hlytu þó fyrst í stað að vera háðar allháum tollum. Þá þurfi að stefna að því að auka þýðingu frjálsra uppboðsmarkaða og afnema opinbera verðákvörðun á fiski og leita leiða til þess að kvótakerfið standi ekki í vegi fyrir eðlilegri samkeppni. Jóhannes sagði að það væri eng- inn vafi að meginforsenda þess að íslendingar geti orðið hlutgengir í því aukna samstarfí Evrópuþjóða, sem verið væri að móta, sé að verð- bólga komist hér niður á sama stig og í nágrannalöndunum. Stjórnvöld hafi verið alltof undanlátssöm gagnvart þrýstihópum og stöðug- leiki í gengismálum sé líklegasta leiðin til að skapa til lengdar grand- völl heilbrigðrar verðlagsþróunar. Hann hafi ekki trú á að frjáls geng- isskráning henti okkur til lengdar og að efnahagslegt jafnvægi verði tryggt með aðhaldssamri fjármála- og peningamálastefnu. Megin- ástæðan sé sú að íslendingar búi í heimshluta þar sem allar aðrar þjóð- ir stefni í átt til fastgengis sín á milli og hafi jafnvel í huga að taka fyrr eða síðar upp sama gjaldmiðil. 3. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli vinnumarkaðarins og atvinnufyrirtækja. Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamannasambands íslands, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands. Ráðstefnustjóri er Lára Margrét Ragnarsdóttir. Ráðstefnan er öllum opin. Þátttökugjald er kr. 1.000,-. Stjórnendur fyrirtækja - viðskipta- og hagfræðingar: Þetta er ráðstefna sem þið megið ekki missa af. Höflim opnað glæsílega teppaverslun að Fákafeni 9 Teppl Nýjar sendingar nýkomnar af vönduðum ullargólfteppum. Nýjar gerðir, nýjir litir. Mikið úrval til á lager. EURO samningar - VISA raðgreiðslur. Næg bílastæði. Velkomin í glæsilega sérverslun með golfteppi. ILPPAVERSUIN FRIDRIKS BERTFLSEIN FÁKAFENI 9 SÍMI 686266

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.