Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989
Fjármálaráðherra
villist á vösum
eftir Guðrúnu Árna-
dóttur ogKristján
Thorlacius
Dagblaðið Tíminn birtir 24. þ.m.
viðtal við Má Guðmundsson, aðstoð-
armann fjármálaráðherra, um 500
milij. kr. skerðingu á framlagi ríkis-
sjóðs til Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins, sem flárlagafrumvarp fyrir
1990 gerir ráð fyrir.
Vegna þeirra ummæla sem blaðið
hefur eftir aðstoðarmanni ráðherra
viljum við undirrituð fulltrúar BSRB
í stjórn lífeyrissjóðsins taka eftirfar-
andi fram:
Þótt nafnið á sjóðnum sé Lífeyris-
sjóður starfsmanna ríkisins eiga
miklu fleiri þar aðild að en ríkissjóð-
ur og ríkisstarfsmenn.
Fjöldi þeirra starfsmanna sem
greiddu iðgjöld á árinu 1988 var
16.600. Þar af greiddi ríkissjóður
fyrir 13.000 starfsmenn. Aðrir aðil-
ar, um 200 launagreiðendur, greiddu
iðgjöld fyrir 3.500 starfsmenn.
Meðal þessara 200 launagreiðenda
eru 50 sveitarfélög svo og lands-
hlutasamtök sveitarfélaga, sparisjóð-
ir og uppeldis- og heilbrigðisstofnan-
ir reknar af styrktar- og líknarfélög-
um.
Það er því mikill misskilningur hjá
efnahagssérfræðingi íjármálaráð-
herra, að lífeyrissjóðurinn sé aðeins
hluti af ríkissjóði. Því fer víðs fjarri.
Ríkissjóður ber þannig alls ekki einn
allar skuldbindingar lífeyrissjóðsins.
Á honum hvíla hins vegar skuld-
bindingar gagnvart sjóðnum lögum
samkvæmt eins og aðrir launagreið-
endur sem aðilar eru að sjóðnum
takast á hendur.
Það er furðulegt að sérfræðingur
fjármálaráðherra, sem vitnar í við-
talinu í reglur Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, skuli ekki kynna sér ákvæði
íslenskra laga um málefni sem hann
fjallar um opinberlega, áður en hann
setur fram fullyrðingar, sem stang-
ast algerlega á við lög. Ef tii vill er
ákvörðun fjármálaráðherra um nið-
„Lögbundin lífeyris-
réttindi eru hluti af
starfskjörum opinberra
starfsmanna, og verður
þeim kjörum ekki
breytt með tilvitnun
aðstoðarmanna §ár-
málaráðherra í túlkun
Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins á því hvað sú al-
þjóðastofiiun telji til
ríkisútgjalda.“
urskurð í fjárlagafrumvarpinu byggð
á þessum misskilningi.
Ef ríkissjóður greiðir ekki að fullu
tilskilin framlög til Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins er hann kominn
í vanskil, sem öðrum aðilum að sjóðn-
um líðst ekki.
Spytja má efnahagsráðunaut fjár-
málaráðherra hvort hann telji að
sveitarfélög og aðrir aðilar að lífeyr-
issjóðum í landinu geti leyft sér að
ákveða það einhliða með fjárhagsá-
ætlun hvort þeir standa í skilum með
lögboðin eða umsamin lífeyrissjóðsið-
gjöld fyrir starfsmenn sína. Ekki vit-
um við um aðra sem komið hefur
slíkt í hug og þar með greiðslur í
lífeyrissjóð.
Lögbundin lífeyrisréttindi eru hluti
af starfskjörum opinberra starfs-
manna, og verður þeim kjörum ekki
breytt með tilvitnun aðstoðarmanna
fjármálaráðherra í túlkun Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins á því hvað sú al-
þjóðastofnun telji til ríkisútgjalda.
