Morgunblaðið - 28.10.1989, Side 12
12
- MORGUNBEAÐIÐ LAUGARÐAGUR 28. OKTOBER 1989-
ORKIDEA
CYMBIDIUM
Blóm vikunnar
Ágústa Björnsdóttir
146. þáttur
Með þessum fáu línum ætlar
einn úr hópi áhugamanna i garð-
rækt að reyna að greina stuttlega
frá reynslu sinni af orkideu nokk-
urri er ber fræðiheitið Cymbidium.
Reyndar er hér um að ræða eitt
af fjölmörgum ræktunarafbrigðum
sem komið hafa fram út af Cymbid-
ium lowianum en sú tegund er
líklega með þeim harðgerustu þeg-
ar miðað er við heimkynni hennar,
sem eru m.a. Miðaustur-Asía. Þessi
orkidea er almennt talin tiltölulega
auðveld í ræktun víða á norður-
hveli jarðar ef vissum grundvallar-
umhverfisskilyrðum er fullnægt,
t.d. að sumarhiti sé um 20° C eða
rúmlega það og vetrarhiti um 10°
og fari helst ekki niður fyrir 7°.
Umrædd orkidea er kröftug
planta þar sem sígrænt og leður-
kennt lauf hennar, mjótt og fjaður-
magnað, sprettur upp af einskonar
hálflauk (gervilauk) ofan á rótum
hennar, ofanjarðar, og sveigir sig
í allar áttir allt að 60-70 sm langt.
Á sumrin er plantan höfð í köldum
gróðurskála en þó þannig að sólin
nái ekki að skína óhindrað á hana.
Hún þarf að standa til baka við
annan gróður og forðast ber í
hvívetna að dragsúgur leiki um
hana. Á haustin þegar hitastig í
skálanum fer að falla og nálgast
10°, sem oft er um mánaðamótin
september-október, er orkidean
sett í annað húsnæði, svokallað
kalt port og stendur þar í góðri
birtu við suðausturglugga. Hiti þar
yfir vetrarmánuðina helst yfirleitt
um 10-12° með einstaka frávikum.
Þar hefst hvíldartími þessa dekur-
bams, sem þýðir að vökvun er þá
mjög í hófi, rétt nægileg til að
Cymbidium
ræturnar þorni aldrei, andstætt því
sem gerist á sumrin, sérstaklega
þegar heitt er í veðri, þá vökvar
maður gjaman ríkulega og notar
jafnframt óspart áburðarvatn, þó
helst með hálfum styrkleika á við
það sem flestum öðrum plöntum
er hollt. Aðalhvíldartíminn er svo
nóvember-desember og í janúar en
áður en honum lýkur er þegar far-
ið að brydda á mjórri nál útundan
þroskavænlegustu hálflaukunum,
sem er byijunin á blómstönglum
orkideunnar. Á skömmum tíma
teygja þeir sig í allt að 40-50 sm
hæð. Meðan á þessu stendur nýtur
hún aukabirtu frá viðeigandi gróð-
urlampa enda veitir ekki af að
bæta henni upp birtuleysið í okkar
svartasta skammdegi. Hin undur-
fögm blóm þessarar orkideu með
sínum margbreytilegu pastellitum
og skrautlegu „vör“ byija vanalega
að opna sig fyrri partinn í mars
og standa í blóma með ólíkindum
lengi, t.d. þetta árið stóðu sum
þeirra allt fram í júní úti í köldum
gróðurskálanum. I lokin er vert að
geta þess að ofangreind orkidea
komst í hendur eiganda fyrir um 6
árum, þá nýlega sem fullveðja
planta með vel þroskuðum hálflauk
og tveim blómstönglum. Síðan hef-
ur hún tvisvar verið umpottuð, þ.e.
sett í örlítið stærri potta stuttu
eftir að blómgun lauk. Notuð var
fijósöm mómold blönduð hvítmosa-
mold ásamt örlitlu af vikri og
muldu einangrunarplasti, því mikil-
vægt er að hafa pottamoldina sem
loftkenndasta.
Þórhallur Jónsson
Neftid falið
að kanna fæð-
ingarorlof
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hef-
ur skipað nefhd til að kanna og
gera tillögur um jafnrétti kvenna
til fæðingarorlofs. Við gerð
kjarasamninga í vor ákvað ríkis-
stjórnin að fæðingarorlof yrði
tekið sérstaklega til athugunar,
með tilliti til álitsgerðar nefiidar
sem samdi frumvarp til laga um
fæðingarorlof fyrir tveimur
árum.
Nefndin er skipuð eftir tilnefn-
ingum frá Tryggingastofnun ríkis-
ins, ASÍ, VSI, þingflokkum stjórn-
arflokkanna, Sambandi íslenskra
bankamanna og samninganefnd
bankanna.
í nefndinni eru: Dögg Pálsdóttir,
formaður, Vilborg Þ. Hauksdóttir,
Lára V. Júlíusdóttir, Hannes G.
Sigurðsson, Elín Líndal, Heiðrún
Sverrisdóttir, Eva Eðvarðsdóttir,
Kristín Karlsdóttir, Hulda Guð-
mundsdóttir, Friðbert Traustason,
Sigurður Hafstein og Svanhvít
Jakobsdóttir, ritari nefndarinnar.
%
NÝVERSLUN
í ÁRMÚLA 24
Rafkaup
ÁRMÚLA 24 • S: 68 15 18
VIÐ HÖFUM OPNAÐ STÓRGLÆSI-
LEGA VERSLUN í ÁRMÚLANUM OG
BJÓÐUM VIÐSKIPTAVINUM OKK-
AR ENN FJÖLBREYTTARA VÖRU-
ÚRVAL EN NOKKRU SINNI FYRR.
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF ALLS-
KYNS LJÓSUM OG LÖMPUM, HEIM-
ILISTÆKI FRÁ SEVERIN ,
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI OG SJÓN-
VÖRP FRÁ TELEFUNKEN OG
SABA , RAFLAGNAEFNI, RAF-
MAGNSVERKFÆRI OG FLEIRA OG
FLEJRA ...
SJON ER SOGU RIKARI