Morgunblaðið - 28.10.1989, Page 11

Morgunblaðið - 28.10.1989, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989 ---!—i—! r-—. —:—;—r U i r . í :—fnT Klungur og urðargróður Myndlist Klippimyndir Það fer ekki mikið fyrir at- hafnaseminni í litla og vinalega listhúsinu í kjallaranum á Skóla- vörðustíg 15. Að innrétta húsnæðið sem list- hús var eitt það síðasta sem August heitinn Hakansson fram- kvæmdi á sínum jarðvistardög- um, en kjallarinn fyrir neðan verslun hans hafði um áratugi verið vettvangur ýmissa athafna er tengdust umsvifum hans. Hélt hann þar svo eina sýningu á eigin myndum, en féll svo frá skömmu seinna og áður en hann kom þvi í framkvæmd að skipu- leggja starfsemi listhússins. Held ég að það hafi svo einung- is ein önnur sýning verið haldin þar fram til þessa, er ung list- spíra Björn Geir Ingvarsson opn- aði sína fyrstu einkasýningu sl. laugardag og stendur hún aðeins til sunnudags 29. þ.m. Mér þykir það dálítil synd vegna þess að íisthúsið býr yfir sérkennilegum þokka sem minnir ekki svo lítið á mörg slík í sjálfri Parísarborg, og þá helst i Latínuhverfinu, og hér mætti hafa einhverja reglu- lega starfsemi þótt hún tengdist ekki listsýningum i síbylju. Með hugkvæmni, útsjónarsemi og dugnaði væri hægt að gera heil- margt til að nýta húsnæðið á menningarlegan hátt og trúa mín er sú, að Skólavörðustígur sé ágætlega fallinn sem listhúsagata og þá einkum að sumarlagi. Eg þekki ekkert til þessa unga manns, Björns Geirs, en hann mun hafa viðað að sér dijúgri sjálfsmenntun á undanfömum árum auk þess að njóta tilsagnar nokkurra listámanna. Uppistaða sýningar hans eru myndir, sem hann klippir úr tíma- ritum og skeytir saman á ýmsa vegu. Þetta er gömul aðferð og þó alltaf ný, allt eftir því hvernig staðið er að verki. Eðlilega kennir ýmissa áhrifa í myndum Björns og þá aðallega frá Erró og myndlýsingum hans við ljóð Matthíasar Johannessen. Það er þó ýmislegt mjög lag- lega gert af byrjanda að vera og þá aðallega er gerandinn gengur hreint og beint til verks og lætur alla úrúrdúra lönd og leið svo sem í myndunum „Biðillinn" (14), „Vetrarsól" (16), „Augnablik“ (31) og „í morgunsárið" (41). Einnig eru athyglisverðir takt- ar í myndunum „Grís í Vestur- bænum“ (29) og „Fuglinn og rós- in“ (39), en þær myndir em ein- mitt gott dæmi um hve eitt form, sem ofaukið er, getur riðlað myndbyggingunni og raunar allri myndhugsuninni. Þessi leikur getur verið mjög skemmtilegur en hann er því erf- iðari ef dæmið á að ganga upp og víst em margir hnökrar á sýn- ingunni og þá einkum er gerand- inn tekur til hendinni og teiknar eða litar fríhendis. En í heildina litið er þetta hin þokkalegasta framraun þótt hér sé engu hægt að spá um framtíðina. Leiðrétting í listdómi mínum um sýning- una World Press Photo 1989 sl. fimmtudag féll mikilvægasta orð- ið úr síðustu setningunni, nefni- lega sjálft Ufið{\) Þykir mér þetta meiri háttar slys því að í inntak sýningarinnar er ekki einungis dauðinn og ástin, heldur eins og setningin var upprunalega. „Sitt lítið af hveiju, Iífinu, dauðanum og ástinni." BragiÁsgeirsson Það er ekki oft sem norðan- menn sækja okkur höfuðborg- arbúa heim með sérsýningar á myndverkum, en það hefur Krist- inn G. Jóhannsson gert tvö ár í röð. Fyrir ári sýndi hann í hálfum austari sal Kjarvalsstaða, en núna sýnir hann í FÍM-salnum á horni Ránargötu og Garðastrætis. Kristinn hefur annars haft fjölda smásýninga norðan heiða, frá þvi að hann kom fyrst fram árið 1954 á Hótel Varðborg á Akureyri, og tekið þátt í allmörg- um samsýningum, m.a. tvisvar á FÍM-sýningum í Reykjavik og tvisvar erlendis. Hann er þannig orðinn nokkuð sjóaður í listinni, en það er þó aðallega á þessum áratug sem hann hefur farið að sækja í sig veðrið með samfelldum vinnu- brögðum. Það má og einnig sjá á málverk- um hans, að hann leitar æ meir í innri lífæðar og kviku myndflatar- ins, þótt vinnubrögð hans séu enn- þá nokkuð óheft og ærslafengin á köflum. Jafnan þegar Kristinn hefur sýnt myndir hér fyrir sunnan, er það áberandi hve örfáar myndir skera sig úr um hnitmiðuð og yfir- veguð vinnubrögð og svo er einnig að þessu sinni. Hápunktur sýningarinnar er þannig að mér sýnist málverkið stóra, „Urðargróður" (6). I því kemur fram næm tilfinning fyrir uppbyggingu forma og dreifingu þeirra og stærðarþenslu um allan myndflötinn, þannig að heildin stendur sem kyrr og óhögguð, þrátt fyrir að heilmikið sé að ger- ast á myndfletinum. í þessari mynd skynjaði ég einnig mesta litasamræmið. Önnur stór mynd leitaði einnig á mig og var það „Múlavegur" (5), en annars kemst Kristinn í heildina betur frá hinum minni myndum á sýningunni að mínu mati svo sem myndunum „Steina- gróður", „Óbyggð" (15) og „Klungur" (20).’ Eins og nöfnin bera með sér þá er hér um náttúmstemmningar að ræða og í fiestum tilvikum skynrænum og óhlutlægum. En þó skynjar maður hjartslátt náttú- mnnar á bak við myndimar og ríka samkennd listamannsins með hinum ýmsu sérkennum hennar í næsta sjónmáli hveiju sinni frekar en að hann leiti uppi sígilda feg- urð handan sjónhringsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.