Þar duga ekki heldur áætlanir í fjár-
lögum né fjárhagsáætlanir sveitar-
stjórna eða annarra aðila að lífeyris-
sjóðum landsmanna.
Höfundar eru fulltrúar BSRB í
stjórn Lifeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins.
Til sölu á Eyrarbakka
Einbýlishús og stórt útihús
Einbýlishúsið er 5 herb., 147,7 fm, byggt að hluta '81. Útihúsið er hlað-
ið, 114 fm, tilvalið fyrir atvinnustarfsemi. Þá fylgir 30 fm hesthús og
5000 fm garðland. Húsin standa á 3048 fm leigulóð. Áhvíl. lán frá
byggingarsj. ríkisins. Uppl í síma 98-31341.
Æfámrihft rrpfiD
Umsjónarmaður.Gísli Jónsson 510. þáttur
Góða fréttin: „Til bæjarins
og frá honum“, sagði fréttamað-
ur útvarpsins. Þetta er til fyrir-
myndar, þar sem forsetningarn-
ar til og frá stjórna hvor sínu
falli. Einnig er hægt að segja:
að og frá bænum, því að for-
setningarnar að og frá stjórna
báðar þágufalli.
Vonda fréttin kemur frá
Matthíasi Eggertssyni í Reykja-
vík. Hann skrifaði orðrétt úr
fréttum sama útvarps: „Bæði
forsætisráðherra og íjármála-
ráðherra sáu ekkert athugavert
við það að Stefán Valgeirsson
fengi aðstoðarmann.“ Hér vilj-
um við Matthías nota samteng-
inguna hvorki - né: Hvorki
forsætisráðherra né ijármála-
ráðherra sáu nokkuð (neitt) at-
hugavert, o.s.frv.
Matthías telur að hyorki -
né og fornöfn, samsett af * ne
(svo sem nokkurt, nokkuð,
neitt) eigi nú undir högg að
sækja.
Þá minnir hann á að þátíð
ri-sagna sé með e, ekki é, það
er: neri, sneri, reri og greri.
Hann segist sjá stafsetninguna
„néri“ o.s.frv., jafnvel í „metnað-
arfúllum texta“.
★
sem hafa verið mér ofarlega í
huga.
Fyrst er það fleirtölunotkun
orða sem aðeins eru til í eintölu.
Algengasta dæmið er verð. Það
er eintöluorð í hvorugkyni og
fær því endinguna ið (ekki in)
þegar greinir bætist við. Orð sem
standa með því eru að sjálfsögðu
einnig í eintölu. Margir segja og
skrifa góð verð í staðinn fyrir
gott verð og verðin hafa hækk-
að, en ekki verðið hefur hækk-
að eins og rétt er. Sl. sumar sá
ég auglýsingu í blaði þar sem
stóð: Síðustu skrifstofuhús-
næðin til sölu. Hvað kemur
næst? Hugsanlega verður farið
að snúa fleirtöluorðum í eintölu
og segja t.d. ég klippti með
skærinu og hann fór í buxuna!
Annað atriðið er síst betra. Þá
er sögn í lýsingarhætti nútíðar
höfð fremst í setningu, oftast
sögnin að tala. Dæmi: Talandi
um nýja bátinn o.s.frv. Þetta er
óhæft í íslensku, en sést hins
vegar og heyrist oft í ensku og
fyrirmyndin greinilega sótt
þangað. Tökum dæmi: I enskum
texta stendur: „Being a good
boy, he was loved by his par-
ents.“ Samviskusömum þýðanda
dytti aldrei í hug að íslenska
þetta svo: „Verandi góður
drengur, var hann elskaður af
foreldrunum.“ Hér þarf að raða
orðunum upp á nýtt, t.d. þannig:
„Hann var góður drengur, og
þess vegna elskuðu foreldrarnir
hann (eða: foreldranum þótti
vænt um hann).“ Slíka notkun
lýsingarháttar má stundum sjá
í óvönduðum þýðingum bóka,
einkum frá fyrri tíð, en tiltölu-
lega stutt er síðan hún kom til
sögunnar í talmáli, að ég held.
