Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 15
M0RG15NBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989
15
Fyrirlestur um
sljarnfræði
C.J. PETHICK frá Norrænu rann-
sóknastofnuninni í atómvísindum
í Kaupmannahöfn heldur fyrirlest-
ur á vegum Eðlisfræðifélags ís-
lands og Stjarnvísindafélags Is-
lands þriðjudaginn 31. október
1989 kl. 17.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist „Superflu-
idity in the laboratory and in the
cosmos".
C.J. Pethick er prófessor í kenni-
legri eðlisfræði við Nordita í Kaup-
mannahöfn og University of Ulinois,
Urbana, og jafnframt forstöðumaður
Nordita. Hann er þekktur fyrir mikla
fjölhæfni í eðlisfræðirannsóknum og
hefur lagt mikilvægan skerfaf mörk-
um á sviðum eins og eðlisfræði þétt-
efnis, stjarneðlisfræði og kjarneðlis-
fræði.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
(Fréttatilkynning)
Sjóferðir um
helgina
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands og Eyjaferðir standa fyrir
sjóferðum í dag, laugardaginn 28.
október, með farþegabátnum
Hafrúnu. Þetta verða síðustu sjó-
ferðirnar í haust.
Klukkan 10 verður siglt inn Við-
eyjarsund fyrir Geldinganes og um
Þerneyjarsund með Álfsnesinu inn
undir Kollafjarðarbotn. Síðan út með
Brimnesi og fyrir Hofsvík. Þaðan
sveigt að Lundey og síðan um En-
geyjarsund til Reykjavíkur. Gerðar
verða ýmsar mælingar á leiðinni,
botndýralíf skoðað með botnsköfu
og skoðað verður í krabbagildrur.
Klukkan 14 verður farin skoðunar-
ferð suður í Skerjafjörð. Siglt verður
út álinn fyrir Akurey og innundir
Grandahólma og út með Seltjarnar-
nesi, fyrir Gróttu og Suðurnes og
haldið inn á Skeijafjörð með Ból-
staðaeyrinni inn á Seiluna. Þaðan
fyrir Bessastaðanesið og Eskines-
eyrar inn á Arnarvog, fyrir Kópavog
og inn á Fossvog. Til baka verður
farið út fjörðinn að norðanverðu.
Skemmtileg útsýnisferð. Báðar ferð-
irnar taka um tvo klukkutíma. Öllum
er heimil þátttaka í ferðunum. Farið
verður frá Grófarbryggju neðan við
Hafnarhúsið.
Rokksýning í
Keflavík
„ROKK, sviti og pilsaþytur" heitir
rokksýning sem sett hefúr verið
upp í Glaumbergi í Keflavík.
I sýningunni er fylgst með ungum
sveitapilti, Lúðvík Líndal að nafni,
og hans fyrstu ferð til stórborgarinn-
ar.
Lúðvík Líndal er saklaus sveita-
strákur í meira lagi og lendir hann
í hinum ýmsu ævintýrum þegar til
borgarinnar kemur. I sýningunni er
fjöldi dansara og söngvara ásamt
stórsveit rokkabillybands Reykjavík-
ur.
Söngvarar eru Einar Júlíusson,
Anna Vilhjálms, Bjarni Arason, Guð-
mundur Hermannsson og Haraldur
Helgason og syngja þau þakkt dans-
og dægurlög frá árunum 1950—
1960. Dansarar eru Jón Ólafur
Magnússon, Eydís Eyjólfsdóttir,
María Huldarsdóttir og Jóhannes
Bachmann sem jafnframt leikur
Lúðvík Líndal. Einnig koma við sögu
kunnir dansarar af Suðurnesjum.
Kynnir og sögumaður er Gunnlaugur
Helgason.
Hraðfrystihús
Olafsvlkur
50 ára
Ólafsvík.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur held-
ur í dag upp á 50 ára afmæli sitt.
Hóf verður fyrir starfsfólk og við-
skiptavini í félagsheimilinu á Klifi.
Stofndagu'r mun vera 28. október
1939 og er húsið númer 13 í Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna. Samkvæmt
upplýsingum Ingólfs Gíslasonar sem
starfað hefur við fyrirtækið frá upp-
hafi var hins vegar fyrsti vinnsludag-
ur í húsinu 29. ágúst 1939 og var
þá unninn koli.
- Helgi
fólks í verslunum og framleiðenda.
Frumkvæði iðnrekenda hefur verið
vel tekið og hafa þegar verið haldn-
ir slíkir dagar í Kaupstað og Mikla-
garði í ágúst, hjá KEA á Akureyri
og í öllum matvöruverslunum í
Vestmannaeyjum.
Megin tilgangur þessa átaks er
að kynna íslenskar byggingavörur
og minna á nauðsyn þess að efla
innlenda framleiðslu ög fjöiga þar
með atvinnutækifærum í landinu.
Alla vikuna verða vörur kynntar
sérstaklega og boðið upp á kynning-
ar ætlaðar atvinnukaupendum.
Formleg opnunarhátíð verður í
timbursölu BYKO í Breidd mánu-
daginn 30. október kl. 16 og mun
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
opna kynninguna.
Rætt um áhrif
fjárlaga
FÉLAG viðskipta- og hagfræð-
inga gengst n.k. mánudag fyrir
ráðstefhu um fjárlagafrumvarp-
ið og áhrif þess á atvinnulífið.
