Morgunblaðið - 28.10.1989, Side 16

Morgunblaðið - 28.10.1989, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28.-OKTÓBER 1989 Pólland: Mazowiecki vill breyting- ar á Varsjárbandalaginu Varsjá. Reuter. TADEUSZ Mazowiecki, forsætisráðherra Póllands, krafðist í gær breyt- inga á Varsjárbandalaginu og Comecon, cfnahagsbandalagi Austur- Evrópuríkjanna. Kom þetta íram í veislu, sem hann hélt utanríkisráð- herrum Varsjárbandalagsríkjanna í Varsjá. í ræðu sinni lagði Mazowiecki áherslu á, að sérhvert Varsjárbanda- lagsríkjanna hefði rétt til að koma á nauðsynlegum umbótum og sagði, að þær væru forsenda friðar og sam- einaðrar Evrópu. „Um allan heim eiga sér stað miklar breytingar og að þeim verður ekki unnið nema með gagnkvæmri hreinskilni," sagði Mazowiecki á fyrra degi utanríkis- ráðherrafundarins. „Varsjárbanda- lagið getur ekki staðið utan við þessa þróun. Við megum ekki missa vonina um heim, sem er laus við hemaðar- bandalög; í framtíðinni verðum við að tryggja friðinn með gagnkvæmu öryggiskerfi." Mazowiecki sagði líka, að rót- tækra umbóta væri þörf innan Comecon en aðild að því eiga Aust- ur-Evrópuríkin sjö auk Víetnams, Kúbu og Mongólíu. Þá hefur komið fram, að Krzysztof Skubiszewski, utanríkisráðherra Póllands, hafi lagt til við Edúard Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, að endurskoðað mánaðarlega ef þörf krefur í samræmi við breytingar á gengi helstu gjaldmiðla. „Eg tel að þetta muni hafa í för með sér stór- aukið innstreymni erlends gjaldeyr- is sem mun hafna hjá bönkunum en ekki svarta markaðnum," sagði Valeríj Peksjev, aðstoðarbanka- stjóri Gosbank, í samtali við mál- gagn verkalýðssamtakanna, Trud. Sagði hann, að gengisfellingin væri örlítið skref í átt að alþjóðlegum tekin yrði upp réttgjaldeyrisskráning í ríkjunum og áætlunarbúskapur lagður af, hornsteinn hins kom- múníska hagkerfis. Utanríkisráðherra Varsjárbanda- lagsríkjanna vöruðu í gær við um- ræðum um endursameiningu Þýska- lands og sögðu, að það gæti haft alvarlegar afleiðingar að hrófla við landamærum Evrópuríkjanna eins og þau hafa verið frá stríðslokum. Reuter Gengi rúblu fellt til að bæta gjaldeyrisstöðuna Moskvu. Reuter. FYRIRHUGUÐ gengisfelling sovésku rúblunnar, sem skýrt var frá síðastliðinn miðvikudag, mun stórauka erlendan gjaldeyrisforða landsins, að sögn háttsetts bankamanns í Sovétríkjunum. Frá 1. nóvember nk. geta útlendingar fengið sex rúblur og 26 kópeka fyr- ir hvem Bandaríkjadollar eða tífalt hærra verð en nú. Nýja verðið á rúblunni verður gjaldmiðli. Vestur-þýskir lögreglumenn fjarlægja lík Maheshkumars Islania og _______________ Nivrutu, sex mánaða gamallar dóttur hans, úr bílnum. Hermdarverk IRA í Vestur-Þýskalandi: Lýsa morði á sex mánaða gömlu barni á hendur sér Dublin og Bonn. Rcuter. IRSKI lýðveldisherinn (IRA) viðurkenndi í gær að liðsmenn hryðju- verkasamtakanna hefðu myrt breskan hermann og sex mánaða gamla dóttur hans skammt frá bækistöð breska flughersins við Wildenrath í Vestur-Þýskalandi. Atburðurinn varð á fimmtudag og komust tilræðis- mennimir undan eftir að hafa skotið af vélbyssum á bíl hermannsins, Maheshkumars Islania. Eiginkona hans slapp ósærð. IRA sagði í yfirlýs- ingu sinni að hryðjuverkamennimir hefðu ekki tekið eftir barninu í bílnum og harmaði mistökin. Vestrænir sérfræðingar álíta að gengi rúblunnar sé alltof hátt skráð og segja raunhæft að átta til tíu rúblur fáist fyrir hvern dollara. Sovéskur almenningur á gnægð af rúblum en það hjálpar lítið í landi þar sem skortur er á hvers kyns nauðsynjavörum. Fólk notar því erlendan gjaldeyri, sem því tekst að klófesta, fremur til vörukaupa en að leggja féð í banka. „Það væri