I þriðja lagi vil ég nefna
kveðjuorðin hæ og bæ. Þau
heyrast einkum hjá börnum og
unglingum og eru næsta algeng.
Hér er um að ræða orð úr ensku
sem eru hvimleið í íslensku. Hæ
er að vísu til sem upphrópun og
borið fram eins og enska orðið
hi. Hvort þar er einhver skyld-
leiki á milli skal ósagt látið, en
vilji fólk eitthvað stutt og lag-
gott, eru til orð eins og sæll eða
sæl, ýmist þegar heilsað er eða
kvatt, og kveðjuorðið bless. Oll
fela þau i sér góðar óskir til
handa þeim sem kveðjuna fær.
Ég hef stiklað á stóra og vafa-
laust hefði mátt tína sitthvað
fleira til um öll þessi atriði. En
nú þegar stórátak í málrækt er
á dagskrá, þótti mér ekki úr
vegi að minna á sumt af því sem
getur orðið illgresi í garði
íslenskrar tungu ef ekkert er að
gert. Þar vantar alltaf garð-
yrkjumenn og ekkert skrýtið, þó
löngun vakni til að hlúa að einni
og_einni plöntu öðra hveiju.
í lokin koma hér tvær limrur
sem ég bögglaði saman, svona
til að halda við „hefðinni". Önn-
ur tengist efni bréfsins og er
svona:
Ég hlýt mínum ferðum að fækka,
ef fara ekki verðin að lækka.
En talandi um það
er mér tjáð - nema hvað! -
að þau séu heldur að hækka.
Hinni er fremur beint til þín
persónulega [og umsjónarmaður
sleppir henni].
Kær kveðja.
E.S. Mér líst nokkuð vel á
uppástungu Kristjáns frá Djúpa-
læk um orðið þátíðarþrá yfir
nostalgíu. Ef til vill er þó dálítið
„málfræðibragð" að henni. Ég
hef velt þessu fyrir mér og vil
stinga upp á orðinu fortíðar-
þrá.“
★
Umsjónarmaður þakkar þetta
mikla bréf. Það er ekki lítils
virði, þegar þýðendur, . hvort
heldur bóka eða kvikmynda-
texta, eru svo málvandir og
málhagir sem bréfritari.
★
Aðsent: Skelfing er að sjá
hvernig blöðin skipta milli lína.
Viðurkenna skal þó að stundum
er hægt að skipta á fleiri en einn
veg svo að vitglóra sé í. Viljið
þið spreyta ykkur á þessu?:
borgarauður, dagskrá,
framafréttir, freysteinn,
haustönn, heimskreppa,
ístruflanir, járnstöng,
ormstunga og trésmiðja.
Óskar Ingimarsson í Reykja-
vík skrifar mér gott bréf, og fer
meginefni þess hér á eftir:
„Góði sveitungi!. . .
Mig hefur lengi langað til að
skrifa þér og þakka þér fyrir
pistlana um íslenskt mál í Morg-
unblaðinu. Þeir hafa verið fróð-
legir og skemmtilegir í senn.
Ég hef um árabil reynt að
fylgjast með rituðu máli og
mæltu í blöðum og öðram íjöl-
miðlum vegna þýðingarstarfa
minna. Og sannast að segja þyk-
ir mér sem málkennd hafi hrak-
að mjög á undanfömum áram.
Þar er af alltof mörgu að taka
til að unnt sé að tíunda það í
stuttu bréfi, og því miður hef
ég oft gleymt að skrifa hjá mér
það sem ég hef heyrt eða séð
og það því farið forgörðum. Mig
langar þó til að nefna þijú atriði
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. LOGG. FASTEIGNAS.
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Sundin blá
Stórt og vandað parh. í norðanverðum Laugarásnum. Útsýnisstaður.