Ráðstefhan hefst kl. 15 á Holiday
Inn.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
fjárlagafrumvarpið frá þremur
mismunandi sjónarhornum. Frum-
mælendur eru Ólafur Ragnar
Grímsson, Þorsteinn Pálsson, Már
Guðmundsson, Hannes G. Sigurðs-
son, Karl Steinar Guðnason, Þórar-
inn V. Þórarinsson, og Vilhjálmur
Egilsson.
Sýning á íslenskum
myndverkum í Hull
FYRSTA sjálfstæða yfirlitssýning í Bretlandi á verkum íslenskra
myndlistarmanna verður opnuð í Hull í Englandi í dag, laugardag
28. október. Menntamálaráðherra Svavar Gestsson opnar sýninguna
og Kammersveit Reykjavíkur mun flytja íslenska tónlist við opnunina.
b
Það v_ar sendiherra íslands í Bret-
landi, Ólafur Egilsson, sem átti
frumkvæði að þessari sýningu en
íjölmargir aðilar, bæði á íslandi og
á Bretlandseyjum, hafa tekið þátt
í undirbúningi hennar.
í tengslum við sýninguna hefur
verið gefin út vegleg sýningarskrá
sem ber heitið Landscapes from a
High Latitude, sem jafnframt er
heiti sýningarinnar og var hún unn-
in af Listasafni Islands og Brighton
Polytechnic*Gallery.
I sýningarskrána rita: Sigurður
A. Magnússon, Halldór Björn Run-
ólfsson, Bera Nordal, Magnús
Magnússon og Michael Tucker. Rit-
stjóri er Julian Freeman en hann,
ásamt Michael Tucker, sá um val
mynda á sýninguna. Kostnaður við
útgáfu sýningarskrárinnar er
greiddur af ríkissjóði.
Sýningin nær yfir sögu íslenskrar
myndlistar allt frá frumkvöðlinum
Þórarni B. Þorlákssyni (1867—
1924) og Ásgrími Jónssyni (1876—
1958) til nútímans. Yngsti lista-
maðurinn sem á verk á sýningunni
er Georg Guðni Hauksson sem er
fæddur 1961.
LADA - umboðid kynnir:
Argeró 1990
lEICBd Staðgr.verö Atborganarverð
Lada 1200 Safír fólksbifreið 4ra gíra Uppseld Uppseld
Lada 1300 Safír fólksbifreið 4ra gíra kr. 372.760 kr. 384.289
Lada 1500 Lux fólksbifreið 4ra gíra Uppseld Uppseld
Lada 1600 Lux fólksbifreið 5 gíra kr. 456.819 kr. 470.947
Lada 1500 Station skutbifreið 4ra gíra kr. 421.648 kr. 434.689
Lada 1500 Station Lux skutbifreið 5 gíra kr. 459.267 kr. 473.471
Lada 1300 Samara fólksbifreið 4ra gíra, 3ja dyra kr. 422.640* Kr. 435.711
Lada 1500 Samara fólksbifreið 5 gíra, 3ja dyra kr. 474.219* kr. 488.886'
Lada 1300 Samara fólksbifreið 4ra gíra, 5 dyra, m. bónus Uppseld Uppseld
Lada 1500 Samara fólksbifreið 5 gíra, 5 dyra Uppseld Uppseld
Lada 1600 Sport jeppabifreið 4ra gíra m/léttstýri kr. 664.277 kr. 684.822
Lada 1600 Sport jeppabifreið 5 gíra m/léttstýri kr. 726.194 kr. 748.695
UAZ 2206 Bus frambyggður Rússi m/gluggum Uppseld Uppseld
Argeró 1989
Tegcnd Stiðgr.verð kllitgiaamrt
Lada 1200 Safír fólksbifreið 4ra gíra kr. 306.839 kr. 316.329
Lada 1300 Safír fólksbifreið 4ra gíra kr. 338.450 kr. 348.918
Lada 1500 Lux fólksbifreið 4ra gíra kr. 386.822 kr. 398.786
Lada 1600 Lux fólksbifreið 5 gíra Uppseld Uppseld
Lada 1500 Station skutbifreið 4ra gíra Uppseld Uppseld
Lada 1500 Station Lux skutbifreið 5 gíra Uppseld Uppseld
Lada 1300 Samara fólksbifreið 4ra gíra, 3ja dyra Uppseld Uppseld
Lada 1500 Samara fólksbifreið 5 gíra, 3ja dyra Uppseld Uppseld
Lada 1300 Samara fólksbifreið 4ra gíra, 5 dyra, m. bónus kr. 443.167 kr. 456.873
Lada 1500 Samara fólksbifreið 5 gíra, 5 dyra kr. 470.883 kr. 485.446
Lada 1600 Sport jeppabifreið 4ra gíra m/léttstýri Uppseld Uppseld
Lada 1600 Sport jeppabifreið 5 gíra m/léttstýri kr. 657.865 kr. 678.211
UAZ 2206 Bus frambyggður Rússi m/gluggum kr. 670.988 kr. 691.740
Verð eru gefin með fyrirvara. Háð breytingum. 27.10.89
* Metallic litir kr.11.000-.
Ofangreint verð er miðað við að bif reiðarnar séu
ryðvarðar og tilbúnar til skráningar.
Innifalin er einnig 6 ára ryðvarnarábyrgð samkvæmt
skilmálum ryðvarnarstöðvar.
(Fréttatilkynning-)