engin þörf fyrir árásir IRA í Vestur-Þýskalandi eða annars staðar væri breski herinn ekki á Norður-írlandi,“ sagði ennfremur í yfirlýsingu IRA sem birt var í Dubl- in. Islania var af indverskum ættum og fluttist til Bretlands frá Tanzaníu 1974. Hann var liðþjálfi í breska flughernum og hafði búið í Wildenr- ath í tvö ár. Sjónarvottar komu að eiginkonu hans, Smitu, eftir tilræðið þar sem hún sat með lík bamsins í fanginu. „Hún neitaði að láta það frá sér, sat með teppi yfir sér og þrýsti barninu sínu að sér. Þetta var skelfi- legt,“ sagði einn þeirra. Konan var flutt á sjúkrahús með taugaáfall. Yfirvöld settu upp vegatálmanir en morðingjamir em taldir hafa ekið í átt að hollensku landamæmnum. Undanfama 18 mánuði hefurírski lýðveldisherinn drepið átta manns og sært 50 í tilræðum gegn breskum hermönnum og skylduliði þeirra víðs vegar í Evrópu. í september skutu IRA-liðar þýska eiginkonu hermanns í breska setuliðinu í Vestur-Þýska- landi og olli morðið því að samtökin vom fordæmd um gjörvallt landið. Fyrr í vikunni sagðist vestur-þýska dómsmálaráðuneytið ætla að reyna að fá framselda þijá meinta IRA-liða frá Frakklandi og hugsanlega tvo fanga í írlandi vegna gruns um að mennirnir tengdust tilræðum í Vest- ur-Þýskalandi. Hans Engelhard dómsmálaráðherra lýsti í gær hryggð sinni vegna morðanna við Wildenrath og sagði ljóst að IRA-menn væm gengnir af göflunum í ofstæki sínu. Liðsmenn IRA era kaþólikkar og krefjast þeir, auk brottflutnings breska herliðsins frá Norður-írlandi, sameiningar héraðsins og írlands sem er að mestu kaþólskt. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁSGEIR SVERRISSON Afsögn Nigels Lawsons, ármálaráðherra Bretlands: Staða Margaret Thatcher að líkindum aldrei veikari STAÐA Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, hefúr að líkindum aldrei verið veikari bæði innan íhaldsflokksins breska og ríkisstjórnarinnar, að sögn breskra stjórnmálaskýrenda sem Morg- unblaðið ræddi við í gær. í Lundúnum er sú skoðun almenn að af- sögn Nigels Lawsons fjármálaráðherra á fimmtudag sé alvarlegasta áfall sem Thatcher hefúr orðið fyrir frá því Michael Heseltine varn- armálaráðherra sagði af sér árið 1986 er hann gekk af ríkisstjórnar- fundi eftir að hafa deilt hart við forsætisráðherrann um hvórt ríkis- stjórninni bæri að bjarga Westland-fyrirtækinu frá gjaldþroti. Þótt þau Thatcher og Lawson hafi þráfaldlega verið ósammála um efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar eru menn á einu máli um að afsögn Lawsons hafi komið breska forsætisráðherranum gjörsamlega í opna skjöldu. Lawson sagði af sér sökum ágreinings við efnahagsráðgjafa Thatcher, Sir Alan Walters, um tengsl sterlingspundsins við evr- ópska myntkerfið. Sagði Lawson í afsagnarbréfi sínu að hann gæti ekki gegnt embætti fjármálaráð- herra á meðan Sir Alan væri ráð- gjafi forsætisráðherrans. Segja stjórnmálaskýrendur að með þessu hafi Lawson í raun sett Thatcher úrslitakosti og kunni það að hafa verið mistök af hans hálfu, hafi hann á annað borð ætlað sér að halda ráðherraembættinu. John Major, fyrram utanríkisráðherra, tók við stöðu Lawsons á fimmtudag en Douglas Hurd, sem gegnt hefur stöðu innanríkisráðherra tók við utanríkisráðherraembættinu. Alan Walters sagði síðan einnig af sér á fimmtudag. Ösannfærandi forusta „Þetta er alvarjegt áfall fyrir Margaret Thatcher ekki síst sökum þess að mál þetta snýst um forystu- hlutverk hennar innan ríkisstjóm- arinnar. Svo virðist sem hún hafi fremur kosið að losa sig við fjár- málaráðherrann en efnahagsráð- gjafann, sem þykir mjög sérkenni- legt. Þingmenn breska íhalds- flokksins segja nú að hún hefði fyrir löngu átt