Skipti mögui. á minna húsnæði t.d. sérhæð miðsvæðis í borginni.
í þríbýlishúsi í Vesturbænum
4ra herb. miðhæð 101,7 fm nettó skammt frá háskólanum. Sólsvalir.
Laus strax. Skuldlaus.
Nýtt og glæsilegt einbýlishús
á vinsælum stað í Garðabæ 121 x 2 fm auk bílsk. 49 fm. Á hæð er 5
herb. íb. I kj. 2 einstaklíb. m.m. Úrvalsfrág. á öllu.
Ódýr íbúð í gamla bænum
4ra herb. ekki stór en vel skipul. í reisul. steinh. á 3. hæð. Þarfnast
máln. o.fl. Skuldlaus. Laus strax.
Góð eign á góðu verði
Mikið endurn. 4ra horb. íb. á 1. hæð v/Hraunbæ. Ágæt sameign.
Geymsla í kj.
Þurfum að útvega m.a.:
Litla íb. einstaklíb. helst miðsvæðis í borginni.
Góða 3ja herb. íb. í Kleppsholti eða Sundum. Skipti mögul. á 4ra-5
herb. íb. í Seljahverfi m/sérþvottah. og bílhýsi.
3ja herb. íb. á 1. hæð eða í lyftuh. í borginni gegn útborgun.
2ja herb. íb. í Heimum eða nágrenni.
Sérhæð miðsvæðis í borginni eða á Nesinu.
Margskonar eignaskipti. Margir bjóða útborgun fyrir rétta eign.
Opið í dag laugardag
kl. 10.00-16.00
Fjöldi fjárst. kaupenda.
AIMENNA
FASTEIGNASAL AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Erindi um trú og’ trúarlíf
Dr. Sigurbjörn Einarsson flytur er-
indi í Seltjarnarneskirkju
DR. Sigurbjörn Einarsson heldur erindi í Selfjarnarneskirkju næstu
fjóra sunnudaga. Erindin fjalla um trú og trúarlíf. Erindin verða í
kjallara kirkjunnar eftir fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni, sem
hefst klukkan 11. f.h. og verður hið fyrsta 29. október og hin næstu
5., 12. og 19. nóvember.
Dr. Sigurbjörn Einarsson
Að lokinni guðsþjónustu klukkan
11 gefst fólki kostur á að kaupa
sér iéttan hádegisverð á vægu verði
og að honum loknum mun dr. Sigur-
björn halda erindi sín. Að loknum
erindunum verður tími til fyrir-
spuma og umræðna.
Hér er á ferðinni einstakt tæki-
færi til að ræða trúarleg málefni,
sem brenna á okkur öllum, við þenn-
an mikilsvirta kennimann. Allir sem
áhuga hafa eru hvattir til að nýta
sér þetta tækifæri.
Neskirkja
Kaffisala og söluhorn
KVENFÉLAG Neskirkju verður með kaffisölu á sunnudag, 29. októ-
ber, í safnaðarheimili kirkjunnar. Kaffisalan hefst kl. 15:00 að lok-
inni gnðsþjónustu hjá sr. Guðmundi Óskari Ólafssyni.
Auk kaffiveitinganna verða kon-
urnar með dálítið söluhorn, þar sem
seldir verða handunnir munir við
vægu verði.
Alveg frá því að söfnuðurinn
fyrst var stofnaður hafa konurnar
í kvenfélaginu leitast við að hlúa
að og bæta starfsaðstöðuna fyrir
innra starf kirkjunnar.
Skora ég á alla góða velunnara
að koma og kaupa af þeim sunnu-
dagskaffið fyrir alla fjölskylduna
og styðja þannig gott málefni.
Ágætu kvenfélagskonur, hafið
þökk fyrir fórnfýsina og dugnaðinn.
Guð blessi allt ykkar starf.
Frank M. Halldórsson