að gera sér ljóst að þetta fyrirkomulag gengi ekki til lengdar og grípa til nauðsynlegra ráðstafana," sagði Robert Oakley, stjórnmálaritsjóri Lundúnablaðsins The Times í símaviðtali við Morg- unblaðið í gær. Hann sagði engan vafa leika á því að afsögn Lawsons myndi veikja stöðu Margaret Thatcher innan flokksins og ríkis- stjómarinnar. „Stjórnmálaástandið er nú þannig að Thatcher mun tæpast geta vikið nýju mönnum, þeim Hurd og Major, úr embættum sínum. Þetta þýðir að pólitískur styrkur þeirra verður mun meiri en forvera þeirra og þeir munu því geta staðið uppi í hárinu á forsætis- ráðherranum," sagði hann. „Enginn fjármálaráðherra hefur setið lengur en Lawson frá því fyr- ir stríð þannig að þetta er augljós- lega gífurlegt áfall," sagði Tony Bevins, stjórnmálaritstjóri The In- dependent í viðtali við Morgun- blaðið. Sagði hann að pólitískur styrkur Lawsons, sem tók við emb- ætti fjármálaráðherra árið 1983, hefði verið mikill og því væra bæði stjórnmálaskýrendur og þingmenn sammála um að þetta gæti reynst alvarlegasti stjómmálavandinn sem Thatcher hefði þurft að gh'ma við í tíu ára stjórnartíð sinni. Ríkisstjórnin veikari en áður Skoðanakannir sýna að íhalds- flokkurinn breski nýtur nú mun Reuter Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, hyllt á flokks- þingi breskra íhaldsmanna fyrr í þessum mánuði. Forsætisráð- herranum á hægri hönd er Nigel Lawson, sem sagði af sér emb- ætti fjármálaráðherra á fimmtudag. minna fylgis en Verkamannaflokk- urinn en Tony Bevins benti á að enn væri of snemmt að segja til um hvort mál þetta myndi á ein- hvem hátt breyta viðhorfi kjós- enda. „Ríkisstjómin er veikari en áður. En kosningar verða ekki fyrr en eftir tvö eða þijú ár og ákveðin móðursýki hefur gripið um sig. Við getum ekki á þessari stundu gert okkur fyllilega grein fyrir hveijar afleiðingarnar verða, sagði hann. Robert Oakley kvaðst telja óhjá- kvæmilegt að fylgi flokksins myndi minnka enn frekar. Thatcher myndi nú draga það í lengstu lög að boða til þingkosninga. „Fram til þessa hefur verið talið að hún boði til kosninga 1991 en lögum samkvæmt þarf hún ekki að gera það fyrr en sumarið 1992. Hún hefði viljað að kosið yrði eftir tvö ár en slær því líklega á frest ekki síst sökum erfiðleika í efnahagslíf- inu“. Viðmælendur Morgunblaðsins vora sammála um að frami John Major sem tók við af Lawson á fimmtudag hefði verið með ólíkind- um skjótur. Því hefur verið haldið fram að Thatcher hafi afráðið að helja hann til valda vegna þess að hann láti vel að stjórn en Major tók við embætti utanríkisráðherra í júlí er Thatcher gerði breytingar á ríkisstjórninni. Neil Kinnock, leið- togi Verkamannaflokksins, sagði á þingi á fimmtudagskvöld að fjár- málaráðherrann nýi hefði „tilhneig- ingu til að haga sér eins og kjöltu- rakki“ og haft hefur verið á orði að Thatcher hafi verið að reyna hollustu Majors er hún leiddi skoð- anir hans gjörsamlega hjá sér á leiðtogafundi ríkja breska sam- veldisins fyrr í vikunni. „Þetta er vitaskuld mikil upphefð fyrir Major og það er óvenjulegt að maður með svo litla reynslu gegni öðra valda- mesta embættinu innan ríkisstjórn- arinnar. Frami hans hefur verið með ólíkindum, hann varð utanrík- isráðherra í júlí og líkast til hefur enginn gegnt því embætti skemur í stjórnmálasögunni," sagði Robert Oakley. Líkumar á því að Major yrði næsti leiðtogi íhaldsflokksins hefðu vissulega aukist við upphefð þessa en almennt væri þó talið að þeir Kenneth Baker, formaður Ihaldsflokksins, og Michael Heselt- ine, einn helsti andstæðingur for- sætisráðherrans innan flokksins, ættu meiri möguleika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.